Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 14
14 ÞBIÐ JUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
HÖFUÐBORGARSVÆÐIÐ
Fegrunarviðurkenniiigar Reykjavikurborgar árið 2000
Morgunblaðið/Sverrir
Eigendur parhússins við Ingólfsstræti 7 og 7a fengu verð-
laun fyrir endurbætur á eldra húsi.
Morgunblaðið/Sverrir
MS-félag íslands við Sléttuveg 5 fékk viðurkenningu fyrir
fallegan frágang á stofnanalóð.
Morgunblaðið/Sverrir
Lóð verslunar- og þjónustukjarnans við Háaleitisbraut 58-
60 er nýtt undir bflastæði eins og kostur er en frágangur
og fyrirkomulag gróðurs þykir vera til fyrirmyndar.
Parhús við Ingólfsstræti fær
viðurkenningu fyrir endurbætur
Reykjavík
SKIPULAGS- og umferðar-
nefnd Reykjavíkur veitti á
laugardaginn fjórum aðilum
fegrunarviðurkenningar
Reykjavíkurborgar árið 2000.
Veittar voru viðurkenningar
fyrir endurbætur á eldra húsi
og íyrir fallegar stofnana-,
fyrirtækja - og fjölbýlishúsa-
lóðir og fór athöfnin fram í
Höfða.
Húsfélagið á Klapparstíg
1-7 og Skúlagötu 10 fékk við-
urkenningu fyrir góðan frá-
gang á sameiginlegri lóð fjöl-
býlishúsanna. Lóðin er talin
bera vott um natni og hirðu-
semi og vera gott dæmi um
velheppnaðan frágang á fjöl-
býlishúsalóð, þar sem hlutfall
byggingar er mjög hátt. Það
var Lilja Möller, ritari húsfé-
lagsins, sem veitti viðurkenn-
ingunni viðtöku.
Verslunar- og þjónustu-
kjarninn við Háaleitisbraut
58-60 fékk viðurkenningu fyr-
ir snyrtilegt umhverfi. Guð-
mundur Kristjánsson tók við
viðurkenningunni fyrir hönd
húsfélagsins, en fyrirkomulag
gróðurs á lóðinni, sem er nýtt
undir bílastæði eins og kostur
er, þykir vera til fyrirmyndar.
Lóð MS-félagsins þykir
fallega útfærð
MS-félag íslands, sem er til
húsa á Sléttuvegi 5, fékk við-
urkenningu fyrir fallegan
Morgunblaðið/Sverrir
Sameiginleg lóð Klapparstígs 1-7 og Skúlagötu 10 þykir
bera vott um natni og hirðusemi og vera gott dæmi um vel
heppnaðan frágang á fjölbýlishúsalóð.
frágang á stofnunarlóð og
veitti Vilborg Traustadóttir,
formaður félagsins, viður-
kenningunni viðtöku. Lóðin
þykir fallega útfærð með
skemmtilegum gróðri, sem
öllum er vel við haldið.
Parhúsið við Ingólfsstræti
7 og 7a fékk viðurkenningu
fyrir endurbætur á eldra húsi.
OIl endurgerð parhússins
þykir útfærð á faglegan máta
og greinilegt að vinna hefur
verið lögð í að gera hana sem
réttast miðað við aldur og
gerð hússins.
Á lóðinni stóð áður bærinn
Ofanleiti, en hann var rifinn
árið 1896. Sama ár byggðu
Magnús Magnússon stein-
smiður og Guðmundur Sig-
urðsson afgreiðslumaður par-
hús það sem nú stendur á
lóðinni. Þetta er að öllum lík-
indum fyrsta parhúsið í
Reykjavík í þeim skilningi
sem nú er lagður í orðið. Hús-
ið þykir því mjög áhugavert
frá byggingarsögulegu sjón-
armiði. Það voru þau Eiríkur
A, Guðjónsson og Oddný
Kristjánsdóttir, eigendur
Ingólfsstrætis 7a, sem veittu
viðurkenningunni viðtöku.
Eins og áður kom fram
voru viðurkenningarnar veitt-
ar af skipulags- og umferðar-
nefnd, en sérstakur vinnuhóp-
ur var fenginn til að tilnefna
lóðir. í vinnuhópnum áttu
sæti: Björn Axelsson,
landslagsarkitekt og um-
hverfísstjóri í Borgarskipu-
lagi, Margrét Þormar, arki-
tekt og hverfisstjóri í
Borgarskipulagi, Nikulás Úlf-
ar Másson, arkitekt og deild-
arstjóri húsadeildar Árbæjar-
safns og Þórólfur Jónsson,
landslagsarkitekt hjá garð-
yrkjudeild borgarinnar.
Talsverður fjöldi fólks mætti í lautarferðina á sunnudaginn.
Lautarferð áhugahops um
Hörðuvallasvæðið
Góð þátttaka
og baráttuhugur
Hafnarfjördur
Skipulagsyfírvöld sam-
þykkja að byggt verði
ofan á Hagabúðina
Morgunblaðið/Jim Smart
Skipulagsyfirvöld vilja einungis að starfsemi tengd hverf-
inu verði á Iljarðarhaga 45-49.
Kaffí
Tröð opn-
að í Aust-
urstræti
Midborg
Skipulagsyfirvöld hafa
samþykkt að veita Penn-
anum Eymundsson leyfi
til að opna nýtt kaffihús í
húsnæði sínu við Aust-
urstræti 18. Að sögn
Bryndísar Loftsdóttur,
verslunarstjóra hjá fyr-
irtækinu, er ætlunin að
nefna kaffihúsið Kaffi
Tröð, en kaffihús með
því nafni var starfrækt í
húsinu í 15 ár eða frá
1962 til 1977.
„Þetta verður svokall-
að bókakaffi, þar sem
fólki gefst næði til að
glugga í bækur og tíma-
rit og fá sér góðan kaffí-
sopa,“ sagði Bryndís.
„Ef allt gengur að ósk-
um ætti kaffihúsið að
opna einhvem tímann í
kringum áramótin.“
Bryndís sagði að kaffi-
húsið yrði staðsett á
þriðju hæð hússins og
hliðin sem sneri að Aust-
urstræti yrði úr gleri líkt
og fyrstu tvær hæðir
hússins og húsið því í stíl
við Topshop-húsið á
Lækjargötu og nýbygg-
inguna við Austurstræti
8. „Gerðar voru endur-
bætur á versluninni í
nóvember 1998 og búðin
stækkuð um tvær hæðir.
Þá var ráðgert að opna
kaffihús, en ekki hefur
fengist leyfi fyrir því
fyrr en nú, tæpum
tveimur árum seinna."
HÁTT í 400 manns mættu í
lautarferð sem áhugahópur
um Hörðuvelli efndi til á
sunnudag en ferðin var farin
til þess að mótmæla fyrirhug-
uðum byggingarframkvæmd-
um á þessu svæði. Þetta kom
fram í samtali Morgunblaðs-
ins við Sigrid Foss, einn
meðlima hópsins, en hún seg-
ir að baráttuhugur í fólki inn-
an hópsins sé mikill.
„Mæting var mjög góð og
þetta var reglulega skemmti-
legur dagur. Við ætluðum að
stika byggingarsvæðið af og
mynda hring um það en það
var ekki vinnandi vegur þar
sem svæðið er gríðarlega
stórt,“ segir Sigrid.
Að sögn Sigrid var ekki
stofnað til formlegra samtaka
á sunnudaginn en hún segir
að fólk, sem mætti á staðinn,
hafi verið hvatt til þess að
leggja hópnum lið. „Við erum
að fara á fullt skrið með und-
irskriftasöfnun en við höfum
enn ekki ákveðið nákvæma
dagsetningu á afhendingu
listanna,“ segir Sigrid.
Hún segir að hópurinn ætli
sér að berjast fyrir því að
ekki verði byggt á svæðinu og
búast megi við annarri upp-
ákomu á hans vegum eftir
tvær til þrjár vikur.
BORGARRÁÐ mun í dag
, ákveða hvort leyft verður að
byggja eina hæð ofan á
Hjarðarhaga 45-49, húsið
sem lengst af hefur verið
kennt við Hagabúðina. Skipu-
lags- og umferðarnefnd sam-
þykkti á fundi sínum í gær-
morgun að leyfa byggingu
hæðarinnar, en með ákveðn-
um skilmálum, sem að sögn
Árna Þórs Sigurðssonar, for-
manns nefndarinnar, taka
mið af mótmælum íbúa, sem
vilja ekki að í húsinu verði
rekin starfsemi sem raski
kyrrðinni í hverfinu.
„Ég held að það sé mjög
mikilvægt að fá starfsemi í
þetta hús á nýjan leik,“ sagði
Árni Þór, en verslunin hefur
verið lokuð í ár og ef borgar-
ráð samþykkir tillöguna mun
ný 10-11 verslun verða opnuð
þar innan skamms. „Maður
skilur hinsvegar alveg að
íbúamir hafi áhyggjur af því
að það sé verið að bæta við
byggingum þarna.
Skipulagsskilmálum
þinglýst á eignina
Niðurstaða okkar í málinu
er sú að setja skipulagsskil-
mála á efri hæðina sem kveða
á um að þar verði einungis
heimilað að vera með hverfis-
bundna þjónustu.
Hverfisbundin þjónusta er
skilgreind sem þjónusta sem
þjónar bara íbúum hverfisins
og dregur ekki að sér mikið af
viðbótarumferð inn í hverfíð.
Jafnframt var samþykkt að
setja þá kvöð að þessum
skipulagsskilmálum yrði
þinglýst á eignina.
Við teljum að með þessu sé
komið til móts við mikið af
þeim sjónarmiðum sem voru
uppi af hálfu íbúa, en jafn-
framt að við séum að koma því
í kring að þarna verði opnuð
hverfisverslun, sem er búin að
vera lokuð í meira en ár.“
Árni Þór sagði að málið
væri búið að vera lengi í
gangi. Hann sagði að fyrir ári
hefðu verið hugmyndir um að
byggja íbúðir ofan á búðina,
en að skipulags- og umferðar-
nefnd hefði synjað því. Þá
hefði komið ný tillaga um að
vera með atvinnustarfsemi of-
an á búðinni, en að íbúar í
hverfinu hefðu mótmælt því.
„Ég átti fund með íbúum
um miðjan júní og þar var far-
ið yfir málið. Það voru nokkuð
skiptar skoðanir á meðal
íbúanna, sumir vildu ekki einu
sinni fá búðina aftur, en flestir
voru nú á því að fá hana og
töldu mikið lýti að hafa bygg-
inguna eins og hún er núna.
Vilja starfsemi sem
tengist hverfinu
Varðandi það að reisa eina
hæð ofan á bygginguna þá
virtust íbúarnir alveg vera
sáttir við að fá þarna ein-
hverja starfsemi sem tengdist
hverfinu, eins og eitthvað sem
tengdist skólanum til dæmis
tónlistarskóla."
Skipulags- og umferðar-
nefnd samþykkti tillöguna um
að leyfa byggingu einnar
hæðar ofan á Hagabúðina
með þremur atkvæðum, en
sjálfstæðismaðurinn Júlíus
Vífill Ingvarsson, greiddi at-
kvæði á móti og Snorri
Hjaltason sat hjá.