Morgunblaðið - 27.05.2000, Side 32

Morgunblaðið - 27.05.2000, Side 32
32 LADtíÁáDÁGtJR 27. MAÍ 2ÓÓ0 Möróúnblaðið ERLENT Mál umsækj- anda við Oxford veldur fj aðrafoki GORDON Brown, fjármála- ráðherra bresku ríkisstjórnarinn- ar, hefur gagnrýnt skólayfirvöld við Oxford-háskóla harðlega fyrir það hvemig staðið er að vali á nemendum við skólann. Gagnrýnin kom upp eftir að Lauru Spence, framúrskar- andi nemanda úr breska ríkisskólakerf- inu, var synjað um skólavist i læknisfræði við Oxford, en fókk síð- an umsvifalaust inn- göngu og fullan náms- styrk við Harvard-há- skóla í Bandaríkjunum. Hafa skólayfirvöld „ , verið sökuð um að taka r on nemendur sem koma úr einka- skóium fram yfir þá sem koma úr ríkisskólum og hefur Brown, með fullum stuðningi Tonys Blair for- sætisráðherra og Davids Blunkett menntamálaráðherra, sagt að mál- ið sé „algert hneyksli". í yfirlýsingu forsætisráðherrans segir að það sé „synd og skömm“ að Spence sé á fömm til Bandaríkjanna eftir að hafa fengið skólastyrk að andvirði tæpra átta milljóna ísl. kr. frá Harvard-háskóla, f stað þess að nema við breskan háskóla. Brown ræddi einnig um málið í ræðu þar sem hann sakaði skólayfirvöld um fhaldssemi. „Það er tfmi til kominn að við opnum dymar fyrir konum og fólki með ólfkan bakgrunn," sagði Brown. Er talið að ummæli Brown f garð skólans séu hluti af þaulhugsaðri herferð stjórnvalda sem vilja sýna fram á að þau styðji almenningsálitið sem undanfarna daga hefur snúist á móti „gömlu há- skólunum", Oxford og Cambridge. Skólayfirvöld í Oxford hafa vísað gagnrýni stjóravalda og fjölmiðla algerlega á bug og segja að málið sé hrikaleg skæling á sannleikan- um. Anthony Smith, yfirmaður Magdalen-College, sagði að Spence hefði vissulega verið hæfur um- sækjandi, en hún hefði þó ekki skarað fram úr þeim 22 umsækj- endum sem valið var úr eftir sér- stökum leiðum. Hún hefði ekki staðið sig sem skyldi á skriflegu prófi en í við- tali hefði hún borið af. Þá sagði Smith, máli sínu til stuðnings, að þrjár af þeim sex manneskjum sem höfðu umsjón með valferlinu væru heimsþekktar á sínu sviði og aðeins um- hugað um að fá til skól- ans bestu nemendur á sínu sviði þar eð námið væri afar dýrt. „Við vorum ekki viss um að hún væri algerlega hæf til námsins," sagði Smith. Brown Skorti sjálfstraust líkt og fleiri henni líkir BBC hefur komist yfir minnis- blöð eins þeirra er ræddu við Spence í Oxford og er þar sagt að hún gæti orðið „afbragðs læknir" og væri „afburðagáfúð“. I minnis- blöðunum segir þó ennfremur að hana skorti sjálfstraust „eins og svo oft er um nema úr ríkisskólum". Malcolm Wicks, aðstoðar- menntamálarúðherra, sagði íþætti á BBC að þessi ummæli væru „einkar lýsandi“ og ef heimskuleg ummæli lfkt og þessi væm höfð um nemendur í rfkisskólum segði það meira um fólkið sem dæmir. Rektor skólans, doktor Colin Lucas, sagðist áfellast mjögþá er ræddu um einn umsækjanda án þess að ræða um hópinn í heild. Sagði hann að mikið hefði breyst á sfðustu ámm og nú horfði svo við að 53% nýstúdenta sem fá tilboð um skólavist kæmu úr rfkisskólum. Þetta hlutfall hefði hækkað um 5% á fimm árum og miklum tfma hefði verið varið í að breyta ímynd skól- ans. Réðst hann jafnframt harka- Iega að Gordon Brown og sagði: „Hvaða nemanda áttum við að hafna til þess að koma þessum til- tekna inn í skólann?“ Fyrirhugaðar olíuboranir við Færeyjar Sautján fyrir- tæki sækja um Þórshöfn. Morgunblaðið. SAUTJÁN alþjóðleg olíufyrirtæki hafa sótt um að taka þátt í því er bor- anir eftir olíu verða hafnar í fyrsta sinn við Færeyjar. Frestur til að skila inn umsóknum rann út á miðvikudag í liðinni viku og alls bárust 23 umsóknir frá 17 al- þjóðlegum fyrirtækjum, þar af nokkrum af stærstu olíufyrirtækjum veraldar. Jafnvel þótt sum af þeim fyrirtækjum sem lýst hafa áhuga á olíuvinnslu við Færeyjar hafi ekki skilað inn umsóknum segir Eyðun Elttör, sem fer með olíumál í fær- eysku landstjóminni, að hann sé ánægður með niðurstöður útboðsins og að þar hafi sótt um mun meiri fjöldi fyrirtækja en búist hafði verið við. „Ég er ánægður með fjölda um- sækjenda. Þrátt fyrir að olíufélög hafi sýnt Færeyjum mikinn áhuga þá er ætíð erfitt að vita með vissu hve mörg þeirra sæki um á endanum þar eð um nýtt svæði er að ræða,“ sagði Elttör. „Það eru spennandi tímar framundan og það er mín von að fyrstu aðgerðir, sem senn munu hefjast, muni leiða til olíuvinnslu við Færeyjar. Á þann hátt munum við í framtíðinni skapa nýjan og sterkan atvinnuveg sem er til bóta fyrir sam- félagið allt,“ sagði Elttör. Svæðið sem um ræðir er alls 14.000 ferkílómetrar að stærð og liggur í austur og suðaustur frá Fær- eyjum. Olíufyrirtækin 17 hafa nú sótt um að fá leyfi til borana á um helmingi þessa svæðis. Þá eru taldar miklar líkur á að finna olíu á hafsbotninum milli Fær- eyja og Orkneyja og hafa fyrirtæki sýnt því svæði mikinn áhuga ekki síst vegna þess að bergtegundir henta vel til borana. Deilt um hvort eldislax geti valdið krabbameini ODD Lindberg, fyrrverandi selveiðieftirlitsmaður í Noregi, heldur því fram í grein í sænska dagblaðinu Dagens Nyheter að norskur eldislax geti hugsan- lega valdið krabbameini vegna lyfja og efna sem notuð eru við laxeldið. Norska fiskistofan segir þessar ásakanir tilhæfulausar og sænska matvæla- eftirhtið telur að fólk þurfi ekki að óttast að neysla eldislax geti valdið krabbameini. Norsku umhverf- isvemdarsamtökin Bellona segja hins vegar að taka eigi slíkar viðvaranir alvarlega og rannsaka betur hvort hætta geti stafað af neyslu eldislax. Lindberg heldur því meðal annars fram að norski eldislaxinn sé alinn á erfðabreyttum soja- og maís- prótínum, að rauður litur þeirra stafi af ónáttúru- legum og skaðlegum htarefnum sem þeim séu gefin og að notuð séu efni sem geti verið heilsuspihandi, ef til vih krabbameinsvaldandi, til að eyða laxalús í eldiskvíunum. „Ásakanimar eru tilhæfulausar“ „Laxeldisfyrirtækin hafa verið sökuð um þetta áður. En ásakanimar em tilhæfulausar. Norskur lax er bæði hollur og góður,“ sagði H&vard Vann- ebo, sérfræðingur í umhverfismálum og fisksjúk- dómum hjá samtökum norskra fiskeldisfyrirtækja. Vannebo segir að settar hafi verið strangar reglur um laxeldið, m.a. um fóður og lyf sem laxin- um em gefin, og laxeldisfyrirtækin fái æ betri vitn- isburð í þessum efnum. Þau noti hvorki erfðabreytt hvítuefni í fóðrið né lyf eða efni sem geti valdið krabbameini. Sænska matvælaeftirhtið gaf út yfirlýsingu vegna greinar Lindbergs og fullvissaði sænska neytendur um að þeim væri óhætt að borða norsk- an eldislax. Óttast að salan minnki vegna umræðunnar Grein Lindbergs vakti athygli fjöhniðla víða um heim og olli því uppnámi meðal norskra laxeldis- manna sem óttast að umræðan geti orðið til þess að útflutningur þeirra minnki á næstunni. Norska lax- eldið hefur verið í miklum vexti á síðustu árum og miklir hagsmunir eru því í veði. Norðmenn seldu eldislax fyrir 11 milljarða norskra króna, andvirði 92 milljarða íslenskra, í fyrra, að sögn Dagens Ny- heter, og búist er við að útflutningurinn stóraukist í ár. May Britt Knoph, sérfræðingur Alþjóða náttúru- vemdarsjóðsins í sjávarútvegsmálum á Norður- löndum, telur einnig að taka eigi ásakanir Lind- bergs alvarlega. „Þótt greinin sé að ýmsu leyti gróflega vhlandi og tilhæfulaus er þetta þörf lexía fyrir laxeldismenn sem vilja markaðssetja lax úr hreinum norskum fjörðum. Athyglin beinist æ meira að sögu fisksins." Norsku umhverfisvemdarsamtökin Bellona tóku í sama streng. „Ég er ekki hissa á þessum ásökun- um,“ sagði Alvhild Hedstein, talsmaður samtak- anna, í samtah við Aftenposten. „Skortur er á góð- um áhætturannsóknum í fiskeldinu hvað varðar hina ýmsu þætti framleiðslunnar." Bjame Boe, yfirmaður rannsóknarstoíú norsku Reuters Andstæð- ingar Milos- evics steyta hnefana STUÐNINGSMENN stjórnarand- stöðunnar í Serbíu héldu í gær til borgarinnar Nis í suðurhluta lands- ins og mótmæltu þar ofríki ríkis- stjórnar Slobodans Milosevics Júgóslavíuforseta. Ráðgert er að halda fjölmenn mótmæli vi'ða um Serbíu í dag í óþökk stjórnvalda sem hafa látið til skarar skri'ða gegn meðlimum stúdentasamtak- anna Otpor og látið varpa mörgum þeirra í fangelsi. fiskistofunnar, Fiskeridirektoratet, segir enga ástæðu th að ætla að erfðabreytt soja- og maísprót- ín frá Bandaríkjunum eða krabbameinsvaldandi efni séu notuð í laxeldinu. „Við tökum 3.900 prufur af eldisfiski í ár. Þær eru rannsakaðar með það að markmiði að finna hættulegar lyfjaleifar eða auka- efni sem eiga ekki að vera þar. Það er enginn vís- indalegur grundvöhur fyrir fullyrðingum um að lax geti valdið krabbameini.“ Að sögn Aftenposten hefur stórlega dregið úr notkun sýklalyfja í norsku fiskeldi en notkun aflús- unarefna hefúr hins vegar aukist. Aflúsunarefnin hafa verið gagnrýnd áður í Noregi en Boe segir að vísindamenn hafi aldrei fundið vísbendingar um að þau hafi skaðleg áhrif á laxinn sem matvöru. Hann vísar því einnig á bug að notuð séu krabba- meinsvaldandi efni th að gefa laxinum rauðan ht. „Liturinn kemur frá litarefni sem er nákvæmlega eins og það sem vihti laxinn étur.“ Umdeildur „útlagi“ Lindberg hefur verið umdehdur í Noregi vegna gagnrýni sinnar á selveiðar Norðmanna í byijun níunda áratugarins. Að sögn Dagens Nyheter er hann nú „í útlegð í Svíþjóð". Aftenposten segir að Lindberg beini aðeins spjótum sínum að norsku laxeldi í greininni, þótt eldislax frá öðrum löndum sé framleiddur með sama hætti og í Noregi. Margir laxeldismenn telji því að markmið Lindbergs með greininni sé einung- is að koma enn einu högginu á norskan sjávarútveg. Morðið á Dando Hinn grunaði enn í haldi Lundúnum. Rcuters. LÖGREGLA í Lundúnum hélt í gær áfram yfirheyrslum yfir manni sem grunaður er um morðið á Jill Dando, sjónvarpsfréttakonu BBC, á síðasta ári. Lögregluyfirvöld hafa hvorki ákært manninn né sagt til nafns hans en hann er sá fyrsti sem handtekinn er vegna málsins, sem hefur ver- ið í rannsókn í heilt ár. Bresk- ir fjölmiðlar hafa þó greint frá því að nafn hins grunaða sé Barry Bulsara, ákafur aðdá- andi hljómsveitarinnar Queen og að hann haldi því fram að hann sé náfrændi Freddy Mercurys heitins, söngvara hljómsveitarinnar. Máh sínu til stuðnings bendi hann á að eftimafn hans sé það sama og Mercurys áður en hann tók upp sitt listamannsnafn. Fjölskylda Mercuiys hefur vísað öllum sögnum um fjöl- skyldutengsl mannanna á bug. Lundúnablaðið The Times sagði í gær að hinn grunaði væri tónlistarmaður að at- vinnu og The Sun sagði að hann væri „einfari sem hefur öfgafulla aðdáun" á Mercury. Þá þykir það ýta undir grun- semdir gegn Bulsara að hann býr nærri heimili Dando heit- innar.

x

Morgunblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.