Morgunblaðið - 19.03.2000, Blaðsíða 31
MORGUNBLAÐIÐ
DÆGURTONLIST
SUNNUDAGUR 19. MARS 2000 B 31
Archer aftur í sviðsljósið
London. Morgunblaðið.
Fréttir á Netinu
—ALLTAf= £!TTH\SA£> NÝTT
Sveitarstjórnarkosningar í Englandi
Ihaldsmenn með
fylgisforskot
JEFFREY Archer, sem í nóvem-
ber varð að hætta við borgarstjóra-
framboð í London og var vikið úr
Ihaldsflokknum, hefur ákveðið að
stíga aftur inn á sviðið, reyndar
ekki það pólitíska, heldur ætlar
hann að leika aðalhlutverkið í leik-
riti sínu; Hinn ákærði.
Jeffrey Archer kom aftur í sviðs-
ljósið á dögunum eftir þriggja mán-
aða hlé. Hann segist hafa farið að
skrifa leikritið út úr tómum leiðind-
um; hann hafi verið búinn að fá al-
veg nóg, verið langt niðri og eina
lækningin hafi verið að koma sér að
einhverju verki, sem tældi hugann
frá niðurlægingunni. Jeffrey Archer
er svo sem enginn nýgi’æðingur
með stílvopnið, hann hefur skrifað
leikrit, smásögur og skáldsögur og
orðið metsöluhöfundur fyrir vikið.
Nýja leikritið hans fjallar um
lækni, sem er ákærður fyrir að
myrða eiginkonu sína með eitri. En
það verða áhorfendur, sem ákveða
endinn, því í lokin eiga þeir að
kveða upp úr um sekt læknisins eða
sýknu. Archer ætlar að leika lækn-
inn sjálfur, en hann lék á skólaár-
um sínum og er félagi í Leikarafé-
laginu. Mestallt leikritið stendur
hann í vitnastúkunni. í þeim spor-
um stóð hann síðast 1987, þegar
hann vann meiðyrðamálið, sem
hann höfðaði gegn Daily Star. Sá
sigur varð þó upphafið að pólitísku
falli hans, þegar í ljós kom, að hann
hafði beðið vin sinn að bera ljúg-
vitni fyrir sig.
Jeffrey Archer segir, að hann
hafi brugðizt öðrum og sjálfur kall-
að smánina yfir sig. Honum hafi
enda verið refsað fyrir það.
Archer hefur áður hrokkið fyrir
borð, en alltaf skotið upp kollinum
aftur. Það má þó telja víst, að þeir
sem ráku á eftir honum út af póli-
tíska sviðinu nú síðast, hafa ekki átt
von á honum aftur í sviðsljósið svi^l
fljótt og alls ekki með þessum
hætti.
London. Morgunblaðið.
í FYRSTA sinn síðan 1992 standa
íhaldsmenn betur að vígi en Verka-
mannaflokkurinn í sveitarstjórnar-
kosningum samkvæmt könnun sem
The Sunday Times hefur birt. Síðan í
september sl. hafa 92.000 kjósendur
gengið að kjörborðinu í 60 sveitar-
stjórnarkosningum og hafa íhalds-
menn fengið 36% atkvæðanna en
Verkamannafiokkurinn 35%.
I sveitarstjórnarkosningum í maí
á síðasta ári fékk Verkamannaflokk-
urinn 37% atkvæða en íhaldsflokk-
urinn 34%, í sveitarstjórnarkosning-
um 1998 fékk íhaldsflokkurinn 33%
atkvæða en Verkamannaflokkurinn
38%. í þingkosningunum 1997 fékk
Verkamannaflokkurinn 44% at-
kvæða en íhaldsflokkurinn 31%.
Þrátt fyiir stöðugar vinsældii’ rík-
isstjórnarinnar, hefur forysta
Verkamannaflokksins sætt vaxandi
gagnrýni fyrir stjórnsemi gagnvart
flokksmönnum á sveitarstjómarstig-
inu. Afskiptasemi af borgarstjómar-
kosningunum í London hefur lagst
illa í fólk og spá menn því að sér-
framboð Ken Livingstone, þing-
manns flokksins, muni auka á erfið-
leika flokksins í sveitarstjórnar-
kosningunum 4. maí nk.
Lokið
knæpun-
um eða...
Nairobi. Reuters
HÓPUR kvenna stormaði inn
á lögreglustöð í Kandara í
Kenýa í vikunni og krafðist
þess að lögregluþjónar á
staðnum lokuðu annaðhvort
ólöglegum knæpum, eða nytu
með þeim ásta.
Dagblaðið People greindi
frá því að konurnar hefðu
lamað allt atvinnulíf í bænum
með mótmælum sínum gegn
óhóflegri drykkju karlanna.
„Karlar okkar hafa breyst í
grænmeti. Þeir fara snemma
að heiman á morgnana og
koma heim drukknir. Enginn
þeirra sinnir kynferðislegum
þörfum okkar kvennanna,"
hafði People eftir einni úr
hópnum.
Dagblaðið greindi þó ekki
frá því hvernig lögreglan
brást við kröfum kvennanna
um ástaratlot, nýja eigin-
menn, eða lokun knæpanna.
En konurnar halda því fast
fram að fólksfjöldi í bænum
sé í rénun vegna þessa.
>á fyrsti farinn
Við drögum út glæsilegan Toyota bíl í hverri viku!
Heppinn þátttakandi vann
þennan frábæra Toyota
Avensis í fyrsta útdrætti
Ekki missa af bíl í næstu viku
Eitt sfmtal - og þú getur
unnið bíl
SímaLottó DAS Hringdu núna! 907 2000