Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 16

Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 16
16 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ AKUREYRI Leiðangur að flaki breskrar sprengjuflugvélar hafínn Morgunblaðið/Rúnar Þór Félagar úr björgunarsveit breska flughersins í Skotlandi skoða kort af svæðinu áður en haldið er í leiðangurinn, en fyrir framan borðið má sjá Hörð Geirsson, Daníel Guðjónsson, yfirlögregluþjón á Akureyri, og Halldór Jónsson, ræðismann Breta á Akureyri. Líkamsleif- ar fluttar af jöklinum til byggða TÍU manna leiðangur hélt um há- degisbil í gær að flaki breskrar sprengjuflugvélar sem fórst á há- lendinu milli Öxnadals og Eyja- fjarðar í maí árið 1941. I leiðangrinum eru sex björgunar- sveitarmenn úr breska flughern- um í Skotlandi og fjórir Islend- ingar, m.a. Hörður Geirsson sem leitað hefur að flakinu í um 20 ár og fann það ásamt fleirum í ágúst í fyrra. Einnig fóru nokkrir fé- lagar dr Björgunarsveitinni Sdl- um með í leiðangurinn til aðstoð- ar. Áætlað er að Ieiðangurinn taki fjóra daga, en tilgangur hans er að sækja líkamsleifar mannanna sem fórust. Fjórir menn voru í áhöfn sprengjuvélarinnar sem var af gerðinni Fairy Battle. Þrír mannanna voru Bretar og hétu þeir ættarnöfnunum Hopkins, Garret og Talbot, en flugstjórinn var Nýsjálendingur, Arthur Round. Allir voru mennirnir ung- ir, ókvæntir og barnlausir. Legst- einar hafa verið dtbdnir í Foss- vogskirkjugarði þar sem haldin verður minningarathöfn að lokn- um leiðangrinum. Vélin flaug frá Melgerðismel- um í Eyjafirði, yfir Akureyri og hvarf mönnum þar sjónum, en til hcnnar heyrðist eftir það, m.a. heyrðu vegagerðarmenn í Öxna- dal í vélinni og einnig hermenn á Melgerðismelum. Vélin fannst tveimur dögum eftir að hdn fórst, en ekki þótti mögulegt að safna líkamsleifum mannanna saman. f byrjun september í fyrra fannst eitthvað af beinum, brak dr vélinni, fataleifar og fleira sem safnað var saman og var í gær flutt niður af fjallinu. Umferðarskóli fyr- ir 5 og 6 ára börn UMFERÐASKÓLINN sem er fyrir 5 og 6 ára börn, fædd 1994 og 1995, heldur námskeið á Akur- eyri, í Eyjafjarðarsveit, Dalvík, Olafsfirði og Siglufirði nú næstu daga. Umferðarskólinn fer fram í grunnaskólunum og er hvert námskeið í u.þ.b. klukkustund, tvo daga í röð, fyrir eða eftir há- degi. Börnin fá bréf frá umferð- arskólanum þar sem fram kemur hvar og hvenær námskeiðin verða haldin og á mörgum stöð- um geta foreldrar valið skóla og kennslutíma sem hentar best. I umferðarskólanum er athygli barna vakin á umferðarreglum og nauðsyn þess að nota öryggis- búnað í umferð. Leitast er við að miða fræðsluna við hugsun og skilning barna og ályktunar- hæfni og fjalla um nánasta um- hverfi þeirra. Allt efnisval miðast við að börnin skilji hvernig þau eiga að fara að í umferðinni, hvernig þau eiga að bregðast við þeim hættum sem kunna að verða á vegi þeirra og að þau þurfi sjálf að sýna aðgát. Fjallað er m.a. um reglur fyrir gangandi fólk, um hjólreiðar og hjálma, ör- yggisbúnað fyrir böm í bílum og ýmislegt fleira sem getur aukið öryggi barna í umferð. Fræðslan er um leið stuðningur við þá um- ferðarfræðslu sem börnin fá heima og í leikskólum. Kennslan í umferðarskólanum er fjölbreytt, sýndar eru umferð- armyndir á glærum og spjallað við börain um þær aðstæður sem þar koma fram og þá reynslu sem þau hafa af umferð. Börnin fá að heyra og sjá leikbrúðusögu, það er sungið og sýndar verða stuttar kvikmyndir. Lögreglumenn og leikskóla- kennarar annast kennsluna. Um- ferðarskólinn er samstarfsverk- efni Umferðarráðs, lögreglu og sveitarfélaga og starfar í sam- vinnu við starfsfólk leikskóla og grunnskóla. Námskeiðin eru ókeypis og eru foreldrar sérstak- lega hvattir til að vera með börn- um sínum á þeim. Markmiðið er að leggja smám saman grunn að góðum skilningi barna á umferðarreglum og færni til að ferðast um nánasta umhverfi sitt undir vernd og eft- irliti foreldra/forráðamanna. Þar sem stór hópur barnanna er að hefja nám í grunnskólum er einn- ig er sérstaklega fjallað um leið- ina í og úr skóla. Jarðgöng á Tröllaskaga Komið verði í veg fyrir skemmdir í Héðinsfírði SUNN, Samtök um náttúruvernd á Norðurlandi, hafa sent frá sér álykt- un vegna jarðgangagerðar á Trölla- skaga og friðunar Héðinsfjarðar. Þar segir að þegar ákveðið verður hvar jarðgöng eru boruð á Trölla- skaga og hvernig staðið er að vega- framkvæmdum á svæðinu beri að hafa í huga hvernig unnt er annars vegar að koma í veg fyrir skemmdir á svo til ósnortinni náttúru í Héðins- firði og hins vegar hvernig unnt sé að varðveita þá miklu heild sem fjalllendi Tröllaskaga er, allt frá sjó til miðhálendis. Svæðið sé eins og er rofið af tveimur vegum, um Lág- heiði og Öxnadalsheiði. „Besti kostur í jarðgangagerð frá náttúruverndarlegu sjónarmiði er göng frá Fljótum yfir til Ólafsfjarð- ar og önnur frá Fljótum yfir til Siglufjarðar þar sem enginn vegur kæmi um Héðinsfjörð og vegur um Lágheiði yrði annaðhvort lagður niður eða nýttur sem troðningur eða göngustígur. Með slíkum jarðgöng- um varðveittist Héðinsfjörður óbreyttur og Tröllaskagavæðið yrði sterkari heild, segir í ályktun SUNN. Þá segir að næstbesti kosturinn sé jarðgöng og vegur yfir Héðins- fjörð þar sem fyrirhugað er með mótvægisaðgerðum að stuðla að sem bestri varðveislu lands. Slíkar aðgerðir væru til dæmis góð mót- taka fyrir gesti, bílastæði, göngu- stígar, brýr yfir læki og mólendi og ef til vill yfirbygging vegar til að losna við sem mestan hávaða frá honum. Með slíkum mótvægisað- gerðum sem kosta nokkurt fé megi koma í veg fyrir skemmdir, fleiri myndu heimsækja Héðinsfjörð en um leið yrði sú kyrrð sem þar ríkir nú en fáir njóta aðgengileg fyrir fleiri vegna þess að auðveldara yrði að fara um svæðið. Loks segir að mikilvægt sé að þessir kostir og aðrir sem til greina koma verði metnir við mat á um- hverfisáhrifum. Séra Gylfi ráðinn fræðslu- fulltrúi SÉRA Gylfi Jónsson hefur verið ráð- inn fræðslufulltrúi þjóðkirkjunnar á Norðurlandi eystra. Hann tekur við starfinu hinn 1. september næst- komandi. Enginn annar sótti um stöðuna. í starfslýsingu segir að fræðslu- fulltrúi skuli styðja við bama- og æskulýðsstarf í Eyjafjarðar- og Þingeyjarprófastsdæmum, svo og að efla kristilegt starf í framhaldsskól- um á svæðinu. Einnig skal hann skipuleggja sérstök fræðslunám- skeið fyrir fermingarbörn. Skrifstofa fulltrúans verður í Kirkjumiðstöðinni í Laxdalshúsinu á Akureyri. ---------------- Ólafsfjörður Sýning í Kaffi Glaumbæ JÓN Thor Gíslason opnaði um helg- ina sýningu á verkum sínum í Kaffi Glaumbæ í Ólafsfirði. Þar sýnir hann teikningar og þurmálastungur. Sýningin verður opin alla daga frá kl. 10 til 20 og stendur hún fram til 15. september næstkomandi. Morgunblaðið/Rúnar Þór Gluggaþvottur í góða veðrinu ÞÓTT senn taki að hausta lifir sum- arið enn góðu lífi. Það er nú samt sem áður ráð að nýta hvern einasta góðviðrisdag vel, því aldrei er að vita hvenær haustrigning og næturfrost taka völdin. I veðurblíðunni, sem lék við Akureyringa í gær, notaði Her- mann Huijbens tækifærið til að þvo gluggana á verslun sinni, Heilsubúð- inni. Á eftir voru gluggarnir jafn skínandi og brosið sem Hermann sendi Ijósmyndaranum. Norræn ráðstefna hitaveitna NORDVARME, samtök norrænna hitaveitustofnana, halda ráð- stefnu á Akureyri dagana 21. og 22. ágdst. Á ráðstefnunni eru 270 þátttakendur, sem koma frá Norðurlöndunum og Eistlandi, en að mökum meðtöldum eru ráð- stefnugestir um 400 manns. Yfirskrift ráðstefnunnar, sem haldin er f hdsakynnum Mennta- skólans á Akureyri, er: „Fjarhiti á nýju árþdsundi". Eins og áður segir hófst ráðstefnan í gær en henni lýkur kl. 16 í dag. Morgunblaðið/Rúnar Þór Hluti ráðstefnugesta f Menntaskólanum í gær. Fagur- tónleikar falla niður FAGURTÓNLEIKAR Sigur- bjargar Hv. Magnúsdóttur söngkonu sem fyrirhugaðir voru í Deiglunni í kvöld, þriðju- daginn 22. ágúst kl. 20, á vegum Listasumars á Akureyri, falla því miður niður af óviðráðan- legum orsökum.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.