Morgunblaðið - 13.02.2000, Page 57
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 13. FEBRÚAR 2000 57
k
FOLKI FRETTUM
Vér morðingjar er sýnt á Smíóaverkstæði Þjóðleikhússins
Frá dóttur
til móður
Kristbjörg Kjeld þekkir leikritið Vér morð-
ingjar sem nú er sýnt á Smíðaverkstæðinu
betur en margir því hún hefur leikið bæði
móðurina og dótturina 1 verkinu.
Kristbjörg
Kjeld hefur
starfað við Þjóð-
leikhúsið síðan hún lauk
námi við leiklistarskóla
hússins árið 1968. Hún
hefur að vonum kynnst
ótal persónum á ferlin-
um, nú síðast Lillian
Dale, móður Normu
Mclntyre í leikritinu Vér
morðingjar eftir Guð-
mund Kamban frá árinu
1927. Halldóra Björns-
dóttir fer með hlutverk
Normu í dag og Valdimar
Öm Flygenring leikur
eiginmanninn Emest
Mclntyre en fyrir rúm-
um þrjátíu árum stóðu
Kristbjörg og Gunnar
Eyjólfsson í þeirra spor-
um á Stóra sviðinu. Erl-
ingur Gíslason tók seinna
við af Gunnari.
Eðlileg þróun
„Já, ég býst við því að
það sé eðlileg þróun að
ég sé núna í hlutverki
móðurinnar þar sem ég
er orðin eldri, það er
gangur lífsins,“ segir
Kristbjörg brosandi.
„Líklega hefur leikstjór-
anum [Þórhalli Sigurðssyni] fundist
viðeigandi að ég kæmi aftur að
verkinu, þá hefur þetta farið í
hring.“
Það var árið 1968 sem Kristbjörg
og Gunnar tókust á í hlutverkum
Emests og Normu en þau glíma við
vanda í hjónabandi og hafa ólíka af-
stöðu til lífsins. Sýningin var vel
sótt og var farið með hana í leikför
um landið.
Ólík túlkun
leikkvenna
„Sýningin núna er að vissu leyti
frábmgðin þeirri sem sett var upp
fyrir rúmum þrjátíu árum eins og
gengur og gerist þegar nýtt fólk á í
hlut,“ segir Kristbjörg. „Verkið er
nokkuð tímalaust en fæst við eilífð-
arglímu hjónabandsins, átök á milli
hjópa og stenst því vel tímans tönn.“
Á æfíngum fyrir sýninguna fylgd-
Ljósmynd/Þjóðleikhúsið ^
Kristbjörg Kjeld og Gunnar Eyjdlfsson í hlutverkum Normu og Emest árið 1968.
lentínusardagurinn er
14. febrúar
Brjóstahöld í stærðum:
B-C-D-DD-E-F-FF-G
Verð kr. 4.485/4.685
Buxur í stíl.
Verð kr. 2.250/2.475
Laugavegi 40 ♦ sími 551 3577 ; j
Morgunblaðið/Jón Svavarsson
Kristbjörg í hlutverki Lillian Dale, móður
Normu.
ist Kristbjörg spennt með því
hvernig Halldóra nálgaðist Normu.
,Á æfingatímabilinu er stöðugt ver-
ið að leita og þreifa fyrir sér og það
var virkilega gaman að fylgjast með
því hvemig Halldóra náði tökum á
hlutverkinu.“
Kristbjörg segir það ekki hafa
hvarflað að sér fyrir þrjátíu ámm að
hún ætti eftir að standa í spomm
Guðbjargar Þorbjamardóttur sem
þá fór með hlutverk móðurinnar.
„Hún hljómaði nú svolítið í eyrum
mér þegar ég byrjaði að æfa,“ játar
Kristbjörg. „Það túlka náttúralega
engar tvær leikkonur sama hlut-
verkið eins. Halldóra nólgast
Normu í aðalatriðum á svipaðan
hátt og ég gerði en auðvitað em ein-
hverjar öðmvísi áherslur í túlkun
hennar en bæði hún og Valdimar
standa sig frábærlega í þessari sýn-
ingu,“ segir Kristbjörg að lokum.