Morgunblaðið - 27.05.2000, Síða 26

Morgunblaðið - 27.05.2000, Síða 26
26 LAUGARDAGUR 27. MAÍ 2000 MORGUNBLAÐIÐ KONUNGSHEIMSÓKN Opinber heimsókn Abdullah II, konungs Jórdaníu, og Raníu drottningar til Islands Morgunblaðið/Kristinn Ranía drottnig tekur við blómvendi úr hendi ungrar námsmeyjar í leikskólanum Jörfa. Við Konungshjónin ásamt forseta íslands við komuna til Bessastaða í gær. hlið drottningar situr Dorrit Moussaieff, heitkona forseta Islands. Konungur lýsti áhuga á samstarfí hátæknifyrirtækja Morgunblaðið/Golli Abdullah II fræðist um starfsemi íslenskrar erfðagreiningar. Á bak við hann eru Ólafur Ragnar Grímsson forseti og Kári Stefánsson, forstjóri fyrirtækisins. Abdullah konungur kynnti sér í gær starf- semi íslenskra hátækni- fyrirtækja og Ranía drottning heimsótti leik- skóla í Reykjavík. I gærkvöldi snæddu kon- ungshjónin viðhafnar- kvöldverð á Bessastöð- um í boði forseta Islands. Opinberri heimsókn þeirra hingað til lands lýkur í dag. ABDULLAH II konungur Jórdaníu og Ranía drottn- ing lentu á Keflavíkur- flugvelli um kl. 11 í gær og héldu þegar til Bessastaða á fund for- seta Islands, Ólafs Ragnars Gríms- sonar. Þar áttu konungur og forset- inn stuttar viðræður og að þeim loknum ávörpuðu þeir fréttamenn. Ólafur Ragnar sagði að það væri mikill viðburður í sögu Islands að hinn nýi konungur Jórdaníu skyldi svo snemma á sínum ferli kjósa að sækja landið heim. Hann minntist sérstaklega þeirrar vináttu sem ríkt hefði milli íslendinga og föður Abdullahs II, Husseins konungs. Is- lendingar hefðu ávallt verið velviljað- ir í garð Jórdaníumanna og væru áhugasamir um land og þjóð. Forset- inn gat þess að Hussein konungur heitinn hefði oft heimsótt ísland og unnið hug og hjörtu íslensku þjóðar- innar þegar hann hefði verið hér á ferð. Ólafur Ragnar sagði að þróun heimsmála væri á þann veg að smá- ríki gætu nú í auknum mæli notið þeirra möguleika sem ný tækni gæfi til vaxtar og velmegunar. í því sam- bandi nefndi forsetinn að það yrði honum ánægja að kynna konungi ís- lensk hátæknifyrirtæki og hvernig nýtingu jarðhita væri háttað hér á landi. ísland fyrirmynd Jórdaníukonungur sagði að faðir hans hefði hvatt hann til að heim- sækja ísland og þakkaði það tæki- færi að fá að koma hingað. Hann sagði að ísland væri dæmi um hverju lítil ríki með takmarkaðar auðlindir gætu áorkað. Konungur kvað Island vera fyrirmynd öðrum ríkjum sem vildu nývæðast og bæta lífskjör íbúanna og sagðist vona að heimsókn hans yrði til að stuðla að nánari tengslum ríkjanna, ekki síst á sviði viðskipta og tækni. Hann sagðist hlakka til þess að fá tækifæri til að kynna sér starfsemi íslenskra há- tæknifyrirtækja og möguleika á nýt- ingu jarðhita. Hann benti á að í Jórd- aníu væri jarðhiti sem ekki hefði verið nýttur sem skyldi og sagðist vonast til að samvinna landanna gæti orðið til að breyta því. Hans hátign sagði að þótt þótt ís- land kynni að virðast i mikilli fjar- lægð frá Jórdaníu ættu löndin það sameiginlegt að í þeim báðum væri mikill vöxtur í hátækniiðnaði ýmiss konar. „Ég tel að samstarf milli ís- lenskra og jórdanskra fyrirtækja á þessu sviði sé ákjósanleg og að aðilar í báðum löndum geti haft mikinn hag af. Ég er ekki einungis hingað kom- inn til að láta í ljós vilja til samstarfs, heldur vona ég að fundur minn í dag muni leiða til áþreifanlegs árangurs. Það er von mín að innan árs verði búið að koma á formlegum tengslum milli íslenskra og jórdanskra fyrir- tækja,“ sagði Abdullah II. Að loknum hádegisverði á Bess- astöðum voru konungi sýndar aðal- stöðvar íslenskrar erfðagreiningar og nutu konungur og forsetinn leið- sagnar Kára Stefánssonar, forstjóra fyrirtækisins, um húsakynnin. Síðar um daginn sótti konungur kynning- arfund með fulltrúum íslenslö-a hug- búnaðarfyrirtækja á Hótel Sögu. Meðal þeirra fyrirtækja sem kynntu starfsemi sína voru Kögun, Netverk og Net-album.net. Að kynningar- fundinum loknum hitti konungur sendiherra og fulltrúa erlendra ríkja á íslandi. Meðan konungur kynnti sér ís- lenskt atvinnulíf heimsótti Ranía drottning böm á leikskólanum Jörva við Hæðargarð og kynnti sér starf- semi Bamahúss. I fylgd með drottn- ingunni var Dorrit Moussaieff, heit- konaforsetans. í anda Leifs Eiríkssonar Efnt var til hátíðarkvöldverðar til heiðurs konungshjónunum á Bessa- stöðum í gærkvöldi og fluttu konung- urinn og forseti íslands ávörp undir borðum. í ræðu sinni þakkaði konungur m.a. stuðning íslendinga við friðar- ferlið í Miðausturlöndum. „Stuðning- ur ykkar er sérstaklega mikils met- inn af þeim okkar á svæðinu sem höfum þurft að þjást of lengi og höf- um lengi þráð að kom á réttlæti, sam- vinnu og vináttu.“ Hans hátign lofaði einnig þann áhuga sem forkólfar í íslensku at- vinnulífi hefðu sýnt á því að koma á viðskiptatengslum við Jórdana og sagðist mundu beita sér fyrir að rík- isstjóm hans ynni að því að mögu- leikar til samstarfs yrðu nýttir. Konungur gat þess að árangur ís- lands á svið hátækni væri ávöxtur þess frumkvöðlaanda sem einkenndi íslenskt samfélag. „Sá andi er hlið- stæður þeim sem Leifur Eiríksson sýndi þegar hann varð fyrstur til að uppgötva heimsálfu í vestri, löngu á undan öðmm,“ sagði Abdullah II. í lok ræðu sinnar bað konungur Ólaf Ragnar að þiggja boð konungs- hjónna um að heimsækja Jórdamu „þar sem við vonumst til að geta end- urgoldið þá gestrisni sem við höfum notið í landi yðar.“ Forseti íslands sagði að íslending- ar dáðust að þvi hvernig íbúar Jórd- aníu hefðu glímt við þá erfíðleika sem að þeim hefðu steðjað og hvemig Abdallah hefði leitt þjóð sína og unn- ið að framfömm í landinu. „Við höf- um séð hve mikilvæg forysta, kjark- ur og einhugur Hasemítaættarinnar hefur verið fyrir friðinn og hvemig sú áhætta sem fjölskylda yðar hátig- nar og þjóðin hefur tekið hefur reynst lykilatriði í árangursríkum viðræðum og samningum," sagði for- setinn. Hann gat þess einnig í ræðu sinni að bæði Islendingar og Jórdan- ar hefðu þurft að berjast fyrir tilvera sinni enda þótt hin andstæðu öfl hefðu verið af ólíkum toga. „Við finn- um til náins skyldleika við þjóð yðar, skyldleika sem markast af þeim verkefnum sem blasa við smáum þjóðum í nútímanum. Skyldleika sem markast af reynslunni af því að hafa þurft að beijast fyrir tilvera okkar gegn römmum ógnum, þótt eðli ógn- anna hafi verið ólíkt. í okkar tilviki óblíð náttúraöfl, eldgos og úfið haf, en yðar tilviki átök, styrjaldir og vopnuð barátta sem því miður hefur spillt friði og samvinnu milli þjóða,“ sagði forseti íslands. Konungshjónin munu í dag m.a. heimsækja Hitaveitu Suðurnesja og Bláa lónið og halda síðan af landi brott eftir hádegið. Ræddu um tvíhliða samskipti í fylgdarliði konungshjónanna er Fayes Tarawneh, hirðstjóri og æðsti embættismaður konungs. Tarawneh hefur áður m.a. gegnt stöðu forsætis- ráðherra og utanríkisráðherra í Jórdaníu. Tarawneh átti í gær við- ræður við Halldór Ásgrímsson utan- ríkisráðherra og ræddu þeir meðal annars um friðarferlið í Miðaustur- löndum, tvíhliða samskipti íslands og Jórdaníu, og tengsl Jórdaníu við Frí- verslunarsamtök Evrópu (EFTA). Tarawneh sagðist í gær telja að brottflutningur ísraelska hersins frá Líbanon myndi efla vonir um að frið- arviðræður ísraela og Sýrlendinga gætu hafist að nýju og einnig örva viðræður Palestínumanna og Israela. Hann sagði að stjómvöld í Jórdaníu ynnu nú með með Bandaríkjamönn- um og Egyptum að því að fá ísraela og Sýrlendinga að samningaborðinu á nýjan leik.
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.