Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 10
10 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
FRETTIR
MORGUNBLAÐIÐ
Fæstir hafa tök á að
stunda nám í Reykjavík
í gær hófst fjarkennsla í
hjúkrunarfræði í
Reykjanesbæ. Sigríður
B. Tómasdóttir og Jim
Smart brugðu sér bæj-
arleið og fylgdust með
fyrstu kennslu-
stundinni.
ÞAÐ er ekki laust við að spenna sé í
loftinu í gamla bai'naskólanum í
Keflavík. Innan tíðar hefst fjarnám í
hjúkrunarfræði og væntanlegir
nemendur tínast inn í húsið og koma
sér fyrir inni í kennslustofunni. Fyr-
ir enda herbergisins blasir skjárinn
við og ekki annað að sjá en norðan-
menn séu að koma sér fyrir líka.
Nemendur era nefnilega að hefja
nám í Háskólanum á Akureyri. Mið-
stöð símenntunar á Suðumesjum
hefur auk hjúkranarfræðinnar hafið
samstarf við Háskólann á Akureyri
um fjarnám í rekstrarfræði. Suður-
nesjabúum gefst einnig kostur á að
sækja námskeið í heimspekideild
Háskóla íslands í húsnæði Miðstöðv-
arinnar. Miðstöðin er nýflutt í núver-
andi húsnæði, sem hefur verið skóla-
húsnæði síðan 1911 þegar það var
reist af Rögnvaldi Olafssyni, læri-
meistara Guðjóns Samúelssonar.
Ætli nokkram hafi dottið í hug þá að
til þess kæmi að kennt yrði í húsinu
af kennara sem staddur væri nokkur
hundrað kílómetra í burtu.
Skúli Thoroddsen, forstöðumaður
Miðstöðvar símenntunar, býður
nemendurna sextán velkomna rétt
áður en kennslustund hefst. En svo
tekur við tími í framulíffræði og eins
og vera ber taka nemendur fram
glósubók og hefjast handa.
„Það er mikil þörf á hjúkranar-
fræðingum hér á Suðumesjum,“ seg-
ir Skúli þegar blaðamaður nær tali af
honum. „Námið gefur líka mörgum,
sem ekki hafa tök á því að sækja það
til Reykjavíkur, kost á að stunda há-
skólanám.“ Innan tíðar hefst fjamám
í rekstrarfræði, sem er hugsað að
nemendur stundi samhliða vinnu.
Þörf á háskólamenntuðu
fólki á Suðurnesjum
„Þetta nám verður unnið í góðu
samstarfi við fyrirtækin hér um slóð-
ir. Þá geta nemendur í markaðsfræði
t.d. unnið sitt verkefni fyrir íyrir-
tæki í Reykjanesbæ." Skúli segir
mjög mikilvægt að háskólanám sé
hafið á Suðurnesjum. „Það er þörf á
háskólamenntuðu fólki hér og það er
vitað mál að fólk skilar sér betur út í
atvinnulífið í heimabyggðinni ef það
lærir þar.“ Ekki verður látið staðar
numið hér heldur er stefnt á að hefja
leikskólakennaranám næsta haust,
einnig í samvinnu við Háskólann á
Akureyri.
Það kann að vera að einhverjum
finnist það hálfgerður óþarfi að vera
með fjarkennslu staðsetta í Reykj-
anesbæ, þetta stutt frá Reykjavík.
„Þetta er tveggja tíma akstur yfir
daginn sem við spöram nemendum.
Það er náttúralega dýrt að aka á
milli á hverjum degi. Þess utan hafa
nemendurnir hér í hjúkranarfræð-
inni fæstir tök á að stunda nám í
Reykjavík, þannig að ef þessi kostur
byðist ekki þá væra þeir ekki að
hefja háskólanám," segir Skúli.
En aftur í kennslustofuna. Tíman-
um er að ljúka. Kennarinn, Sigurður
Bjarklind, hefur lokið yfirferð yfir
fyrsta kafla bókarinnar. Þá er kom-
inn tími fyrir spurningar. „Fyrst
Morgunblaðið/Jim Smart
tökum við spumingar úr salnum, þá
frá Suðurnesjum og loks frá Austur-
landi,“ tilkynnir hann og ekki er
laust við að blaðamaður dáist að
tækninni sem gerir þetta kleift.
Nemendur í skólastofunni ýta á
takka á eins konar fjarstýringu vilji
þeir láta í sér heyra fyiii' norðan.
Myndavél í kennslustofunni fókuser-
ar á þann sem spyr þannig að mynd
birtist af þeim á skjá fyrir aftan
kennarann.
í þetta skiptið er enginn með
spumingar.
Sömuleiðis eru hjúkranarfræðin-
emarnir sex sem sitja í Neskaupstað
með allt á hreinu og þannig lýkur
fyrstu kennslustund dagsins.
Morgunblaðið/Jira Smart
Skilar sér út
í atvinnulífið
„ÞAÐ skilar sér örugglega út í at-
vinnulífíð á Suðumesjum að læra
hér. Það er líklegra að fólk setjist
að í Reykjavík, t.d. ef það fer að
læra þar,“ segir Margrét Blöndal í
samtali við blaðamann á kaffistof-
unni að lokinni fyrstu kennslustund.
Margrét segir það hafa legið beint
við að fara í hjúkunarfræðinámið
þegar það bauðst. Hún hóf nám í
sjúkraþjálfun á sínum tíma en hætti
því. „Það munar ótrúlega miklu að
þurfa ekki að keyra á milli,“ segir
Margrét sem hefur ekki áhyggjur
af því að eitthvað fari forgörðum í
kennslunni þó að kennari sé ekki
staddur í kennslustofunni í eigin
persónu. „Við þurfum auðvitað að
venjast þessu en ég hef ekki áhyggj-
ur af því. Svo er hópurinn mjög góð-
ur og við eigum örugglega eftir að
styðja við hver aðra. Það verður
líka örugglega auðveldara að
spyrja þegar við erum búnar að
fara norður og kynnast kennurun-
um og hinum nemendunum."
Morgunblaðið/Jim Smart
Lengi lang-
að í hjúkrun
„MIG hefur langað til að læra
hjúkrun sfðan ég var sextán ára.
Þegar ég sá fjarnámið auglýst
ákvað ég að drífa mig,“ segir Fríða
María Sigurðardóttir þegar hún er
spurð út í val hennar á náminu. „Ég
gæti hins vegar ekki hafíð námið ef
að ég þyrfti að sækja það til Reykja-
víkur. Eg þyrfti að bíða fjögur ár til
vegna Qölskylduaðstæðna." Fríðu
líst mjög vel á aðstæður en auk
kennslustofunnar hafa nemendur
aðgang að tölvum sem nýtast munu
þeim tU að afla sér gagna að norðan
og vera í sambandi við kennarana.
„ Við förum norður í næstu viku
og verðum þar í tímum, hittum
kennarana og lærum á bókasafns-
kerfið," segir hún blaðamanni sem
veltir fyrir sér hvemig sambandinu
við Akureyringa verði háttað. „Síð-
an verðum við í sambandi gegnum
tölvupóstinn." Fríða er mjög sátt
við fyrstu kennslustundina. „Þetta
gekk mjög vel fannst mér. Það þarf
náttúrulega að venjast að hlusta og
fylgjast með í gegnum skjáinn en
það kemur örugglega.“
Draumur
að rætast
„MINN draumur er að rætast,“
segir Guðbjörg Sigurðardóttir.
Það er ekki ofsögum sagt því Guð-
björg er einn af hvatamönnum
þess að hafin yrði fjarkennsla í
hjúkrunarfræði á Suðumesjum.
„Ég byijaði í námi í Reykjavík fyr-
ir tveimur árum en sá áður en
fyrsta misseri lauk að þetta gengi
ekki. Ég er með fjölskyldu og
heimili og það var of tímafrekt að
fara á milli á hverjum degi. Þar
fyrir utan að það er rándýrt að
Morgunblaðið/Jim Smart
keyra á milli á hverjum degi. Ég
heyrði svo af íjarnáminu á Isafirði,
fór þangað og kynnti mér málin og
vann áfram í þessu ásamt fleirum."
Guðbjörg segir að jafnvel hafi
staðið til að hefja fjarnámið síð-
asta haust en það hafi svo ekki tek-
ist. Það er því ekki ofsögum sagt
að langþráð stund sé runnin upp
hjá henni. „Mér fannst fyrsta
kennslustundin ganga mjög vel.
Við eigum auðvitað eftir að venj-
ast forminu aðeins."
Fjarnámið er í samstarfi við
Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og
segir Guðbjörg að aðilar þar komi
til með að sjá um verklegan þátt
námsins. „Annars á eftir að útfæra
það nákvæmlega en ég reikna með
því að við förum í verklega þjálfun
hér í bæ,“ segir Guðbjörg og það
er greinilegt að veturinn Ieggst vel
í hana.
Borgarlög-
maður kanni
hvort reglur
voru brotnar
GUÐLAUGUR Þór Þórðarson,
einn borgarulltrúa Sjálfstæðis-
flokksins, hefur óskað eftir því að
borgarlögmaður kanni hvort Alfreð
Þorsteinsson, einn af borgarfull-
trúum Reykjavíkurlistans, hafi
brotið stjómsýslulög þegar hann
vék ekki sæti á fundi stjórnar Inn-
kaupastofnunar þar sem málefni
Línu.Nets vora til umræðu. Alfreð
er jafnframt stjórnarí'ormaður Lín-
u.Nets. Bókaði Guðlaugur Þór fyr-
irspurn til Hjörleifs Kvaran borgar-
lögmanns á fundi fræðsluráðs í
gær.
Guðlaugur Þór sagði í samtali við
Morgunblaðið í gær að hann vildi fá
borgarlögmann til að kanna hvort
stjórnsýslulög og reglur Innkaupa-
stofnunar Reykjavíkur hefðu verið
brotnar í téðu tilviki. Reglur Inn-
kaupstofnunar væru skýrar um það
efni að stjómarmenn mættu ekki
taka þátt í afgreiðslu mála ef þeir
hefðu hagsmuna að gæta. Alfreð
Þorsteinsson væri stjórnarformaður
Línu.Nets og hefði vikið sæti á
fundi 7. ágúst þegar Innkaupastofn-
un fjallaði um viðskipti Línu.Nets
og borgarinnar um skólanet. Á
fundi Innkaupastofnunar 14. ágúst
hefði verið tekin fyrir tillaga Vil-
hjálms Þ. Vilhjálmssonar og Hauks
Leóssonar um að bjóða út skólanet-
ið. Fram kæmi í fundargerð að Al-
freð Þorsteinsson hefði tekið þátt í
afgreiðslu málsins. Kvaðst Guðlaug-
m’ Þór vilja fá úr því skorið hvort
reglur Innkaupastofnunar og hugs-
anlega stjórnsýslulög hefðu verið
brotin með því að Alfreð hefði ekki
vikið sæti.
Sá ekki ástæðu til
að víkja af fundi
Alfreð Þorsteinsson sagði í sam-
tali við Morgunblaðið að athuga-
semdir Guðlaugs Þórs ættu ekki við
rök að styðjast, en hann hafi ekki
brotið _ stjórnsýslulög í umræddu
máli. Á fundi stjórnar Innkaupa-
stofnunar 7. ágúst hafi komið fram
tillaga sem fékk efnislega meðferð
og þá hafi hann vikið sæti.
„En á fundinum 14. ágúst kom
fram tillaga sem samþykkt var
samhljóða að vísa til Borgarráðs til
afgreiðslu. TOlagan fékk enga efnis-
lega afgreiðslu hjá stjórn Inn-
kaupastofnunar þannig að ég sá
enga ástæðu til að víkja af fundi.
En ef tillagan hefði komið til af-
greiðslu á fundinum hefði ég að
sjálfsögðu vikið af honum,“ sagði
Álfreð.
Býst ekki
við kjara-
deilum
á sjúkra-
húsum
í haust
BJÖRN Ástmundsson, formað-
ur Félags forstöðumanna á
sjúkrahúsum, telur ekki mikla
hættu á vinnudeilum á sjúkra-
húsum í haust. Samningar
sjúkrahúsanna við allar fag-
stéttir innan BHM og við
sjúkraliða verða þá lausir. Að-
alfundur félagsins var haldinn á
föstudag.
Björn segir viðræðum við
stéttarfélög um aðlögunar-
samninga lokið og því sé um
fremur lítið að semja nema
e.t.v. smálagfæringar og tilfær-
ingar. Það hljóti að vera samn-
inganefnd ríkisins sem vísi veg-
inn varðandi eiginlegar
kauphækkanir ef einhverjar
verða.