Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 20

Morgunblaðið - 19.03.2000, Síða 20
20 B SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ í LÆKNiRINN - Eyrnaverkir eru oft ástæða þess að börn fara til læknis. Jón R. Kristinsson er barnaiæknirsemgeturgreint eymabólgur oglagt tilmeð- ferð. Hann er með stofu fyrir ofan Apótelöð á Rauðarárstíg ásam t öðrum barnalækni. Jón hefur starfaðþama síðan hann kom heim eftirnám íSvíþjóð árið 1983 ogsinnt bömum úrhverfinu ogreyndar hvaðanæva úr Reykjavík. MÁLVERKASALINN - Elínbjört Jónsdóttir kennari keypti list- munasöiuna GalleríFold árið 1992 ogflutti starfsemina, ásamt manni sínum, Tryggva Páli Friðrikssyni, í 500 fm rými á Rauðarárstíg árið 1994. „AUar leiðir Iiggja á Hlemm við Rauðarárstíg, bæði fyrir a1- menningsvagna og einkabíla,“ segir hún. GaileríFold er með 190 lista- menn á skrá hjá sér og þrennskonar starfsemi; almenna sölu málverka og listmuna, sýningarhald og uppboðs- hald. Sjálfstæði er að vera eigin herra, bæði gagnvart eig- in hvötum og öðrum mönnum. Sjálfstæður maður er sjálfráða, og getur því tekið ákvarðanir og hrint þeim í framkvæmd. Einnig hafa aðr- ir samráð við hann um hvað skuli gera. Hann lýtur ekki forræði ann- arra. Sjálfstæður maður þarf á hófsemi að halda til að ráða við tilfmningar sínar þannig að þær hlaupi ekki með hann í gönur. Hann þarf visku til að geta myndað sér eigin skoðanir og fært rök fyrir þeim og þekkingu til að taka árangursríkar ákvarðanir. Hann þarf svo hugrekki til að standa á sínu og til að þora að segja skoðun ' sína og fylgja ákvörðunum sínum eftir. Ósjálfstæður maður á hinn bóginn er sammála síðasta ræðumanni. Hann er áhrifagjam og leiðitamur. Vilji hans er á valdi annarra, og ef hann heyrir veikan óm innri raddar, fylgir hann ekki boðunum, því hann er verkfæri annarra. Sjálfstæður maður ræktar eigin- leika sína á ákveðnum sviðum og vill starfa við það. Hann skapar sér verkefni eða selur vinnukrafta sína til að öðlast fé til að lifa af. Hann get- v ur haft hæfileika tíl að stjóma hóteli eða heildsölu. Hann getur líka búið til eigin pizzur og selt gangandi veg- farendum. Hann getur verið blaða- eða blómasali. Höfuðatriðið er ein- hver vill borga fyrir vinnuafl hans og að hann geti í kjölfarið lifað mann- sæmandi lífí. Sjálfstæðið er þó óháð því hvort einstaklingurinn er með eigin rekst- BLAÐASALINN - Auðunn Gestsson blaðasali er ávallt fyrstur í bæinn með DV. Hann kemur íprentsmiðjuna áður en blaðið erprentað og bíður eftir fyrstu eintökunum, sem hann tekur og brunar með niður á Hlemm við Rauðarárstíg og hefur söluna. Hér er hann í söluturninum Svarta svaninum á stígnum með nýjustu fréttirá vörunum. Auðunn er heimamaður á stígnum. „Égseldi hér Vísiáðuren hús var byggt á Hlemmi,“ segir hann, „þá varhéma smáskýli. Ég byrjaði svo að selja DVhérna árið 1991 og sel stundum um 60 blöð á dag. Ég sel best á þriðjudögum, fímmtudögum og laugardagsmorgnum. “Auðunn nýt- ur trausts á Hlemmi og fær að hita sér te í einni kompunni sem hann er með lykil að. „Það er gott fólk hérna, “ segir Auðunn, sem varð sextugur árið 1998. ur eða er launþegi. Ef manneskjan getur gert það sem hún hefur áhuga á að gera með tilliti til aðstæðna og hæfileika, þá getur hún verið sjálf- stæð. Aftur á móti hallar undir fæti verði hún atvinnulaus. Pá bregst sá þáttur að geta aflað út á hæfileika sína og starfskrafta. Sjálfstæðið býð- ur tímabundinn hnekki. Ytri aðstæð- ur hindra einstaklinginn og þótt hann reyni að vernda sjálfstæðið sem býr í brjóstinu, veit enginn hver skaðinn verður. í atvinnuleysi fækk- ar möguleikum hans til að standa á eigin fótum og erfiðara verður að vera sjálfs sín herra. Árlega era um 9.000 og 10.000 ein- staklingar skráðir atvinnulausir í Reykjavíkurborg, í lengri eða skemmri tíma. A landinu öllu er at- vinnuleysi u.þ.b. 2%. Á Rauðarárstíg býr eflaust einhver atvinnulaus, og einhverjir af þeim sem nú starfa þar hafa verið atvinnulausir. Það getur hent alla. Einnig að ytri aðstæður svipti þá vinnustaðnum, eins og þeg- ar verksmiðjan ísaga við austan- verðan Rauðarárstíg sprakk í loft upp með látum í byrjun sjöunda ára- tugarins, en þar var acetylen-gas sem notað var til logsuðu, framleitt. Rauðarárstígur gegndi reyndar hlutverki í horfinni gasmenningu ís- lendinga, því þar sem lögreglustöðin stendur nú, var gamla gasstöðin. Enn er þar íbúðarhús sem henni til- heyrði. Rauðarárstígur heitir eftir jörð- inni Rauðará, sem byggð var úr landi (Reykja)V£kur skömmu eftir landnám Ingólfs, af sjálfstæðu fólki sem braust undan oki Noregskon- ungs. Nafnið er sagt vísa í mýrar- rauða.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.