Morgunblaðið - 27.05.2000, Síða 18

Morgunblaðið - 27.05.2000, Síða 18
18 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ i VIÐSKIPTI Ráðstefna Landsbankans um framtíðarhorfur í fjárfestinffum Framtíðin liggur í bankaþjónustu yÍSLAND er paradís, en það nægir Islendingum ekki,“ sagði Neii Os- bom, framkvæmdastjóri og útgef- andi tímaritsins Euromoney, við gesti á ráðstefnu sem Landsbanki Islands hélt í gær um framtíðarhorf- ur í fjárfestingum á íslandi. Þátttak- endur voru stjórnendur úr fjármála- heiminum erlendis og innanlands, auk stjórnenda nokkurra íslenskra fyrirtækja. Osbom sagði að spurn- ingin fyrir Islendinga væri hvers konar atvinnustarfsemi þeir ættu að sækjast eftir. Svarið sem hann gaf var að íslendingar ættu að beina sjónum sínum að aflandsþjónustu (e. offshore banking), en með því er yf- irleitt átt við bankaþjónustu þar sem skatta- og reglugerðaumhverfí er hagstætt og bankaleynd er mikil. Sagði hann mikla auðsköpun vera í heiminum og hluti hennar færi í af- landsþjónustu. Hann nefndi sem dæmi að Guemsey, Jersey, Mön og írland hefðu haft gott upp úr banka- þjónustu af þessu tagi og eins og um- hverfið væri orðið hér á landi ættu Islendingar góða möguleika á þessu sviði. Aflandsþjónusta verður ekki stöðvuð Osbom telur að íslendingar mættu andstöðu Evrópusamban- dsins og Efnahags- og framfara- stofnunarinnar (OECD) ef þeir opn- uðu fyrir slíka starfsemi en var jafnframt þeirrar skoðunar að ekki þyrfti að hafa þungar áhyggjur af þessari andstöðu. Sagði hann að eng- in leið væri að koma í veg fyrir af- landsþjónustu í heiminum þótt sum ríki og stofnanir vildu koma í veg fyrir hana. Það yrðu alltaf einhver lönd til sem vildu bjóða upp á þessa þjónustu. Hann bætti því við að sum- ir álitu afiandsþjónustu af hinu illa, en hann sagðist ekki sammála því. Hann sagðist telja rangt að skatt- leggja spamað, því tekjurnar hefðu þegar verið skattlagðar og óeðlilegt væri að skattleggja þær aftur. Þjónustuhlutverk ríkisins á skuldabréfamarkaði Geir H. Haarde, fjármálaráð- herra, greindi frá þeim breytingum sem orðið hefðu í efnahagsmálum og í fjármálalífi hér á landi á síðustu ár- um. Sagði hann að með þessum breytingum hefðu viðfangsefnin einnig breyst og nú væri svo komið vegna mikils afgangs af ríkissjóði að ríkið yrði að gera upp við sig hvort það ætlaði sér að greiða upp allar skuldir sínar innanlands eða sinna Nokkrir áheyrenda á ráðstefnu Landsbankans. því þjónustuhlutverki að halda úti virkum skuldabréfamarkaði. Hann sagði að þrátt fyrir að hann teldi útlitið bjart væri verðbólgan til að mynda ekki viðunandi þótt hún væri mun minni en fyrir nokkmm ánim. Hann sagði að ríkið mundi halda áfram kerfisbreytingum og að áfram yrði gætt aðhalds í rekstri hins opinbera. Nefndi hann sem dæmi að þótt fé hefði verið tekið frá fyrir þeirri vegagerð sem talin væri nauðsynleg yrði ekki farið út í fram- kvæmdir í því þensluástandi sem nú ríkir. Geir lagði að lokum áherslu á að þótt landið væri smátt kæmi það ekki að sök. Stærð væri ekki mikil- væg, skilvirknin væri það sem skipti máli. Aðrir sem fluttu erindi á ráðstefn- unni voru Halldór J. Kristjánsson, bankastjóri Landsbankans, Kári Stefánsson, forstjóri Islenskrar erfðagreiningar, Skúli Mogensen, framkvæmdastjóri Oz.com, Ragnar Guðmundsson, fjármálastjóri Norð- uráls, og Jeremy Hawkins, aðalhag- fræðingur Bank of America í Evrópu. Skýrr tekur að sér verulegan hluta af miðlægum tölvurekstri Flugleiða Verulegur sparnað- ur fyrir Flugleiðir SKÝRR mun í haust taka að sér verulegan hluta af miðlægum tölvurekstri Flugleiða samkvæmt samningi sem undirritaður var milli félaganna í gær, en samning- urinn er liður í endurskipulagn- ingu á tölvurekstri hjá Flugleiðum. Með honum lýkur áratuga löngum rekstri Flugleiða á svokölluðum OZ.COM stefndi að skráningu hlutabréfa á verðbréfamarkaðinum í Stokkhólmi í sumar en hefur nú ákveðið að fresta skráningu. Að sögn Robert Quinns, framkvæmda- stjóra fjármálasviðs OZ.COM, var sænski markaðurinn fýsilegur þar sem OZ.COM hefur átt í náinni sam- vinnu við sænska farsímarisann Er- icsson og eðlilegast að leita hófanna þar. Lækkandi gengi hlutabréfa í tæknifyrirtækjum í Svíþjóð, eins og í fleiri löndum, er meginástæða þess að OZ frestar skráningu í Svíþjóð. Þá er seinni hluti sumars ekki heppilegasti tíminn til þess að setja bréf á markaðinn, að sögn Roberts. Til stóð að selja um 5-10% af hlutafé OZ á markaðinum í Svíþjóð og gerðu stjómendur OZ sér vonir um að geta aflað félaginu 50 til 70 milljóna dala í auknu hlutafé en þá fjármuni átti að nota til þess að auka enn þróunarvinnu fyrirtækisins, efla sölu- og markaðsstarf og koma á fót starfsemi í fleiri löndum. Robert segir ljóst að OZ hefði varla tekist að fá það verð fyrir bréfin sem stjómendur fyrirtækisins gerðu ráð fyrir í upphafi og því hafi verið ákveðið að fresta skráningu en mál- ið verði skoðað aftur í lok sumars. Búið sé að vinna undirbúningsvinn- una og því ekkert því til fyrirstöðu að fara síðar inn á sænska hluta- bréfamarkaðinn. Þá tekur Robert sérstaklega fram að OZ hafi nægj- anlegt rekstrarfé næstu misserin og það sé því engin ástæða til þess að ofurmiðlurum og héðan í frá kaupa Flugleiðir þá þjónustu af Skýrr. Að mati Flugleiða hefur þetta tvíþættan ávinning í för með sér. Félagið er að breyta áherslum í tölvurekstri, draga sig út úr rekstri ofurmiðlara sem hefur þjónað kerfum á borð við tekju- bókhald, alþjóðlegt innritunar- selja við of lágu verði, betra sé að bíða og sjá hvernig málin þróist. Stjórnendur OZ hafi talið skynsam- legt að bjóða út hlutafé erlendis þar sem um mjög háar fjárhæðir sé að ræða. Aðspurður segir Robert að frest- un útboðs í Svíþjóð muni lítil sem engin áhrif hafa á langtímaáætlanir fyrirtækisins. OZ ráði yfir nægjan- legum fjármunum til þess að vinna að frekari þróun viðskiptahug- mynda og markaðssókn. Starfsfólki hafa fjölgað mjög eða um 49 frá ára- mótum og stefnt sé að verulegri fjárfestingu og veltuaukningu á næstu árum en Robert gerir sér vonir um að fyrirtækið geti farið að skila hagnaði árið 2002. í frétt um kerfi, vildarkortakerfi og tenging- ar við alþjóðlega dreifikerfið Amadeus. Félagið telur þetta bet- ur komið í höndum fyrirtækis sem sérhæfir sig í slíkum ofurmiðlara- rekstri. Þess í stað munu Flugleið- ir beina áherslum sínum í upp- lýsingatækni í vaxandi mæli í átt að þróun innri notendakerfa og afkomu OZ.COM á fyrstu þremur mánuðum ársins 2000, sem birt var nú í vikunni, voru afkomutölur fyrir sama tímabil í fyrra í litlu samræmi við það sem fram kom í afkomufrétt fyrir ári. Aðspurður segir Robert að ástæða þessa sé sú að í tengslum við undirbúning félagsins vegna skrán- ingar á verðbréfamarkað og til að verða almenningshlutafélag í Bandaríkjunum hafi uppgjörsað- ferðum verið breytt til samræmis við bandarískar reikningsskilaregl- ur (US Generally Accepted Accounting Principles, US-GAAP). Því hafi samanburðartölur síðasta árs verið uppfærðar að sama skapi. Bandarísku reglurnar, US-GAAP, viðskiptavinakerfa. Að auki næst verulegur fjárhagslegur sparnaður fyrir Flugleiðir með því að nýta þá aðstöðu sem byggð hefur verið gera strangari kröfur en alþjóðlegar reikningsskilareglur, ekki síst hvað varðar meðferð tekna hjá hugbún- aðarfyrirtækjum. Að sögn Roberts námu tekjur samkvæmt alþjóðlegum reiknings- skilareglum á fyrsta ársfjórðungi 1999 tæplega 130 milljónum króna en aðeins 111,3 milljónir séu tekju- færðar samkvæmt bandarísku reglunum. Þar muni mestu um hug- búnaðarleyfistekjur frá Ericsson upp á hálfa milljón bandaríkjadala sem fengnar voru á fyrsta ársfjórð- ungi 1999 en verða nú færðar til tekna á þremur árum samkvæmt bandarísku reglunum. Kostnaðarmegin hafi einnig verið gerðar breytingar á uppgjörsað- ferðum og hafi samanburðartölur frá fyrra ári verið uppfærðar til samræmis. Megi þar fyrst nefna áfallna orlofsskuldbindingu sem færð er í reikninginn í fyrsta sinn og önnur atriði eins og hagnað vegna færslu úr íslenskum krónum í bandaríkjadali sem færist nú beint yfir eigið fé og gjaldfærslu vegna valréttarsamninga við starfsmenn. „Við viljum leggja áherslu á að það eru engar villur í þeim tölum sem birtar voru í fyrri fréttatilkynn- ingum. Munurinn stafar einungis af því að beitt er öðrum reikningsskila- aðferðum til samræmis við það sem skráningaryfirvöld í Bandaríkjun- um gera kröfur um,“ segir Robert Quinn framkvæmdastjóri fjármála- sviðs OZ.COM. upp í vélasal Skýrr og hætta eigin ofurmiðlararekstri. Að sögn Hreins Jakobssonar, forstjóra Skýrr, er Skýrr eina tölvufyrirtækið sem þegarveitir þá þjónustu að reka bæði vélbúnað og hugbúnað fyrirtækja í svokallaðri kerfisleigu. Unnið verður að því næstu vikur að færa ofurmiðlara Flugleiða í vélasali Skýrr og á verkinu að vera lokið í haust. Starfsfólk Flugleiða mun í framtíðinni hafa aðgang að þeim kerfum sem Flugleiðir verða með í rekstri hjá Skýrr í gegnum ljósleiðaratengingu frá Línu.Net, sem tryggir nægjanlega band- breidd fyrir slíka þjónustu, auk þess sem það gefur færi á frekari þróun á notendaþjónustu við not- endur kerfanna. --------^4-*-------- Minnstu vidskipti á VÞÍ í tæpt ár • VIÐSKIPTI á Veröbréfaþingi í gær námu alls um 134 milljónum króna, þar af með hlutabréf fyrir um 50 milljónir króna og hafa þau ekki verið minni síöan í lokjúní á síðasta ári. Úrvalsvísitalan hækk- aði um 0,03% og er nú 1.552 stig. Mest viöskipti með hlutabréf voru með hlutabréf ðssurar fyrir um 11 milljónir króna (-0,8%), með hlutabréf Flugleiða fyrir rúmar 5 milljónir (-1,5%), með hlutabréf Eimskipafélagsins fyrir tæpar 5 milljónir (+0,8%) og með hlutabréf Nýherja fyrir tæpar 5 milljónir króna (-8,0%). Bakkavör Group lækkaði um 6% í einum vióskipt- um og Stáltak hækkaði um 9,1% einnig í einum viðskiptum. Ávöxtunarkrafa húsbréfa 98/2 var í gær 5,65 og hækkaði um 0,10 og ávöxtunarkrafa húsbréfa 96/2 var 6,25 og lækkaði um 0,05. OZ.COM frestar skráningu hlutabréfa í Svíþ.jóð Markaðsaðstæður óhagstæðar Morgunblaöiö/Ásdís Robert Quinn: „Munum athuga skráningu aftur síðsumars.“
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.