Morgunblaðið - 22.08.2000, Qupperneq 1
STOFNAÐ 1913
190. TBL. 88. ÁRG. ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 PRENTSMIÐJA MORGUNBLAÐSINS
Yfírmaður rússneska Norðurflotans tilkynnir að björgunaraðgerðum við
kjarnorkukafbátinn Kúrsk, sem hvflir í Barentshafí, hafí verið hætt
Vonir um mannbjörg
orðnar að engu
Miírmansk, Moskvu. Reuters, AFP.
YFIRSTJÓRN rússneska flotans til-
kynnti í gærdag að 118 manna áhöfn
rússneska kjarnorkukafbátsins
Kúrsk hefði farist við slysið í Bar-
entshafi fyrir níu dögum og gerðu
þar með veikar vonir aðstandenda
sjóliðanna, sem beðið hafa milli vonar
og ótta í Múrmansk á Kólaskaga, um
síöbúna rnannbjörg að engu. Form-
legum björgunarleiðangri hefur ver-
ið hætt. „Ótti okkar reyndist á rökum
reistur. Öll rými kafbátsins eru full
af sjó. Enginn áhafnarmeðlimur er á
lífi,“ sagði Míkhafl Mostak, yfirmað-
ur rússneska Norðurflotans, í gær.
Tilkynning rússneska flotans kom
nokkrum stundum eftir að frétta-
maður RTR-sjónvarpsstöðvarinnar,
sem staddur er á björgunarskipi í
Barentshafi, sagði að sérsveit
norskra djúpkafara hefði náð að opna
aftari neyðarlúgu Kúrsk og séð að
báturinn var fullur af sjó. Skammt
frá útgönguleiðinni fannst lík sjóliða
og færðu norskir djúpkafarar það
upp til björgunarskips.
Talsmenn flotans sögðu í gær að
níunda og aftasta rými Kúrsk hefði
verið fullt af sjó en áður höfðu menn
bundið vonir við að þar gæti verið að
finna sjóliða á h'fi. „Við höfum komist
að þeirri niðurstöðu að það sé engin
von til þess að finna menn á lífi inni í
kafbátnum,“ sagði John Espen Lien,
talsmaður norska flotans, sem leggur
til kafarasveit, í viðtali við CNN.
Sagði hann að yfirstjórnir norska og
rússneska hersins hefðu komist að
þeirri sameiginlegu niðurstöðu að
hætta björgunaraðgerðum. Hafa
Rússar beðið Norðmenn um að að-
stoða þá við að koma líkum sjólið-
anna og kjarnorkukijúfum úr flaki
kafbátsins. Talsmenn leiðangurs-
stjóra sögðu að ekki væri búið að
taka ákvörðun um framhaldið og
lögðu áherslu á að slík aðgerð væri
bæði tímafrek og afar áhættusöm.
Vyacheslav Popov, aðmíráll og yf-
irmaður rússneska flotans, bað í gær
Rússa fyrirgefningar þar sem ekki
hefði tekist að bjarga lífum sjólið-
anna 118.1 viðtali sem var sent út frá
einu björgunarskipanna á Barents-
hafi sagði Popov að allt hefði verið
reynt en björgunarmenn ekki náð að
sigrast á aðstæðum. „Fyrirgefið
bömum ykkar. Fyrirgefið sonum
ykkar. Og fyrirgefið mér fyrir að
færa ykkur ekki drengina aftur,“
sagði aðmírállinn þar sem hann stóð
niðurlútur á þilfari herskipsins Pét>
urs mikla.
Sergejev ver aðgerðir
Rússnesk hermálayfirvöld og
ráðamenn landsins hafa sætt afar
mikilli gagnrýni almennings og fjöl-
miðla fyrir misheppnaðar björgunar-
aðgerðir og skeytingarleysi við að-
standendur sjóliða. ígor Sergejev
vamarmálaráðherra varði hins vegar
aðgerðir flotans og sagði að hugsan-
lega hefðu björgunarmenn aðeins
gert smávægileg mistök í upphafi að-
gerða. Sagðist hann jafnframt hafa
ráðlagt Vladimír Pútín forseta að
halda kyrra fyrir í síðustu viku á
Reuters
Rússneskur sjóliði um borð í herskipinu Pétri mikla, sem statt er á Barentshafi, horfir yfir staðinn þar sem
kjarnorkukafbáturinn Kúrsk hvílir á hafsbotni. Rússneska björgunarskipið Mikhail Rúdnitský og norska skipið
Normand Pioneer sjást í bakgrunni.
Reuters
Kjarnorkukafbáturinn Kúrsk þar sem hann lá f
Vidyaevo-flotahöfninni á Kólaskaga í maí sl.
sumarleyfisstað sín-
um við Svartahaf.
Hafnaði Sergejev
því alfarið að hjálp-
arbeiðni Rússa hefði
tafist og sagði að
farið hefði verið
fram á aðstoð eins
fljótt og auðið var.
Enn er allt á
huldu um hver orsök
slyssins var en Ijóst
þykir að tvær
sprengingar, sem
bandarísk og norsk
könnunarskip
greindu, hafi orðið í
Kúrsk. í gær var
greint frá því að
brak úr öðram kaf-
bát hefði fundist á
hafsbotni skammt frá slysstað. Yfir-
menn rússneska flotans vildu ekki
staðfesta þessar fregnir en Sergejev
sagði að Kúrsk hefði rekist á hlut
neðansjávar og að sá hlutur hefði
verið „álíka stór og Kúrsk“. Greindu
rússneskir fjölmiðlar frá því að hlut-
urinn sem fannst hefði hugsanlega
getað verið úr breskum kafbát en
breska vamarmálaráðuneytið vísaði
því algerlega á bug. Sergejev sagði
að Rússar hefðu farið fram á skýr-
ingar Atlantshafsbandalagsins
(NATO) á hlutnum en að bandalagið
hefði neitað öllum tengslum við hlut-
inn. „Þeir hafa sagt við okkur að jafn-
vel þótt þetta hefði gerst myndu þeir
neita því,“ sagði Sergejev við rúss-
nesku fréttastofuna ORT.
■ Norskir djúpkafarar/26
Rannsókn
hafín á flaki
Sleipnis
Ósló. AP.
NORSKUM björgunarmönn-
um tókst í gær að lyfta flaki
norsku farþegaferjunar Sleipn-
is sem fórst við vesturströnd
Noregs í nóvember á síðasta ári
með þeim afleiðingum að sex-
tán manns létu lífið.
Flak Sleipnis var híft upp af
100 metra dýpi á sunnudag og
haldið með það til lands til frek-
ari rannsókna en yfirvöld hafa
krafist rannsóknar á því hvers
vegna björgunarbúnaður ferj-
unnar, sem var af nýjustu og
fullkomnustu gerð, brást.
Grænlendingar andsnúnir eldflauga-
varnaáætlunum Bandaríkj anna
Bandarísk sendinefnd
heldur til Nuuk
Nuuk. AFP.
BANDARÍSK sendinefnd, skipuð
háttsettum erindrekum utanríkis-
og varnarmálaráðuneytis Banda-
ríkjanna, hélt til Nuuk á Græn-
landi í gær með það að markmiði
að kynna þarlendum ráðamönnum
áætlanir Bandaríkjastjórnar um að
endurskipuleggja herstöðina í
Thule í samræmi við fyrirhugað
eldflaugavarnakerfi, en ratsjár-
stöðin í Thule mun gegna þar mik-
ilvægu hlutverki.
Jonathan Motzfeldt, formaður
grænlensku landstjórnarinnar,
áréttaði í gær að ríkisstjórn Dan-
merkur geti ekki samþykkt fyrir-
hugaðar breytingar á Thule-stöð-
inni í samræmi við
eldflaugavarnaáætlunina ef ljóst sé
að hún brjóti í bága við ABM-
sáttmálann eða að það sé gert í
óþökk Rússlandsstjórnar. Eld-
flaugavarnakerfið hefur vakið
miklar deilur meðal stjórnarflokk-
anna tveggja á Grænlandi og hefur
Inúítaflokkurinn sagst ekki munu
ræða við sendinefnd Bandaríkj-
anna um kerfið.
Barak
boðar
„veraldlega
byltingu“
Tel Avív. Reuters, AP.
EHUD Barak, forsætisráðherra
Israels, hefur komið bæði stuðnings-
mönnum sínum og andstæðingum á
óvart með því að leggja til að strang-
trúaðir gyðingar verði sviptir mörg-
um sérréttindum, þ. á m. undanþágu
frá herskyldu. Hafa ísraelskir fjöl-
miðlar sagt Barak vilja gera „verald-
lega byltingu," að því er segir á
fréttavef breska rfldsútvarpsins,
BBC. Skrifstofustjóri Baraks og
gamall vinur ráðherrans, Haim
Mendel-Shaked, sagði af sér í gær.
Hann sagði Barak vera afbragðs for-
sætisráðherra. „En mál hafa þróast á
þann veg í dag að leiðir okkar skilj-
ast,“ sagði Mendel-Shaked. Stað-
gengill hans sagði af sér fyrir viku og
mikill innbyrðis krytur rfldr meðal
ráðgjafa Baraks að sögn AP.
Borgaralegur þegnskapur
Samkvæmt tillögu sem forsætis-
ráðherrann lagði fram á rfldsstjóm-
arfundi á iaugardag yrðu borgara-
iegar hjónavígslur leyfðar og
einkaréttindi trúaðra afnumin; trú-
málaráðuneytið yrði lagt niður og
bömum strangtrúaðra gert að læra
um borgarlegan þegnskap, ensku og
stærðfræði. Þá skuli lögð drög að
ísraelskri stjómarskrá sem kveði á
um málfrelsi og kvenréttindi.
Fréttaskýrendur í ísrael gera lítið
úr hugmyndum Baraks og segja að
tillögurnar séu klaufaleg tilraun til að
afla sér stuðnings meðal kjósenda.
„Hann er örvæntingarfullur," sagði
einn þeirra, Hanan Crystal. Einnig
var fullyrt að ráðherrann hefði ekki
rætt málið við ráðgjafa sína áður en
hann varpaði tillögunum fram. Talið
er að litlar líkur séu á að Barak fái til-
lögur sínar samþykktar á þinginu,
þar sem rflrisstjóm hans berst í
bökkum eftir að flokkar strang-
trúaðra gyðinga og hægrisinna hættu
stjómarsamstarfi í síðasta mánuði
vegna þess sem þeir sögðu hafa verið
of mikla eftirgjöf Baraks við Palest-
ínumenn í friðarviðræðum. Hefur
Barak aðeins stuðning 42 þingmanna
af 120 og telja margir að boðað verði
til kosninga áður en langt um líður.
Biðlað til Likud
í útvarpsviðtölum á sunnudag
hvatti Barak Likudflokkinn, sem er
veraldlegur flokkur og helsti
stjórnarandstöðuflokkurinn, til að
styðja tillögur sínar. Ariel Sharon,
leiðtogi Likud, sakaði Barak um að
vera í kosningaham. „Þetta er ríkis-
stjórn sem er haldin ofsahræðslu.
Þetta eru of mikilvæg mál til að
ákvörðun um þau sé tekin á fundi um
miðja nótt,“ sagði Sharon.
En stuðningsmenn Baraks fögn-
uðu tillögunni og sögðu hana magn-
aða tilraun til að auka jafnrétti í Isr-
ael og losa um tök trúarstofnana í
samfélaginu. Leiðtogi Shas-flokks-
ins, flokks strangtrúaðra gyðinga,
sagði hins vegar tillögu Baraks vera
„tilraun til að sldpta þjóðinni og til að
heíja menningarstríð11.
MORGUNBLAÐK) 22. ÁGÚST 2000