Morgunblaðið - 07.11.1999, Qupperneq 64

Morgunblaðið - 07.11.1999, Qupperneq 64
M MORGUNBLAÐW, KRINGLAN1,103 REYKJAVIK, SÍMIS69II00, SÍMBRÉFS691181, PÓSTHÓLF3040, ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RITSTJmBLJS, AKUREYRI: KAUFVANGSSTRÆTI1 SUNNUDAGUR 7. NÓVEMBER 1999 VERÐ í LAUSASÖLU 150 KR. MEÐ VSK Inga Jóna Þórðardóttir um skýrslu erlendra ráðgjafa Ekki þörf á höfn í Eiðsvík ^jINGA Jóna Pórðardóttir, oddviti sjálfstæðismanna í borgarstjóm Reykjavíkur, fagnar niðurstöðu er- lendra ráðgjafa, sem fram kemur í tillögum að svæðisskipulagi fyrir höfuðborgarsvæðið, þess efnis að ekki sé þörf á höfn í Eiðsvík á Geld- inganesi, eins og gert er ráð fyrir í aðalskipulagi. Hún vill að Geldinga- nes verði þegar tekið formlega und- ir íbúðabyggð. Inga Jóna segir að niðurstaða er- lends sérfræðings, sem gerði úttekt á hafnamálum í borginni, sé sú að núverandi hafnarsvæði fullnægi þörfum næstu 50 ára. Þess vegna vill hún taka höfn í Eiðsvík út úr stópulagi og færa hafnarstæðið upp í Alfsnes í Kollafirði, „tU að fórna ekki Geldinganesinu". Hún segir mitóð grjótnám þegar hafa farið fram á Geldinganesi; búið sé að taka um eitt hundrað þúsund rúmmetra efnis þaðan, en leyfi sé fyrir því að taka allt að eina milljón rúmmetra og hún viU stöðva námið áður en það veldur óbætanlegum skaða. Ingibjörg Sólrún Gísladóttir borgarstjóri segir R-listann ekki vilja taka höfnina í Eiðsvík út af skipulagi „fyrr en við sjáum fyrir okkur að það sé óhætt“. Ekki hafi verið ákveðið hve mikið af Geld- inganesi fari undir atvinnustarfsemi og hve mikið undir íbúðabyggð. „Ef menn telja að ektó sé þörf á eins miklu atvinnusvæði á Geldinga- nesi og talað hefur verið um er auð- vitað sjálfsagt að auka pláss undir íbúðabyggð þar. Og ef menn komast að því eftir einhver ár að einhverjir aðrir möguleikar séu tU í hafnamál- um verður það mál bara endurskoð- að. En ektó að svo stöddu,“ sagði hún. ■ Oddvitar/IO Morgunblaðið/RAX Morgunblaðið/Ómar Til allra átta í vetrarbyrjun SAGT er að vegir liggi til allra átta og -^lhunduin virðist sem bflamir komi hvaðanæva að þegar þeir þjóta um slaufur sístækkandi vegakerfís höfuðborgarinnar. Umferðin gekk greiðlega á Kringlumýrar- brautinni þegar birta tók í mildu veðri, en samkvæmt gömlu íslensku tímatali hófst vetur í gær, 6. nóvember. í Snorra Eddu er fjallað um árstíðirnar Qórar, vetur, vor, sumar og haust og þar segir að haust verði að vetri „þegar sól sest í eyktarstað“. Sex snjó- flóð féllu úr Súða- víkurhlíð SEX snjóflóð féllu í Súðavíkurhlíð í vikunni. Að sögn starfsmanns Vegagerðarinnar á Isafirði voru tvö snjóflóðanna allstór og annað þeirra tveir metrar að þykkt. 6-8 metra fall er af veginum niður í sjó og má telja fullvíst að illa hefði farið hefðu bílar verið á ferð um það leyti sem snjóflóðin féllu. Jafnan er grjót í fyrstu snjóflóð- um sem falla á þessum slóðum á haustin. Algengt er snjóflóð falli í Súða- víkurhlíð í norðan- og norðaust- anáttum á um 3-4 km kafla. Þarna er að finna 22 gil og skorninga sem snjór safnast fyrir í og flóð falla úr. Myndin var tekin á föstudag er unnið var að því að opna veginn um Súðavíkurhlíð að nýju. Beið bana í slysi á Snæfells- nesi BÍLSTJÓRI lést er vöruflutn- ingabíll sem hann ók fór út af Utnesvegi rétt vestan vega- mótanna við Fróðárheiði, Breiðavíkurmegin. Vöruflutn- ingabíllinn var í fiskflutning- um og á leið til Reykjavíkur frá Ólafsvík. Bílstjórinn valdi að fara vestur fyrir Jökul vegna slæmra aðstæðna á Fróðárheiði. Slysið vai’ð milli kl. 6 og 7 í gærmorgun og er talið að veg- m* arkantur hafi gefið sig. í bíln- um voru 15-20 tonn af fiski. Bfllinn var vel útbúinn og ekki var hálka þar sem slysið varð, en beygjan þar þykir vara- söm. Svo virðist sem ökumað- urinn hafi misst bflinn út af í beygjunni er kanturinn gaf sig. Hátt fall er fram af vegin- ’ I um og lagðist húsið saman. Sjálfstæðisflokkurinn gagnrýndur á miðstjórnarfundi Framsóknarflokksins Ekkert rætt um dreifða eignar- aðild á eftirmarkaði í ríkisstjórn SJÁLFSTÆÐISFLOKKURINN var gagnrýnd- ur á mörgum sviðum í umræðum á miðstjómar- fundi Framsóknarflokksins í gær. Meðal annars var rætt um byggðamál, skattamál, fjölskyldumál og sölu á hlut rfldsins í FBA Finnur Ingólfsson, varaformaður flokksins, sagði að á vettvangi ríkis- stjómar hefði ekki verið rætt um dreifða eignar- aðild á eftirmarkaði og lagasetningu í því sam- bandi. „Sjálfstæðisflokknum hefur tekist að mynda samband milli flokksins og einstaklingsfrelsis en það er öfugmæli. Sjálfstæðisflokkurinn er ekki alltaf einstaklingsfrelsi fjöldans, heldur fárra að- ila. Því miður heldur þjóðin að sjálfstæðismenn séu aðalbaráttuafl einstaklingsfrelsisins," sagði Finnur Ingólfsson í pallborðsumræðum í gær- morgun. Umræður spmttu um hvers vegna staða Sjálfstæðisflokksins væri svo sterk á Islandi og hvort Framsóknarflokkurinn fengi að njóta sannmælis í stjómarsamstarfinu. Grundvallarmunur í fjölskyldu- og skattamálum Hjálmar Arnason þingmaður beindi þeirri spumingu til Finns í hverju málefnalegur munur Framsóknarflokksins og Sjálfstæðisflokksins fælist. Finnur sagði að sá munur birtist á mörg- um sviðum en ekki væri jafnvíst að kjósendur sæju þann mun jafnskýrt og ætla mætti. Gmnd- vallarmunur væri á stefnu flokkanna í veigamikl- um málum, eins og fjölskyldumálum og skatta- málum, og hann tók nokkur dæmi máli sínu til stuðnings. Finnur sagði að það hefði kostað mikla baráttu að koma bamakortunum inn í síð- asta stjórnarsáttmála. Sjálfstæðisflokkurinn hefði viljað að allar barnabætur væra ótekju- tengdar en framsóknarmenn vildu blandað kerfi. Forsætisráðherra sýndi dreifðri eignaraðild FBA lítinn áhuga Finnur sagði að sjálfstæðismenn vildu hverfa frá tekjuskattskerfinu að öllu leyti og byggja tekjur ríkissjóðs eingöngu á óbeinum sköttum. Þetta samræmdist ekki stefnu framsóknarmanna en þeir væra í raun og veru á móti því að lækka tekjuskattsprósentuna en vildu frekar gera lag- færingar á þeim þáttum skattkerfísins sem tengjast tekjujöfnuninni í samfélaginu. Finnur sagði ennfremur að sjálfstæðismenn hefðu á sín- um tíma verið á móti fjármagnstekjuskatti og hefðu komist upp með það meðan þeir voru í stjórn með Alþýðuflokknum. Hins vegar hefði Framsóknarflokkurinn náð að koma skattinum á þegar hann fór í stjóm. I framhaldi af tali sínu um stefnu flokkanna í skattamálum vék Finnur tali sínu að sölu Fjár- festingarbanka atvinnulífsins. Þar sagði hann að mikill áherslumunur hefði verið hjá flokkunum. „Þó að forsætisráðherra komi fram og segi að hann vilji hafa eignaraðild í bankanum dreifða og setja lög um það hefur ekkert verið minnst á það í ríkisstjóm. Það hefur ekkert verið talað um að setja lög um dreifða eignaraðild á eftirmarkaði. Forsætisráðherra taldi hins vegar rétt að skoða frumvarp Samfylkingarinnar í þessu máli vand- lega í efnahags- og viðskiptanefnd. Við höfum hins vegar lagt áherslu á það að ná fram dreifðri eignaraðild og baráttan stóð á milli flokkanna um hversu hátt hlutfall ætti að setja í útboðslýsing- una um sölu á 51% hlut ríkisins í bankanum á dögunum. Sjálfstæðisflokkurinn vildi að fyrst yrðu valdir þeir sem mættu bjóða. Skoða ætti fjárhag þeirra og aðrar mikilvægar upplýsingar. Þessu höfnuðum við Framsóknarmenn algjör- lega. Sjálfstæðisflokkurinn vfldi hafa 10% þak á hvað hver fjárfestir gæti keypt mitónn hlut í bankanum en Framsóknarflokkurinn vildi 5%, lendingin var síðan 6%.“
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.