Morgunblaðið - 20.05.2000, Síða 36
36 LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000
LISTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Hirst borgar
til að komast
hjá málaferlum
London. Morgunblaðið.
BREZKI listamaðurinn Damien
Hirst hefur fallizt á að greiða fé til
tveggja góðgerðarfélaga í þágu
barna til að komast hjá málaferlum
fyrir hugmyndastuld. Verk hans,
sem hann seldi fyrir skömmu fyrir
117 milljónir króna, er stækkuð eft-
irmynd líffræðileikfangs, sem kost-
ar 1.700 krónur í búðum. Hirst hefur
nú viðurkennt að hafa sótt hug-
myndina í líffræðisett sonar síns.
í blaðafregnum er þess getið að
málsaðilar haf! orðið ásáttir um að
halda leyndri þeirri upphæð, sem
Hirst greiðir til góðgerðarfélag-
anna, en haft er eftir höfundi líf-
fræðileikfangsins, Norman Emms,
að upphæðin sé lægri en hann hafi
gert sér vonir um. Hirst féllst líka á
takmarkanir á eftirprentunum af
verki sínu.
Verk Hirst, sem er sex metra
hátt, er nú til sýnis hjá eigandanum
Charles Saatchi í listhúsi hans í
London og hefur hlotið góða dóma
gagnrýnenda, m.a. verið nefnt
meistaraverk og fyrsta alvöru
brezka 21. aldar listaverkið.
Tena Palmer
í Múlanum
HLJÓMSVEITIN Crucible ásamt
djasssöngkonunni Tenu Palmer
leikur á Múlanum, Sóloni íslandusi
annað kvöld, sunnudagskvöld, kl. 21.
Hljómsveit Tenu, Crucible, gaf út
geislaplötu á síðasta ári. Nú eru þau
mætt með nýtt frumsamið efni og
bregða fyrir sig rafrænum og óra-
fmögnuðum hljóðum í kraftmiklum
spuna. Hijómsveitin er skipuð, auk
Tenu Palmer, Kjartani Valdemar-
ssyni á píanó, hljómborð og harmon-
ikku, Matthíasi Hemstock á tromm-
ur og slagverk, Pétri Hallgrímssyni
á gítar og Jóhanni Jóhannssyni á
farfísaorgel.
Austurgata 25, Hafnarfirði
Til sölu neðri hæð hússins
Verslunarrými í vel byggðu steinhúsi. Byggt 1928.
Möguleikar til breytinga t.d. fyrir íbúðarhúsnæði.
Grunnflötur hússins 96 fm. 970 fm skjólsæl baklóð með miklum
trjágróðri. Mjög góður og friðsæll staður í miðbænum. Ekkert
áhvílandi. Laust strax.
Nánarí upplýsingar í dag og á morgun
í síma 555 0764 frá kl. 12-16. Til sýnis sömu daga frá kl.
16-18 og á öðrum tímum eftir samkomuiagi.
Árni Gunnlaugsson hrl.,
Austurgötu 10, sími 555 0764.
STYRKUR TIL
T ÓNLISTARNÁMS
Minningarsjóður um Jean Pierre Jacquillat mun
á þessu ári veita tónlistarfólki styrk tilJramhaldsnáms
erlendis á ruesta skólaári 2000-2001.
Veittur er styrkur að upphæð kr. 500.000.
Umsóknir með upplýsingum um námsferil og
framtíðaráfrom sendist fyrir 25. maí nk. til
formanns sjóðsins:
Arnar Jóhannssonar,
pósthólf 3562
123 Reykjavík.
Umsóknum fylgi hljóðritanir, raddskrár frum-
saminna verka og/eða önnur gögn sem sýna hæfni
umsækjanda.
Listaklúbbur Leikhúskjallarans
Bryndís Petra Bragadóttir og Vilborg Halldórsdóttir í verki Elísabetar Jökulsdóttur Eldhestur á ís.
Eldhestur á ís
Fiðla og
píanó á
Hvammstanga
MARGRÉT Kristjánsdóttir fíðlu-
leikari og Þorsteinn Gauti Sigurðs-
son píanóleikari halda tónleika í
félagsheimilinu á Hvammstanga á
morgun, sunnudag, kl. 16. Leikin
verða verk eftir Beethoven,
Brahms og Franck. Tónleikar
þessir eru styrktir af Félagi ís-
lenskra tónlistarmanna.
í LISTAKLÚBBI Leikhiískjallar-
ans mánudagskvöldið 22. maí kl.
20.30 verður leiklestur á einþátt-
ungi Elisabetar Jökulsdóttur, Eld-
hestur á ís, sem var frumsýnt á
litla sviði Borgarleikhússins 1990
að undangenginni samkeppni um
besta einþáttunginn sem Þjóðleik-
húsið efndi til árið 1987. Einþátt-
ungur Elísabetar hlaut 2.-3. verð-
laun.
Verkið fjallar um ástina og átök
milli tveggja kvenna sem kynnst
hafa ástinni hvor á sinn hátt. Flytj-
endur eru Bryndís Petra Braga-
dóttir, Erla Rut Harðardóttir og
Vilborg Halldórsdóttir, þær sömu
léku í sýningunni fyrir 10 árum.
Leikstjóri er Sigríður Margrét
Guðmundsdóttir.
Elísabet Jökulsdóttir hefur sent
frá sér tvær örsögur: Galdrabók
EIlu Stínu og Lúðrasveit EIlu
Stínu.
Fyrsta skáldsaga hennar kom út
fyrir jólin 1999.
Umsjónarmaður Listaklúbbsins
er Helga E. Jónsdóttir.
Fjölmennasta
hljómsveit
sögunnar
SINFÓNÍUHLJÓMSVEIT Van-
couver í Kanada og á sjöunda þús-
und tónlistarnemar mynduðu á
dögunum fjölmennustu hljömsveit
sögunnar á BC Place-vellinum þar
í borg. Samanstóð sveitin af 6.452
hljóðfæraleikurum en fyrra metið
átti sinfóníuhljómsveitin í Birming-
ham á Englandi ásamt tónlistar-
nemum frá 1998. AIls voru þá 3.503
hljóðfæraleikarar saman komnir.
Hljómsveitarstjóri í Vancouver
var Bramwell Tovey en framtakið
var liður í herferð fyrir mikilvægi
tónmenntunar fyrir ungt fólk.
Leikinn var tíu mínútna langur
kafli úr Óði til gleðinnar úr níundu
sinfóníu Beethovens.
Reuters
M-2000
Laugardagur 20.
maí.
Gallerf Sævars
Karls. Kl.
14.
Hallgrímur
Helgason
sýnir nýleg málverk
og teikningar. Sýningin stendur
til 8. júní.
Sindrabær, Höfn, Hornafirði.
Vatnajökull - náttúra, saga,
menning.
Jöklasýning þar sem vísindi,
listir og alþýðufróðleikur bland-
ast saman. Stefnt er að því að
sýningin verði vísir að Jökla-
safni í sveitarfélaginu þar sem
fram fer öflug miðlun upplýs-
inga um jökla í tengslum við
rannsóknir á þeim. Jöklasýning-
in stendur til 20. september.
Dagskráin er hluti af samstarfs-
verkefni Menningarborgarinnar
og sveitarfélaga.
www.hornafjordur.is.
Listasýning grunnskólanem-
enda - Kirkjuhvoli, Akranesi
Meðal fjölmargra viðburða á
verkefninu Sjávarlist á Akra-
nesi er sýning á verkum nem-
enda í grunnskólanum sem
stendur til 4. júní. Dagskráin er
hluti af samstarfsverkefni
Menningarborgarinnar og sveit-
arfélaga.
www.akranes.is.
www.reykjavik2000.is -
wap.olis.id.