Morgunblaðið - 07.11.1999, Qupperneq 39

Morgunblaðið - 07.11.1999, Qupperneq 39
MORGUNBLAÐIÐ SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 39*. MINNINGAR KRISTÍN ÞORBERGSDÓTTIR + Kristín fæddist 9. desember 1915 á Helgustöð- um í Fljótum, Skagafirði. Hún lést 26. okt. 1999 í Reykjavík. Móðir Sigríður Eiríksdótt- ir, f. 28. júní 1883 í Hólakoti, Fljótum, d. 18. jan. 1922 á Helgustöðum, Fijót- um. Faðir Þorberg- ur Arngrímsson f. 8. ágúst 1893 í Höfn, Fljótum, d. 15. ágúst 1971. Sig- ríður og Þorbergur áttu ekki samleið í lífinu. Sigríður hóf sambúð með Hjálmari Jónssyni bónda á Helgustöðum í Fljótum 1915. Hjálmar var ættaður frá Kiúkum í Eyjafirði, f. 8. septem- ber 1857, d. 8. febrúar 1922 í Tungu í Stíflu. Börn þeirra Sigríðar og Hjálmars, systkin Kristínar (hálfsystkin) eru; 1) Línberg f, 8. apríl 1917 á Helgustöðum, Fljótum. Maki er Sólveig Jóns- dóttir f. 5. september 1929 á Hólabrekku, Garði. Börn þeirra eru 3. 2) Sigríður (Sissa) f. 9. júní 1918 á Helgustöðum, Fljót- um. Maki er Sverrir Björnsson f. 14. jan. 1911, frá Viðvík, Skag. Börn þeirra eru 6. 3) Ás- valdur Kristján, f. 13.júní 1921 á Helgustöðum, Fljótum, bóndi á Deplum. Maki er Sigríður Sveinsdóttir, f. 8. maí 1931 í Brautarholti, Haganesi. Börn þeirra eru 7. 4) Vilhjálmur, f. 13. júní 1921, d. 5. júní 1992 í Reykjavík, starfaði við teppa- lagnir, maki Fjóla Björgvins- dóttir, f. 4. sept 1927, húsmóðir í Reykjavík. Þorbergur faðir Kristínar kvæntist Soffíu Gunnlaugsdótt- ur árið 1919. Soffía er f. 3. jan 1903 í Baldursheimi, Árnes- hreppi, Eyjafirði, d. 4. febr. 1986. Börn þeirra (hálfsystkin Kristínar) eru: 1. Val- gerður, f. 26. jan 1919 í Hvammi í Fljótum, Skagafirði, húsmóðir á Hjalteyri, d. 21. okt; 1987. M. Magnús Jón Árnason, f. 9. nóv 1910, Sauðá í Fljótum, d. 10. jan 1986. Börn þeirra eru 4. 2. Fjóla, f. 21. okt 1922, Lambanes- Reykjum í Fljótum, Skagafirði, húsmóðir Akureyri. M. Erling- ur Pálmason f. 4. ágúst 1925 á Hofi í Hörgárdal, yfirlögregluþjónn, d. 26. nóv 1997. Börn þeirra eru 3. 3. Ólafur Jónas, f. 30. júlí 1926, Grund í Arnarneshreppi, Eyja- firði, d. 28. jan. 1992, bflstjóri á Akureyri. M. Dýrleif Melstað Jónsdóttir, f. 11. okt 1919, Hall- gilsstöðum, Hörgárdal. Þau áttu 4 börn. 4. Sigurður, f. 22. ágúst 1929, Grund í Arnarneshreppi, búsettur á Akureyri. M. Ragna Aðalsteinsdóttir f. 29. mars 1926. Barnlaus 5. Sveinn f. 4. sept 1931, Eyrarbakka við Hjalteyri, fyrr- verandi bóndi. M. Ragna Péturs- dóttir, f. 3. jan. 1938, Hjalteyri. Börn þeirra eru tvö. 6. Ágústa, f. 21. júli 1936, Hofteigi, Arnarnes- hreppi, Eyjafirði. M. Hannes Pálmason, f. 31. des. 1929, Akur- eyri, múrarameistari. Börn þeirra eru (jögur. 7. Matthías, f. 10. aprfl 1940, Hofteigi, húsa- smiður og kaupmaður, Akureyri. M. 1 Baldrún Pálmadóttir, f. 19. mars 1943, d. 24. jan. 1968. Börn þeirra eru tvö. M2. Áslaug Gísla- dóttir, f. 29. nóv 1946, Hvera- gerði. Börn þeirra eru tvö. Maður Kristínar var Sveinn Vilhjálmur Pálsson, f. 15. ágúst 1903, d. 28. júlí 1992 í Reykjavík, frá Hvammi í Fljótum. Þau hófu búskap 1935, en fluttu að Sléttu 1943 og bjuggu þar til 1971 er þau fluttu til Reykjavíkur. Börn Sveins Vilhjálms Pálssonar og Kristínar Þorbergsdóttir frá Sléttu í Fljótum eru: 1. Ólafur Sveinsson, f. 7. júlí 1935, d. 18. mars 1994. Starfaði hjá Sjálfs- björgu, ókvæntur og barnlaus. 2. Asta Arndís Sveinsdóttir, f. 25. júlí 1942, starfsstúlka á dvalarheimilinu Dalbraut, M. Þórður Guðmundsson, f. 29. ágúst 1932, húsvörður. Barn Birgit Þórðardóttirj f. 28. janú- ar 1975. Sonur Ástu Sveinn Ingvar Hilmarsson, f. 26. nóv 1964. Sonur hans Krislján Ólaf- ur Ingvarsson, f. 3. des 1996. 3. Ingvar Páll Sveinsson, f. 2. aprfl 1944, bflstjóri. M. Sigurlína Árnadóttir, f. 23. jan. 1944. Barn 1 Árni Sveinn Pálsson, f. 3. mars 1972. M. Stefanía Dögg Hauksdóttir, f. 2. maí 1974. Barn þeirra Stella Karen Árna- dóttir, f. 11. sept 1995. Barn 2 Ómar Örn Pálsson, f. 5. des 1976. 4. Ástvaldur Bragi Sveins- son, f. 14. júní 1945, starfsmað- ur hjá Öryrkjabandalaginu. M. Birna Guðbjörg Eyþórsdóttir, f. 30. maí 1946 ( skilin). Barn 1 Kristín Ingveldur Bragadóttir f. 28. sept 1967. M. Þórarinn Val- geirsson f. 17. des. 1969, barn þeirra Valgeir Bragi Þórarins- son, f. 4. maí 1997. Dóttir Krist- ínar, Birna Sif Halldórsdóttir, f. 10. júlí 1986. Barn 2 Þóra Sædís Bragadóttir, f. 21. jan. 1970. M. Þórarinn Ingi Ulfarsson, f. 30. maí 1968. Börn þeirra Guðríður Eva Þórarinsdóttir, f. 21. sept 1988, Þráinn Þórarinsson, f. 30. júlí 1993, Andri Þórarinsson, f. 4. mars 1995. Barn 3 Aðalheið- ur Bragadóttir, f. 21. des. 1973. M. Sigurður Helgason f. 17. nóv 1973. Barn þeirra Una Sigurð- ardóttir, f. 9. júní 1999. Barn 4 Björn Bragi Bragason, f. 7. des 1978. 5. Karl Sveinsson, f. 3. júní 1947, leigubflsljóri. M. Eygló Björnsdóttir, f. 1. nóv. 1942. Barn þeirra Þóra Birna Karlsdóttir, f. 26. des. 1983. 6. Þorbergur Rúnar Sveinsson f. 11. júlí 1950, d. 12. júní 1997, starfaði hjá Sjálfsbjörg. Barn hans Ingólfur Þorbergsson, f. 4. júlí 1984. títför Kristínar fór fram 1. nóv. sl. frá Áskirkju. Hún Stína frá Sléttu er dáin. Við, sem komin erum á efri ár, fáum oft að heyra svipaðar setningar þegar vinir og ættingjar hverfa af sjónar- sviði þessa lífs. Hvort slík frétt kemur okkur á óvart tengist ekki aldri þess sem látinn er heldur fremur hvaða sess viðkomandi ein- staklingur skipar í vitund okkar. Dauðinn var svo fjarri þegar við vorum í návist hennar Stínu, sem ljómaði alltaf af vinsemd og lífs- gleði, þrátt fyrir að hún sjálf og hennar nánustu ættu við vanheilsu að stríða. I óljósri minningu bernsk- unnar birtist mér andlitið hennar Stínu glaðlegt og brosandi. Við átt- um það sameiginlegt að hafa misst mæður okkar og nú hafði okkur verið komið fyrir hjá lífsreyndum öldruðum hjónum, Ástríði og Am- grími á Gili, þau voru afi og amma hennar Stínu. Þau höfðu sjálf eign- ast 18 börn, þar af fimm sinnum tví- bura. Þessi stóri hópur eða það af honum sem lifði frumbernskuna var nú orðið fullorðið fólk og flogið úr Formáli minningar- greina ÆSKILEGT er að minningar- greinum fylgi á sérblaði upplýs- ingar um hvar og hvenær sá, sem fjallað er um, er fæddur, hvar og hvenær dáinn, um for- eldra hans, systkini, maka og börn, skólagöngu og störf og loks hvaðan útför hans fer fram. Ætlast er til að þessar upplýs- ingar komi aðeins fram í for- málanum, sem er feitletraður, en ekki í greinunum sjálfum. hreiðrinu, en hlutverki þessara gömlu hjóna var ekki lokið, nú tók við að líkna þeim sem orðið höfðu fyrir áföllum í lífinu. Mér fannst á þessum tíma að hún Stína vera systir mín, þótt við séum ekkert skyld. Hún var sjö árum eldri, sem hafði þann kost að hún var í senn systir og barnfóstra, sem verndaði mig fyrir hættum sem gátu orðið á vegi manneskju á mínu skeiði. Þar var fjóshaugurinn helsti ógnvaldurinn. Eg minnist að hafa Persónuleg, alhliða útfararþjónusta. Sverrir Olsen, Sverrir Einarsson, útfararsbóri útfararstjóri Útfararstofa ístands Suðurhlíð 35 ♦ Sími 581 3300 Allan sólarhringínn. www.utfararstofa.ehf.is/ naumlega sloppið í samskiptum við þetta mannvirki, sem gnæfði eins og eldfjall skammt frá hlaðvarpan- um sem var barnaleikvöllurinn á Gili. Á örlagastund birtist hún Stína og bjargaði mér jafnframt sem hún þreif mig frá hvirfli til ilja. Lagði LEGSTEINAR t Marmari íslensk framleiðsla Granít Vönduð vinna, gott verð Blágrýti Sendum myndalista Gabbró MOSAIK Líparít Hamarshöfði 4, 112 Reykjavík 1 sími 5871960, fax 5871986 1 hún mér lífsreglur um hvað bæri að varast fyrir snáða eins og mig. í þeirri upptalningu var bæjarlækur- inn, en hann var afar freistandi fyr- ir mína athafnaþrá. Hún Stína var fyrsti kennarinn minn, hjá henni lærði ég að þekkja stafina og var jafnvel farinn að fikta við að skrifa stafi. Arin liðu hratt, þá hófst nýr kafli í lífinu. Eg fluttist til föður míns og fósturmóður, sem þá höfðu hafið bú- skap í sveitinni. Nokkru síðar fór hún Stína að sjá fyrir sér sjálf. Eðli- lega vakti þessi unga glaðværa stúlka athygli strákanna í sveitinni. Hún mun ekki hafa verið orðin 19 ára þegar einn bræðra á næsta bæ við Gil hafði tryggt sér hana sem konuefni og þegar svo er komið tek- ur alvara lífsins við. Þegar þau Sveinn og Kristín hófu búskap var bústofninn lítill og afkoman rýr. Inn í gripu alvarleg veikindi Sveins og fjarvistir frá störfum þegar hann dvaldi á spítala. Eftir nokkra flutn- inga á milli staða festu þau rætur á Sléttu og hafa þau jafnan verið kennd við þann stað síðan. Bjuggu þar í 28 ár. Sveinn var heilsulaus frá unga aldri og eflaust hefðu honum hentað betur önnur störf en bú- skapur, um val á ævistarfi var ekki að ræða á þessum tíma, þar réði fremur tilviljun en sjálfsákvörðun hvaða störf buðust. Sveinn var ýms- um kostum búinn, eðlisgreindur, einstakt snyrtimenni, verklaginn og hagmæltur, þótt hann vildi lítt kannast við það sjálfur. Því var fáu haldið til haga af hans dægurflug- um, sem hann kallaði skáldskap sinn. Fjölskyldan stækkað með ár- unum sem gerði kröfur til foreldra. Þá var gott að eiga dugmikla og ráðagóða konu, ekki síst þegar fleiri úr fjölskyldunni áttu við veikindi að stríða og sjálf var hún Stína ekki hraust síðustu árin sem hún bjó í sveitinni. Þau fluttu til Reykjavíkur 1971, byrjuðu á að leigja litla íbúð í vesturbænum, en fengu síðar út- hlutað á vegum Reykjavíkurborgar leiguíbúð á Dalbraut 25, svokallaða hjónaíbúð. Þegar Sveinn lést fluttist Kristín í þjónustuíbúð á sama stað og var þar til dauðadags. Kristín tók virkan þátt í félagsstarfi í Fljót- um, var ein af stofnendum kvenfé- lagsins og var gerð að heiðursfélaga þess fyrir nokkrum árum. Hún var vandvirk og verklagin, þeir eru margir hlutirnir sem vitna um handbragð hennar. Flestir hafa þeir verið gefnir vinum og ættingjum. Handavinnan sem hún gerði var fjölbreytt, sem vitnai' um fjölhæfni og góðan smekk. Hún hefur áunnið sér virðingu og traust í lífmu hvar sem hún hefur komið við sögu og uppskeran er ævilöng vinátta. Hvað er meira virði í lífinu? Hún var ~ smekkleg í klæðaburði og virkaði prúðbúin í sínum hversdagsfötum. Fólkið á Dalbrautinni mun minnast hennar Stínu með söknuði. Við sem þekkjum best til vitum að líf hennar Stínu var ekki dans á rósum, en henni var ekki tamt að kvarta yfir sínu hlutskipti í lífinu. Hún rækti vel samband við ættingja sína. Flest árin eftir að hún flutti suður fór hún að heimsækja ættingja og vini í Fljótum og Eyjafirði og þegar heils- an leyfði ekki ferðalög var síminn notaður. Nú síðast liðið sumar fór hún norður og kom glöð og hress til baka og hafði frá mörgu skemmti- legu að segja sem gerðist í ferðinni. I sumarbústað okkar hjóna var hún Stína aufúsugestur sem og á heimili okkar. Sveinn var þar með í för meðan hann lifði. Það fylgdi henni Stínu ferskur andblær hvar sem hún fór, við finn- um fyrir þeirri tilfinningu nú þegar Stína er öll. Eg og mín fjölskylda sendum afkomendum og ættingjum hugheilar samúðarkveðjur með ósk um velfamað í lífínu. Við trúum því að hún Stína haldi áfram að miðla gleði sinni, nú á öðrum vettvangi. í Guðsfriði. ♦- Hjálmar Jónsson. t Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð, vináttu og hlýhug við andlát og útför ástkærs eigin- manns míns, föður okkar, fósturföður tengda- föður, afa og langafa, ÞÓRÐAR G. HALLDÓRSSONAR fyrrv. fasteignasala, Selvogsgrunni 22, Reykjavík. Stella Sæberg, Margrét Þórðardóttir, Sigríður Þórðardóttir, Sjöfn Þórðardóttir, Svala Þórðardóttir, Jóhanna S. Guðbjörnsdóttir, Kristján Kristjánsson, Árni Sæberg Kristjánsson, Guðmundur J. Hallbergsson, Björgvin Vilmundarson, Árni J. Sigurðsson, Gísli Sveinsson, Skúli Guðmundsson, Valgerður S. Jónsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. t Hugheilar þakkir til allra, er heiðruðu minningu eiginmanns míns, föður og afa okkar, EINARS HELGASONAR, bónda, Læk, Leirársveit. Sérstakar þakkir fær starfsfólk á deild 11-E, Landspítalanum, fyrir kærleiksríka umönnun og vinsemd í okkar garð. Vilborg Kristófersdóttir, Ásdís Einarsdóttir, Einar Örn og Vilhjálmur. t Við þökkum þeim sem sýndu okkur samúð og vináttu við andlát og útför föður okkar, LÁRUSAR H. BLÖNDALS og vottuðu minningu hans virðingu. Fyrir hönd tengdabarna og afkomenda, Halldór Blöndal, Haraldur Blöndal, Ragnhildur Blöndal.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.