Morgunblaðið - 13.02.2000, Side 1
37. TBL. 88. ÁRG.
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Ráðstefna UNCTAD
„Ríku þjóð-
irnar“
gagnrýndar
Bangkok. AP, AFP.
KOFI Annan, framkvæmdastjóri
Sameinuðu þjóðanna, gagnrýndi rík-
ustu þjóðir heims við opnun ráð-
stefnu á vegum samtakanna, UNCT-
AD, um viðskipti og þróun í heim-
inum, á laugardag.
Annan sagði í opnunarræðu sinni
að ríku þjóðirnar hefðu spillt fyrir
árangri í viðræðum aðildarríkja Al-
þjóðaviðskiptastofnunarinnar
(WTO) í Seattle á síðasta ári og að
þær héldu aftur af framförum í fá-
tækum ríkjum heimsins. Hann kvað
það vera á misskilningi byggt að við-
ræðurnar í Seattle hefðu farið út um
þúfur vegna mótmælaaðgerða. „Við-
ræðurnar stöðvuðust vegna þess að
ríkisstjómir, einkum stjómir ríku
landanna, gátu ekki komið sér sam-
an um forgangsatriði sín,“ sagði
Annan.
„Gefíð upp á nýtt“
Hann hvatti jafnframt til þess að
ríkjum heims yrði „gefið upp á nýtt“
og ávinningi hnattvæðingar yrði
þannig dreift út til fátækari ríkja.
„Getum við ekki reynt að fram-
kvæma á heimsvísu það sem öll þró-
uð ríki gera innanlands til að aðstoða
hémð sem eiga við efnahagslega örð-
ugleika að stríða?“
Ráðstefnan er haldin í Bangkok,
höfuðborg Taílands, og era fulltrúar
frá 190 ríkjum Sameinuðu þjóðanna
meðal þátttakenda.
AP
Kofí Annan flutti tölu við upphaf
ráðstefnu Sameinuðu þjóðanna 1
Bangkok á laugardag.
Aukin markaðs-
væðing húsnæðis-
kerfísms tímabær
10
AP
Fréttamynd ársins að dómi fréttastofunnar Associated Press var tekin í borginni Kukes í Albaníu og sýnir særð-
an kosovo-albanskan flóttamann. Höfundur hennar er Claus Bjorn Larsen, ljósmyndari Berlingske Tidende.
„Gullfiska-
súpa“
hneykslaði
Dani
Kaupmannahöfn. Reutcrs.
DANSKA lögreglan fjarlægði
einn af sýningargripum á
myndlistarsýningu í bænum
Kolding í sfðustu viku eftir að
kvörtun barst frá dýravernd-
unarsamtökum.
Sýningargripurinn, verk
listamannsins Marco Evaristti,
var gullfískur sem synti um í
matvinnsluvél. Kveikt var á
vélinni og gátu gestir sýning-
arinnar því breytt innihaldi
matvinnsluvélarinnar í „gull-
fiskasúpu" hefðu þeir á því
áhuga.
Það var si'ðan, eftir að hafa
leitað ráða hjá dýralækni í
bænum, að lögreglan ákvað að
fjarlægja gullfískinn, en sýn-
ingarstaðurinn hefur áður
valdið uppnámi með sýningu á
rotnandi svínsskrokkum.
Ný skýrsla eykur vonir um lausn afvopnunardeilumiar á Norður-Irlandi
Farið fram á frekari
skýring’ar af hálfu IRA
Bclfast, London. AP, Reuters, The Daily Telegraph.
LYÐVELDISSINNAR á Norður-
írlandi lýstu á laugardag sem tíma-
mótum nýrri skýrslu þar sem írski
lýðveldisherinn (IRA) lýsir sig reiðu-
búinn að hefja afvopnun. Forystu-
menn sambandssinna óskuðu á sama
tíma eftir því að þau fyrirheit sem
gefin eru í skýrslunni verði skýrð
nánar.
Skýrslan var birt á föstudag af
nefnd sem skipuð var til að sjá um af-
vopnun deiluaðila á Norður-írlandi,
aðeins tæpum tveimur klukkustund-
um eftir að Peter Mandelson, ráð-
herra í málefnum N-írlands í bresku
ríkisstjóminni, undirritaði skjal sem
leysti nýskipaða heimastjóm ótíma-
bundið frá störfum og færði völd
hennar aftur til Lundúna.
í skýrslunni segir að fulltrúi IRA
hafi íúllvissað meðlimi afvopnunar-
nefndarinnar um að IRA muni leita
leiða til að leggja niður vopn þegar
friðarsamkomulagið frá 1998, sem
kennt er við fóstudaginn langa, verði
að fullu komið til framkvæmda. Einn-
ig er gert að skilyrði fyrir afvopnun að
„orsakir ófriðarins" verði fjarlægðar.
Nefndin fagnar sáttaviðleitni IRA
og telur hún að raunhæfar líkur séu á
að samkomulag náist um lausn af-
vopnunardeilunnar svokölluðu. Deil-
an hefur staðið frá því í fyrrahaust og
hlaust af tregðu IRA við að láta af
hendi vopn sín eins og friðarsam-
komulagið gerir ráð fyrir.
Viija skýrari svör frá IRA
Sambandssinnar og bresk stjóm-
völd lýstu eftir skýrari svörum frá
írska lýðveldishemum um hvort og
hvenær liðsmenn hans hygðust hefja
afvopnun. Itrekuðu sambandssinnar
að yfirlýsingar Irska lýðveldishersins
væm ekki nóg og að þeir vildu sjá að
IRA sýndi viija sinn í verki.
David Trimbie, oddviti heima-
stjómarinnar og formaður stærsta
flokks sambandssinna, UUP, sagði á
fundi með fréttamönnum að farið yrði
ofan í saumana á skýrslunni en að
ekki væri að fullu ljóst hvað IRA ætti
við með yfirlýsingum sínum. Hann
sagði að IRA þyrfti að gera skýra
grein fyrir því hvort, hvenær og
hvemig afvopnun yrði framkvæmd til
að sættir næðust.
Peter Mandelson kvaðst fagna yfir-
lýsingum IRA en að skýrslan léti
mörgum spumingum ósvarað varð-
andi framkvæmd afvopnunar. „Við
verðum að fá skýra skuldbindingu af
hálfu IRA um afvopnun. Slika skuld-
bindingu höfum við ekki fengið enn,“
sagði Mandelson.
Lýðveldissinnar hafa sakað Mand-
elson um að hafa, með því að leysa
heimastjómina frá völdum, látið und-
an hótunum Trimbles um afsögn.
Ljóst er að ákvörðun breskra stjóm-
valda kom í veg fyrir að Trimble
þyrfti að segja af sér sem oddviti
heimastjómarinnar, líkt og hann
hafði heitið samflokksmönnum sínum
á síðasta ári ef svo færi að lýðveldis-
sinnar stæðu ekki við sinn hluta frið-
arsamkomulagsins.
■ Stendur á IRA/6
r---------------- i
Sumarhúsa-
eigendur
á Spáni
Alicante
um Madrid
fyrir aðeins
32.500kr*
Beint flug tdl Madrid
alla mánudaga
fiá 12. júní tfl 4. sept
*Innifálið: flug báðar leiðir og
flugvallarskattar.
www.icelandair.is
0/00
ICELANDAIR m
MORGUNBLAÐH) 13. FEBRÚAR 2000