Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 18
18 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
MORGUNBLAÐIÐ
LANDIÐ
Morgunblaðið/Gunnlaugur Arnason
Þátttakendur á ársfundi „The Viking Surgical Club“ sem haldinn var í
Stykkishólmi. Á myndinni með þátttakendum er Magnús Magnússon,
heiðursgestur ráðstefnunnar.
Morgunblaðið/Sigríður Kristinsdóttir
Evrópukórinn gróðursetti
Reykholti - Þeir sem tóku þátt í gróðursetningu Alda-
mótaskógar um helgina í Reykholti nutu þess að hlusta
á Evrópukórinn syngja úti í guðs grænni náttúrunni.
Evrópukórinn er nú við æfingar í Reykholti til undir-
búnings tónleikaferðalags til menningarborga Evrópu.
Kórfélagar fengu að kynnast. þessu átaki okkar fslend-
inga og tóku þátt í að setja niður plöntur. Að loknu
dagsverki var öllum boðið í grillveislu.
Skurðlækn-
ar þinga í
Stykkis-
hólmi
Stykkishólmi -1 síðustu viku hélt
The Viking Surgical Club ársþing
sitt í Stykkishólmi. í félaginu eru
skurðlæknar sem vinna við erflðar
aðstæður hver á sínu svæði. Félag-
ar koma fyrst og fremst frá Hjalt-
landi, Orkneyjum og öðrum eyjum
í kringum Bretland. í félaginu eru
um 40 skurðlæknar og þar af eru
aðeins tvær konur. Tveir íslend-
ingar eru félagsmenn, þeir Jósep
Blöndal, sjúkrahúslæknir í Stykk-
ishólmi og Einar Hjaltason, sem
starfaði á ísafirði. Félagið var
stofnað árið 1973 og hittist hópur-
inn einu sinni á ári. Félagar skipt-
ast á að halda og skipuleggja ár-
sþingið. Nú var komið að Jósep
Blöndal. Þingið stóð í 3 daga og
fluttir voru 14 fyrirlestrar og þar
af 3 af félagsmönnum. Hingað
komu m.a. Reynir Tómas Geirsson,
Sigurður Guðmundsson, Jón
Baldvinsson og Þorgeir Pálsson.
Ingibjörg Pálmadóttir ráðherra
heilsaði upp á ráðstefnugesti.
Að sögn Jóseps Blöndal er
tilgangur félagsins er að kalla sam-
an skurðlækna sem vinna í dreyf-
býli við erfiðar aðstæður. Fyrst
voru þetta læknar sem unni einir á
afskekktum stöðum, en það hefur
breyst sem betur fer. Jósep segir
að það veiti ekki af að læknarnir
hittist, beri saman bækur sínar og
fræðist hvernig staðhættir eru mis-
munandi og þá hvaða möguleikar
eru til að leysa málin. Fróðlegir
fyrirlestrar voru fluttir á þinginu.
Heiðursfélagi félagsins er Magn-
ús Magnússon. Hann mætti í loka-
hófið og flutti erindi um ýmis atvik
í Islendingasögunum þar sem fólk
viðhafði læknislega tilburði, sem
víða kemur fram í sögunum
Jósep Blöndal var að loknu árs-
þingi ánægður með hvernig til
tókst. Fyrirlestrarnir voru gagn-
legir og önnur dagskrá sem í boði
var tókst mjög vel, svo að gestirnir
fóru með góðar endurminningar
frá Stykkishólmi.
Aldamótaskdgar Skdgræktarfélags íslands og Búnaðarbankans
Morgunblaðið/Aðalheiður Högnadóttír Fjölskyldufólk Ijölmennti á Gaddstaði við Hellu til að
Sumir lögðu hart að sér við gróðursetningarstörfin, Jóhannes Aron, 4 ára, kom með syst- taka þátt í gróðursetningunni, hjónin Anna Ó. Sigurðar-
ur sinni Jóhönnu, 9 ára, og foreldrum si'num, Hönnu Jóhannesdóttur og Andrési dóttir og Stefán Hrafnkelsson ásamt börnum sinum,
Kristjánssyni, en þau búa í Reykjavík. Amdísi Rós, 9 ára, og Sigurði, 6 ára.
Gróðursett í blíðskapar-
veðri um allt land
Hellu - Sjálfboðaliðar fjölmenntu um
helgina á fimm staði á landinu til að
taka þátt í gróðursetningu svo-
kallaðra Aldamótaskóga, en það er
verkefni Skógræktarfélags Islands
og Búnaðarbanka íslands sem felur í
sér að gróðursett er ein tijáplanta
fyrir hvern íbúa landsins. Verkefn-
inu var formlega hrundið af stað á
föstudag á svæði Aldamótaskóganna
á Suðurlandi, á Gaddstöðum við
Hellu. Á laugardag og sunnudag
mættu svo sjálfboðaliðar á alla fimm
staðina, sem skógunum hefur verið
valinn staður á, í hveijum lands-
hluta.
Að sögn Brynjólfs Jónssonar,
framkvæmdastjóra Skógræktarfé-
lags Islands, tókst verkefnið mjög
vel á öllum stöðunum en alls mættu
um áttahundruð manns til að taka
þátt. „Helgin var stórkostleg enda
lék veðrið við okkur alls staðar. Það
er áætlað að tekist hafi að koma um
helmingi plantnanna á sinn stað yfir
Það var vel þeginn kaffisopinn hjá sjálfboðaliðum, en grillmatur og
kaffiveitingar voru í boði styrktaraðila verkefnisins.
allt landið, en starfinu verður haldið
áfram og ég get slegið því föstu að
allt verður komið á sinn stað á næstu
tveim vikum. Það eru enn að koma
sjálfboðaliðar sem gjarnan vilja fá að
leggja sitt af mörkum, en gátu ým-
issa hluta vegna ekki verið með okk-
ur um helgina. Fólki er velkomið að
koma og leggja okkur lið og ég vil
gjarnan koma á framfæri þakklæti
til allra sem komu að verkefninu,
hinum fjölmörgu styrktaraðilum, fé-
lagsmönnum okkar og sjálfboðalið-
um sem lágu svo sannarlega ekki á
liði sínu.“
Markúsarplógurinn
kemur að góðum notum
Á Gaddstaði við Hellu mættu nim-
lega 200 manns til gróðursetningar-
innar og tókst að planta um 50 þús-
und trjáplöntum. Sjálfboðaliðar
komu víða að í fjórðungnum, allt frá
Suðurnesjum, höfuðborgarsvæðinu
og Suðurlandsundirlendinu, en 15
skógræktarfélög eru á því svæði.
Handgróðursett var í svæðið með
gróðursetningarstöfum, en starfs-
menn Skógræktarfélags Rangæinga
ljúka við að gróðursetja 70-80 þús-
und plöntur með Markúsarplógnum,
en hann er mjög afkastamikill og
hentar vel á sléttlendið.
Flrsgyr
Morgunblaðið/Gunnlaugur Ámason
Tvrt)urarnir sem gengu undir nafninu 10-11 fyrstu ævidagana taka við
gjöfum frá versluninni 10-11 í Stykkishólmi. Unnur Valdimarsdóttir
verslunarstjóri heldur á Aroni Inga og móðirin, Edda Steinarsdóttir,
heldur á Andra Þór og á milli þeirra er stóra systir, Katrín Eva.
Tvíburarnir 10-11
í Stykkishólmi
Stykkishólmi - Tvíburarnir Aron
Ingi og Andri Þór Hinrikssynir
fæddust 1. mars sl. Annar þeirra
var 10 merkur þegar hann fædd-
ist og hinn 11 merkur. Áður en
þeir fengu sín réttu nöfn voru
þeir kallaðir 10 og 11. En nú þarf
ekki að aðgreina þá lengur á
þennan hátt. Nú eru þeir orðnir
stórir og búið að skíra þá réttum
nöfnum.
f Stykkishólmi er rekin versl-
unin 10-11. Því þótti for-
ráðamönnum verslunarinnar við-
cigandi að færa þeim bræðrum
gjafir vegna þess að á timabili
höfðu þeir sama nafn og verslun-
in.
Unnur Valdimarsdóttir verslun-
arstjóri kallaði á fjölskylduna og
færði tvíburunum gjafir af þessu
tilefni og munu þær koma að
góðum notum fyrstu mánuði æv-
innar