Morgunblaðið - 13.02.2000, Side 35
MORGUNBLAÐIÐ
SKOÐUN
SUNNUDAGUR 13. PEBRÚAR 2000 35 .
FRÉTTIR
Fundur um stjórnmál
Mið-Austurlanda
vafasamt að skili okkur viðunandi
arði. Ég fór um sum þessara svæða
með foreldrum mínum sem barn og
vonast til að geta farið þangað með
mín börn innan fárra ára. Það er
réttur allra íslendinga, óháður bú-
setu.
Norðmenn hafa komist að því, að
þeir gengu of langt með vatnsafls-
virkjanir sínar. í Morgunblaðinu 11.
október 1998 er haft eftir Erlend
Grimstad, pólitískum ráðgjafa orku-
og olíumálaráðherra Noregs, að það
hafi orðið hugarfarsbreyting hjá
Norðmönnum. Þar í landi vilja
menn ekki lengur virkja virkjan-
anna vegna, heldur verði að gæta
hófs og viðurkenna verðmæti nátt-
úrunnar. Áður voru virkjanir reistar
eins og pólitískir minnisvarðar, en
bæði Gro Harlem Brundtland fyrr-
verandi forstætisráðherra og Eivind
Reiten fyrrverandi olíu- og orku-
málaráðherra Noregs hafa viður-
kennt að of langt hafi verið gengið
og þegar hafi verið búið að eyði-
leggja of mikið af fallegum fossum.
Lærum af reynslu Norðmanna og
forðumst mistök þeirra. Við eigum
einnig ýmsa fleiri kosti eins og jarð-
hita, vindafl og sjávarföllin. Á
Reykjanesi einu eru lítið nýtt há-
hitasvæði með virkjanlega orku upp
á margar Fljótsdalsvirkjanir.
Aðrar leiðir til
að styrkja byggð
Ég þykist vita að stjómvöld bera
hag landsmanna fyrir brjósti þegar
þau vinna að áformum um virkjanir
og stóriðju. En fyrst að hægt er að
setja milljarðatugi í virkjanir, sem
samkvæmt útreikningum Lands-
virkjunar sýna ekki arðsemi upp á
nema 4 - 5 % má velta því fyrir sér
hvaða arðsemi væri hægt að fá út úr
ferðaþjónustu, ef hún fengi sömu
milljarðatugi til afnota. Hvað með
hugbúnaðariðnaðinn eða líftækni-
starfsemi? Líklegt er að allir þessir
þrír geirar gefi mun meira af sér
Fyrir 11 árum komst ég
að þeirri niðurstöðu,
segir Marind G. Njáls-
son, að raforkusala frá
Fljótsdalsvirkjun til
stóriðju borgar sig ekki.
fyrir mun minni pening. Fyrrver-
andi viðskiptaráðherra kynnti á síð-
asta ári hugmyndir um alþjóða við-
skiptastofnun á íslandi. Hvernig
væri að iðnaðarráðherra semji við
viðskiptaráðherra um að láta mið-
stöð þessarar stofnunar vera á
Austurlandi eða fara í samstarf við
viðskiptabankana um að opna útibú
verðbréfafyrirtækja sinna þar? Við-
skiptaráðherra stjórnar ennþá
meirihluta hlutafjár í Landsbanka
og Búnaðarbanka og það tekur
stuttan tíma og þarf ekkert um-
hverfismat til að opna slíka starf-
semi.
Óhófleg áhætta
Með álveri í Reyðarfirði á að
stofna til 250 starfa við álverið og
kannski annað eins í þjónustu við
það. Bera Austfirðir svona mikla
fjölgun starfa á stuttum tíma? Hvað
gerist ef Norsk Hydro dregur lapp-
irnar í þessu máli eins og Atlantsál-
hópurinn gerði á sínum tíma? Verð-
ur þá tap á Fljótsdalsvirkjun í fleiri
ár eins og Blönduvirkjun? Hver
borgar það tap aðrir en almennir
notendur? Landsvirkjun mun þegar
hafa lagt út 3 milljarða vegna undir-
búnings virkjunarinnar og hún muni
vilja þá peninga til baka. Var ekki
stofnað til þess kostnaðar vegna
væntanlegrar kísilmálmverksmiðju,
sem aldrei varð, eða var það vegna
álvers Atlantsáls-hópsins sem leist
ekkert á Austfirðina. Iðnaðarráð-
herra talar um að Landsvirkjun eigi
skaðabótakröfu á ríkið verði hætt
við Fljótsdalsvirkjun. Hvort er
væntur skaði meiri fyrir skattgreið-
endur eða raforkunotendur? Vel á
minnst: Lög um Landsvirkjun
meina fyrirtækinu að greiða raforku
til stóriðju niður með of háu verði til
almennings. Hvernig gengur það
upp ef virkjað verður vegna álvers
sem aldrei kemur eða verður lokað
eftir 15 ár eins og iðnaðarráðherra
hefur gefið í skyn?
Vöndum vinnubrögð
Alþingi hefur þegar samþykkt
þingályktunartillögu fyrrverandi
iðnaðarráðherra og þingmenn eru
búnir að missa af tækifærinu til að
krefja ráðherra og Landsvirkjun
um ítarlegri upplýsingar. Ég er
sammála formanni Framsóknar-
flokksins að skipulagsstjóri á ekki
að taka ákvörðun um hvort virkjað
verði eða ekki. Það er pólitísk
ákvörðun. En skipulagsstjóri hefur
faglega þekkingu til að tryggja að
allar nauðsynlegar upplýsingar um
umhverfisáhrif virkjunar og álvers
verði dregnar fram í dagsljósið. Gef-
ið honum tækifæri til að vinna sitt
verk og takið síðan pólitíska ákvörð-
un í framhaldi af því. Ef Norsk
Hydro gefst upp á biðinni, þá hefur
þegar komið fram að eigendur
Norðuráls eru tilbúnir til viðræðna.
Er það stefna núvemandi ríkis-
stjórnar að virkja hvað sem það
kostar? Austfirðingar vilja ekki
ölmusu úr höndum Bjarkar Guð-
mundsdóttur og félaga. Nei, það
skal setja hundruð milljarða í að
tryggja búsetu á svæði sem hefur
spjarað sig ágætlega til þessa. Mun
ódýrara væri að styrkja við bakið á
þeim fyrirtækjum, sem eru á staðn-
um, stuðla að uppbyggingu smáfyr-
irtækja og notfæra sér veðursæld
og útvistargildi svæðisins til að laða
þangað fleiri ferðamenn.
Höfundur er tölvunarfræðingur.
FÉLAG stjórnmálafræðinga heldur
hádegisfund um stjórnmál Mið-
Austurlanda og væntanlegar þing-
kosningar í íran, mánudaginn 14.
febrúar kl.12 í Norræna húsinu. Þar
ætlar dr. Magnús Þorkell Bem-
harðsson, sem gegnir nú stöðu Ass-
ociate Professor við Hofstra Uni-
versity í New York, að gera í stórum
dráttum grein fyrir uppbyggingu
stjórnkerfisins í íran og stjómmála-
þróun þar í landi á þeim tíma sem lið-
inn er frá byltingu heittrúarmanna
árið 1979.
Afstæðið og
GUNNAR Karlsson, sagnfræðing-
ur og prófessor við sagnfræðiskor
Háskóla íslands, heldur fyrirlestur
þriðjudaginn 15. febrúar í hádegis-
fundaröð Sagnfræðingafélags ís-
lands í Norræna húsinu sem hann
nefnir „Svar afstæðissinna við póst-
módernismanum“. Fundurinn hefst
kl. 12:05 í stóra sal Norræna húss-
ins og lýkur stundvíslega kl. 13.
Hann er öllum opinn og aðgangur
er ókeypis.
„Gunnar Karlsson er þjóðkunnur
fræðimaður og hefur unnið jöfnum
höndum að miðaldarannsóknum,
fjallað um nítjándu öldin út frá
ýmsum hliðum, skrifað kennslu-
bækur í sagnfræði fyrir grunn- og
framhaldsskóla og rætt um að-
ferðafræði sagnfræðinnar á ólíkum
vettvangi," segir í fréttatilkynn-
ingu. „Hann hefur meðal annars
tekið fyrir tengsl sagnfræði og
skáldskapar og kenndi námskeið
nýlega við Háskóla íslands um það
efni.
Magnús mun einnig fjalla um
hvaða breytinga megi vænta í kjölfar
komandi kosninga og hvort Khatami
forseti sé í sömu fótsporum og
Gorbatsjov á sínum tíma.
Magnús lauk nýlega doktorsprófi
frá sagnfræðideild Yale-háskóla.
Hann lauk BA-prófi í stjómmála-
fræði og guðfræði frá Háskóla Is-
lands 1990, MA í trúarbragðafræði
frá Yale Divinity School 1992, prófi í
arabísku frá háskóla í Damaskus,
Sýrlandi, og M.Phil.-prófi í sagn-
fræði frá Yale 1996.
sagnfræðin
Athygli skal vakin á að hlýða má
á fyrri fyrirlestra í fundaröðinni á
heimasíðu Sagnfræðingafélagsins
(www.akademia.is/saga) og einnig
má lesa þá í Kistunni, vefriti um
hugvísindi á slóðinni: www.hi.is/
—mattsam/Kistan. í Kistunni er
einnig að finna skoðanaskipti fyrir-
lesara og áhugasamra fundar-
manna.“
--------------
Rætt um
slökun og hvild
STYRKUR, samtök krabbameins-
sjúklinga og aðstandenda þeirra,
verður með opið hús mánudaginn 14.
febrúar kl. 20.30 að Skógarhlíð 8, 4.
hæð.
Dr. Eiríkur Örn Arnarson, yfir-
sálfræðingur á geðdeild Landspíta-
lans, flytur erindi um slökun og
hvíld. í frétt frá Styrk segir að allir
velunnarar félagsins séu velkomnir.
Spennið beltin
BMW 316
Að aka BMW 316 er engu líkt. Þessi tilfinning er afrakstur þrotlausrar vinnu
vísindamanna og færustu hönnuða sem hafa náð að tvinna saman vísindi
og ástríðu á einstakan hátt. Við bjóðum þér að komast á flug - í BMW 316.
BMW 316 kostar frá 2.380.000 kr.
Grjótháls 1 Engum líkur
sími 575 1210