Morgunblaðið - 14.06.2000, Blaðsíða 2
2 B MIÐVIKUDAGUR 14. JÚNÍ 2000
EM I KNATTSPYRNU
MORGUNBLAÐIÐ
Ævintýralegur
leikur í Charleroi
Solskjær j
orðinn
pabbi
NORÐMENN önduðu léttar
þegar ljóst var að Ole Gunnar
Solslyœr myndi geta leikið
með þeim gegn Spánverjum
á EM í gær.
Á fimmtudaginn varð Sol-
skjær pabbi - er honum og
unnustu hans, Silje Lynmg-
vær, fæddist lítill drengur.
Norðmenn höfðu hafi;
áhyggjur af því að hann
kynni að missa af einhverjum >
leikjum vegna væntanlegrar
fæðingar. En bamið er komið 1
í heiminn og allt gekk vel
þannig að hann er til í slag-
inn. Solskjær var vakinn
klukkan 3.20 aðfaranótt
fimmtudagsins, ók í loftköst-
: um til Brussel, fór í loftið
í klukkan 7.20 til Manchester
og klukkan 10.05 var sonur-
;; inn kominn í heiminn og Sol-
skjær var viðstaddur eins og
hann hafði ákveðið, sama
þótt landsliðið hefði verið í
miðjum leik.
WmfBK
FOLK
■ RAUL Gonzalezog Michel Salga-
do gátu báðir leikið með Spánveij-
um gegn Noregi í gær en tvísýnt var
með þá báða fram á síðustu stundu.
■ STEFFEN Iversen skoraði í gær
fyrsta mark Norðmanna gegn
Spánverjum er hann skorði sigur-
mark Norðmanna í fyrsta leik
þeirra í C-riðli. Fyrir leikinn í gær
höfðu þjóðimar mæst í þrígang á
knattspymuvellinum og Noregi
aldrei tekist að skora. Um leið var
þetta íyrsta mark Noregs í loka-
keppni EM, þar landslið þjóðarinnar
er nú í fyrsta sinn með í keppninni.
■ SRECKO Katanec, þjálfari Sló-
evníu, er fyrrverandi landsliðsmað-
ur Júgóslavíu. Hann var samheiji
Ásgeirs Sigurvinssonar hjá Stuttg-
art - þeir léku saman úrslitaleikina í
UEFA-bikarkeppninni 1989, þegar
liðið tapaði fyrir og Maradona sam-
heijum hjá Napoli. Stuttgart tapaði
í Napoli 2:1, gerði jafntefli í Stuttg-
art, 3:3.
■ KATANEC, sem er aðeins 37 ára,
fór frá Stuttgart til Sampdoría eftir
aðeins eitt ár, þar sem hann lauk
knattspymuferlinum 1994. Þess má
geta að hann lék undir stjóm Vujad-
in Boskov, þjálfara Júgóslaviu, hjá
Sampdoría. Hann lék 31 leik með
landsliði Júgóslavíu, fimm leiki með
landsliði Slóveniu.
mJOSEBA Etxeberria, leikmaður
Spánar, fékk gult spjald á 17. mín-
útu fyrir að brjóta á Andre Bergdol-
mo. Það væri ekki frásögur færandi
ef Bergdolmo hefði ekki fengið gult
spjald 16 mínútum síðar fyrir brot á
Etxeberria.
■ HOLLENSKI vamarmaðurinn
Jaap Stam meiddist á nára á æfingu
í gær og er óvíst hvort hann geti
leikið með gegn Dönum á föstudag-
inn.
FRAMMISTAÐA Júgóslava gegn
Slóvenum í fyrsta leik liðanna í
EM í gær var með hreinum ólík-
indum. Fyrsta klukkutímann gat
liðið ekki neitt og Slóvenar réðu
lögum og lofum, komust í 3:0
eftir 57 mínútur. Þá var Sinisa
Mihajlovic rekinn af leikvelli og
einum færri röknuðu Júgóslav-
ar úr rotinu, jöfnuðu metin og
voru nærri því að fara með sigur
af hólmi. Jafntefli, 3:3, varð nið-
urstaðan í bráðskemmtilegum
leik sem fram fór í Charleroi í
Belgíu. í hinum leik C-riðilsins
lögðu Norðmenn Spánverja,
1:0, í Rotterdam í mun tilþrifa-
minni leik þar sem Steffen Iver-
sen skoraði eina markið.
Hetja Júgóslava í leiknum var
Savo Milosevic. Hann kom inn
á völlinn sem varamaður á 52. mín-
útu, eða rétt í þá mund sem Miran
Pavlin skoraði annað mark Slóvena,
og útlitið var allt annað en bjart hjá
Júgóslövum. I fyrri hálfleik var eins
og aðeins eitt lið væri á vellinum um
tíma. Slóvenar, sem eru fámennasta
þjóð sem hefur komist í lokakeppni
EM, réðu ferðinni. Leikmenn
Júgóslava voru heillum horfnir og
léku ekki saman sem heild.
Zlatko Zahovic skoraði fyrsta
mark Slóvena á 23. mínútu og
skömmu síðar fékk hann opið færi,
einn gegn Ivica Kralj, markverði
Júgóslava, sem varði skotið einstak-
lega vel.
Ekki virtist Júgóslövum hafa tek-
ist að vakna í leikhléi því áfram voru
þeir úti á þekju. Slóvenar bættu
öðru marki sínu við á 52. mínútu og
því þriðja fimm mínútum síðar. Var
þar að verki fyrmefndur Zahovic
sem einnig lagði upp annað markið.
Á 60. mínútu fékk Sinisa Mihajlovic
að líta rauða spjaldið eftir að hann
hrinti einum leikmanna Slóvena
sem var ekki sáttur við framgöngu
eins samherja Mihajlovic. Með
brottrekstrinum beit Mihajlovic
höfuðið af skömminni því hann
hreinlega gaf Slóvenum þriðja
markið er hann gaf boltann á hreint
fáránlegan hátt í fætur marka-
hróksins Zahovic.
Þegar hér var komið sögu töldu
menn að Júgóslövum væri öllum
lokið, en annað kom á daginn. Loks
þegar þeir voru lausir við Mihajlovic
fóru þeir að leika eins og þeir sem
valdið hafa, einum leikmanni færri.
Á sex mínútna kafla skoruðu Júgó-
slavar í þrígang og jöfnuðu metin og
voru nærri því að bæta við. Slóven-
ar áttu einnig sín tækifæri en án
árangurs, en þeir sóttust þarna eftir
því að vinna Júglóslava fyrsta sinni.
Stoltur af mínum mönnum
„Reynsluleysi kostaði okkur sig-
urinn,“ sagði Srecko Kastanec,
þjálfari Slóveníu, í leikslok. Hann
sagðist sáttur þegar öllu væri á
botninn hvolft en vissulega hefði
hans lið verðskuldað sigur. „Á móti
eins góðu liði og Júgóslavía er má
aldrei gefa eftir, jafnvel þótt það sé
aðeins skipað tíu leikmönnum. Ég
get hins vegar ekki annað en tekið
hatt minn ofan fyrir mínu liði, það
lék vel í 70 mínútur og ég vona að
okkur takist að mæta með sama
hugarfari til leiks næst.“
Fyrsti sigur Norðmanna
Leikur Spánverja olli miklum
vonbrigðum, en fyrirfram voru þeir
af mörgum taldir vera með eitt
skemmtilegasta lið keppninnar og
líklegt til afreka. Spánverjar hafa
hins vegar oft átt erfitt uppdráttar í
stórmótum og ef marka má þennan
leik gæti svo einnig orðið nú.
Norðmenn léku eins og vænta
mátti. Þeir fóru sér í engu óðslega
og leikmenn þekktu greinilega sín
takmörk. Barátta hefur lengi verið
aðal norska liðsins og á því varð
engin breyting nú.
Markið sem skildi þjóðii-nar að í
leikslok kom á 65. mínútu. Thomas
Myhre, markvörður Noregs,
spyrnti langt frá marki sínu. Knött-
urinn barst yfir á vítateig Spánverja
þar sem Steffen Iversen var óvald-
aður og stökk hærra en Francisco
Molina, markvörður Spánverja, sem
kom út í skógarferð. Iversen sneiddi
boltann yfir Molina í fjærhornið án
þess að nokkur spænsku leikmann-
ana fengi vörnum við komið.
Ekki varð markið til þess að
vekja spænsku leikmennina, ef eitt-
hvað var dofnaði frekar yfir þeim og
var sem þeir hefðu verið slegnir út
af laginu.
„Allir nema við reiknuðum með
því að Spánverjar myndu bera sigur
úr býtum,“ sagði Nils Johan Semb,
landsliðsþjálfari Norðmanna, í
leikslok. „Við vorum hins vegar all-
an tímann vissir um að við ættum
möguleika á sigri,“ bætti Semb við
og sagði að Iversen hefði áður skor-
að líkt mark.
Norðmenn eru nú fyrsta sinni
með í lokakeppni Evrópumótsins í
knattspyrnu og er óhætt að segja að
byrjun þeirra sé góð, en hinir full-
trúar Norðurlandanna, Svíar og
Danir, bitu í það súra epli að tapa
fyrstu viðureignum sínum í mótinu
að þessu sinni. Um leið er þetta
fyrsti sigur Norðmanna á Spánverj-
um, en fyrir leikinn í gær höfðu
þjóðirnar mæst þrisvar, einu sinni
hafði orðið jafntefli en tvisvar höfðu
Spánverjar haft betur.
Iversen var með báða fæturna á
jörðinni í leikslok og varaði við
bjartsýni. „Það eru enn tveir leikir
eftir í riðlakeppninni og við verðum
að halda rétt á spilunum. En við er-
um með gott lið og andinn innan
þess er jákvæður," sagði Iversen.
Má ekki láta hugfallast
Jose Antonio Camacho, landsliðs-
þjálfari Spánverja, sagði ekki
nokkra ástæðu til að leggja árar í
bát þrátt fyrir tapið. Lið hans ætti
enn góða möguleika á að komast
áfram, aðalatriðið væri að menn
hengdu ekki haus, heldur hertu upp
hugann.
„Ég er viss um að við komumst
upp úr riðlakeppninni," sagði mið-
vallarleikmaðurinn Alfonso. „Við
verðum að halda ró okkar og hafa
trú á því sem við erum að gera hér í
Hollandi," bætti hann við.
Norðmaðurinn Steffen Iver-
sen réttir upp hendur og
fagnar sigurmarki sínu gegn
Spánverjum sem er jafn-
framt fyrsta markið sem
Norðmenn skora í landsleik
gegn Spáni. Eirik Bakke og
Andre Bergdolmo taka þátt í
fögnuði hans.
C-RIÐILL
Spánn - Noregur 0:1
Rotterdam, Hollandi, 13. júní.
- Steffen Iversen 65. Áhorfendur: 45.000.
Spánn: 22-Francisco Molina; 2-Michel
Salgado, 3-Agustin Aranzabal, 4-Pep
Guardiola, 6-Femando Hierro (fyrirliði), 8-
Fran (16-Gaizka Mendieta 72.), 10-Raul,
17-Joseba Etxeberria (Alfonso 72.), 18-
Paco, 20-Ismael Urzaiz, 21-Juan Carlos
Valeron (7-Ivan Helguera 80.)
Noregur: 1-Thomas Myhre; 2-Andre Berg-
dolmo, 3-Bjom Otto Bragstad, 4-Henning
Berg (fyrirliði,16-Dan Eggen 59.), 7-Erik
Mykland, 9-Tore Andre Flo (17-John Car-
ew 70.), 11-Bent Skammelsmd, 14-Vegard
Heggem, 18-Steffen Iversen (21-Vidar
Riseth 90.), 19-Eirik Bakke, 20-Ole Gunnar
Solskjær
Markskot: 14:5. Hora: 5:2.
Júgóslavía - Slóvenía 3:3
Charleroi, Belgíu, 13. júní.
Savo Milosevic 67., 73., Ljubinko Drulovic
70. - Zlatko Zahovic 23., 57., Miran Pavlin
52. Rautt spjald: Sinisa Mihajlovic (Júgó-
siavíu) 60.
Júgóslavfa: 22-Ivica Kralj, 2-Ivan Didc, 4-
Slavisa Jokanovic, 5-Miroslav Djukic, 6-
Dejan Stankovic (10-Dragan Stojkovic 36.),
7-Vladimir Jugovic, 8-Predrag Mijatovic
(fyrirliði, 20-Mateja Kezman 82.), 11-Sinisa
Mihajlovie, 17-Ljubinko Dmlovic, 18-
Darko Kovacevic (9-Savo Milosevic 52.), 21-
Albert Nadj.
Slávenfa: 12-Mladen Dabanovic, 3-Zeljko
Milinovic, 4-Darko Milanic (fyrirliði), 5-
Marinko Galic, 7-DjOni Novak, 8-Ceh Ales,
9- Saso Udovic (18-Milenko Acimovic 64.),
10- Zlatko Zahovic, U-Miran Pavlin (21-
Zoran Pavlovic 73.), 13-Mladen Rudonja,
19-Amir Karic (20-Milan Osterc 78.).
Markskot: 12:14. Hora: 6:5.
Staðan:
Noregur.....................11 0 0 1:0 3
Slóvenía....................1 0 1 03:3 1
Júgóslavía..................1 0 1 0 3:3 1
Spánn.......................1 0 01 0:1 0
Næstu leikir:
Sunnudagur 18. júní: Slóvenía - Spánn,
Júgóslavía - Noregur.
Miðvikudagur 21. júní: Júgóslavía - Spánn,
Slóvenía - Noregur.
Svíar vilja tvo dómara
TOMMY Söderberg, annar þjálf-
ari Svía, viðraði þær hugmyndir
um helgina að best væri að
koma á tveggja dómara kerfi í
knattspymunni. Þá sæi hvor
dómari um sig um annan vallar-
helminginn.
„Ég hef hugsað mikið um
þetta og meðal annars hvort
nota ætti myndband en ég held
að með því að tveir dómarar
skiptu vcllinum á milli sín ættu
þeir auðveldara með að standa
sig vel í starfí,“ segir Söder-
berg.
Umræðan kemur í kjöfiar þess
að Belginn Emile Mpenza skor-
aði sigurmarkið gegn Svíum og
notaði höndina til að laga bolt-
ann fyrir sér án þess að dómar-
inn yrði þess var. Söderberg
segir vangaveltur sinar ekki
sprottnar af þessu atviki, hann
hafi lengi hugsað um þetta.
„Lcikurinn verður stöðugt
hraðari án þess að miklar breyt-
ingar hafi orðið hjá dómumm
sem eiga stöðugt erfiðara með
að fylgjast með öllu þyí sem
fram fer á vellinum. Ég vil frek-
ar fá tvo dómara en myndavélar
þar sem dómarinn getur skoðað
atburði strax og tekið ákvörðun
í kjölfar þess. Það er hætt við að
slík tækni myndi breyta leiknum
mjög mikið - of mikið.“