Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 34

Morgunblaðið - 28.03.2000, Blaðsíða 34
34 C ÞRIÐJUDAGUR 28. MARS 2000 MORGUNBLAÐIÐ Sölustjóri: Ólafur G. Vigfússon. HljSölum.: Bynjólfur J. Garðarsson og Magnús Geir Pálsson. Sigurberg Guðjónsson, hdl. lögg. fasteignasali Sæmundur H. Sæmundsson framkvæmdastjóri. VIÐ TÖKUM VEL Ertu í söluhugleiðingum? Enn leitum við til þeirra sem eru í söluhugleiðingum. Við leitum að einbýli á Seltjarnarnesi. Við leitum að 2ja íbúða húsi á Höfuðborgarsvæðinu. Okkur vantar iðnaðarhúsnæði fyrir trausta aðila. Við leitum að 3ja-4ra herb. íbúð. Einnig leitum við að einbýii helst á einni hæð í Grafarvogi. Okkur vantar allar stærðir eigna í Hlíðarhverfi, Hvassaleiti, Þing- holtum og Vesturbæ. Svæði 101,105 og 108 fyrir fjársterka aðila. Við leitum að sérbýli í Kópavogi, Hafnarfirði og Garðabæ. Okkur vantar 3ja-4ra herb. íbúð í Lindarhverfi Kópavogi. Einnig vantar okkur 3ja-4ra herb. íbúð í lyftuhúsi í Reykjavík. Hafið samband við sölumenn okkar. Þeir mæta á staðinn og meta eignina fljótt og örugglega. Mundu í þína þágu Bakkastaðir- sérhœðir tíi söiu 6 íbúða hús, 128 fm., með sérinngangi. Gott skipulag og flott útsýni. 3-4 svefnh. Tvenn- ar svalir á efri hæð, sérgarður á neðri hæð. Afh. tilb. undir tréverk með milliveggjum í ág.-sept. Möguleiki á fullb. án gólfefna. Traustur bygg.aðili. Teikn. og allar nánari uppl. á skrifstofu. Verð frá 12,2 m. Garðsstaðir - Raðhús m/tvðf. bflskúr. Við golfvöllinn ný glæsil. raðhús á einni hæð um 180 fm. Húsin afh. fullbúin að utan. Að innan verða húsin rúmlega fokheld, þök og útveggir einangruð og gólf ílögð. Verð 14,0 m. Klettahlíð - Hveragerði Höfum í sölu parhús á mjög góðum stað í Hvera- gerði. Húsið er 132,5 fm timburhús og verður skilað fullbúnu úti með grófjafnaðri lóð og einangr. að innan þak og útveggir. Til afhendingar strax. Verð 7,5 m. Tryggvagata 3ja-4ra herbergja falleg ibúð. Lyfta í húsinu. Parket á gólfum. Mikil lofthæð og vítt til veggja. Glæsilegt útsýni yfir höfnina. Þetta er íbúð fyrir vandláta. Verð 11,8 m. Furugrund m. bílskýli Nýkomin í einkasölu 4ra herb. 83 fm íbúð á 2. hæð á þessum eftirsótta stað. Stórar suðursvalir. Stutt í alla þjónustu. Skúlagata Vorum að fá í sölu ágæta 3ja herb. íbúð á þessum eftirsótta stað. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu. Verð 8,1 m. Hamraborg - Kóp. Nýkomin í einka- sölu góð 83 fm 3ja herb. ibúð á 3ju hæð í góðu fjölb. Stutt í alla þjónustu. Laus fljótlega. Verð 8,6 m. Lyngháls - nýtt atvinnuhús- næði Mjög fallegt og gott atvinnu- húsnæði samt. 590,7 fm Húsnæðið skiptist i þrjár einingar, verslunar eða skrifst. eining 229,9 fm, með góðu útsýni og augl.gildi. Lager eða iðnaöareining 229,9 fm með tvennum stórum innk.dyr- um. Lager eða iðnaðar- húsnæði 130,9 fm með einum stórum innk.dyrum. Selst saman eða sitt í hvoru lagi. Malbikuð bilastæði. Til afh. strax. Síðumúli Vorum að fá í sölu vandað skrifstofuhúsnæði á tveimur hæðum sam- tals um 744 fm og lagerhúsnæði í kjallara í sama húsi sem er 581 fm Lyfta er i húsinu. Hægt er að selja þetta sem eina heild eða í 2-3 einingum. Allar nánari upplýsingar á skrifstofu. :a&T-J Fiskislóð - Atvinnuhúsnæði Gott atvinnuhúsnæði samtals um 320 fm með , stórum innkeyrsludyrum og góðum sýning- ; argluggum. Tilvalið fyrir rekstur tengdan ; sjávarútvegi eða öðru. Tilboð. Sími 588 8787 — Suðurlandsbraut 16 Opið virka daga 9—18, laugardaga frá kl. 12—14 www.mbl.is/fasteign • netfang: sala@h-gaedi.is Félagslegar íbúða- byggingar á 20. öld Báðar heimsstyrjaldirnar á 20. öld höfðu grundvallarþýðingu fyrir þróun félagslegra íbúðabygginga, segir Jón Rúnar Sveinsson félagsfræðingur. í báðum tilvikum í þá átt að ýta undir eða hrinda af stað slíku fram- taki með opinberum stuðningi. A19. öld gætti fyrst og fremst tveggja strauma í félagslegum íbúðabyggingum; annars vegar byggingarstarfsemi einstakra at- vinnurekenda, hins vegar bygginga á vegum góðgerðarfélaga, oft í formi þess er á enskri tungu var nefnt „5 per cent philanthrophy" („5% mann- gæska“) er þýddi að ekki var krafist meiri arðsemi af fjármagni en 5%. Sérkennandi fyrir þessa tegund af húsnæði var sú siðbótarviðleitni sem einkenndi boðbera hennar. í Bret- landi er umbótakonan Octavia Hill oft nefnd sem einn dæmigerðasti full- trúi þessarar stefnu. Octavia Hill gerði mjög strangar siðferðLskröfur til leigjenda sinna sem hún valdi af mikilli kostgæfni. Settar hafa verið fram athyglis- verðar kenningar þess efnis að strangar siðferðiskröfur sem tengist aðgangi að húsnæði, séu liður í ögun og stýringu vinnuaflsins í þjóðfélagi markaðskapítalisma. Ekki fer hjá því að tengja megi slíkar vangaveltur frægum kenningum eins aðalpáfa póstmódernismans, franska heim- spekingsins Michels Poucaults, um ögunarhlutverk stofnana á borð við skólann, sjúkrahúsið, fangelsið og vinnustaðinn. Jafnaðarmannaflokkar Evrópu, sem voru að byrja að gera sig gild- andi fyrir um 100 árum síðan, töldu „5% manngæskuna“ ná skammt til þess að bæta úr himinhrópandi hús- næðisneyð verkalýðs. Fylgdu þeir í þessum efnum Friedrich Engels, sem í einu frægasta húsnæðismálariti allra tíma, „Zur Wohnungsfrage“ („Um húsnæðismálið") frá 1872, dró atvinnurekendur, velviljaða lækna og mannvini sundur og saman í háði og taldi að fyrsta skilyrði húsnæðisum- bóta í þágu alþýðu væru full þjóðfé- lagsleg völd þessarar sömu alþýðu. Slíkt gerðist reyndar víðast í Vest- ur- og Norður-Evrópu á 20. öld - þó eldri væri um alræðisvöld að ræða með þeim hætti sem Engels hafði hugsað sér - þegar flokkar jafnaðar- manna efldust og döfnuðu og urðu leiðandi um stjómarstefnu æ fleiri landa. Hin rauða Vúi Eftir fyrri heimsstyrjöldina var stofnað lýðveldið Austurríki með 6 milljónir íbúa á rústum hins aldna austurríska keisaradæmi, sem árið 1914 hafði haft 56 milljónir íbúa. í stað þess að fylgja leið rússneska keisaradæmisins undir forystu ger- byltingarsinnaðra bolsévíka, varð vegur umbóta og uppbyggingar und- ir forystu jafnaðarmanna ofan á í hinu nýja Austurríki. Austurrískir jafnaðarmenn beittu sér fyrir umbótum á borð við 45 stunda vinnuviku, launuðu orlofi verkamanna, atvinnuleysistrygging- um, ellilífeyriskerfi og aðgerðum gegn húsaleiguokri. „Roter Wien“ varð kenniheiti fyrir umbótasinnaða jafnaðarstefnu sem birtist öllu öðru fremur í byggingu 64.000 félagslegra íbúða á árunum 1919 til 1934. Frumkvæðið frá Vín, undir forystu borgarstjórans Jakobs Reumanns, hafði mikil áhrif um alla Evrópu, upp- haf byggingar verkamannabústaða hér á landi á 4. áratugnum undir for- ystu Héðins Valdimarssonar, byggð- ist t.d. ekki síst á innblæstri frá glæsi- legum árangri Vínarbúa. Frægasta einstaka félagsíbúða- hverfið í Vínarborg írá þessum tíma var nefnt Karl Marx-Hof, enda krat- ar ennþá ófeimnir við að kenna sig við þann gamla gráskegg. Árið 1934 braust út stutt borgarastyrjöld í Austurríki milli austurrískra fasista, sem rænt höfðu völdum, og vinstri af- lanna. Fasistar sigruðu og lögðu sig sérstaklega fram við að leggja Karl Marx-Hof í rúst með stórskotaliðs- árásum. Eftir stríðið var hverfið hins vegar endurbyggt að fullu. Heimili handa hetjum Heimsstyrjaldimar báðar á 20. öld höfðu grundvallarþýðingu fyrir þró- un félagslegra íbúðabygginga, í báð- um tilvikum í þá átt að ýta undir eða hrinda af stað slíku framtaki með op- inberum stuðningi. Mestur þungi slíkrar þróunar varð upp úr síðari heimsstyrjöldinni, en fýrri heims- styrjöldin olli einnig þróun af þessu tagi. Það var í Bretlandi sem slíkt gerðist með mest afgerandi hætti á árunum um og upp úr 1920. Um 700.000 ungir Bretar fómuðu lífinu í skotgröfum meginlandsins í styijöldinni og enn fleiri vora fatlaðir eða örkumla. Ekki þótti mögulegt að bjóða þeim sem komust lifandi heim upp á það húsnæði sem þar var í boði. Þáverandi forsætisráðherra Bret- lands, David Lloyd George, er höf- undur slagorðsins „Homes fit for Heroes", sem lýsir þeim eindregna ásetningi bæði stjómvalda og þjóðar að tryggja heimkomnum hermönn- um möguleika á að stofna heimili í mannsæmandi húsnæði. Hér var hins vegar sá hængur á að ftjálsi markaðurinn var allsendisófær um að hrinda af stað byggingarátald sem uppfyllt gæti framangreint markmið. Það stafaði ekki síst af því að árið 1915 hafði húsaleiga í Bret- landi verið fryst með strangri löggjöf, sem síðan reyndist pólitískt ókleift að afnema við lok stríðsins. Þar sem verðbólga hafði verið mikil á stríðsár- unum, reyndist með öllu útilokað fyr- ir leigufyrirtæki á frjálsum markaði að hefja að nýju byggingar leiguhús- næðis þannig að slíkur rekstur gæti borið sig. Mikils óróa gætti á húsnæð- ismarkaðnum við stríðslokin, t.d. vora skipulögð víðtæk „húsaleigu- verkföll“ í Glasgow í Skotlandi. Þetta tengdist almennum félagslegumóróa; í Bretlandi, eins um alla Evrópu, gætti töluverðs ótta við að rússneska VIÐ valdatöku ríkisstjórnar Dollfuss í Austurríki var Karl Marx-Hof skotinn í rúst af stormsveitum sljórnarinnar 12. febrúar 1934. Byggingin var endurreist síðar. byltingin smitaði út frá sér. Sumir töluðu hreint út og kölluðu átakið við byggingar félagslegra íbúða, „a bulwark against Bolshevism". Árangurs sérstakrar löggjafar og skipulegs samstarfs ríkis og sveitar- félaga varð öflugt byggingarátak fé- lagslegra leiguíbúða strax á 3. ára- tugnum. Hugmyndir um „Garden Cities“ voru mjög ráðandi. Mest var byggt af raðhúsum, ekki var byggt í áður ríkjandi „leiguhjallastíl" (ten- ement blocks). Löngu seinna, þegar farið var að selja félagslegar íbúðir bresku sveitarfélaganna á valdatíma Margrétar Thatcher, reyndust íbúð- imar frá 3. áratugnum oft vera eftir- sóttastar. Félagslegt húsnæði eftir síðari heimsstyrjöld Það var þó fyrst og fremst að lok- inni seinni heimsstyijöldinni sem fé- lagslegar íbúðabyggingar áttu eftir að verða þungamiðjan í húsnæðis- stefnu margra Evrópulanda um lengri eða skemmri tíma. Reyndar var víða hafist handa í einhverjum mæli þegar á kreppuárum fjórða ára- tugarins. Það átti t.d. við um Svíþjóð, þar sem jafnaðarmenn komust til valda árið 1932 og hófu strax aðgerðir í hús- næðismálum, sem m.a. áttu þátt í því að draga þar úr atvinnuleysi. Kröft- ugasta uppbyggingin í Svíþjóð varð þó ekki fyrr en á 6. og 7. áratugnum. Við stríðslokin stóðu Evrópulöndin frammi fyrir margþættum húsnæðis- vanda. Lítið hafði verið byggt á stríðsáranum, loftárásir höfðu valdið veralegri eyðileggingu íbúðarhús- næðis og mannfjöldasprenging lá í loftinu þegar ungu hermennimir kæmu heim og færa að búa til böm í stað þess að drepa hver annan. Svör- in vora alls staðar þau sömu, menn settust niður og fóra að móta heild- stæða húsnæðisstefnu, þar sem fé- lagslegar íbúðabyggingar í einhveiju formi vora lykilatriði. Hvar menn settust niður í þessu skyni gat verið ærið misjafnt. Framtíðarstefnan í húsnæðismálum Noregs var t.d. mót- uð af ýmsum forystumönnum norska Verkamannaflokksins meðan þeir sátu enn í fangelsum hemámsliðs þýskra nasista. Þrátt fyrir að meginstefnan væri allstaðar sú sama - nema kannski á Islandi, þar sem umtalsverð upp- bygging á félagslegu húsnæði hófst ekki fyrr en á 9. áratugnum - gætti engu síður sérstakra tilbrigða við meginstefið í hverju landi fyrir sig. Þannig einkenndust félagslegar íbúðabyggingar í Danmörku og Holl- andi af starfsemi sérstakra húsnæð- isfélaga, en ekki af framtaki bundnu við sveitarfélögin. í Noregi komu öflug húsnæðis- samvinnufélög að mestu í stað leiguí- búðareksturs sveitarfélaganna. í Sví- þjóð hafa starfað bæði öflug húsnæðissamvinnufélög og sterk leigufélög sveitarfélaganna. Svíþjóð, Bretland og Frakkland voru þau lönd þar sem sveitarfélögin vora virkust í framleiðslu og rekstri félagslegs íbúðarhúsnæðis. Stærstu leiguíbúðageiramir vora í Hollandi, Bretlandi (fram að „útsölu“ Thatcher-stjómarinnar á 9. áratugn- um), Danmörku og Svíþjóð. I þessum löndum var framboð félagslegs leigu- húsnæðis það mikið og fjölbreytt að allir þjóðfélagsþegnar áttu í raun möguleika á að geta leigt félagslega íbúð, ef þeir óskuðu þess. Vatnaskil við „Jom Kippur“ Svonefnt „Jom Kippur-stríð“ Ar- aba og Israela 1973 og olíukreppan sem af því leiddi era nú af mörgum fræðimönnum talin marka endalok gullaldar vestræna velferðarríkisins. I það minnsta sl. fimmtán ár hefur ekki linnt niðurskurði velferðarkerfa Vesturlanda og vart mun það tilviljun að eftir hrun „bolsévismans" í Sovét- ríkjunum og Austur-Evrópu hefur kné verið látið fylgja kviði sem aldrei fyrr í því að ganga á þá hagsmuni sem tvær heimsstyrjaldir og áratuga rétt- indabarátta hafði fært alþýðu manna. Eins og horfur era nú, er við stönd- um á skurðpunkti tveggja alda, virð- ist félagslegt húsnæði sem almenn mannréttindi raunar vera eitt þeirra atriða, sem erfitt er að sjá fyrir sér sem sjálfsagðan og eðlilegan hlut í réttindakerfi hins nýja tíma.

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.