Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 32

Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 32
} 32 C ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 f Nýjar og fatlegar fasteignir ...sem standast þínar kröfur Til sölu er nýtt og glæsilegt atvinnuhúsnæði að Stórhöfða 25 & 27. Húsin eru samtals 4.082 m2 á fjórum hæðum og henta sérlega vel undir starfsemi sérverslana og/eða heildverslana. Húsin eru til sölu í einu lagi eða i hlutum. Frágangur er allur hinn vandaðasti og húsin eru einangruð að utan og klædd með álklæðningu. Frábær staðsetning, hagstætt veró. Tvö raðhús með fj'órum 158,8 m2 íbúðum. Mjög góð hönnun, þrjú svefnherbergi, rúmgóð stofa og eldhús. Húsin eru á einni hæð, með mikitli lofthæð og verður skilað fullbúnum að utan en fokheldum að innan. Frábær staðsetning, stutt í skóla og leikskóla. Golfvöllur bæjarins er í göngufæri. Ný parhús á Álftanesi. Hver íbúð er 159 m2. Skemmtilega hönnuð hús á einni hæð, með innbyggðum bílskúr með stækkunarmöguleika á 33 m2 millilofti. Álftanes sameinar kosti dreifbýlis og þéttbýlis og er fjölskylduvænt umhverfi. Þar er fallegt útivistarsvæði, gott iþróttastarf og vel er staðið að skóla- og dagvistunarmálum. Ný 6 hæða fjölbýlishús í hjarta Reykjavíkur, örstutt frá Laugardalnum og miðbænum. í hvoru húsi eru 24 íbúðir, auk 244 m2 „penthouse" íbúðar, en við hönnun íbúðanna var sérstaklega lög áhersla á stórt, opið og falLegt rými. I öllum íbúðunum er dyrasími með myndsíma, þvottahús og geymsla. Auk þess er sérstakLega huga að hLjóðeinangrun milli íbúða. Sameign og Lóð verða full- frágengnar með snjóbræðslu í stétt að framan og innangengt er úr bílakjallara með 24 stæðum. , Sötudeildin er opin alla virka daga frá kl. 9-17 IAV Hafið samband i síma 530 42 00 ÍAV-lslenskir Aðalverktakar hf. Hátúni 6a, 105 Reykjavík, sími 530 4200, fax 530 4205, www.iav.is MORGUNBLAÐÍÐ SKÓLAVÖRÐUSTÍG 41 ® 552 9077 Opið virka daga 9-18, sunnudaga 12-14. Góð þjónusta Vönduð skjalagerð Fjöldi kaupenda á skrá Krókabyggð - Mos. - raðh. i«a; 2 herb. íbúð á suðurlóð í bakhúsi við opið svæði. Mikið endurnýjuð íbúð með parketi og nýlegum innréttingum. | Laus strax. Ósamþykkt. Verð 4,5 millj. Laugavegur 2 herb. ódýrt 2 herb, 37 fm íbúð á 1. hæð í vei | byggðu steinhúsi. fbúðin skiptist í stofu, svefnherb, snyrtingu og eldhús. Verð aðeins 4,5 millj. Njálsgata herbergi 16 fm íbúðarherbergi með eldhúskrók I og aðgangi að sameiginlegri snyrtingu | og sturtu. Verð 1,7 millj. Vantar 2 herb. Leitum að rúmgóðri einstaklings- eða 2 herb. íbúð fyrir fjársterkan kaupanda. Staðgreiðsla í boði. Atvinnuhúsnæði Bæjarlind Kóp — Fallegt raðh. 115 fm m. 3 svefnherb. á neðri hæð og 2 herb. í risi. Góður suð- urgarður. Ról. umhverfi. Áhv. byggsj. 3,7 millj. Greiðslubyrði á mán. 20 þús. Verð 13,4 miilj. Selbrekka - Kóp. - einbýli Fallegt 232 fm einbýlishús á 2 hæðum með innbyggðum 35 fm bílskúr. Ný sólstofa. 3-4 svefnherb. Fallegt útsýni. Húsið hefur verið í eigum sama aðila frá upphafi. Verð 19,5 millj. Álfhólsvegur - sérhæð Vönduð 117 fm sérhæð á 1. hæð í þríbýlishúsi með fjórum svefnherb. á sérgangi, glæsilegu uppgerðu bað- herb., eldhús með nýrri vandaðri inn- rétt. og þvottahús og búr innaf. Stofa með fallegu útsýni til norðurs og svöl- um. 25 fm bílskúr með góðu geymsluplássi í kjallara. Sérinngangur og sérhiti. Frábær staðsetning, örstutt frá Digranesskóla. Verð 13,8 millj. Jöklafold 4ra + bílsk. Glæsileg 4 herb. 110 fm endaíbúð á 2. hæð i litlu fjölbýli ásamt 21 fm bílskúr. Vandaðar innréttingar. Parket. Tvenn- ar svalir. Rúmgóð herbergi. Áhv. bygg.sjóður 3,6 millj. með 4,9% vöxt- um. Greiðslubyrgði 18 þús.pr. mán. Verð 14,7 millj. Hverfisgata 3-4 herb 85 fm 3-4 herb. íbúð á 3. hæð í vönd- uðu steinhúsi. Tvær stofur og tvö svefnherb. Fallegt útsýni. Áhv. húsbréf 3 millj. Verð 8,5 millj. Vantar 3-4 Höfum fjársterkan að 3-4' herb. íbúð, 90-110 fm í Þingholtum, Vestubæ, Hlíðum, Norðurmýri. Staðgreiðsla í boði. Glæsilegt nýtt atvinnu- og verslunar- húsnæði. Kjallari og 3 hæðir. Grunn- flötur 600 fm, alls 2. 400 fm. Óvenju vandað húsnæði sem skilast með nið- urteknum loftum, dúk og flísum á gólf- um, fullfrágengnum snyrtingum og kaffistofum. Fullfrágengið að utan, klætt með álklæðningu og einangrað. Öll sameign skilast fullfrágengin með lyftu. Malbikuð lóð með mörgum | bílastæðum. Skemmuvegur Kóp 320 fm iðnaðarhúsnæði í góðu I ástandi með upphituðu bílaplani. Húsnæðið er laust nú þegar. Verð 22 | millj. Lyngháls — nýtt húsnæði Glæsilegt 590 fm iðnaðar- og atvinnu- I húsnæði á tveimur hæðum. Húsnæðið skiptist í 230 fm efri hæð en á neðri hæð eru 2 bil, annað 230 fm og hitt | 130 fm. Góðar innkeyrsludyr. Hús- næðið er til afhendingar nú þegar. Krókháls — fjárfestar Til sölu glæsilegt 354 fm atvinnu- húsnæði sem er tvískipt með 2 stór- I um innkeyrsludyrum. Verð 25 millj. Húsnæðið selst með leigusamningi til | 3-5 ára. Stapahraun — Hafnarfj. Vandað 500 fm iðnaðarhúsnæði, loft- hæð 8 m. Hentugt húsnæði t.d fyrir I verktaka með stór atvinnutæki. Verð | 35 millj. Byggingarframkvæmdir Til sölu byggingarframkvæmdir við I Fellsás í Mosfellsbæ fyrir tveimur par- húsum. Frábær staðsetning innst í götu með glæsilegu útsýni. Búið er að teikna, fylla upp og greiða gatnagerð- | argjöld. Verð 7,8 millj. Lokastígur 2 herb. 58 fm íbúð á jarðhæð í fallegu stein- húsi sem skiptist í svefnherb. og stofu með parketi. Ágætt eldhús með borðkrók. Laus strax. Verð 7,6 rhillj. Njálsgata 2 herb. ódýrt Kristín Á. Björnsdóttir, Viðar F. Welding, jm lögg. fasteignasalar. II Veturinn hefur verið þolraun á iagnakerfin Lagnafréttir Þó að einstaka sinnum þurfí að taka fram skóflu, þar sem snjóbræðsla er, þá er ekkert frosið við flötinn eftir mokstur, engin hálka, segir Sigurður Grétar Guðmundsson. Og það er mikill munur. Eitt af frumherjaverkum í snjóbræðslu: lögn í boltavelli í Varmahlíð í Skagafirði. VINDURINN gnauðar, snjór- inn þyrlast um stræti og torg, frostið smýgur gegn um merg og bein, eftir hvert áhlaup hafa skafl- ar myndast þar sem síst skyldi. Og mörgum til sárrar gremju gerist það einnig þar sem snjóbræðsla er, þar hafa skaflar hreiðrað um sig af algjörri frekju og spyrja ekkert hvort þeir megi þar vera, taka ekki tillit til nokkurs manns og kveða snjóbræðslur í kútinn. En það er of mikið sagt, snjó- bræðslurnar vinna að lokum, það hefur sannast á þessum síðustu og verstu vikum veðurfarslega séð. Þetta sannast ekki hvað síst þar sem margir eiga erindi á gangstíg- um í borgum og bæjum. Þegar um hægist verða gangstéttirnar auðar þar sem snjóbræðsla er undir, en á óhituðum köflum verða menn að klöngrast á freranum, víða hefur hann haft þar fasta búsetu í fulla tvo mánuði. Sagan að baki Fyrir um fimmtíu árum fóru menn að gera tilraunir með snjó- bræðslur hérlendis „snjóbræðslu- öldin“ hófst fyrir rúmum aldar- fjórðungi og hvergi, ekki í nokkru landi, eru snjóbræðslukerfi jafn útbreidd og almenn sem á Islandi. Mörg lönd eiga varma í jörðu eins og við, en sum þeirra eru á þeirri breiddargráðu að engin þörf er fyrir slíkar bræðslur, það er ekkert að bræða. Önnur hafa nóg að bræða en þrátt fyrir það hefur þessi tækni hvergi náð slíkri fót- festu sem hérlendis. Það má segja að á tímabili hafi menn nánast farið offari í lögn snjóbræðslukerfa, því skyldi ís- lendingseðlið ekki koma þar í ljós sem annarsstaðar. Stundum virt- ust menn ekki gera sér grein fyrir að ekki væri nóg að leggja snjó- bræðslukerfi, þar þyrfti orku til að bræða snjó og varna hálku. Þess vegna voru sums staðar lögð geysivíðáttumikil kerfi sem urðu mönnum svo ofviða í rekstri. En á síðari árum hefur þetta heldur róast og meira er hugsað um hag- kvæm kerfi sem hagkvæmt er að reka og sliga engra fjárhag. Eftir svellkaldan vetur Einn borgarfulltrúi í Reykjavík hefur komið með þá tillögu að gera stórátak í því að leggja snjó- bræðslukerfi í gangstéttir og stíga, örugglega eftir að hafa reynt sjálf- ur eða séð aðra, næstum því í nauðum, krafla sig áfram á klaka- hröngli. Vissulega hefur verið gert stórátak í að leggja snjóbræðslur í höfuðborginni, einkanlega í gamla miðbænum, en það má segja að ein af fyrstu bræðslunum sem ýttu skriðunni af stað var þegar snjó- bræðslukerfi var lagt í Austur-

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.