Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 2
2 C ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000
MORGUNBLAÐIÐ
Sumarhús á Arnarstapa
Þetta sumarhús á Arnarstapa er til sölu hjá Bifröst. Húsið heitir þvf
skemmtilega nafni Snæfellsás og er í sumarhúsabyggð við þorpið. Ásett
verð er 5 millj. kr.
Áhugi á sumarhúsum er gjarnan
mestur síðla vetrar og fram á vor.
Hjá fasteignasölunni Bifröst er nú í
einkasölu sumarhús á Amarstapa á
Snæfellsnesi. Um er að ræða timbur-
hús, byggt árið 1990, og er það um 50
fermetrar að stærð.
„Húsið á að seljast með öllu innbúi
sem í því er,“ sagði Pálmi B. Almar-
sson hjá Bifröst. „Húsið er í skipu-
lagðri sumarhúsabyggð sem er vest-
anvert við þorpið og heitir það
Snæfellsás.
Þetta er fallegt hús og stendur á
mjög skemmtilegum stað, sunnar-
lega í sumarhúsabyggðinni, ekki
langt frá sjónum. Um er að ræða
heilsárshús sem stendur á 2.000 fer-
metra lóð og er leiga á ári um 15 þús-
und krónur.
I húsinu eru samkvæmt teikningu
þrjú herbergi en í raun er bústaður-
inn með einu stóru svefnherbergi en
auðvelt er að breyta því til samræmis
við teikningu. Húsið er kynt með raf-
magni og rennandi vatn er þar allan
ársins hring. Skemmtileg verönd er
við húsið og mikill gróður allt í kring.
Stutt er í alls kyns þjónustu og mikla
náttúrufegurð og ferðamannaslóðir
ef vill. Það tekur um 21/2 tíma að aka
frá Reykjavík að Arnarstapa. Ásett
verð er um 5 millj. kr.“
Morgunblaðið/Golli
Afgreiðsluferill íbúðalána
Markadurinn
Nú eru liðnir sjö mánuðir frá því afgreiðslu-
ferli íbúðalána Ibúðalánasjóðs var breytt.
Hallur Magnússon, yfírmaður gæða- og
markaðsmála Ibúðalánasjóðs segir góða
reynslu af breytingunum.
NÝ greiðslumatsskýrsla hefur ver-
ið gerð skýrari og einfaldari í
vinnslu hjá bönkum og sparisjóðum
og vinnslutími greiðslumats í banka-
kerfinu styst verulega. Þá hefur með-
alafgreiðslutími lánsumsókna innan
íbúðalánasjóðs styst úr tæpum
tveimur vikum niður í eina viku.
Oft á tlðum hefur meðalafgreiðslu-
tíminn verið enn styttri, jafnvel 4-5
dagar. Fyrir þá sem nú huga að
íbúðakaupum er vert að rifja upp
hvemig afgreiðsluferli íbúðalána
íbúðalánasjóðs er háttað.
Greiðslumatið
Fyrsta skrefið er greiðslumat sem
unnið er í banka eða sparisjóði.
Greiðslumatið gefur væntanlegum
íbúðarkaupanda til kynna hvaða bol-
magn hann hefur til greiðslu af lánum
til íbúðarkaupa. Greiðslubyrði íbúða-
lána og annarra lána vegna vænta-
nlegra íbúðarkaupa þarf að vera inn-
an þeirrar greiðslugetu sem
greiðslumatið segir til um.
Greiðslumat gildir í 6 mánuði, en þó
ekki lengur en lánsloforð þau sem eru
forsenda fyrir matinu. Slík tímasett
lánsloforð vegna íbúðarkaupanna
geta verið frá banka eða öðrum aðilj-
um.
í tengslum við greiðslumatið fer
fram fjárhagsleg ráðgjöf á vegum
bankans eða sparisjóðsins.
Viðbótarlán
Hyggist kaupandi fjármagna íbúð-
arkaup með viðbótarláni leitar hann
til viðkomandi húsnæðisnefndar, eftir
að hann hefur fengið greiðslumat, en
áður en hann gerir kauptilboð í fast-
eign. Réttur til viðbótarlána er háður
ákveðnum tekju- og eignarmörkum
sem og starfsreglum hverrar hús-
næðisnefndar fyrir sig.
Húsnæðisnefnd metur umsókn um
viðbótarlán og kallar eftir frekari
gögnum ef þörf er á. Ef húsnæðis-
nefnd samþykkir umsóknina gefur
hún út lánsloforð á grundvelli greiðsl-
umatsins þar sem fram kemur hám-
arksfjárhæð viðbótarláns og hámar-
kshlutfall. Lánsloforð húsnæðis-
nefndar gildir oftast í styttri tíma en
greiðslumatið.
fbúðarkaupin
Þegar greiðslumat og í sumum til-
fellum loforð um viðbótarlán liggja
fyrir getur hinn væntanlegi kaupandi
leitað fasteignar. Þegar rétt eign er
fundin gerir hann kauptilboð á grund-
velli greiðslumats og lánsloforðs íyrir
viðbótarláni.
Ef samkomulag næst um kaupin
sendir fasteignasali staðfest kauptil-
boð í eignina ásamt tilskildum gögn-
um til Ibúðalánasjóðs í umboði íbúð-
arkaupanda. Ef fasteignasali hefur
ekki milligöngu um kaupin sér íbúð-
arkaupandinn sjálfur um að sækja
um fasteignaveðbréf til íbúðalána-
sjóðs.
Ferill lánsumsóknar
Þegar lánsumsókn ásamt nauðsyn-
legum fylgigögnum hefur borist
íbúðalánasjóði fer sjóðurinn yfir láns-
umsóknina. Fyrsta skrefið hjá sjóðn-
um er að kanna hvort lánsumsókn og
fylgigögn hennar eru fullnægjandi og
hvort greiðslubyrði lána er hærri en
gert er ráð fyrir í greiðslumati.
Ef fram koma meinbugir á þessu
stigi er umsóknin endursend til fast-
eignasala eða umsækjanda og tekin
aftur til afgreiðslu þegar tilskilin
gögn liggja fyrir. Þá er umsóknin tek-
in til efnislegrar yfirferðar og sam-
þykkt ef hún er fullnægjandi en synj-
að ella.
Útgáfa fasteignaveðbrófs og
húsbrófaskipti
Þegar lánsumsókn hefur verið sam-
þykkt gengur íbúðalánasjóður frá fa-
steignaveðbréfi í samræmi við kauptil-
boð. Fasteignaveðbréfið er ýmist
afhent þeim fasteignasala sem annast
um íbúðasöluna eða kaupandanum
beint. Fasteignaveðbréfið er undirrit-
að um leið og gengið er frá endanleg-
um kaupsamningi og eftir að hann hef-
ur verið undirritaður fær seljandi
fasteignaveðbréfið afhent. Fasteigna-
veðbréfinu er þá þinglýst á eignina en
seljandi getur skipt þinglýstu fastr
eignaveðbréfi út fyrir húsbréf hjá
íbúðalánasjóði. Húsbréfin getur selj-
andi átt, aflient sem greiðslu í áfram-
haldandi fasteignaviðskiptum eða selt
á verðbréfamarkaði.
íbúðalánasjóður sér síðan um inn-
heimtu aíborgana af fasteignaveðbréf-
inu.
Greiðsla vegna viðbótarlána
Viðbótarlán eru peningalán sem
tryggð eru með skuldabréfi með veði í
viðkomandi eign og eru því ólík svok-
ölluðum húsbréfalánum. Ef íbúðar-
kaup eru fjármögnuð með viðbótar-
láni fær seljandi þann hluta greiddan
beint með peningagreiðslu eftir að
skuldabréfi vegna þeirra hefur verið
þinglýst á hina seldu eign og Ibúða-
lánasjóður keypt það.
Fellsás 4 í Mosfellsbæ er einbýlishús á tveimur hæðum teiknað af Vífli
Magnússyni arkitekt. Húsið, sem er í byggingu, er 286 ferm. fyrir utan
58 ferm. bflskúr. Það er til sölu hjá fasteignamiðluninni Berg og óskað
er eftir tilboðum.
Gott einbýli í Mos-
fellsbæ í byggingu
FASTEIGNAMIÐLUNIN Berg
er núna með í sölu „draumahúsið"
að sögn Sæbergs Þórðarsonar hjá
Bergi. Hús þetta er við Fellsás 4 í
Mosfellsbæ. Þetta er einbýlishús á
tveimur hæðum, teiknað af Vífli
Magnússyni arkitekt.
„Húsið ber merki handbragðs
hins góða arkitekts," sagði Sæberg
ennfremur. „Húsið er í byggingu
og er neðri hæðin með fjögurra
herbergja íbúð sem búið er í og
síðan er á neðri hæðinni tvöfaldur
58 fermetra bílskúr. Á efri hæð er
gert ráð fyrir fjórum svefnher-
bergjum og stórri stofu svo og sól-
stofu, eldhúsi og baðherbergi.
Á efri hæðinni er búið að ein-
angra þakið og setja upp alla milli-
veggi. Einnig er búið að ganga frá
miðstöðvarlögn að hluta. Að utan
vantar að pússa neðri hæð og einn-
ig eru ófrágengnar stórar svalir að
vestanverðu við húsið. Hús þetta
er 286 fermetrar að stærð fyrir ut-
an 58 fermetra bílskúr, sem áður
er getið. Húsið stendur á fallegum
útsýnisstað og er fagurt um að lit-
ast til allra átta. Oskað er eftir til-
boði í húsið, en áhvílandi eru tíu
milljón krónur í góðum lánum.
Sjafnargata 2 er steinhús á
þremur hæðum og alls 267 ferm.
Ásett verð er 33 millj. kr., en
húsið er til sölu hjá Eignamiðl-
uninni.
Virðulegt
hús við
Sjafnar-
götu
GÓÐ og virðuleg hús í Þingholtun-
um vekja ávallt athygli þegar þau
koma í sölu. Hjá Eignamiðluninni
er nú til sölu húseignin Sjafnargata
2. Húsið er steinhús á þremur hæð-
um og alls 267 ferm að stærð. Það
er byggt 1933. Ásett verð er 33
millj. kr.
Á 1. hæð eru m.a. þrjár samliggj-
andi stofur, eldhús og snyrting. Á
rishæðinni eru stofa, tvö herbergi,
snyrting og eldhús. í kjallara eru
þrjú herbergi, stórt baðherbergi,
þvottahús og geymslur og yfir hús-
inu er manngengt geymsluris. Bíl-
skúrinn er um 60 ferm. og er hann
með nýjum hurðum og nýju þaki.
Skolplagnir undir húsinu hafa allar
verið endurnýjaðar.
„Þetta hús stendur á frábærum
stað í Þingholtunum,“ sagði Þor-
leifur Guðmundsson hjá Eignamiðl-
uninni. „Innréttingar eru að mestu
upprunalegar. Ástandið á þessu
húsi að utan er nokkuð gott, en það
var upphaflega byggt sem tvíbýlis-
hús og síðan breytt í einbýlishús."
Þorleifur kvað mikla eftirspurn
eftir húsum af þessu tagi og á
þessu svæði. „Það er líka mjög
sjaldgæft að fá svona hús á stað
sem þessum í sölu," sagði hann.
„Þess má geta að lóðin er um 860
ferm. og því stór og falleg með
myndarlegum trjám og girt með
góðri steingirðingu.“
Þorleifur Guðmundsson sagði að
lokum, að viðbrögð við auglýsingu
um þessa húseign hefðu verið góð
og kvaðst hann eiga von á, að húsið
myndi seljast fljótlega.
Fasteignasölur
í blaðinu í dag
Agnar Gústafsson bls. 15
Ás bls. 28
Ásbyrgi bls. 35
Bifröst bls. 4
Berg bls. 36
Borgir bls. 14
Eignamiðlun bls. 12-13
Eignanaust bls. 12
Eignaval bls. 16
Fasteignamarkaðurinn bls. 7
Fasteignamiðlun bls. 30
Fasteignamiðstöðin bls. 9
Fasteignasala íslands bls. 35
Fasteignasala Mosfellsb. bls. 23
Fasteignasalan Suðurveri bls. 33
Fasteignastofan bls. 11
Fjárfesting bls. 25
Fold bls. 10
Foss bls. 4
Framtiðin bls. 37
Frón bls. 6
Garöur bls. 37
Gimli bls. 18
H-gæði bls. 34
Hákot bls. 21
Híbýli bls. 37
Holt bls. 27
Hóll bis. 24-25
Hraunhamar bls. 20-21
Hreiðrið bls. 15
Húsakaup bls. 26
Húsið bls. 31
Húsvangur bls. 19
Höfði bls. 38
Kjöreign bls. 29
Lundur bls. 39
Lyngvik bls. 12
Miðborg bls. 5
Óðal bls. 33
Séreign bls. 32
Skeifan bls. 17
Smárinn bls. 23
Stakfell bls. 12
Stóreign bls. 17
Valhús bls. 15
Valhöll bls. 8-9
Pingholt bls. 33