Morgunblaðið - 27.05.2000, Page 52
52 LAUGARDAGUR-27. MAÍ 2000
t
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
HEIMIR
STEINSSON
+ Sr. Heimir
Steinsson fædd-
ist á Seyðisfirði hinn
1. júlí 1937. Hann
lést á Landspítalan-
um í Fossvog 15. maí
síðastliðinn og fór
útför hans fram frá
Dómkirkjunni 24.
maí.
Heimir Steinsson
var einn þeirra manna
„ sem mér hefur þótt
skemmtilegast að tala
við. Eg kynntist honum
fyrst haustið 1974 þeg-
ar ég settist í landspróf við Skál-
holtsskóla. Þá var Heimir skólastjóri
þar og kennari. Okkur krökkunum
þótti hann strangur og kröfuharður.
Hann var samt vinur okkar og við
bárum virðingu fyrir honum bæði
vegna þess hvað hann var góður
kennari og vegna þess að hann tók
okkur alvarlega. Honum þótti
ómaksins vert að gefa hugmyndum
okkar gaum þótt flestu öðru full-
orðnu fólki þættu þær sjálfsagt
ósköp ómerkilegar.
Nokkrum árum seinna kynntist
ég Heimi betur þegar ég hafði sum-
arvinnu við að dytta að húsum í
Skálholti. Hann var enn svolítið
strangur og dálítið kröfuharður, en
samt alltaf til í að ræða málin.
Stundum sátum við langtímum sam-
an og rökræddum stjórnmál, trúmál,
heimspeki og bókmenntir.
Þessar rökræður voru ekkert
snakk - Heimir ætlaðist til að við-
fangsefnin væru krufin til mergjar.
Samræður við hann voru ævintýri,
því hann sýndi öllum skoðunum þá
virðingu að hann vildi skilja þær og
-^takast á við þær af rökvísi og still-
ingu, hvort sem hann var þeim sam-
mála eða ekki. Síðan hef ég heimsótt
Heimi af og til. Þótt hann hafi sjálf-
sagt oft átt annríkt mátti hann alltaf
vera að því að spjalla og alltaf voru
samræður við hann lærdómsríkar og
skemmtilegar, því hann var mennta-
maður í bestu merkingu þess orðs.
Dóru, Þórhalli, Arnþrúði og systk-
inum Heimis sendi ég mínar innileg-
ustu samúðarkveðjur.
Atli Harðarson.
Kveðja frá samverkamanni
Skjótt hefur sól brugðið sumri,
sagði listaskáldið góða forðum, er
* andlát vinar hans og samherja bar
að. Fjarlægt fannst mér að hugsa til
þess, að séra Heimir yrði á undan
mér, eldri manni, yfir landamæri lífs
og dauða. En vegir guðs eru órann-
sakanlegir. Og eitt er víst, að ævi-
lengdin ein sker ekki úr um, hver
verði ávöxtur ævistarfsins, þegar
upp er staðið.
Heimir Steinsson átti að baki al-
darþriðjungs ævistarf. Hann bjó sig
undir það hér heima og erlendis, og
var gagnmenntaður orðinn, er hann
tók við forstöðu Lýðháskólans í
Skálholti á haustdögum 1972. Þar
var síðan starfsvettvangurinn næsta
áratuginn, eða þar til hann tók við
starfi þjóðgarðsvarðar og sóknar-
"> prests á Þingvöllum, sem hann
gegndi í tveimur áföngum. Eins-
dæmi mun, að sami maður hafi
gegnt embættum á
tveimur mestu helgi-
stöðum þjóðarinnar.
Ungur lauk Heimir
glæsilegu prófi í guð-
fræði, svo að eftir var
tekið.
Haustið 1972 urðum
við Heimir samverka-
menn við Lýðháskól-
ann, sem það heiti hafði
í upphafi vega sinna,
þótt breytt yrði síðar.
Við unnum mikið starf,
við frumstæðar að-
stæður, og samvinna
okkar var snurðulaus.
En sé Heimis getið, verður Dóru
konu hans ekki gleymt. Ráðskona
mötuneytis skólans þennan fyrsta
starfsvetur í Skálholti var Svava
Bernharðsdóttir, og henni verður
ekki gleymt. Ekki heldur þeim öðr-
um, sem að skólastarfinu komu. Og
einn bjartasti tími lífs míns var Skál-
holtsdvölin, hinn fyrsta vetur skóla-
starfs þar í nýjum stíl. Því miður
lagðist skólastarf með ungmennum
niður þarna nokkrum árum eftir að
Heimir sagði starfi sínu lausu.
Fannst mér leitt til þess að vita, og
lét ég það í ljós í ljóði, sem ég flutti á
20 ára afmæli skólans, haustið 1992.
Heimir Steinsson var fæddur og
uppalinn á Seyðisfirði, sonur skól-
astjórahjónanna þar, og var eflaust
ætlað frá ungum aldri að ganga
menntaveginn. Honum var það bæði
ljúft og auðvelt.
Hinn 4. desember sl. sá ég Heimi í
síðasta sinn. Var það í Kennarahús-
inu við Laufásveg. Þar flutti hann
frásögn af því, er skipinu E1 Grillo
var sökkt í Seyðisfirði, 16. febrúar
1944. Þá var hann aðeins sex ára
drengur, en mundi þó vel þennan at-
burð. Og atvik þetta hefur dregið
langan slóða á eftir sér, eins og
kunnugt er. Frásögn Heimis var
mjög greinagóð, eins og vænta
mátti. Hann var íslenskumaður góð-
ur, og allt sem frá honum fór, var á
vönduðu máli. Mér hefur helst orðið
rætt um störf Heimis að skólamál-
um, en ég held, að þau muni lengst
varðveita minningu hans. Ritstörf-
um hans, preststörfum og árunum í
stól útvarpsstjóra gera væntanlega
aðrir skil.
Heimir er horfinn af sviði lífsins.
Hann brá stórum svip yfir samtíð
sína, og sagan mun lengi geyma nafn
hans.
Ég minnist liðinna kynna og kveð
séra Heimi Steinsson, sem valdi mig
sem samverkamann sinn á haust-
dögum 1972. Blessuð sé minning
hans.
Dóru sendi ég innilega samúðar-
kveðju svo og börnunum og öðrum
nánum ættmennum.
Auðunn Bragi Sveinsson.
Kæri Heimir. Þakka þér fyrir vet-
urinn 1974-1975 í Lýðháskólanum í
Skálholti. Að fá að kynnast þér,
njóta leiðsagnar þinnar, uppfræðslu
og vináttu.
Þakka þér fyrir allar stundirnar
sem ég átti í Skálholti næstu vetur á
eftir og fyrir að fá að vera með í því
að stofna Nemendasamband Skál-
holtsskóla.
Þakka þér fyrir öll skiptin sem þú
+
Elskuleg eiginkona mín, móðir og dóttir,
BRYNDfS ERNA GARÐARSDÓTTIR,
Frostafold 131,
lést á Landspítalanum Fossvogi þriðjudaginn
23. maí síðastliðinn.
Jarðarför hennar verður gerð frá Fossvogskirkju
miðvikudaginn 31. maí kl. 13.30.
Fyrir hönd ættingja og vina,
Gennady Tereshenko,
Magnús Þór Guðjónsson,
Guðrún Magnúsdóttir.
tókst á móti mér á Þingvöllum þegar
ég var á ferð með norræna og
evrópska starfsbræður mína. Fyrir
að uppfræða þá um söguna, náttúru
og jarðfræði á Þingvöllum og veita
þeim innsýn í það hvað Þingvellir
skipta Islendinga mikið. Ég veit að
margir þeirra minnast þeirra stunda
enn þann dag í dag.
Þakka þér fyrir að taka þátt í end-
urfundum árgangsins míns hvort
sem við komum í Skálholt, komum
til Þingvalla eða hittumst hér í
Reykjavík. Það var svo gaman að sjá
hvað það gladdi þig að fá þannig
tækifæri til að hitta þína gömlu nem-
endur og sjá hvað hafði orðið úr
þeim. Ekki má gleyma að alltaf var
Dóra með og naut þess eins og þú að
hitta okkur gömlu Skálhyltingana.
Heimir, þú varst besti kennari
sem ég hef haft á minni ævi, þakka
þér fyrir það. Orðin þín um mig þeg-
ar ég yfirgaf Skálholt vorið 1975
„eflist við hverja raun“ höfðu mikla
þýðingu fyrir mig og urðu mér mikil
hvatning til að standa mig í lífinu.
Við leiðarlok, Heimir, veit ég að
Guð er með þér og ég veit að hann
mun veita Dóru, Þórhalli og Arn-
þrúði, ásamt fjölskyldum þeiiTa,
styrk á sorgarstundu.
Elsku Dóra, Þórhallur og Arn-
þrúður, ég votta ykkur mína dýpstu
samúð.
Óskar Bjartmarz.
Heimir Steinsson er fallinn frá um
aldur fram. Þegar stórir menn fara
er erfitt fyrir þá litlu að segja eitt-
hvað og enn erfiðara að þegja.
Ég var barn þegar þau Heimir,
Dóra, Þórhallur og Arnþrúður fluttu
í Skálholt árið 1972. Það tókust fljótt
kynni með okkur jafnöldrunum, mér
og Þórhalli og ég man að heimilið í
gamla b.iskupshúsinu í Skálholti var
mér strax opið. Ég var þar velkom-
inn ieikfélagi og staðurinn var bæði
framandi og spennandi. Fjölskyldan
var nýflutt heim frá Danmörku þar
sem Heimir hafði kynnt sér lýðhá-
skóla. Þórhallur átti fyrir vikið
meira af framandlegu dóti en títt var
um okkur sveitadrengina. Tindáta
svo hundruðum skipti og Tinnabæk-
ur á dönsku. Mestur leyndardómur
var þó heimilisfaðirinn sem var í
senn fomlegur spekingur og hlýr
karl sem í þá tíð minnti mig á ein-
hverskonar afa. Hann var líka af
þeirri gerð að jafnvel óþekkustu
tappar eins og við Laugarásstrák-
amir bámm fyrir honum ótta-
blandna virðingu.
Seinna átti ég eftir að kynnast
Heimi sem kennara þegar við fómm
í 9. bekk í Skálholti. Það var gæfa
fyrir Tungnamenn að fljótlega eftir
komuna í Skálholt tók Heimir að sér
efsta bekk gagnfræðaskóla sem síð-
ar hét 9. bekkur grunnskóla. Það er
efalaust í mínum huga að hann kom
fleirum á braut mennta en annars
hefði orðið.
Ég tilheyrði alla skólagönguna
strákahóp sem var til vandræða hjá
nær öllum kennumm. En þegar
Heimir var annarsvegar datt okkur
óþekkt ekki í hug.
Hann var þvílíkur ofjarl okkar að
við létum það aldrei eftir honum að
reyna. Hann kenndi okkur dönsku
sem tæplega var til vinsælda fallið.
En þrátt fyrir það man ég aldrei eft-
ir að neinum í bekknum hafi mislík-
að við Heimi. Við vorum lúsiðin í
dönskunni og strituðum í tímunum
en okkur líkaði vel við þennan her-
foringja sem hélt uppi aga. Ég hef
oft síðan haldið því fram að meiri og
betri skólamanni hafi ég ekki kynnst
og það hefði verið gott hefði hann
kennt okkur annað og fleira en
dönskuna.
Um leið og ég þakka góða daga í
Skálholti sendi ég Dóm og öllu
hennar fólki mínar samúðarkveðjur.
Bjarni Harðarson frá Laugarási.
Hér munu íslensk lög ráða, sagði
Heimir með áherslu. Fyrir mörgum
ámm vom nokkrir landar í Dan-
mörk að erinda fyrir Skálholtsskóla.
Heimir og Dóra höfðu útvegað bíi til
Árósaskoðunar. Eftir tilhlýðilega
heimsókn á háskólabókasafnið sett-
ist Heimir undir stýri og ók út af
bílastæðinu. Áttu ekki að beygja í
hina áttina? spurðum við í kór. Hin
íslenska lögverndaða leið varð afar
stutt. Á móti okkur brunaði her af
ógnvænlegum flutningabílum og
nálgaðist óðum. Góð ráð vora engin
önnur en að geysast upp á umferðar-
eyju. Ökumaðurinn var fyrstur til að
greina þverstæðuna og hló hjartan-
lega. Þannig var Heimir. Hann fór
sína leið, oft gegn straumi, en vissi
hvenær bar að víkja. Hann sá alltaf
skopbrotin, jafnvel í hinum kreppt-
ustu aðstæðum. Stundimar með
honum vom alltaf skemmtilegar, eft-
irminnilegar og jafnvel kostulegar.
Við leiðarlok þyrlast minningar
upp. Fyrsta samræðustundin sækir í
huga.
Heimir sat í rektorssætinu „sínu“
í matsal Skálholtsskóla. Pípan var í
munnviki og glampi í augum. Við-
mælendur sátu við borðið. Allt var
eins og hann kaus sér helst. Einhver
í hópnum hélt fram að gerlegt væri
að vera fordómalaus og algerlega
opinn. Glampinn varð að glettni og
hann sagði einnig með áherslu:
„Praejudicium11 og bætti við spurn-
ingunni: Er fordómleysi mögulegt?
Honum var svarað að það væri
versti fordómurinn að halda að mað-
ur væri fordómlaus. Hláturinn byrj-
aði í maganum, gusaðist síðan upp
og höndin sló á lærið. Honum þótti
snörp umræða skemmtileg. Það var
gaman að rökræða og jafnvel skylm-
ast svolítið við hann um guðfræði,
pólítík, kirkju eða eitthvert mann-
lífsefni. Hugmyndir flugu og latínan
hans gerði okkur fákunnandi óör-
ugg. Heimir var ósínkur á þekking-
armola og yddaðar setningar.
Hljómfall raddar hans var ákveðið
og með svo sérstæðu móti að vinir
hans hermdu eftir ef vitnað var beint
í hann eða haft eftir honum. Orða-
lagið var janfnan fyrnskuskotið og
stundum barrokað. Hann var mikill
íslenskumaður og lék sér á engi
tungunnar.
Heimir setti svip á skólasögu átt-
unda áratugarins, ekki aðeins með
stofnun og stjóm Skálholtsskóla.
Hann skrifaði blaðagreinar og flutti
eftirminnilega fyrirlestra í útvarpi
um lýðháskóla og arf Gmndtvigs.
Heimir fór eigin leið í kynningum á
helgistað þjóðarinnar þegar hann
tók við störfum á Þingvöllum. Um
margt var hann Skálhyltingur og
Þingvellingur þegar hann varð út-
varpsstjóri. Hann sá í RUV klukku
íslands. En sú klukka varð orðið
flókið tæknispilverk með óljósan
hljóm og hentaði honum ekki. í
kirkjulífi var Heimir fyrirferðarmik-
ill. Greinar hans um spíritisma 1975
vöktu athygli margra. Upphafið var
grein í Kirkjuritinu „Tilvera til
dauða - trúin hrein.“ Þessi stutta en
ágenga grein var blanda tilvistar-
speki og andófs gegn spíritisma.
Þetta var á þeim tíma nýr kokteill og
olli uppnámi.
Höfundurinn uppskar drífu af
greinum bæði í Kirkjuriti og Morg-
unblaðinu. Þá kom í ljós hversu
snöggur Heimir var að semja og
hversu snjall stílisti hann var. Morg-
unblaðið birti hverja breiðsíðuna á
fætur annarri, nánast daglega.
Þær skemmtu þeim sem unnu
trúfræðilegum burtreiðum. Síðar
studdu allmargir prestar Heimi í
kjöri til biskups.
Heimir var afar flókinn maður og
margræður. Flestir kynntust honum
í einhverju hlutverki og þekktu ekki
manninn að baki grímu. Heimir
gegndi mörgum störfum: Hann var
rektor, þjóðgarðsvörður, rithöfun-
dur, útvarpsstjóri og prestur. Hann
tók þessi hlutverk sín alvarlega og
gekkst upp í þeim, hafði stundum á
orði: „The show must go on.“ Hann
var í þjónustu málefnis eða stofnun-
ar og þá gerði hann eins vel og hann
gat. Störf Heimis vora gjarnan í
margmenni, en líklega leið honum
best í fámenni og samræðu. Hann
var maður hinna mörgu orða og lýs-
inga, en leitaði kyrru og dýptar.
Hann lenti í miðri röst nútíma og
miðlunar en leitaði sögu. Hann
sviptist til í flengingi óstýriláts tíma
en leitaði hins stöðuga. I störfum
varð hann að opna sálargáttir móti
poppmenningu og tæknivæðingu en
mat mest forn gildi.
Hann vildi fá að stjórna en leitaði
sjálfur skýrrar leiðsagnar. Hann var
mikill Danavinur en ræddi helst ekki
um danska sögu á Þingvöllum. Hann
var fræðimaður og skáld að áhuga
en lengstum embættismaður að
starfi. Hann var námshestur og unni
háskólalífi en dró umsókn um
kennarastöðu í akademíunni til
baka. Hann var mikill tOfinninga-
maður og tók nærri sér lifun sína en
bar ekki á torg. Hann mat mikils
náttúra og menn en þó mest Guð.
Heimir var „bæði-og“ maður með
tObrigðum. Hann gerði sér vel grein
fyrir sálarþráðum sínum og óf með
ámnum æ betur úr þeim, sér og öðr-
um til gagns og gleði.
Þegar Heimir féll frá sýnist mér
sem hann hafi þrætt flest það sem
laust hafði legið í lífinu fyrr.
Hann hafði snúið til baka, tekið til
við fyrri störf. Hann hafði hafið nýtt
líf á svo margvíslegan máta. Og það
var hin íslenska leið. Enn kom
Heimir á óvart. Við sem eftir sitjum
erum enn að jafna okkur eftir óvænt
dauðsfall.
Við biðjum góðan Guð að geyma
hann og líkna Dóm, börnum þeirra
og ástvinum.
Ég þakka allar gjafir Heimis fyrr
og síðar í minn garð og minna.
Dýpst er þakklætið fyrir grímulaus-
ar samræður. Við skiljum ekki þessa
sóun, að hann skuli deyja svo ungur
og með svo margt óunnið. En Heim-
ir hafði lifað mikið, stundum hratt en
oftast vel. Hann þekkti þessa leið
sem hann fór nú. Það var hvorki ís-
lensk eða dönsk leið eða einhver
malbikuð gata. Það var leiðin heim.
Sigurður Árni Þórðarson.
Sr. Heimir Steinsson var móður-
bróðir minn en ég varð einnig þeirr-
ar gæfu aðnjótandi að kynnast hon-
um sem guðfræðingi og kirkjunnar
manni. „Frændkona“ ávarpaði þessi
merkismaður mig jafnan þegar ég
kom sem unglingur á námskeið í
Skálholti og ég lagði mig alla fram í
samræðum við hann til þess að verða
ekki léttvæg fundin á sviði visku og
fræða. Ekki gat ég valdið vonbrigð-
um þeim sem ávarpaði mig svo
formlega en þó svo hlýlega, þeim
sem sjálfur var svo fróður og gáfað-
ur. Ég naut stundanna í Skáiholti og
hlaut þar veganesti á vegi trúarið-
kunar sem lengi hefui- dugað mér.
Heimir var stórbrotinn maður,
trúr sinni sannfæringu, baráttumað-
ur. Við áttum stundum samleið í
þeirri baráttu í gegnum árin. Þar
snart mig einlægni hans og heiðar-
leiki - hann var ekki tækifærissinni,
barátta hans var ekki alltaf auðveld
en hún var alltaf sönn. Hann var ein-
lægur trúmaður en sú trú hafði líkað
kostað baráttu og skáldið Heimir
Steinsson birtir okkur þá baráttu í
ijóðabókinni Haustregn:
Skelfdur til dauða
feta ég einstigi
efans.
Hengiflug trúar
eru mér á aðra hönd
afneitunar á hina.
Áiengdar
heyri ég tvísöng
hinna hólpnu:
„Hér er guð.“
„Hér er enginn guð.“
Sælir eru þeir....
Sjálfur
bregð ég höndum til skiptis
út yfir afgrunnana tvo
og held áfram fór minni
um einstigi
mannsins
skelfdur til dauða.
(Heimir Steinsson.)
Minningar em margar, frá söng-
stund við orgelið hjá afa Steini þar
sem systkinin sungu í röddum lögin
hans afa; frá bænastund í Þingvalia-
kirkju með Heimi fyrir brúðkaup
okkar hjóna; frá gleðistundum og
sorgarstundum. En enn og aftur
kemur upp í hugann maðurinn sem
leiðbeindi mér í Skálholti og ræddi
guðfræði við unglinginn á skrifstofu
sinni á Þingvöllum. Alþýðufræða-
rinn sem skýrt gat leyndardóma
messunnar fyrir 14 ára unglingi og
að sama skapi aðstoðað frændkonu
og skýrt fyrir mér og lesendum Víð-
förla sameiginlega yfirlýsingu lút-
herskra og kaþólskra um réttlæting-
arkenninguna á liðnu hausti. Sú
yfirlýsing markaði vissulega tíma-
mót í samskiptum þessara kirkju-
deilda og Heimir fjallaði um þetta