Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 12

Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 12
12 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ FRÉTTIR Síðustu starfsmenn sjónvarpsins fluttu frá Laugavegi í iltvarpshúsið í gærmorgim Starfsmenn í Efsta- leiti nú 340 talsins STARFSMENN útvarpsins tóku á móti starfssystkinum sínum frá sjónvarpinu með blómum í gær- morgun þegar þeir síðustu fluttu formlega í húsnæði Ríkisútvarpsins við Efstaleiti. Hefur þá starfsemi Ríkisútvarpsins verið sameinuð undir einu þaki og sagði Markús Örn Antonsson útvarpsstjóri þetta vera ánægjulegan dag sem Ríkis- útvarpið hefði beðið eftir í um 20 ár. Starfsmenn sjónvarpsins kvöddu húsnæði sitt við Laugaveginn í gær- morgun og héldu á bílum sjónvarps- ins í Efstaleiti og stór hópur var fluttur á opnum vagni. Flutningar á tækjum hafa staðið undanfarnar vikur. Starfsfélagar þeirra í útvarp- inu tóku á móti þeim við útvarps- húsið með blómum og veitingum. Útvarpsstjóri bauð sjónvarpsfólkið velkomið í húsið og kvað gæfuspor hafa verið stigið. Sagði hann Ríkis- útvarpið styrkjast sem leiðandi afl í fjölmiðlun við það að menn sneru bökum saman á nýja staðnum. Sjónvarpsmenn komu með „anda“ sjónvarpsins í skjóðu í Efstaleitið og fékk Bjarni Guðmundsson, fram- kvæmdastjóri sjónvarps, aðstoð nokkurra starfsmanna við að hleypa andanum út þegar komið var inn í hús. Hagræðing af flutningunum Markús Örn Antonsson sagði að auk flutninganna væru fréttastofur útvarps og sjónvarps að taka upp nýtt tölvukerfi við fréttaskrif og frágang og mikill tími hefði farið bæði í sjálfa flutningana og að læra á nýtt kerfí. „Ég sé ýmsa kosti þess að allt er nú á sama stað og tel að því margs konar hagræði og vænti þess að við getum veitt enn betri þjónustu," sagði útvarpsstjóri og nefndi að framundan væri að huga að þeim þáttum í rekstrinum þar sem koma mætti við meiri samræmingu og hugsanlega samruna. Oll fréttaþjónusta Ríkisútvarps- ins fer nú fram á einu svæði í húsinu og engir skilveggir á milli. Sagði út- varpsstjóri að þetta þýddi nánari tengsl allra deilda. „Þetta á líka við fleiri atriði, hér starfa fagmenn á sviðum leiklistar og tónlistar svo dæmi sé tekið og þeir geta mjög vel unnið fyrir báða miðlana í framtíð- inni þótt þeir séu ráðnir annaðhvort til útvarps eða sjónvarps.“ Útvarpsstjóri sagði flutningana hafa gengið vel og alla þjálfun og notkun hins nýja búnaðar. Kvaðst Morgunblaðið/Ásdís Starfsmenn sjónvarps fonguðu „anda“ sjónvarpshússins í skjóðu og hleyptu honum siðan út í Efstaleiti. iviorgunoiaoio/övemr Bogi Ágústsson fréttastjóri segir mikið verk óunn- ið við að koma öllu fyrir á nýja staðnum. hann ekki eiga von á öðru en út- sendingar gætu gengið hnökralaust. Kostnaður við innréttingar og frá- gang húsnæðisins við Efstaleiti, ný tæki og annað sem tengist flutning- unum er kringum milljarður. Nýr búnaður er meðal annars í mynd- veri, ný tæki eru í myndstjórn, hluti ljósabúnaðarins og fleira. Fastir starfsmenn Ríkisútvarps- ins eru um 340 og af þeim starfa um 150 hjá sjónvarpinu. Útvarpsstjóri sagði enga fjölgun vera tengda flutningunum og gæfi hagræðið fremur tækifæri til að fækka fólki þegar fram liðu stundir. Einnig sagði hann alltaf möguleika á til- færslum til dæmis milli deilda á tæknisviði svo eitthvað væri nefnt. Þessi atriði væru þó algjörlega órædd og ekkert hægt að fullyrða hvort eða hvernig slíkt kæmi til framkvæmda. Betri aðstaða og gerbreytt vinnulag „Mér líst vel á aðstæður hér,“ sagði Bogi Ágústsson, fréttastjóri sjónvarpsins, þegar hann gaf sér tíma til að setjast niður með blaða- manni, og sagði hann mikið verk framundan fyrir starfsmenn frétta- stofunnar að koma sér fyrir á nýja staðnum. „Laugavegurinn var orð- inn lúinn og viðhald í lágmarki og þröngt um alla aðstöðu þannig að þetta er langþráð. Þetta er mjög gott vinnuumhverfi hér og aðstæður fréttastofunnar hér með skemmti- legu útsýni og birtu eru góðar. Við höfum álíka stórt svæði og var á Laugaveginum en hér nýtist allt betur og hér eru engin lokuð her- bergi.“ Bogi sagði mikið átak að flytja en fieira kæmi einnig til. „Við erum að gerbreyta vinnulagi okkar, tökum í gagnið nýtt og fullkomið töluvkerfi sem snertir fréttaskrif, klippingu og myndstjórn. Ekki er lengur klippt á myndbönd heldur á tölvur og sent út af tölvum. Við höfum verið í stans- lausum æfingum við þetta nýja kerfi og þótt allt sé ekki alveg tilbúið enn- þá vona ég að allt gangi skammlaust fyrn sig. En það má alltaf búast við byrjunarörðugleikum." Fréttastjórinn sagði vinnuferlið flóknara en þegar fram liðu stundir yrði vinnslan fljótari. Útlit breytist ekki en fréttaútsendingar fara fram úr aðalmyndveri og aukafréttatíma verður hægt að senda frá fréttastof- unni sjálfri. Ekkert ákveðið um sameiningu Síðan sagði Bogi hugsanlega nokkra samvinnu fréttastofanna en ekkert væri þó ákveðið í þeim efn- um. Undir það tók Kári Jónasson, fréttastjóri útvarps, sem sagði að nú störfuðu fréttastofurnar hlið við hlið. Koma yrði í ljós hvernig sam- býlið yrði og hvort og hvaða breyt- ingar yrðu hugsanlega í kjölfarið. Starfsmenn útvarps tóku á móti starfsfélög- um sínum á sjónvarpinu með blómum þegar þeir fluttu frá Laugaveginum í Efstaleiti í gærmorgun. Fyrsta fréttaútsendingin var frá Efstaleitinu í gærkvöld og er Ríkisút- varpið nú undir sama þaki nema svæðis- stöðvarnar úti um landið. Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Starfsmenn sjónvarpsins óku í gærmorgun frá Laugavegi að Efstaleiti. Viðbrögð á landsbyggðinni við hækkun á fargjöldum í innanlandsflugi EKKI virðast ennþá hafa risið há- værar óánægjuraddir á lands- byggðinni í kjölfar hækkunar Flug- félags íslands á fargjöldum í innan- landsflugi, en hins vegar virðist sem að bíllinn veiti fluginu sífellt meiri samkeppni. Halldór Halldórsson, bæjarstjóri ísafjarðarbæjar, sagð- ist í samtali við Morgunblaðið ekki hafa heyrt mikla óánægju eftir þessa síðustu hækkun, en hins veg- ar væri þróunin á ísafirði sú að fólk keyrði sífellt meira til höfuðborgar- svæðisins. „Þetta er á bilinu fimm til sex tímar í akstri frá ísafirði til Reykja- víkur og þróunin er einfaldlega sú að menn nota frekar bílinn eftir því sem vegirnir batna og þeir eru orðnir býsna góðir hérna um ísa- fjarðardjúp, sennilega er um 60% af leiðinni til Reykjavíkur með bundnu slitlagi. Hækkun á fargjöldum í innanlandsflugi gerir ekkert annað en jafnvel að hraða þessari þróun eitthvað. Fjöldskyldufólk flýgur t.d. ekkert, það bara keyrir, og jafnvel hjón. Þau voru að borga 20 þúsund Isfírðingar aka frek- ar til Reykjavíkur krónur fram og til baka og nú sennilega 24-25 þúsund og síðan nota flestir bílaleigubíl þegar þeir koma til Reykjavíkur. Því er eins gott að hafa bara bílinn með sér.“ Notar flugið minna Að sögn Halldórs notar hann flugið mun minna en áður tíðkaðist hjá bæjarstjórum, en fyrir fáum ár- um var algengt að bæjarstjóri væri að fljúga jafnvel tvisvar í viku, en nú er mikið ef hann þarf að fara tvisvar í mánuði. Ástæðan er aukin samskipti með tölvupósti og fjarfundabúnaði. Hall- dór segir að hins vegar muni fólk ekki hætta að nota flugið, enda væri það mjög mikilvægt fyrir íbúa ó Isafirði og nágrenni. Stefán Bragason, bæjanntari á Austur-Héraði, sagði að auðvitað væri fólk allt annað en kátt með verðhækkanir á þjónustu. „Þetta er svo sem það sem menn bjuggust við þegar þeir komust í einokunarað- stöðu með flugið hingað, þó að þeir vildu nú ekki meina það aðspurðir á þeim tíma. En þetta er nú bara það sem reynslan hefur sagt okkur hér. Ég hugsa að menn hefðu þá frekar viljað reyna að fækka föstum ferð- um og hafa fargjöldin lægri og að frekar yrði reynt að spara á þann veginn. Hafa þá minna af þessum illa nýttu ferðum. Hins vegar tel ég að nýtingin hafi verið ótrúlega góð í flestum tilfellum." Vill frekar hækkun en að missa flugið Að sögn Stefáns er flugið þó mjög mikilvægt fyrir svæðið, enda er flugvöllurinn á Egilsstöðum eini völlurinn á Austurlandi með reglu- legar samgöngur á svæðinu frá Djúpavogi og norður eftir. Hann segir þó að bíllinn sé aðalsam- keppnisaðilinn við flugið, sérstak- lega ef fólk ætlar sér að stoppa í einhverja daga, hugsi fólk sig mjög alvarlega um áður en ákveðið er að fljúga. Albert Eymundsson, bæjarstjóri Hornafjarðar, segir að ekki þurfi að spyrja að því að fólk sé jafnan óánægt með verðhækkun á allri þjónustu, hverju nafni sem hún er nefnd. Hann segist hins vegar ekki gera sér grein fyrir því hvort að þetta hafi áhrif á aukinn akstur. Að sögn Alberts er það ekkert laun- ungarmál að Hornafjörður sé á mjög viðkvæmu svæði gagnvart fluginu vegna tímalengdarinnar við að aka og sökum þess hve markaðs- svæðið sé fámennt. Því óttist menn allar neikvæðar breytingar er varða áætlunarflug til staðarins. „Við erum hins vegar að flestu leyti ánægð með þjónustu flugfé- lagsins og tíðni flugferða, eins og yfir sumartímann. Ég vil líka frekar fá þessa hækkum og hafa flugið áfram heldur en að það hætti alveg, vegna þess að ekki sé rekstrar- grundvöllur. Síðan getur maður líka spurt sig að því hvort að flugfélagið fái meiri tekjur með þessu móti, að farþegum fækki ekki á móti, þannig að reksturinn verði óbreyttur.“

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.