Morgunblaðið - 20.05.2000, Page 63
t
MOHGUNBLAÐIÐ
LAUGARDAGUR 20. MAÍ 2000 63
UMRÆÐAN
Ópera á breytingaskeiði
í GREIN í Morgunblaðinu fyrir
nokkra lýsti Bergþóra Jónsdóttir
áhyggjum vegna brotthvarfs Gerrits
Schuil frá Islensku óperunni og
óvissu um listræna stjórn og stefnu
óperunnar í kjölfarið. Ég vil þakka
Bergþóru þessa grein, sem er skrif-
uð af þekkingu og einlægri um-
3 hyggju fyrir Islensku óperunni og
I framtíð tónlistarlífs á Islandi. Ég get
ekki svarað öllum hennar spurning-
um en vona að ég geti skýrt meginat-
riði og stefnu stjórnar Óperunnar
um næstu skref í þroskaferli fyrir-
tækisins.
Það er rétt hjá Bergþóru, að ís-
lenska óperan stendur á tímamótum.
landi eru Reykjavík Menningarborg
2000, Listahátíð og Þjóðleikhúsjð.
Þessi leið verður einnig farin í Is-
lensku óperunni, þar sem Óperu-
stjóri mun fara bæði með listræna og
rekstrarlega ábyrgð í umboði stjórn-
ar. Stjórn og óperustjóra til ráðun-
eytis um mótun listrænnar stefnu og
verkefnaval verður listráð skipað 5
einstaklingum sem hafa sérstaka
þekkingu á sviði óperu, tónlistar og
leikhúss. Það segir sig sjálft að
stjórn Óperunnar mun vanda til vals
í Listráð eins og frekast er kostur.
Bergþóra spyr hvort listrænn
metnaður verði hafður að leiðarljósi í
starfi Óperunnar. Listrænn metnað-
ur hlýtur að vera órofa þáttur í
metnaði um að rækja hlutverk sitt
sem best. íslenska óperan gegnir
margþættu hlutverki í okkar samfé-
lagi og þarf að gæta að þörfum fleiri
en eins hóps. Henni er ætlað að
kynna íslenskum áhorfendum óperu-
verk, gefa íslenskum söngvurum og
tónlistarmönnum tækifæri til að
flytja slík verk og stuðla að sköpun
og flutningi íslenskrar óperutónlist-
ar. Hún þarf að þjóna fjölbreyttum
hópi gesta, reyndum óperuvinum og
nýjum áhorfendum, ungum og öldn-
um. Allt þarf þetta að vera innan
fjárhagsramma. Því er að mörgu að
hyggja við verkefnaval og skipulagn-
ingu starfsins. En listrænn metnað-
ur er sá byr, sem ber þetta skip
áfram. Án hans marar það á sama
stað, grotnar niður og sekkur. A
undanfómum mánuðum hefur verið
unnið að gagngerum breytingum á
öllu stjói-nkerfi íslensku óperunnar,
í samræmi við ný lög um sjálfseign-
arstofnanir. Það starf hefur gengið
mjög vel og óperan stendur nú til-
búin til að takast á við ný verkefni og
leggja áfram sitt af mörkum í ís-
lensku tónlistarlífi.
Fjöldi íslenskra listunnenda og
listamanna hefur opinberlega borið
Gerrit Schuil lofi fyrir fjölbreytt
framlag hans til tónlistar á íslandi.
Ég tek innilega undir með þeim.
Vegna starfa hans með íslenskum
söngvurum, og sem píanóleikara,
hljómsveitarstjóra og skipuleggj-
anda Listahátíðar í Garðabæ, vat<-
hann ráðinn til Óperunnar. Á stutt-
um tíma þar vann hann frábært starf
og bætti enn við afrekalista sinn í ís-
lensku tónlistarlífi. Þótt ekki hafi
tekist að ná samkomulagi um
verksvið listræns stjórnanda hjá ís-
lensku óperunni, vona ég að Gerrit
Schuil sjái sig ekki knúinn til að fara
frá Islandi, heldur bjóðist honum
önnur verðug verkefni hér á landi. I
mínum huga leikur enginn vafi á því
að það væri mikill skaði fyrir íslenskt
menningarlíf að missa jafn hæfan
mann og Gerrit Schuil úr landi.
Höfundur er stjómarformaður
íslensku óperunnar.
í
I
Frumkvöðlamir sem hafa byggt
hana upp með ótrúlegum krafti og
elju í meira en tuttugu ár draga sig
nú í hlé. Fyrir rúmu ári stóð stjórn
Óperunnar frammi fyrir því að ráða
stjórnanda eða stjórnendur í þeirra
stað. Engin algild uppskrift er til
fyrir því hvemig stjórna beri ópem-
húsum eða öðmm menningarstofn-
unum. Ýmsar leiðir eru farnar í sMk-
um stofnunum um heiminn, - og
hverri og einni þarf að sníða stakk
Óperan
Fjöldi íslenskra list-
unnenda og listamanna
hefur opinberlega borið
Gerrit Schuil lofi fyrir
fjölbreytt framlag hans
til tónlistar á Islandi,
segir Guðrún Péturs-
dóttir og bætir við:
Eg tek innilega undir
1 ________með þeim.____________
eftir vexti. Vegna þess að starfsemi
íslensku ópemnnar inniber marga
rekstrarþætti samhliða hinum list-
ræna, var ætlunin að ráða tvo stjórn-
endur, hvorn með sitt verksvið, -
Gerrit Schuil væri listrænn stjórn-
andi en Bjarni Daníelsson fram-
kvæmdastjóri fyrirtækisins með um-
boð til alhliða áætlanagerðar og
verkstjórnar í daglegum rekstri.
Þessi uppsetning hefur ákveðna
kosti, en krefst líka mjög skýiTar
* ábyrgðarskiptingar sem getur verið
erfið í framkvæmd. Enda reyndist
það svo, - menn höfðu mismunandi
skoðun á því hvaða verkaskipting
væri farsælust. Á því lék aldrei vafi
að báðir em þessir stjórnendur af-
burðahæfir, en sú skipan mála sem
ætluð hafði verið gekk ekki upp - og
þá þarf að leita annarrar leiðar.
Víða er það svo, að listræn og
rekstrarleg ábyrgð menningarstofn-
unar er á sömu hendi, dæmi héðan af
Guðrún
Pétursdóttir
Karrimor KSB 300 GTX
I Verð 13.890 I
Scarpa Lite-Trek GTX
Scarpa Nevada
Verð 8.990
liuwiimMETiMrkiJ
■Verð 10-890^
(0
.
tb «
C *"
15 .
tíí p
□ □ .£
<o “ c
0)0 P
— Q) 5
«S E's
£ 2 -c
3 01 D)
Qr o
... og reyndu hressilega á þig!
Góðir gönguskór aðlagast fótum eigandans smátt og smátt
og verða eins og óaðskiljanlegur hluti af honum sjálfum. Þeir
eru léttir og þægilegir, halda fótum hans þurrum og hlýjum
og geta gengið - árum saman.
Opið hjá NANOQ í Kringlunni:
Mánud.-miðvd. 10-18.30 • fimmtud. 10-21
föstud. 10-19 og iaugard. 10-18
sunnudaga 13-17 • sfmi 575 5100
•S -«
JjS
« S
□
C dO
Jo -Sí (0
CD C- E
<o ^
fil*
Tripie Divide Mid Rockport Zenobia |
Verð frá 7.590 Verö 17.980 1
i2tta
NANOQ>
- lífið er áskomn!