Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 22

Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 22
22 C ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Reykjanesbær markaðinn Fasteignamarkaðurinn í Reykjanes- bæ heí'ur á sér mjög sjálfstætt yfir- bragð og er algerlega óháður mark- aðnum á höfuðborgarsvæðinu. Þró- unin þar hefur samt verið mjög svipuð; um árabil ríkti ládeyða og eftirspum var lítil. A síðustu misser- um hefur eftirspurn hins vegar auk- izt á ný og töluvert líf er nú komið í markaðinn. Verð hefur líka verið að hækka, þótt það sé ekki eins mikið og á höf- uðborgarsvæðinu. Að sögn fast- 'eignasala er verð á íbúðarhúsnæði nú að jafnaði um 70-80% af verðinu á höfuðborgarsvæðinu og hefur hækk- að um 6-10% frá því sem var á með- an hækkunin heíúr verið 25-30% í borginni og nágrannabyggðarlögum. Mannfjöldatölur í Reykjanesbæ gefa til kynna að bærinn vex hægt eða innan við 1% á ári. Hinn 1. des- ember sl. voru íbúamir 10.492, en þeir voru 10.434 á sama tíma árið áð- ur. Töluverð gróska hefur samt verið í hinum ýmsum greinum atvinnulífs í Reykjanesbæ, enda þótt samdráttur sé í sjávarútvegi, sem áður fyrr eink- enndi svo mjög atvinnulíf bæjarins. Fjölbreytnin hefur aukizt til muna á undanförnum áram. Mikil áherzla hefur verið lögð á það af hálfu bæjar- yfirvalda í Reykjanesbæ að styrkja hinar óhefðbundnu atvinnugreinar. Flest ný störf hafa orðið til í þjón- ustugreinum, eins og svo víða annars staðar og þar er aukning í störfum tengdum ferðaþjónustu mest áber- andi. í því sambandi hefur uppbygg- ing á Keflavíkurflugvelli haft mikil áhrif, enda hafa umsvif á flugvellin- um aukizt ár frá ári. Störfum í iðnaði hefur líka fjölgað á ný í bæjarfélaginu svo og störfum sem tengjastfullvinnslu sjávarfangs. 4 Orkufrekur iðnaður hefur einnig verið að aukast jafnt og þétt, enda svæðið þeim kostum búið að geta boðið ódýrastu orku á landinu. Raf- magn er 15-20% ódýrara en annars staðar á landinu og húshitunarkostn- aður er mjög sambærilegur við Reykjavikursvæðið. Viðhorfskönnun, sem Reykjanes- bær lét gera, leiddi í ljós að fólk er almennt ánægt með að búa í bænum og telur sig hafa það sem til þarf í menntamálum, menningarmálum og íþróttamálum. Síðasta átakið á því sviði er hin stórfenglega knatt- spyrnuhöll í bænum, sem tekin var í notkun fyrir skömmu og á vafalaust eftir að hafa í för með sér þáttaskil s fyrir knattspymuíþróttina í öllu landinu. Hafa byggt yfir 300 íbúðir Um árabil hefur byggingafyrir- tækið Húsanes verið mjög atkvæða- mikið á sviði nýbygginga í Reykjan- esbæ. Eigendur þess eru þeir Halldór Ragnarsson múrarameistari og Margeir Þorgeirsson bygginga- meistari. Þeir félagar hafa langa reynslu af byggihgarstarfsemi, en þeir stofhuðu Húsanes 1979. Fyrir- tækið hefur aðalstöðvar sínar í Reykjanesbæ og framan af vora ^verkefni þess aðallega á Suðurnesj- um. Á síðustu árum hafa þeir félagar í auknum mæli fært út kvíarnar og byggt mikið bæði á höfuðborgar- svæðinu ogvíðar. Nú hefur Húsanes byggt vel á fjórða hundrað íbúða og auk þess ■^margs konar aðrar byggingar. Þeirra á meðal má nefna Sundmið- stöðina í Reykjanesbæ, laxeldisstöð á Vatnsleysuströnd, fiskvinnsluhús í ... — Á nýju byggingarsvæði fyrir sunnan Sjafnarvelli áformar Húsanes að byggja tólf parhús á einni hæð, sem verða um 118 ferm. Einar Tryggvason arkitekt hannar þessi hús. Framboð á íbúðarhúsnæði í Reykjanesbæ hefur minnkað á síðustu misserum vegna aukinnar eftirspurnar. Um leið hefur verð farið hækkandi. Magnús Sigurðsson kynnti sér markaðinn í Reykjanesbæ og starfsemi Húsaness, eins helzta byggingarfyrirtækis- ins þar í bæ. Jóhannes Ellertsson fjáiinálastjóri og Margeir Þorgeirsson bygginga- meistari. Mynd þessi er tekin fyrir framan eitt þeirra húsa, sem Húsanes hefur byggt við Sjafnarvelli í Reykjanesbæ. vantar eignir af öllum stærðum í sölu,“ segir Böðvar Jónsson hjá Eignamiðlun Suðurnesja. „Verð á notuðu húsnæði í Reykjanesbæ hef- ur hækkað um 6-10% á síðustu mán- uðum og sökum þeirra miklu hækk- ana, sem orðið hafa á íbúðarhúsnæði á höfuðborgarsvæðinu, er fólk farið að leita hingað suður eftir húsnæði og það hefur sett aukna spennu í markaðinn.“ Aðal nýbyggingasvæðið er nyrzt í Reykjanesbæ, í hverfi sem teygir sig í átt að Sandgerði. Þar hefur 34 lóð- um verið úthlutað og verið er að vinna að deiliskipulagi fyrir svokall- að Grænássvæði, þar sem gert er ráð fyrir 400-500 manna byggð. Auk þess er verið að úthluta og byggja á stökum lóðum í bænum og þétta þannig byggðina. „Framboð hér er samt af skornum skammti og brýnt að bæjaryfirvöld hraði lóðaúthlutunum á fyrirhuguðu nýbyggingahverfi á Grænássvæð- inu, sem er í Njarðvíkurhverfinu," sagði Böðvar ennfremur. „Nú er ver- ið að klára að skipuleggja það, svo að það ætti að verða tilbúið til úthlutun- ar í sumar eða haust. Heiðaskóli, nýr skóli í Heiða- hverfi, hefur haft í för með sér mikla eftirspurn og fjölgun bamafólks í því hverfi. í framhaldi af því verður skipu- lögð íbúðabyggð í Innri-Njarðvík eða Á svokölluðu „Neðra nikkels- væði“, sem er innan girðingar varn- arliðsins við Ytri-Njarðvík. Vegna mikillar eftirspurnar má vænta þess að það geti byggzt allhratt upp.“ Töluverð íbúaQölgun framundan Á næstu áram má gera ráð fyrir töluverðri íbúafjölgun í Reykjanes- bæ, en það er talsvert framundan í atvinnulífi bæjarins. Við stækkun Leifsstöðvar á Keflavíkurflugvelli og aukningu á annarri þjónustu tengdri fluginu er líklegt að starfsfólki fjölgi þar um fleiri hundrað manns. Austnesi ehf., umboðsaðila kana- díska olíufélagsins Irving Oil, hefur verið úthlutað lóð undir birgðastöð á tankasvæðinu í suðvesturhluta Helguvíkur og dönsku sements- verksmiðjunni Aalborg Portland AS hefur einnig verið úthlutað lóð í bæn- um. Um er að ræða lóð um 30 metra frá viðlegukanti í Helguvík og er áformað að hefja byggingu birgða- stöðvar fyrir sement í næsta mánuði. Síðast en ekki sízt eru uppi áform um að byggja magnesíumverks- miðju á Suðurnesjum, sem yrði risa- framkvæmd á íslenzkan mælik- varða, ef af yrði, bæði að því er varðar fjármagn og vinnuafl. Þegar litið er á allt þetta auk ýmissa ann- arra nýjunga í atvinnulífi Reykjan- esbæjar, má gera ráð fyrir talsverðri fólksfjölgun í bænum og mun meiri en þar hefur átt sér stað á síðustu tíu áram. '**í*rf*--. Morgunblaðið/Björn Blöndal Horft inn Sjafnarvelli. í húsaröðinni til vinstri er Húsanes með til sölu 3-4 herb. parhús ineð bílskúr ásamt um 50 ferm. risi, sem breyta má í íbúðarrými. Húsin skilast fokheld að innan með fullfrágenginni lóð. Garði, bílageymsluhús fyrir Reykja- víkurborg við Aflagranda og nýja fjölbrautaskólann í Garðabæ. Hjá fyrirtækinu starfa nú um 50 manns með föstum undirverktökum og enn íleiri á sumrin. Við Sjafnarvelli í norðurhluta Reykjanesbæjar er Húsanes með í smíðum 3-4 herbergja parhús með bílskúr, ásamt um 50 fermetra risi, sem breyta má í íbúðarrými. Húsin skilast fokheld að innan en fullfrá- gengin að utan með frágenginni lóð. Einnig er hægt að fá húsin lengra komin. Ásett verð er 8,8 milljónir kr., en þessi hús era til sölu hjá Eignamiðlun Suðurnesja. „Húsanes byggir öll húsin við Sjafnarvelli, en framan af gekk sala á þeim treglega vegna þeirrar nið- ursveiflu, sem ríkti á markaðnum yf- irleitt. Að undanförnu hefur salan hins vegar gengið Vel,“ segir Jó- hannes Ellertsson, fjármálastjóri Húsaness. „Nú er lokið byggingu all- ra húsanna við Sjafnarvelli og flutt inn í sum þeirra, en húsin við þessa götu verða alls átján og era öll orðin fokheld. Framkvæmdum við þau á að vera að fullu lokið 1. ágúst næst- komandi." Á nýju byggingarsvæði við svo- nefnda Gýgjuvelli áformai- Húsanes að byggja 12 parhús á einni hæð, sem verða um 118 ferm. fyrir utan bílskúr, sem verður 45 ferm. Einar Tryggvason arkitekt hannar þessi hús, en hann hefur hannað allar byggingar Húsaness í seinni tíð. „Munurinn á þessum húsum og húsunum við Sjafnarvelli er sá, að bílskúramir era töluvert stærri en á Sjafnarvöllum," sagði Jóhannes enn- fremur. „Við teljum að með þessu fá- ist breiðari kaupendahópur. Á móti kemur að þessi hús verða ekki með aukarými í risi. Þótt það hafi gengið vel að selja í Reykjanesbæ að undanfömu og verð farið hækkandi, hefur okkur gengið enn betur að selja í Kópavogi. Þar fengum við á sínum tíma úthlutað myndarlegum reit í alverktöku við göturnar Húsalind og Háulind í Lindahverfi, þannig að við létum skipuleggja svæðið og sáum um gatnagerð auk þess að byggja húsin, sem vora 60. Hluti af þessum húsum var mjög sambærilegur við húsin við Sjafnarvelli og þau era nú öll seld. í sumar byrjum við á 22 íbúðum í viðbót í fjölbýlishúsi við Kórsali í Salahverfi í Kópavogi, sem ég geri mér vonir um að markaðurinn muni taka mjög vel, enda verða þetta mjög góðar íbúðir og markaðurinn fyrir þær afar vænlegur." En Húsanes byggir einnig at- vinnuhúsnæði. „Við eram með verzl- unar- og skrifstofuhúsnæði í bygg- ingu við Hafnargötu í hjarta miðbæjarins í Reykjanesbæ," segir Jóhannes. „Þetta verður hús á tveimur hæðum samtals um 1100 fermetrar. Verzlunin 10-11 tekur alla neðri hæðina á leigu, en efri hæðin verður væntanlega leigð út fyrir skrifstofur.“ Vantar eignir í sölu Eignamiðlun Suðurnesja, sem hefur aðsetur í Reykjanesbæ, selui- m. a. íbúðir fyrir Húsanes þar í bæ. „Eftirspum er nú mjög góð og það Á þessari lóð við Hafnargötu í miðbæ Reykjanesbæj- ar áformar Húsanes að reisa hús á tveimur hæðum, sem verður um 1.100 ferm. Verzlunin 10-11 tekur alla neðri hæðina á leigu. Meiri eftirspurn og hækkandi verð einkenna

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.