Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 2

Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 2
2 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Morgunblaðið/Ingvar Það tók slökkviliðið um klukkustund að ráða niðurlögum eldsins. Bruni í Klukkubergi ELDUR braust út í íbúð á jarðhæð fjölbýlishúss í Klukkubergi 17 laust fyrir klukkan hálfsjö á sunnudags- kvöld. íbúðin varð brátt alelda og lagði frá henni þykkan svartan reyk. íbúar hússins þurftu að forða sér út um glugga en átta voru fluttir á slysa- deiid vegna reykeitrunar eftir brun- ann. Þeir hafa allir verið útskrifaðir. Lögreglan í Hafnarfirði fékk til- kynningu um eldinn kl. 18.26. Slökkvilið slökkti eldinn á um klukkustund. Þeir sem fengu reyk- eitrun bjuggu í íbúðinni þar sem eld- urinn kom upp og öðrum íbúðum í húsinu. Eldsupptök eru enn ókunn en lögreglan í Hafnarfirði fer með rann- sókn málsins. Morgunblaðið/Jim Smart KRAKKARNIR á Akranesi spör- uðu sór sóiarlandaferðina á sunnudaginn og léku sér 1 fjörunni eins og hún væri sólarströnd á Spáni. Sennilega hafa foreldrarnir verið fegnastir, enda lendir ferða- kostnaður fjölskyldunnar á þeim. Veðurblíðan var allsráðandi á suðvesturhorninu á sunnudaginn; sól í heiði og hitinn í kringum 15 gráður. Því var ekki nema von að krakkarnir á Skaganum kældu sig aðeins niður með köldu steypibaði er kvölda tók. Stúlka handtekin í Leifsstöð Með 100 g af kókaíni innvortis ÍSLENSK stúlka á tvítugsaldri var handtekin af tollgæslunni á Kefla- víkurflugvelli með rúmlega 100 g af kókaíni innvortis hinn 13. ágúst sl. Fljótlega vöknuðu grunsemdir um að stúlkan væri ekki eigandi efnanna og var karlmaður um þrítugt hand- tekinn af fíkniefnadeild lögreglunn- ar þegar hann kom til landsins frá Amsterdam daginn eftir. Hann var úrskurðaður í gæsluvarðhald til 25. ágúst nk. Stúlkan sat í gæsluvarð- haldi fram til 18. ágúst. Fíkniefna- deild lögreglunnar í Reykjavík fer með rannsókn málsins. Tollgæslan fann engin fíkniefni í farangri stúlkunnar en við röntgen- skoðun kom í ljós að hún var með 107 g af kókaíni innvortis. Efnið var hreint en talið er að hægt sé að drýgja það fyrir sölu þannig að það fáist um 700 g. Samkv. verðkönnun SÁÁ frá því fyrr í mánuðinum fengj- ust þá um 8 milljónir fyrir eiturlyfin. Gamla konan fundin á lífí Lá í háu grasi ALFA Þorbjörg Hjálmarsdóttir, sem leitað var að frá föstudegi, fannst heil á húfi á sunnudags- kvöld. Hún fannst laust fyrir klukkan 20 í Mjóddinni skammt frá gatnamótum Breiðholtsbraut- ar og Reykjanesbrautar. Lög- reglan í Reykjavík telur að Alfa hafi legið þar næstum allan þann tíma sem hennar var leitað. Á þessum stað er land þýft og hátt gras byrgir sýn. Vísbendingar höfðu komið fram sem bentu til að Alfa Þorbjörg hefði átt leið þarna um en þrátt fyrir leit hafði hún ekki fundist. Alfa Þorbjörg var nokkuð köld þegar hún fannst en að öðru leyti var líðan hennar góð. Hún var flutt á slysadeild Landspítala - háskóla- sjúkrahúss í Fossvogi. Lögreglan í Reykjavík segir Ölfu hafa verið í tiltölulega góðu líkamlegu ástandi og hún var vel klædd þegar hún týndist. Það ásamt góðu veðri hafi líklega orðið henni til lífs. í tilkynningu frá lögreglunni í Reykjavík er komið á framfæri þakklæti til þeirra björgunarsveit- armanna og annarra þeirra sem að leitinni komu og jafnframt þeirra fjölmörgu borgara sem leituðu Olfu Þorbjargar á lóðum húsa sinna og í geymslum og bílskúrum. Eins og í útlönd- Ný könnun gefur til kynna að koffíni sé bætt út í gosdrykki vegna vanabindandi eiginleika Koffínneysla á Is- landi áhyggjuefni NÝ könnun, sem gerð var við Johns Hopkins-háskóla í Bandaríkjunum, gefur til kynna að koffíni sé ekki bætt í gosdrykki vegna bragðsins heldur til að fá neytendur til að ánetjast. Magnús Jóhannsson lækn- ir sagði að neysla koffíns hér á landi væri áhyggjuefni og vísaði sérstak- lega til orkudrykkja sem nú eru komnir á markað og væri beint til yngri aldurshópa. Spyrða saman tóbaks- og gosdryklyaframleiðendur í könnuninni voru 25 fullorðnir neytendur cola-drykkja látnir bragða slíka drykki við mismunandi aðstæður og þeir beðnir að greina á milli drykkja með koffíni og án af bragðinu einu. Aðeins tveir sögðust geta greint bragðið af koffíni í því magni sem bætt er út í pepsí og kók. Roland Griffiths læknir stjómaði rannsókninni og sagði hann þegar niðurstöðumar vom birtar í tíma- ritinu Archives of Family Medicine, sem Bandarísku læknasamtökin gefa út, að bera mætti framferði gosdrykkjaframleiðenda saman við það þegar tóbaksframleiðendur bættu nikótíni í sígarettur til að neytendur ánetjuðust framleiðsl- unni. „Þar til nýlega hélt tóbaks- iðnaðurinn því einnig fram að nikó- tín væri ekki vanabindandi og efn- inu væri eingöngu bætt við bragðsins vegna,“ sagði Griffiths. „Nú er það sama sagt um koffín.“ Magnús Jóhannsson læknir sagði að sér þætti mjög líklegt að þetta væri rétt. „Því hefur verið haldið fram að koffíni væri blandað í drykki vegna bragðsins og það er bragð af koffíni," sagði hann. „Hins vegar hefur koffín örvandi áhrif og er frekar leiðinleg tilhneiging til að auka koffínneysluna í þjóðfélaginu með svokölluðum orkudrykkjum og beina henni til yngri aldurshópa heldur en verið hefur hingað til auk þess sem magnið er miklu meira. I sumum þessara drykkja er gífurlegt magn af koffíni, margfalt meira en í venjulegum cola-drykkjum, og þeir sem innihalda mesta magnið hafa ekki verið leyfðir hér á íslandi." Hann sagði að margir hefðu áhyggjur af neyslu koffíns. Efnið væri vægt vanabindandi og hefði örvandi áhrif á miðtaugakerfið sem eflaust væri það sem fólk sæktist eftir. Ýmsar vísbendingar væru um að það gæti verið varasamt fyrir ófrískar konur að neyta koffíns og í mörgum nágrannalöndum væri var- að við koffínneyslu en það væri ekki gert kerfisbundið hér á landi. „Ég hef ekki heyrt um þessa könnun en þarna liggja miklir pen- ingar og þá er alltaf viss hætta á svona alveg eins og með tóbaks- framleiðendurna sem hafa orðið uppvísir að alls konar fölsunum og mútugreiðslum," sagði Magnús. „Það er vert að fjalla um þetta því að koffín hefur ekkert næringargildi og það er ekkert jákvætt við það.“ Gosdrykkjaframleiðendur hafna niðurstöðunni Samtök gosdrykkjaframleiðenda hafa hafnað niðurstöðum könnunai’- innar og segja hana hafa verið of smáa í sniðum til að marka megi hana. Talsmaður þeirra sagði að koffíni væri aðeins bætt við af einni ástæðu, bragðsins vegna. Griffiths sagði að gosdrykkja- framleiðendur væru í afneitun og það að vanabindandi og örvandi efni væri bætt út í drykkina hlyti að vera ástæðan fyrir því að fólk drykki frekar gosdrykki með koffíni en án. Sérblöð í dag 40IÍMI ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• Á ÞRIÐJUDÖGUM Heímíli :t ..... :s Bíiki íSOSl :II ••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••••• • Olga byrjar frammi • gegn Ukraínu /B1 : •••••••■••••••••••••••••••••••••••••••••••• j Duranona skoraði • níumörk/B12 : Fyigstu með nýjustu fréttum www.mbl.is

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.