Morgunblaðið - 07.11.1999, Side 34

Morgunblaðið - 07.11.1999, Side 34
34 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ AFMÆLI RAGNHEIÐUR , BÖÐ V ARSDÓTTIR Aldarafmæli, 7. nóv- ember 1999. Frú Ragn- heiður Böðvarsdóttir organisti á hundrað ára afmæli í dag. Dótt- ir hinna kunnu sæmd- arhjóna á Laugarvatni, Laugardal, Ames- sýslu, frú Ingunnar Eyjólfsdóttur og Böðvars Magnússonar, hreppstjóra í áratugi. Undir sjötugt skrif- i aði hann ævisögu sína „Undir tindum" afar skemmtilega skrifuð, full af fróðleik um liðna tíð, einnig um ættir. Fyrst bjuggu þau hjón í Útey, frá 1900 til 1907. Þá fluttust þau hjón að Laugarvatni. Ragnheiður var elsta barn, næst Guðný Sigríður, dó viku gömul, þriðja bam Magnús, síðar bóndi í Miðdal - en síðar fæddust 10 syst- ur. Upp komust því 12 systkini af 13 börnum. Oft hefur þá verið glatt á hjalla í þessum stóra systkinahópi. Frú Ragnheiður ólst því upp á einum af fegurstu stöðum Suður- lands. Og mikið hefur verið sungið á heimilinu. Hún giftist Stefáni Dið- rikssyni og bjuggu þau á Minniborg í Grímsnesi allan sinn búskap. Hann var oddviti hreppsins. Ragnheiður á Borg, eins og hún var oftast kölluð, var rúmlega fer- tug, þegar við séra Ingólfur komum í Grímsnesið. Hún var þá búin að eignast öll sín níu böm, og mörg uppkomin. Hún var ungleg og skömleg kona, fríð og höfðingleg. Böðvar, elsti sonur þeirra hjóna, var þá orðinn skólastjóri við Ljósa- fossbamaskóla. Frú Ragnheiður var organisti við Stóru-Borgarkirkju, skammt frá Minni-Borg. Hún var framúrskar- andi tónviss og góður organisti og æfði líka stóran kirkjukór. Þar minnist ég líka fyrst frú Amheiðar, næstelstu systur hennar í kómum. Hún var gift Guðmundi Guðmunds- syni á Brú, bróður Tómasar Guð- mundssonar skálds. Áreiðanlega var tónlistin Ragnheiðar líf og yndi. Eg minnist hennar við kirkjuorg- elið, á íslenskum búningi, með mikla jarpa hárið, langar og fallegar flétt- ur, dökkbrýnd með gráblá augu. Alltaf kemur mér hún í hug á öllum ~stórhátíðum. Oft var hún fengin, til þess að leika á orgel t.d. við jarðar- ' farir, með kórinn sinn, utan Borgar- kirkjusóknar, á þeim ámm. En um áttrætt, sagðist hún ekki vilja, jafn- vel í ígripum, spila sálmalög við messu, því að hún gæti ekki verið alveg viss um að taka ekki „feil- nótu“. Þetta virtum við og skildum vel. Hún var tónlistarmaður að allri gerð og vandlát eftir því. Ragnheiður var snör í svörum og skemmtilega sagði hún frá. Þær systur vora skemmtilegar að kynn- ast, lét öll frásögn vel. Heimili þeirra voru mestu myndarheimili. Þessi grein um langa ævi, verður að vera stutt. Eins og nærri má geta, skiptast á skin og skúrir á hundrað ámm. Margt erfiði, en einnig sorgir, ekki síst í stómm fjölskyldum. Margir ástvinir og vinir kveðja. Eitt bam misstu þau hjónin ungt. Frú Ragnheiður hefur afkastað miklu ævistarfí. Lengi hafði hún póstafgreiðslu og síma. í það fór mikill tími, þótt símatími væri tak- markaður. A þeirri tíð varð að kalla í miðstöð, ef hringt var utan sveitar í síma. Þetta var mikið ónæðisstarf. T.d. ef einhvers var saknað í byl og ófærð. Og ætíð brást frú Ragnheið- ur vel við, að fylgjast með ferðum manna, ef svo stóð á, þótt það kost- aði næturvöku. Hún ól böm sín upp af festu og myndarskap. Þau era efnilegt prýðisfólk. Og ættfólkið er að jöfnu mjög söngvinnt. Ekki var hið mikla símastarf vel launað. Og eftirlaun lítil. Eitt af því starfí var að handskrifa öll heillaskeyti. Hefur það ekki verið lítið verk. Eg á mörg heillaskeyti með hinni fögra rithönd •Ragnheiðar á Borg. En líka jólakort frá þeim systrum, henni og Arnheiði. Og virðist falleg rithönd vera ættarfylgja. Oft hafði maðurinn minn orð á því hvað Ragn- heiður á Borg væri vel gefin og glæsileg kona. Allar vora þær systur miklar húsmæður og skemmtilegar við kynningu. Eftir langt ævistarf í sveitinni, fluttu þær elstu systurnar, Ragn- heiður og Amheiður, suður. Þær höfðu stórt og gott herbergi hvor, hlið við hlið á Hrafnistu í Reykjavík. Þær voru góðar og gestrisnar heim að sækja, þótt húsrúm væri minna en áður. Og fallegt var að sjá hvað þær nutu þess að vera þarna saman. Þær sýndu mér sína hæð, málverk og myndir. Frásögn skemmtileg. Lengi höfðu þær allgóða heilsu. Enn var frú Ragnheiður ótrúlega hress með skíra minni, þegar ég hitti hana síðast á þessu ári og við- tökur góðar. Hún sagðist þávera að gera sér til dægrastyttingar að skrifa upp kvæði, sem hún lærði í æsku. Mikil Guðsgjöf er það, að halda slíku minni á þessum háa aldri, einnig sjón, heyrn og hand- styrk. Þótt líkamskraftar og fætur væra farnir að bila. Kæra aldarafmælisbam, sendi þér þessar fáu línur með innilegu þakklæti fyrir sameiginlegt kirkju- starf í fjölmörg ár og góð kynni. Hamingju- og blessunaróskir tU þín og þinna afkomenda. Hundrað ára heiður þér, hjartans kveðju send frá mér. Lýsi þér Drottins Ijósa fjöld, leiði hann þig á nýrri öld. Kærleiks kveðja, Rósa B. Blöndals. Amma Ragnheiður verður 100 ára næstkomandi sunnudag 7., nóvem- ber. Hún nær með þessum áfanga tímamótum í lífinu, sem fáum hlotn- ast á sinni lífsgöngu. Ég var skírður í fimmtugsafmæli Ömmu og er hennar fyrsta bamabam. Flestum er ljóst að það er í raun mikið afrek að verða 100 ára. Marg- ir mundu segja að þetta væri í gen- unum, nú á öld erfðatækninnar, aðr- ir að stunda þyrfti heilbrigða lífs- hætti til þess að ná þessu marki. Þegar rætt er um heilbrigða lífs- hætti í þessu sambandi kemur margt upp í hugann. Nú er talið betra að fólk hreyfi sig mikið og stundi störf, sem haldi áhuga þeirra á viðfangsefnum og kröfum hver- dagslífsins vakandi. Já, menn skyldu gera vissar kröfur til um- hverfisins eins og sagt er. Ég er vantrúaður á að slík speki hafi verið útbreidd þegar amma var að vaxa úr grasi. Þá var ekki til ríkisrekið velferðarkerfi, sem aðstoðar og hleypur í skarðið ef eitthvað bjátar á. Þá vora ekki til lyf eða meðferð- arúrræði gegn mörgum hættuleg- um sjúkdómum. En fólk varð að lifa af og þá reynir á innri styrk mann- eskjunnar. En erfíðleikamir á lífs- ferlinum era margvíslegir. Spænska veikin geisaði og tók mörg líf, fyrri heimsstyrjöldina og kreppuárin þurfti að lifa af. Svo kom heims- styrjöldin síðari, en þá urðu breyt- ingar til batnaðar hér á landi. Við, sem yngri eram þekkjum þetta í raun einungis af afspurn og getum sennilega lítið sett okkur inn í þetta. Amma giftist Stefáni afa 1920 og þau fylgdust að uns hann dó 1957. Þau eignuðust 9 börn, misstu eina dóttur 1926 og ólu upp 1 fóst- urbarn ásamt hinum bömunum 8. Þetta er í raun mikið lífsverk við þær aðstæður sem þama vora til staðar. Ég fékk að fara í sveitina frá unga aldri og dvaldi um tíma hjá afa og ömmu á Minni-Borg í Grímsnesi. Þama fékk ég lítil verkefni, sem hæfðu aldri mínum eins og það að hreinsa túnin að moka flórinn og halda kindunum frá túninu. Ég fékk til þess dygga aðstoð fjárhunds sem hét því góða nafni Vaskur. Ég fór allmargar könnunarferðir á þeim áram einn míns liðs eða með Vaski. I gegnum landareignina rann lækur og var gaman að fylgja slóð hans allt fram að fossi, sem bærinn Foss er skírður eftir. Þá voru margir göngustígar í Minni-Borgarlandinu. Ég var þónokkuð spilltur af borgar- verunni og stundaði mikið fótbolta á túninu hjá ömmu og afa. Þó reyndi ég að færa mig á hærra plan öðru hvora og auka þátttöku mína í sveitastörfunum með því að læra að mjólka. Þetta mæltist vel fyrir hjá ömmu og varð hún þá jákvæðari gagnvart fótboltanum. Samkomu- lagið við ömmu var yfirleitt gott, en vissulega hafði maður á tilfinning- unni að hún vildi aðeins meira vinnuframlag. Þá man ég eftir því að við amma rifumst öðru hvoru um pólitík. Ég vildi ekki þiggja hug- myndir Framsóknarflokksins og skipta þeim út fyrir hugmyndir Sjálfstæðisflokksins. Amma var fylgjandi Framsóknarflokknum eins og margt sveitafólk í þá daga og mikill bóndi í sér og tók búskap- urinn hug hennar allan. Ég saknaði hins vegar að sjá ekki Moggann í sveitinni. Ekki man ég lengur hvernig þessi áhugi á sjómmálum tók í mér bólfestu, en hann er senni- lega hluti af því að öðlast meira sjálfstæði. Ég fékk tækifæri til að kynnast Stefáni afa og það var ánægjulegt. Hann bætti mér oft upp sjálfsálitið með því að rétta mér aur að lokinni sumarvinnu. Afi var duglegur og átti ég erfitt með að fylgja honum eftir og hef ég eflaust fundið til minnimáttarkenndar. Ég kynntist afa í raun mjög lítið því að ég var mjög ungur þegar hann féll frá. Bæði afi og amma vora virk í félags- málum sveitarinnar. Amma var org- anisti í Stóra-Borgarkirkju og afi meðhjálpari og forsöngvari þar í mörg ár. Einnig vora honum falin mörg trúnaðarstörf fyrir sveitina, m.a. var hann oddviti í mörg ár. Eftir að afi dó stundaði amma bú- skap á Minni-Borg um langa hríð. Það finnst mér sýna framsækni og hugrekki. Skömmu eftir lát afa brann gamli bærinn á Minni-Borg og missti hún flestar eigur sínur í brananum. Má nærri geta að þetta hafi verið henni mikið áfall. Amma þurfti því að byrja á því að byggja nýtt hús til þess að geta hafið bú- skap að nýju. Ég kom alloft að Minni-Borg eftir þetta og gat hlakkað til að hitta ömmu og lesa bækurnar frá bóka- safni lestrarfélagsins í sveitinni, fara í könnunarferðir til bæjanna í nágrenninu og jafnvel að komast á hestbak og að sjálfsögðu að sparka í boltann. Ég gerðist svo frægur að hendast af baki á fleygiferð, en hef ekki fundið til sérstaks skaða út af því óhappi. Amma þurfti aðstoð annarra til þess að halda búi áfram, og leigði þeim £ upphafi. Þessir leigjendur þrýstu oft á um að fá jörðina alla til sinna nota, en því var amma lengi vel andvíg. Svo fór þó að lokum að hún seldi jörðina dótt- urdóttur sinni Unni Halldórsdóttur. Amma fluttist til Reykjavíkur um síðir og þurfti að fá hjálp tímabund- ið vegna veikinda. Ég hafði keypt íbúð í Fossvogi um það leyti og flutti hún í íbúðina og leigði í upphafi en keypti síðar af mér. Mér þótti ágætt að hún skyldi geta notið verannar þar áður en hún flutti á Skjól, en þar hefur henni oftast liðið vel hjá góðu hjúkr- unarfólki í grennd við bækur sínar og aðra persónulega muni. Amma er afar bókhneigð og virt- ist hafa stálminni á marga hluti. Hún þekkti bæjarnöfn og ábúendur víða um landið og kom mörgum á óvart í þeim efnum, þegar ekið var með hana um sveitirnar. Hún átti mjög gott með að ræða um bókmenntaverk þannig að ljóst var að hún hafði í reynd kynnt sér innihald þeirra í víðtækasta skiln- ingi. Þetta mætti kalla að læra með hjartanu og er ólíkt þeim lærdómi sem oft viðgengst í grannskólum og framhaldsskólum og jafnvel há- skóla. Þá kunni hún margar vísur svo sem títt er um eldra fólk. Hún hefur ávallt fylgst vel með fréttum og hinu daglega og hefur því í reynd notið ellinnar með mun betri hætti en margir upplifa. Þetta er ánægjulegt fyrir hana, alla fjöl- skylduna og starfsfólk Skjóls. Eins og ég nefndi áður er það sérstakt afrek að verða 100 ára. Fjölmargar rannsóknir hafa verið gerðar á gömlu fólki, sem er mun yngra en hundrað ára. í flestum niðurstöðum var hægt að benda á það að mikil fylgni er á milli lífs- lengdar og þess að vera andlega virkur. Þeir sem ekki vora virkh’ með þeim hætti dóu mun fyrr. Full- yrt var að þeir, sem vora 100 ára hefðu ekki sloppið betur í gegnum lífið en aðrir. Þeir urðu jafnoft fyrir áföllum og öðram skakkaföllum í líf- inu. Kannski þeir kunni betur þann galdur að vinna úr uppákomum lífs- ins. Það er vissulega hinn mikilvæg- asti af þeim hæfileikum sem þarf til að lifa af. I hnotskum má eiginlega segja að það sé listin að lifa. Kæra amma, ég óska þér hjartan- lega til hamingju með 100 ára af- mælið og vona að þú verðir með okkur enn um hríð hress og jákvæð að vanda. Kveðja, Stefán Einarsson. Sá er sæll er sjálfur of á lof og vit meðan lifir: því að ill ráð hefur maður oft þegið annars brjóstum úr. Hávamál leita gjaman á hugann þegar eitthvað mikið liggur við. Nú þegar amma mín sæla stendur á svo merkum tímamótum að halda upp á 100 ára afmæli sitt með reisn fyllist maður auðmýkt og þakklæti. Þakk- læti fyrir að hafa fengið að njóta samvista við svo óviðjafnanlegan persónuleika sem amma hefur að geyma. Úr hennar brjósti fást að- eins góð ráð. I huganum hef ég samið um hana margar bækur og dreymir um að sjá þær allar gefnar út í viðhafnarútgáfu. En amma er hógvær að eðlisfari og telur sig ekki hafa átt það merkilega ævi að hún sé í frásögur færandi. Ég mun því ekki telja upp öll þín afrek i 100 ár í fátæklegri afmælisgrein, elsku amma. Minnisstæð era mér þó ávallt orð Olafs heitins Einarssonar, sagnfræðikennara míns í MT. Hann sagði að okkar bestu heimildir um liðna tíð væru afar okkar og ömmur sem hefðu lifað með þjóðinni á mestu umbrotatímum í sögu hennar á 20. öldinni. Seinna þegar ég las m.a. þjóðfræði við HI varð mér fyllilega Ijóst að amma hefði alla þá eiginleika sem ákjósanlegastir eru til að auðga sagnfræði og þjóðfræði okkar Islendinga. Hún hefur óbrigðult minni, er fjölfróð um menn og málefni, segir skemmti- lega frá og hefur sannarlega aldur og lífsreynslu til að miðla. Amma hefur verið mikilvirk í lífi og starfi fram á þennan dag. Hún fylgist grannt með þjóðmálum og hefur skoðanir á þeim, hún les mik- ið eins og hún hefur ávallt gert, hlustar á tónlist, enda organisti í 60 ár í sinni sveit og bókavörður í fjölda ára. Hún er heiðursfélagi ótal félagssamtaka og hefur getið sér orð á ótal sviðum mannlífsins, þótt ég geri það ekki að umræðuefni hér. Amma ólst upp í stóram systkina- hópi á Laugarvatni og á fjölda ætt- ingja og afkomenda sem hún hefur ávallt sinnt af mikilli ræktarsemi. Hún er ljóðelsk og talar kjarnyrta íslensku og hefur löngum þulið fyrir okkur barnabörn sín heilu Ijóða- bálkana og kann vissulega skil á höfundum þeirra. Amma hefur á sínu hundraðasta aldursári verið að handskrifa sín uppáhaldsljóð, sem hún lærði í bernsku og síðar á lífs- leiðinni. Þeim vill hún miðla til okk- ar afkomendanna, enda fáum við þau nú fjölfölduð á afmælisdegi hennar. Heimilisiðja ömmu hefur ávallt verið mikil. Hún hefur ekki aðeins séð okkur fyrir andlegri næringu úr nægtabranni visku sinnai- heldur hefur hún verið ótrú- lega afkastamikil pijónlistakona. Oll eigum við bamabömin, bama- bamabörnin og bamabarnabarna- bömin hennar handgerð listaverk frá henni, peysur, værðarvoðir, vettlinga, sokka og aðrar nauðsynj- ar til að hlýja okkur í vetrarhörkum íslenskrar veðráttu. Ótal listaverk hennar hafa farið víða, innlendis sem erlendis. Amma kallar list sína hjáverk en hún starfaði sem sím- stöðvarstjóri á Minni-Borg í Gríms- nesi, þar sem hún rak einnig ásamt afa, Stefáni Diðrikssyni, rausnar- legt sveitabýli og ól þar upp níu böm, hvert öðra gæfulegra. 100 ár era langur lífaldur þegar til þess er litið að bamadauði var mikill og farsóttir skæðari en nú tíðkast um hinn vestræna heim. Það er stórmerkilegt að halda fullri and- legri og líkamlegri reisn í svo hám elli. Ég innti ömmu eitt sinn eftir því hvað hún teldi helstu ástæðu síns háa aldurs. Hún rifjaði þá upp að hún hefði eitt sinn verið hætt komin, nær dauða en lífi. Amma taldi jafnvel að skapferli hennar hefði eitthvað með sitt langa líf að gera og ég trúi því, auk þess sem genin hljóta að vera afbragðsgóð í ömmu Ragnheiði. Amma hefur jafn- aðargeð, hefur lært að temja sig og hemja. Ég hef ekki heyrt hana hækka róminn, enda gefur hún sér tíma til að ræða við fólk og ber jafna virðingu fyrir öllum. Hún er ávallt ljúf og blíð, þótt hún sé langt frá því að vera skaplaus. Hún er f'ylgin sér og fer sínu fram með ljúfri ákveðni og „ekki að ræða það“ er gjaman viðkvæðið, ef reynt er að telja hana á annað en það sem hún hefur sjálf ákveðið. Hún hefur greinilega feng- ið gott veganesti frá samhentum foreldram sínum á Laugarvatni, þeim Ingunni Eyjólfsdóttur og Böðvari Magnússyni. Hún tjáði mér eitt sinn að það hefði verið einkum þrennt sem var alveg bannað á æskuheimili hennar og það hefði hinn stóri systkinahópur virt (ellefu systur og einn bróðir); að blóta, að tala illa um náungann, að fara í vígðu laugina. Amma gerði smáupp- reisn gegn föður sínum um tvítugt, réð sig í vinnu án hans samþykkis og kynntist stuttu síðar afa Stefáni, sem þá var kaupfélagsstjóri og kennari á Minni-Borg í Grímsnesi. Amma réð sig í fyrstu í vinnu til hans og „vann svo kauplaust hjá honum eftir það“, eins og hún komst sjálf að orði. Ég hef aldrei spurt ömmu út í samband þeirra afa en skildi það um daginn að þau hafa unnast heitt, þótt þau hafi þurft að basla og berjast fyrir lífínu eins og þorri þjóðarinnar gerði og gerir ennþá. Úm daginn ræddum við trú- mál og andatrú bar á góma. Amma lá listilega á skoðunum sínum en sagði að afi Stefán hefði verið „spír- itisti", hann ætlaði að bíða hennar og taka á móti henni hinum megin. Hún hafði hent að því gaman, spurt „þótt ég verði 100 ára“? Afi hafði játað því. Hann lést árið 1957, þannig að amma hefur verið ekkja alllengi. Hún er ekki gefin fyrir að ræða um sút og sorg, þótt á langri ævi hafi hún fengið sinn skerf og þá minnist hún helst kreppuáranna í því að vilja ekki rifja þau upp, „talar ekki út í þau“. Eðliskostir ömmu era óteljandi og ég gæti haldið endalaust áfram að lofa og þakka ömmu fyrir að vera til. Það era foiTéttindi að eiga svo dæmalaust yndislega ömmu. Ég hlakka ávallt til að hitta hana og fer alltaf rfkari af hennar fundi, inn- blásin lífskrafti og lífslöngun, orku sem hún ein getur gefið. Lífsorku sem er svo græðandi og göfug í senn, orku sem ömmu Ragnheiði er einni lagið að veita. Elsku amma, fyrirgefðu þessi fá- tæklegu orð á 100 ára afmæli þínu, þau era skrifuð í kapphlaupi við tímann. Vonandi auðnast mér kraft- ur og þor þegar fram líða stundir til að gera þér veglegri skil, nú er ég enn að nema við fótskör þína. Ég óska þér ótal góðra ævidaga til við- bótar. Það er íslendingum sannur heiður að hafa þig í stafni þegar þjóðarskútunni verður siglt inn í 21. öldina. Guðbjörg Guðmundsdóttir.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.