Morgunblaðið - 07.11.1999, Síða 38

Morgunblaðið - 07.11.1999, Síða 38
38 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 MORGUNBLAÐIÐ MINNINGAR + Elskuleg dóttir okkar, GUÐRÍÐUR (Gurrý) ÞÓRISDÓTTIR sálfræðingur, lést á sjúkarhúsi í LaPlata, Maryland, Banda- ríkjunum, miðvikudaginn 6. október. Minningarathöfn verður í Laugameskirkju þriðjudaginn 9. nóvember kl. 13.30. Jóhann Þórir Alfonsson, Margrét Vigfúsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlýhug vegna fráfalls eiginmanns míns, föður og afa, STEFÁNS JÓNSSONAR fyrrverandi verkstjóra frá Hólmavík, Lindargötu 66, Reykjavík. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki deildar A-4 á Sjúkrahúsi Reykjavíkur ásamt starfsfólki heimahlynningar Krabba- meinsfélagsins. Fjóla Guðmundsdóttir, Örn Stefánsson, Þórhildur Ýr Arnardóttir, Stefán Örn Arnarson, Alda Björk Arnardóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug við andlát og útför REYNIS EINARSSONAR, Droplaugarstöðum. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á Droplaugar- stöðum. Dröfn R. Hjaltalín, Örn Hjaltalín, María Hjaltalín, Dögg Hjaltalín, Andri Úlriksson, Agnes Hjaltalín Andradóttir, Freyja Kjartansdóttir, Karítas Ólafsdóttir. + Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og hlý- hug vegna fráfalls föður okkar, tengdaföður, afa og langafa, INGÓLFS SÍMONAR MATTHÍASSONAR, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Sérstakar þakkir færum við starfsfólki dvalar- heimilis aldraðra, Hraunbúðum, Vestmannaeyjum. Kolbrún Ingólfsdóttir, Ægir Rafn Ingólfsson, Ragna Margrét Norðdahl, Inga Dís Ingólfsdóttir, Pétur Sigurðsson, barnabörn og barnabarnabörn. + Hjartans þakkir færum við öllum þeim, sem sýndu okkur vináttu, hlýhug og samúð vegna fráfalls og útfarar sonar okkar, bróður og bama- bams, NIKULÁSAR INGA VIGNISSONAR. Sigurdís Ingimundardóttir, Vignir Jóhannsson, Hrafn Mar Sveinsson, Marsibil Brák Vignisdóttir, Baldur Snær Sveinsson, Erling Ormar Vignisson, Jóna Hjaltadóttir, Hjörtur Jóhann Vignisson, Vigdís Guðbjarnardóttir. PETREA ASTRUN JÓNSDÓTTIR SÍVERTSEN + Petrea Ástrún Jónsdóttir Sí- vertsen fæddist á Mælifelli í Skaga- firði 24. mars 1915 og lést á Sjúkrahúsi Reykjavíkur þann 27. október sl. For- eldrar hennar voru hjónin Jórunn Hannesdóttir frá Skíðastöðum og Jón Sigfússon frá Mæli- felli. Ástrún var elst fjögurra systkina, þeirra; Helgu Ingi- bjargar f. 1919, d. 1999, Sigfúsar f. 1930 og Her- disar Kolbrúnar f. 1933, d. 1992. Ástrún giftist 26. október 1941 fyrri manni sínum, Sveini Steindórssyni, garðyrkjubónda, f. 7. desember 1913, frá Efri- Steinsmýri í Meðallandi, d. 3. febrúar 1944. Barn þeirra var stúlka f. 19. febrúar 1942, dáin sama dag. Ástrún og Sveinn bjuggu að Álfafelli í Hveragerði. Eftirlifandi mað- ur Ástrúnar er Mar- teinn Sívertsen, húsasmíðameistari og kennari, f. 10. nóvember 1912. Þau giftust 16. maí 1948 og var heimili þeirra að Litlagerði 7, Reylqavík. Sonur Marteins er Grétar Sívertsen f. 1931, kona hans er Sigríður Guðbjartsdóttir og eiga þau 6 börn. Útför Ástrúnar fer fram frá Bústaðakirkju á morgun, mánu- daginn 8. nóvember, og hefst athöfnin klukkan 13.30. Pá eik í stormi hrynur háa, hamra því fjöllin skíra frá. En þegar fellur ljólan bláa fallið það enginn heyra ml En ilmur horfinn innir fyrst urta hvers byggðin hefur minnst. (Bjami Thorarensen) Á sama tíma og Sauðárkrókur skipti yfir í vetrarbúninginn, kvaddi Ásta okkur og hélt til nýrra heimkynna sem ég er viss um að eru skagfirsk á einhvern máta. Lát hennar var kannski ekki óvænt, því heilsan var orðin léleg og árin tæplega 85. En það er samt söknuður og maður upplifir að tengslin við gamla tímann og fróðleikurinn sem maður gekk að hjá henni er ekki lengur til staðar. Ásta var rétt um sjötugt þegar ég kom inn í fjölskylduna, hún var móðursystir Nonna mannsins míns og hún og Marteinn maður hennar hafa alltaf skipað sérstak- an sess í huga hans. Ásta var mjög falleg kona, lág- vaxin og einstaklega hlýleg og blíð og ég minnist þess ekki að hafa heyrt hana tala illa um nokkra manneskju. Hún var okkur mjög náin og það er gott að hugsa til þeirra ára sem við bjuggum í nágrenni við þau. Mér reyndist hún ákaflega vel, það var gaman og gott að koma til þeirra í Litlagerðið, í húsið sem Marteinn byggði sjálfur, og hlusta á frásagnir af langömmu og langafa barnanna minna og öðrum meðlim- um stórfjölskyldunnar á Sauðár- króki. Þó að Ásta hefði flutt frá Sauðár- króki fyrir rúmum 50 árum var Sauðárkrókur samt alltaf heima og ljóslifandi í huga hennar. Það er ekki langt síðan að ég sagði henni frá því að Óttar hefði verið að renna sér í Grænuklauf og hún Blómastofa Friðjtnns Suðurlandsbraut 10, 108 Reykjavík, sími 553 1099. Opið öll kvöld til kl. 22 - einnig um helgar. Skreytingar fyrir öll tilefni. Gjafavörur. minntist ferða sinna þar sem lítillar stelpu fyrir um 80 árum. Ásta hafði gaman af allri handa- vinnu og var tilbúin til að prófa nýj- ar aðferðir, t.d. fór hún fyrir ári að mála á Iéreft og útbjó m.a. dýrindis svuntu fyrir litla nöfnu sína, sem verður nú geymd í dýrgripaskúff- unni hennar. Mér eru ofarlega í huga myndir írá því að Ásta hélt lítilli nöfnu sinni undir skím fyrir rúmu ári, það var góður dagur og Ásta svo falleg og blíð eins og alltaf. Mér er líka minnisstæð heimsókn okkar Ástrúnar til hennar á Sjúkrahús Reykjavíkur nú í vor, við sátum frammi í setustofunni og spjölluðum saman og litla Ástrún skreið upp í fangið á henni og sofn- aði þar. Það var fallegt. En nú á kveðjustund er hugur minn hjá Marteini, hann hefur misst mest, því þau voru einstak- lega góðir félagar og gott til þess að vita að þau gátu dvalið saman til leiðarloka í Litlagerðinu. Ástu þakka ég samverustundir okkar og gleðst yfir að hafa kynnst henni. Jóhanna Halldórsdóttir. Það var um haustið árið 1941 að ég fór með Sveini bróður mínum norður í land, nánar tiltekið til Sauðárkróks. Tilefnið var að hann ætlaði að fara að festa ráð sitt og átti ég að vera til halds og trausts því ég var eini ættinginn sem hafði tök á að vera viðstödd. Það gerði ég með mikilli ánægju. Við ferðuðumst bæði á sjó og landi, ökutækið var lítill „skúffubfll“ sem svo var kallað- ur sem Sveinn átti og var því ferða- mátinn frjáls. Ég minnist þess hve Sveinn var skemmtilegur og gaman að vera með honum. Er við komum á Blönduós fengum við okkur að borða. Kjötbollurnar voru eitthvað erfiðar viðureignar og þá laumaði Sveinn út úr sér að þetta kæmi stundum fyrir, að þó ekki væri nema smá svuntuhorn eða eitthvað ámóta sem slæddist með í hakka- vélina, nema hvað okkur varð ekki meint af. Sveinn hafði unnið við jarðboran- ir um vorið og sumarið bæði á Akureyri og á Sauðárkróki og þar kynntist hann ljúfri og góðri stúlku, Ástrúnu, dóttur Jórunnar Hannes- dóttur og Jóns Sigfússonar. Þau voru gefin saman í Sauðárkróks- kirkju þann 26. október. Að lokinni vígsiu var síðan haldið heim og sest að veisluborði hjá þeim heiðurs- Öareb hpm v/ FossvogsUii'Ujugarð Símii 554 0500 hjónum Jórunni og Jóni. Dvaldi ég þar þrjár nætur hjá þessu góða fólki. Síðan lá leiðin aftur suður til Reykjavíkur í brauðstritið, en ungu hjónin komu eftir nokkra daga og fengu inni í sumarbústað sem frænka okkar, Ragnheiður Þorkels- dóttir, og hennar maður, Magnús Magnússon, áttu í Hveragerði og voru þar í nokkra mánuði eða þar til verið var að gera húsið þeirra íbúðarhæft að hluta. Sveinn vann að þessu mestmegnis sjálfur og með góðra manna hjálp. Hann var mjög hagur, enda kom það sér vel því efnin voru minni en engin, bjartsýnin í kílóavís og væntingarn- ar miklar. Að Álfafelli var framtíðin. En lukkan er hverful og lánið er valt. í febrúar árið 1943 eignast þau stúlkubarn sem ekki fékk að lifa nema í tvo sólarhringa og þarf ekki að lýsa þeirri sorg hjá foreldrunum. En þau báru sig hetjulega og horfðu fram á veginn. En það átti eftir að reyna betur á þolrifin henn- ar Ástu minnar, er sá atburður gerðist sem aldrei gleymist þeim sem hlut áttu að máli, er Sveinn fórst í brunanum á Hótel íslandi aðfaranótt 3. febrúar árið 1944. Mig langaði þennan dag að sameinast fjölskyldu minni fyrir austan sem fyrst. Kunningi okkar var staddur í Reykjavík og bauðst til að koma mér austur þennan dag. Þá var ill færð, flestir bílar komust ekki yfir heiðina. Við komum við í Skíðaskál- anum og tókum Halldóru systur mína með okkur sem þá vann þar. Brösuglega gekk ferðalagið en heim skilaði okkur Sigurður Guð- mundsson heilu og höldnu og átti hann alltaf miklar þakkir skildar fyrir greiðann. Var ég hjá Ástu þessa nótt. Daginn eftir kemur svo Jón faðir hennar suður og er með henni fram yfir jarðarför en fór hún síðan með honum norður og er þar fram á vor er hún kemur til Reykjavíkur og fer að vinna hin ýmsu störf, aðallega við sauma- skap. Ásta var af sterkum rótum runn- in. Hún var prúð og vel gefin, þar fór saman hugur og hönd, stálminnug, fór vel með allt sitt. Hún fór á Samvinnuskólann sem ung stúlka og naut þar staðgóðrar menntunar sem hún bjó að alla tíð. Tíminn líður, það fer að létta til í lífi Ástu, hún kynnist góðum manni, Marteini Sívertsen, húsasmíða- meistara og kennara, og þau gifta sig. Þau byrjuðu að búa vestur í Skjólum en framtíðarheimilið er reist að Litlagerði 7 og hafa þau bú- ið þar alla tíð síðan, utan eins árs er þau bjuggu í Svíþjóð. Þau áttu að- laðandi og gott heimili. Undanfarin ár hafa þau verið mjög tæp til heils- unnar og er Marteinn nú á Sjúkra- húsi Reykjavíkur. Bið ég Guð að leggja honum líkn með þraut. Það slitnaði aldrei tryggðarband- ið hjá okkur Ástu. Við höfðum alltaf samband af og til og fylgdumst með hvor annarri og var hún oft með okkur á stórum stundum eins og fermingum og stórafmælum. Nú er stutt stórra höggva á milli hjá ætt- mennum Ástrúnar. Systir hennar, Helga, er nýlátin, það var tæpur mánuður á milli þeirra og votta ég börnum Helgu og aðstandendum þeirra innilega samúð. Ásta mín, systkini mín biðja fyrir hinstu kveðju til þín og þakka liðna tíð. Gottersjúkumaðsofna, meðan sólin er aftamjóð, og mjallhvítir svanir syngja sorgblíð vögguljóð. Gott er sjúkum að sofa, meðan sólin í djúpinu er, og ef til vill dreymir þá eitthvað, sem enginn í vöku sár. (D.St.) Við kveðjum þig, Ásta mín, með virðingu og þökk fyrir góðu kynnin og biðjum Guð að geyma þig á ei- lífðarbraut. Öllum ættingjum og vinum Ástu sendum við innilega samúð. Guðríður Steindórsdóttir og fjölskylda.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.