Morgunblaðið - 27.05.2000, Síða 52

Morgunblaðið - 27.05.2000, Síða 52
52 LAUGARDAGUR-27. MAÍ 2000 t MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ HEIMIR STEINSSON + Sr. Heimir Steinsson fædd- ist á Seyðisfirði hinn 1. júlí 1937. Hann lést á Landspítalan- um í Fossvog 15. maí síðastliðinn og fór útför hans fram frá Dómkirkjunni 24. maí. Heimir Steinsson var einn þeirra manna „ sem mér hefur þótt skemmtilegast að tala við. Eg kynntist honum fyrst haustið 1974 þeg- ar ég settist í landspróf við Skál- holtsskóla. Þá var Heimir skólastjóri þar og kennari. Okkur krökkunum þótti hann strangur og kröfuharður. Hann var samt vinur okkar og við bárum virðingu fyrir honum bæði vegna þess hvað hann var góður kennari og vegna þess að hann tók okkur alvarlega. Honum þótti ómaksins vert að gefa hugmyndum okkar gaum þótt flestu öðru full- orðnu fólki þættu þær sjálfsagt ósköp ómerkilegar. Nokkrum árum seinna kynntist ég Heimi betur þegar ég hafði sum- arvinnu við að dytta að húsum í Skálholti. Hann var enn svolítið strangur og dálítið kröfuharður, en samt alltaf til í að ræða málin. Stundum sátum við langtímum sam- an og rökræddum stjórnmál, trúmál, heimspeki og bókmenntir. Þessar rökræður voru ekkert snakk - Heimir ætlaðist til að við- fangsefnin væru krufin til mergjar. Samræður við hann voru ævintýri, því hann sýndi öllum skoðunum þá virðingu að hann vildi skilja þær og -^takast á við þær af rökvísi og still- ingu, hvort sem hann var þeim sam- mála eða ekki. Síðan hef ég heimsótt Heimi af og til. Þótt hann hafi sjálf- sagt oft átt annríkt mátti hann alltaf vera að því að spjalla og alltaf voru samræður við hann lærdómsríkar og skemmtilegar, því hann var mennta- maður í bestu merkingu þess orðs. Dóru, Þórhalli, Arnþrúði og systk- inum Heimis sendi ég mínar innileg- ustu samúðarkveðjur. Atli Harðarson. Kveðja frá samverkamanni Skjótt hefur sól brugðið sumri, sagði listaskáldið góða forðum, er * andlát vinar hans og samherja bar að. Fjarlægt fannst mér að hugsa til þess, að séra Heimir yrði á undan mér, eldri manni, yfir landamæri lífs og dauða. En vegir guðs eru órann- sakanlegir. Og eitt er víst, að ævi- lengdin ein sker ekki úr um, hver verði ávöxtur ævistarfsins, þegar upp er staðið. Heimir Steinsson átti að baki al- darþriðjungs ævistarf. Hann bjó sig undir það hér heima og erlendis, og var gagnmenntaður orðinn, er hann tók við forstöðu Lýðháskólans í Skálholti á haustdögum 1972. Þar var síðan starfsvettvangurinn næsta áratuginn, eða þar til hann tók við starfi þjóðgarðsvarðar og sóknar- "> prests á Þingvöllum, sem hann gegndi í tveimur áföngum. Eins- dæmi mun, að sami maður hafi gegnt embættum á tveimur mestu helgi- stöðum þjóðarinnar. Ungur lauk Heimir glæsilegu prófi í guð- fræði, svo að eftir var tekið. Haustið 1972 urðum við Heimir samverka- menn við Lýðháskól- ann, sem það heiti hafði í upphafi vega sinna, þótt breytt yrði síðar. Við unnum mikið starf, við frumstæðar að- stæður, og samvinna okkar var snurðulaus. En sé Heimis getið, verður Dóru konu hans ekki gleymt. Ráðskona mötuneytis skólans þennan fyrsta starfsvetur í Skálholti var Svava Bernharðsdóttir, og henni verður ekki gleymt. Ekki heldur þeim öðr- um, sem að skólastarfinu komu. Og einn bjartasti tími lífs míns var Skál- holtsdvölin, hinn fyrsta vetur skóla- starfs þar í nýjum stíl. Því miður lagðist skólastarf með ungmennum niður þarna nokkrum árum eftir að Heimir sagði starfi sínu lausu. Fannst mér leitt til þess að vita, og lét ég það í ljós í ljóði, sem ég flutti á 20 ára afmæli skólans, haustið 1992. Heimir Steinsson var fæddur og uppalinn á Seyðisfirði, sonur skól- astjórahjónanna þar, og var eflaust ætlað frá ungum aldri að ganga menntaveginn. Honum var það bæði ljúft og auðvelt. Hinn 4. desember sl. sá ég Heimi í síðasta sinn. Var það í Kennarahús- inu við Laufásveg. Þar flutti hann frásögn af því, er skipinu E1 Grillo var sökkt í Seyðisfirði, 16. febrúar 1944. Þá var hann aðeins sex ára drengur, en mundi þó vel þennan at- burð. Og atvik þetta hefur dregið langan slóða á eftir sér, eins og kunnugt er. Frásögn Heimis var mjög greinagóð, eins og vænta mátti. Hann var íslenskumaður góð- ur, og allt sem frá honum fór, var á vönduðu máli. Mér hefur helst orðið rætt um störf Heimis að skólamál- um, en ég held, að þau muni lengst varðveita minningu hans. Ritstörf- um hans, preststörfum og árunum í stól útvarpsstjóra gera væntanlega aðrir skil. Heimir er horfinn af sviði lífsins. Hann brá stórum svip yfir samtíð sína, og sagan mun lengi geyma nafn hans. Ég minnist liðinna kynna og kveð séra Heimi Steinsson, sem valdi mig sem samverkamann sinn á haust- dögum 1972. Blessuð sé minning hans. Dóru sendi ég innilega samúðar- kveðju svo og börnunum og öðrum nánum ættmennum. Auðunn Bragi Sveinsson. Kæri Heimir. Þakka þér fyrir vet- urinn 1974-1975 í Lýðháskólanum í Skálholti. Að fá að kynnast þér, njóta leiðsagnar þinnar, uppfræðslu og vináttu. Þakka þér fyrir allar stundirnar sem ég átti í Skálholti næstu vetur á eftir og fyrir að fá að vera með í því að stofna Nemendasamband Skál- holtsskóla. Þakka þér fyrir öll skiptin sem þú + Elskuleg eiginkona mín, móðir og dóttir, BRYNDfS ERNA GARÐARSDÓTTIR, Frostafold 131, lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn 23. maí síðastliðinn. Jarðarför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 31. maí kl. 13.30. Fyrir hönd ættingja og vina, Gennady Tereshenko, Magnús Þór Guðjónsson, Guðrún Magnúsdóttir. tókst á móti mér á Þingvöllum þegar ég var á ferð með norræna og evrópska starfsbræður mína. Fyrir að uppfræða þá um söguna, náttúru og jarðfræði á Þingvöllum og veita þeim innsýn í það hvað Þingvellir skipta Islendinga mikið. Ég veit að margir þeirra minnast þeirra stunda enn þann dag í dag. Þakka þér fyrir að taka þátt í end- urfundum árgangsins míns hvort sem við komum í Skálholt, komum til Þingvalla eða hittumst hér í Reykjavík. Það var svo gaman að sjá hvað það gladdi þig að fá þannig tækifæri til að hitta þína gömlu nem- endur og sjá hvað hafði orðið úr þeim. Ekki má gleyma að alltaf var Dóra með og naut þess eins og þú að hitta okkur gömlu Skálhyltingana. Heimir, þú varst besti kennari sem ég hef haft á minni ævi, þakka þér fyrir það. Orðin þín um mig þeg- ar ég yfirgaf Skálholt vorið 1975 „eflist við hverja raun“ höfðu mikla þýðingu fyrir mig og urðu mér mikil hvatning til að standa mig í lífinu. Við leiðarlok, Heimir, veit ég að Guð er með þér og ég veit að hann mun veita Dóru, Þórhalli og Arn- þrúði, ásamt fjölskyldum þeiiTa, styrk á sorgarstundu. Elsku Dóra, Þórhallur og Arn- þrúður, ég votta ykkur mína dýpstu samúð. Óskar Bjartmarz. Heimir Steinsson er fallinn frá um aldur fram. Þegar stórir menn fara er erfitt fyrir þá litlu að segja eitt- hvað og enn erfiðara að þegja. Ég var barn þegar þau Heimir, Dóra, Þórhallur og Arnþrúður fluttu í Skálholt árið 1972. Það tókust fljótt kynni með okkur jafnöldrunum, mér og Þórhalli og ég man að heimilið í gamla b.iskupshúsinu í Skálholti var mér strax opið. Ég var þar velkom- inn ieikfélagi og staðurinn var bæði framandi og spennandi. Fjölskyldan var nýflutt heim frá Danmörku þar sem Heimir hafði kynnt sér lýðhá- skóla. Þórhallur átti fyrir vikið meira af framandlegu dóti en títt var um okkur sveitadrengina. Tindáta svo hundruðum skipti og Tinnabæk- ur á dönsku. Mestur leyndardómur var þó heimilisfaðirinn sem var í senn fomlegur spekingur og hlýr karl sem í þá tíð minnti mig á ein- hverskonar afa. Hann var líka af þeirri gerð að jafnvel óþekkustu tappar eins og við Laugarásstrák- amir bámm fyrir honum ótta- blandna virðingu. Seinna átti ég eftir að kynnast Heimi sem kennara þegar við fómm í 9. bekk í Skálholti. Það var gæfa fyrir Tungnamenn að fljótlega eftir komuna í Skálholt tók Heimir að sér efsta bekk gagnfræðaskóla sem síð- ar hét 9. bekkur grunnskóla. Það er efalaust í mínum huga að hann kom fleirum á braut mennta en annars hefði orðið. Ég tilheyrði alla skólagönguna strákahóp sem var til vandræða hjá nær öllum kennumm. En þegar Heimir var annarsvegar datt okkur óþekkt ekki í hug. Hann var þvílíkur ofjarl okkar að við létum það aldrei eftir honum að reyna. Hann kenndi okkur dönsku sem tæplega var til vinsælda fallið. En þrátt fyrir það man ég aldrei eft- ir að neinum í bekknum hafi mislík- að við Heimi. Við vorum lúsiðin í dönskunni og strituðum í tímunum en okkur líkaði vel við þennan her- foringja sem hélt uppi aga. Ég hef oft síðan haldið því fram að meiri og betri skólamanni hafi ég ekki kynnst og það hefði verið gott hefði hann kennt okkur annað og fleira en dönskuna. Um leið og ég þakka góða daga í Skálholti sendi ég Dóm og öllu hennar fólki mínar samúðarkveðjur. Bjarni Harðarson frá Laugarási. Hér munu íslensk lög ráða, sagði Heimir með áherslu. Fyrir mörgum ámm vom nokkrir landar í Dan- mörk að erinda fyrir Skálholtsskóla. Heimir og Dóra höfðu útvegað bíi til Árósaskoðunar. Eftir tilhlýðilega heimsókn á háskólabókasafnið sett- ist Heimir undir stýri og ók út af bílastæðinu. Áttu ekki að beygja í hina áttina? spurðum við í kór. Hin íslenska lögverndaða leið varð afar stutt. Á móti okkur brunaði her af ógnvænlegum flutningabílum og nálgaðist óðum. Góð ráð vora engin önnur en að geysast upp á umferðar- eyju. Ökumaðurinn var fyrstur til að greina þverstæðuna og hló hjartan- lega. Þannig var Heimir. Hann fór sína leið, oft gegn straumi, en vissi hvenær bar að víkja. Hann sá alltaf skopbrotin, jafnvel í hinum kreppt- ustu aðstæðum. Stundimar með honum vom alltaf skemmtilegar, eft- irminnilegar og jafnvel kostulegar. Við leiðarlok þyrlast minningar upp. Fyrsta samræðustundin sækir í huga. Heimir sat í rektorssætinu „sínu“ í matsal Skálholtsskóla. Pípan var í munnviki og glampi í augum. Við- mælendur sátu við borðið. Allt var eins og hann kaus sér helst. Einhver í hópnum hélt fram að gerlegt væri að vera fordómalaus og algerlega opinn. Glampinn varð að glettni og hann sagði einnig með áherslu: „Praejudicium11 og bætti við spurn- ingunni: Er fordómleysi mögulegt? Honum var svarað að það væri versti fordómurinn að halda að mað- ur væri fordómlaus. Hláturinn byrj- aði í maganum, gusaðist síðan upp og höndin sló á lærið. Honum þótti snörp umræða skemmtileg. Það var gaman að rökræða og jafnvel skylm- ast svolítið við hann um guðfræði, pólítík, kirkju eða eitthvert mann- lífsefni. Hugmyndir flugu og latínan hans gerði okkur fákunnandi óör- ugg. Heimir var ósínkur á þekking- armola og yddaðar setningar. Hljómfall raddar hans var ákveðið og með svo sérstæðu móti að vinir hans hermdu eftir ef vitnað var beint í hann eða haft eftir honum. Orða- lagið var janfnan fyrnskuskotið og stundum barrokað. Hann var mikill íslenskumaður og lék sér á engi tungunnar. Heimir setti svip á skólasögu átt- unda áratugarins, ekki aðeins með stofnun og stjóm Skálholtsskóla. Hann skrifaði blaðagreinar og flutti eftirminnilega fyrirlestra í útvarpi um lýðháskóla og arf Gmndtvigs. Heimir fór eigin leið í kynningum á helgistað þjóðarinnar þegar hann tók við störfum á Þingvöllum. Um margt var hann Skálhyltingur og Þingvellingur þegar hann varð út- varpsstjóri. Hann sá í RUV klukku íslands. En sú klukka varð orðið flókið tæknispilverk með óljósan hljóm og hentaði honum ekki. í kirkjulífi var Heimir fyrirferðarmik- ill. Greinar hans um spíritisma 1975 vöktu athygli margra. Upphafið var grein í Kirkjuritinu „Tilvera til dauða - trúin hrein.“ Þessi stutta en ágenga grein var blanda tilvistar- speki og andófs gegn spíritisma. Þetta var á þeim tíma nýr kokteill og olli uppnámi. Höfundurinn uppskar drífu af greinum bæði í Kirkjuriti og Morg- unblaðinu. Þá kom í ljós hversu snöggur Heimir var að semja og hversu snjall stílisti hann var. Morg- unblaðið birti hverja breiðsíðuna á fætur annarri, nánast daglega. Þær skemmtu þeim sem unnu trúfræðilegum burtreiðum. Síðar studdu allmargir prestar Heimi í kjöri til biskups. Heimir var afar flókinn maður og margræður. Flestir kynntust honum í einhverju hlutverki og þekktu ekki manninn að baki grímu. Heimir gegndi mörgum störfum: Hann var rektor, þjóðgarðsvörður, rithöfun- dur, útvarpsstjóri og prestur. Hann tók þessi hlutverk sín alvarlega og gekkst upp í þeim, hafði stundum á orði: „The show must go on.“ Hann var í þjónustu málefnis eða stofnun- ar og þá gerði hann eins vel og hann gat. Störf Heimis vora gjarnan í margmenni, en líklega leið honum best í fámenni og samræðu. Hann var maður hinna mörgu orða og lýs- inga, en leitaði kyrru og dýptar. Hann lenti í miðri röst nútíma og miðlunar en leitaði sögu. Hann sviptist til í flengingi óstýriláts tíma en leitaði hins stöðuga. I störfum varð hann að opna sálargáttir móti poppmenningu og tæknivæðingu en mat mest forn gildi. Hann vildi fá að stjórna en leitaði sjálfur skýrrar leiðsagnar. Hann var mikill Danavinur en ræddi helst ekki um danska sögu á Þingvöllum. Hann var fræðimaður og skáld að áhuga en lengstum embættismaður að starfi. Hann var námshestur og unni háskólalífi en dró umsókn um kennarastöðu í akademíunni til baka. Hann var mikill tOfinninga- maður og tók nærri sér lifun sína en bar ekki á torg. Hann mat mikils náttúra og menn en þó mest Guð. Heimir var „bæði-og“ maður með tObrigðum. Hann gerði sér vel grein fyrir sálarþráðum sínum og óf með ámnum æ betur úr þeim, sér og öðr- um til gagns og gleði. Þegar Heimir féll frá sýnist mér sem hann hafi þrætt flest það sem laust hafði legið í lífinu fyrr. Hann hafði snúið til baka, tekið til við fyrri störf. Hann hafði hafið nýtt líf á svo margvíslegan máta. Og það var hin íslenska leið. Enn kom Heimir á óvart. Við sem eftir sitjum erum enn að jafna okkur eftir óvænt dauðsfall. Við biðjum góðan Guð að geyma hann og líkna Dóm, börnum þeirra og ástvinum. Ég þakka allar gjafir Heimis fyrr og síðar í minn garð og minna. Dýpst er þakklætið fyrir grímulaus- ar samræður. Við skiljum ekki þessa sóun, að hann skuli deyja svo ungur og með svo margt óunnið. En Heim- ir hafði lifað mikið, stundum hratt en oftast vel. Hann þekkti þessa leið sem hann fór nú. Það var hvorki ís- lensk eða dönsk leið eða einhver malbikuð gata. Það var leiðin heim. Sigurður Árni Þórðarson. Sr. Heimir Steinsson var móður- bróðir minn en ég varð einnig þeirr- ar gæfu aðnjótandi að kynnast hon- um sem guðfræðingi og kirkjunnar manni. „Frændkona“ ávarpaði þessi merkismaður mig jafnan þegar ég kom sem unglingur á námskeið í Skálholti og ég lagði mig alla fram í samræðum við hann til þess að verða ekki léttvæg fundin á sviði visku og fræða. Ekki gat ég valdið vonbrigð- um þeim sem ávarpaði mig svo formlega en þó svo hlýlega, þeim sem sjálfur var svo fróður og gáfað- ur. Ég naut stundanna í Skáiholti og hlaut þar veganesti á vegi trúarið- kunar sem lengi hefui- dugað mér. Heimir var stórbrotinn maður, trúr sinni sannfæringu, baráttumað- ur. Við áttum stundum samleið í þeirri baráttu í gegnum árin. Þar snart mig einlægni hans og heiðar- leiki - hann var ekki tækifærissinni, barátta hans var ekki alltaf auðveld en hún var alltaf sönn. Hann var ein- lægur trúmaður en sú trú hafði líkað kostað baráttu og skáldið Heimir Steinsson birtir okkur þá baráttu í ijóðabókinni Haustregn: Skelfdur til dauða feta ég einstigi efans. Hengiflug trúar eru mér á aðra hönd afneitunar á hina. Áiengdar heyri ég tvísöng hinna hólpnu: „Hér er guð.“ „Hér er enginn guð.“ Sælir eru þeir.... Sjálfur bregð ég höndum til skiptis út yfir afgrunnana tvo og held áfram fór minni um einstigi mannsins skelfdur til dauða. (Heimir Steinsson.) Minningar em margar, frá söng- stund við orgelið hjá afa Steini þar sem systkinin sungu í röddum lögin hans afa; frá bænastund í Þingvalia- kirkju með Heimi fyrir brúðkaup okkar hjóna; frá gleðistundum og sorgarstundum. En enn og aftur kemur upp í hugann maðurinn sem leiðbeindi mér í Skálholti og ræddi guðfræði við unglinginn á skrifstofu sinni á Þingvöllum. Alþýðufræða- rinn sem skýrt gat leyndardóma messunnar fyrir 14 ára unglingi og að sama skapi aðstoðað frændkonu og skýrt fyrir mér og lesendum Víð- förla sameiginlega yfirlýsingu lút- herskra og kaþólskra um réttlæting- arkenninguna á liðnu hausti. Sú yfirlýsing markaði vissulega tíma- mót í samskiptum þessara kirkju- deilda og Heimir fjallaði um þetta
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.