Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 12
12 SUNNUDAGUR13. FEBRÚAR 2000
MORGUNBLAÐIÐ
-
ERLENT
Lausnarar
eða lodd-
arar?
Tólf ára tvíburar Johnny og Luther
Htoo náðu athygli heimsins þegar
skæruliðar í Her guðs tóku 800 manns
í gíslingu á sjúkrahúsi í bænum
Ratchaburi í Taílandi. Goðsögur sveipaðar
dulúð hafa lengi fylgt bræðrunum, en
hinum vestræna heimi reyndist engu að
síður erfítt að trúa því að leiðtogar hópsins
gætu verið svo ungir að árum
AP
Johnny Htoo sést hér fyrir miðju myndarinnar ásamt lífvörðum sínum og skæruliðum í Her guðs. Líkt og
myndin gefur til kynna eru skæruliðamir ungir að ámm og fæstir virðast þeir hafa náð tvítugsaldri.
Johnny og Luther Htoo ræða við fréttamenn AP-fréttastofunnar sem
heimsóttu þá í búðir Hers Guðs, Ka Mar Pa Law.
GÍSLATAKAN í Ratchaburi
hlaut athygli á heimsvísu,
en það var ekki hvað síst
Ijósmynd af Johnny og Luther sem
hafði hvað mest áhrif. Tólf ára
drengir, annar með kvenlega and-
litsdrætti og sítt hár og hinn með
líflaus augu og sígarettu í hönd.
Gátu þessi böm virkilega verið leið-
togar skæruliðahóps sem tryði því
staðfastlega að bræðumir byggju
yfir yfirskilvitlegum mætti sem
vemdaði þá og aðra fyrir byssukúl-
um?
Saga tvíburanna hófst 1997 og er
lítið vitað um þá fyrir þann tíma, ut-
an að þeir era af ættum Karena,
þjóðarbrots í Burma sem hefúr
barist fyrir sjálfstæði sínu síðan
1948. Árið 1997 höfðu hins vegar
margir af skæraliðum Karena flúið
árásir herstjórnar Burma. Á þess-
um tíma tók Johnny, sá kvenlegi,
að heyra raddir sem sögðu Karen-
um að iðrast gjörða sinna. Karenar
era kristinnar trúar, þó eldri þjóð-
sagnir með fyrri tíma frelsishetjum
blandist þar gjarnan saman við.
Nú, sagði Johnny, væri verið að
refsa Karenum fyrir syndir sínar.
Þeir yrðu nú að hætta að Ijúga,
stela, neita áfengis og drýgja hór.
Öldungar þorpsins sem Johnny bjó
í hlustuðu á drenginn með athygli
og margir voru reiðubúnir að leggj-
ast á bæn, ef það yrði sjálfstæðis-
baráttunni til góðs.
Leiddu árás á
burmískar herbúðir
Stuttu síðar sögðu raddirnar
Johnny að hann og Luther ættu að
leiða fimm sjálfboðaliða úr frelsis-
her Karena í árás á burmískar her-
búðir. Sú árás er nú orðin að goð-
sögn meðal Karena. Tvíburarnir
snera aftur með góðan feng vopna
og skotfæra. Aðeins var um litla út-
varðsstöð að ræða, en þetta sannaði
fyrir Karenum að sigur væri raun-
hæfur möguleiki.
Goðsögumar um Htoo-tvíburana
era margar og ber þeim ekki alltaf
saman. Faðir Agústínus, taílenskur
trúboði, sem er vel kunnugur þeim
bræðram, segir m.a. að 1997 hafi
bræðurnir hvatt þorpsbúa í byggð-
arlagi sínu til að halda kyrra fyrir
og beijast. „Um tíma voru þeir að-
eins sjö talsins, umkringdir burm-
ískum hermönnum," segir hann og
kveður bræðurna og fylgismenn
þeirra samt hafa náð að losa sig út
úr þeim ógöngum. „Sumir segja að
andaher hafa komið þeim til hjálp-
ar.“
Eftir velgengni í byrjun gengu
fleiri skæraliðar til liðs við tvíbur-
ana og leiddi það óneitanlega til
fleiri og stærri sigra á burmískum
hermönnum. Fljótlega klofnaði
herflokkur bræðranna þó frá frels-
isher Karena og tóku þeir að kalla
sig Her guðs. Um 200 ungir menn
af ættum Karena, flestir á tánings-
aldri, dvelja í búðum Htoo-tvíbur-
anna, Ka Mar Pa Law, sem eru
staðsettar uppi í fjallshlíð. Leiðin
er vörðuð jarðsprengjum og fáum
kunn, enda vill Her guðs forðast
ókunnuga og vera að mestu látinn í
friði.
Hörmungar stríðs
utan þeirra skilnings
Fáir hafa heimsótt búðirnar og
þegar fréttamenn AP sóttu búðim-
ar heim, fannst þeim hörmungar
stríðs vera utan skilnings þeirra
barna sem þar dvöldu. Tvíburarnir
meðhöndluðu byssur sínar líkt og
um leikföng væri að ræða og sögð-
ust hafa misst tölu á hve marga
Burmamenn þeir hefðu drepið.
Luther bætti við að hann hefði
aldrei grátið. „Af hverju ætti karl-
maður að gráta?“ spurði hann
fréttamenn.
Fylgismenn tvíburanna hlýða
ströngum reglum sem banna m.a.
neyslu svínakjöts, eggja og áfengis,
auk þess sem kynlíf er einnig á
bannlista. Þá er boðskapur þeirra
Luthers og Johnnys einkennileg
samblanda kristinnar trúar og
fornra goðsagna Karena sem segja
frá frelsuram sem koma þjóðinni til
aðstoðar á tímum erfiðleika. Á víg-
vellinum kveðst Johnny t.d. geta
kallað til aðstoðar 5.000 anda, en
báðir segja þeir siðferðisvitund
sína byggja á kristinni trú.
„Nokkrum þeim sem ekki trúðu
á tvíburana var refsað og þeir beðn-
ir um að fara,“ sagði faðir Ágústín-
us, sem telur að óskorað vald
bræðranna eigi rætur sínar í hæfni
þeirra til að segja fyrir um hættu
og eins hvernig þeirri taki á ágrein-
ingi manna á meðal. „Það er mjög
sérstakur hæfileiki," sagði hann.
Misjafnar viðtökur
meðal Karena
Sögur af Johnny og Luther hafa
borist víða og telja margir Karenar
í þorpum við landamæri Taílands
að drengirnir njóti sérstakrar
verndar gegn kúlnaregni og að það
sama eigi við um þá sem gangi við
hlið þeirra. Mýmargar sögur era til
af skæruliðum í Her guðs sem stigu
á jarðsprengjur sem ekki sprungu.
Ekki trúa þó allir Karenar á mátt
drengjanna og sumir, líkt og Avudh
Aree, segja þá venjulega drengi, á
meðan aðrir kveða þá lítið annað en
trúvillinga. „Þetta er enginn Her
guðs, þetta er Her Satans," sagði
Mary Ohn frá flóttamannanefnd
Karena. „Börn guðs ganga ekki
með byssur." Þá eru enn aðrir sem
segja drengina lítið annað en
strengjabrúður einhvers sem sé
þeim eldri og reyndari.
Lærisveinar Htoo-tvíburanna
era þó staðfastir í sinni trú og
margir sem þekkja vel sögu Kar-
ena segja ekki um blekkingu að
ræða.
Almennt era Karenar þó sam-
mála um að skæraliðar í Her guðs
séu agaðri og hugrakkari en al-
mennt gerist. Þeir leggist á bæn
fyrir hver átök og syngi sálma á leið
í bardaga. Þá telja flestir þeirra
sem búa í nágrenni við tvíburana að
þeir búi yfir yfirnáttúralegum
kröftum sem geri þeim kleift að
bjóða her Burma birginn og veita
Karenum möguleika á að öðlast
langþráð sjálfstæði.
Skaðleg áhrif á
tengsl við Taíland
Þjóðarher Karena hefur þó góða
og gilda ástæðu að vera óánægður
með Her guðs þar sem gíslatakan í
Ratchaburi hefur aukið þrýsting á
Karena að semja við herforingja-
stjórn Burma líkt og önnur þjóðar-
brot hafa gert. En eftir að Her guðs
tók yfir sjúkrahúsið í Taílandi hef-
ur samúð Taílendinga með Karen-
um minnkað til muna.
Þegar skæraliðarnir tíu úr Her
guðs laumuðust yfir landamærin og
tóku starfsfólk og sjúklinga sjúkra-
hússins í Ratchaburi gíslingu var
tilgangurinn að mótmæla nýtilkom-
inni samvinnu taílenskra og burm-
ískra hersveita.
Máttur bræðranna náði þó ekki
að vernda fylgismenn þeirra sem
allir féllu fyrir skotum taílenska
hersins. í kjölfarið hafa spurningar
vaknað um hvort sumir skærulið-
anna hafi hreinlega verið teknir af
lífi eftir að þeir gáfust upp. Nokkr-
um dögum síðar réðst burmíski
herinn síðan inn í búðir Hers guðs,
Ka Mar Pa Law, en Htoo-tvíbur-
arnir vora hvergi sjáanlegir. Sumir
segja þá hafa flúið inn í framskóg-
inn, á meðan aðrir benda á að móðir
þeirra dvelji í flóttamannabúðum í
Taílandi.
Hvort Her guðs á eftir að gera
burmískum hermönnum fleiri skrá-
veifur er ekki vitað, en Johnny og
Luther era ekki einu spámenn Kar-
ena í dag. Margir hafa ekki minni
trú á Thue Play, 13 ára dreng, sem
einnig hefur náð að safna um sig
sínum eigin skæraliðaher.
W
I
;
;
Hangkok, Jakarta. AP.
ABDURRAHMAN Wahid, forseti
Indónesíu, segir að afsagnar Wir-
antos hershöfðingja og öryggis-
málaráðherra stjórnarinnar sé að
vænta eftir helgi. Wiranto, sem er
sakaður um að bera ábyrgð á
mannréttindabrotum í Austur-Tim-
or, hefur hingað til neitað að segja
af sér þrátt fyrir tilmæli forsetans.
Skýrsla rannsóknarnefndar á
vegum Indónesíustjórnar, sem birt
var í lok janúar sl., sakar Wiránto
og 32 aðra foringja í hernum um
að hafa stutt vígasveitir á Austur-
Tímor sem myrtu og pyntuðu
hundrað aðskilnaðarsinna þar sl.
haust.
Ótti við valdaránstilraun
í framhaldi af ásökununum fór
Wahid fram á að Wiranto segði af
sér, en hann hefur hingað til neitað
Afsagnar Wirantos
að vænta á mánudag
og varið gerðir sinar á Austur-
Tímor. Tregða Wirantos til að
segja af sér hefur síðan ýtt undir
ótta um valdaránstilraun hersins
og varaði Wahid nokkra hershöfð-
ingja landsins við því að reyna að
steypa stjóminni. Wiranto hefur
haldið áfram að sitja ríkisstjórnar-
fundi þrátt fyrir tilmæli Wahids.
En í viðtali við dagblaðið Straits
Times sagði hann herinn ekki vera
í valdaránshugleiðingum. „Það
hvarflaði aldrei að mér að fremja
valdarán," var haft eftir Wiranto.
„Það má búast við afsögn hans á
mánudag," sagði Wahid og kvað
ástæðu þess að Wiranto hefði ekki
þegar sagt af sér þá að þeir hefðu
ekki hist, en forsetinn hefur und-
anfarið verið á ferðalagi að reyna
að auka áhuga erlendra fjárfesta á
Indónesíu. Hann sagði Wiranto
föðurlandsvin sem væri trúr þjóð
sinni. „Afsögn hans verður túlkuð
þannig að okkur sé alvara. Að það
sé því raunhæft að fjárfesta i Ind-
ónesíu.“
Njóti verndar gegn lögsókn
Aðstoðarmaður Wirantos neitaði
að tjá sig um orð Wahids, en búist
er við að hershöfðinginn samþykki
aðeins að segja af sér verði gert
samkomulag sem verndi hann
gegn lögsókn á sama tíma og völd
Wahids yfir indónesíska hernum
verði aukin. Forsetinn gaf nýlega í
skyn að hann kynni að náða Wir-
anto, yrði hann fundinn sekur um
mannréttindabrot, og kunna slík
skipti að treysta brothætt lýðræði
Indónesíu eftir áratuga herstjórn.
Lokauppgjör milli þeirra tveggja
virtist óumflýjanlegt, en undan-
farna daga hefur Wahid dregið úr
kröfum sínum, hrósað Wiranto og
sagt hann heiðarlegan hermann
sem hafi eitt sinn hindrað launráð
gegn sér.
Wahid tók við embætti í október
sl. og var þá fyrsti forseti Indónes-
íu í 44 ár sem kjörinn var í al-
mennum kosningum.