Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 21
MORGUNBLAÐIÐ
VIÐSKIPTI
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 21
Wal-Mart
hyggst bjóða
í Boots
SAMKVÆMT fréttum í breskum
fjölmiðlum er Wal-Mart reiðubúið til
þess að greiða allt að sex milljörðum
punda eða 716 milljarða íslenskra
króna fyrir bresku lyfjakeðjuna
Boots en það er um þriðjungi hærra
verð en skráð markaðsvirði Boots á
verðbréfamarkaðinum í Lundúnum.
Wal-Mart hefur þegar haslað sér völl
á breska markaðinum með kaupum
sínum á Asda fyrir um tæpa átta
hundruð milljarða króna en sem
kunnugt er hyggja stjómendur Wal-
Mart að auknum umsvifum í smásölu
víðs vegar í Evrópu. Með kaupunum
á Boots myndi Wal-Mart komast yfir
um 1.900 verslanir sem Boots rekur
til viðbótar þeim 240 verslunum sem
það tók yfir með kaupunum á Asda.
Hins vegar hefur gengið hægt með
opnun eigin verslana á Bretlandi og
enn sem komið er hefur Wal-Mart
aðeins opnað einn stórmarkað af
þeim tuttugu sem það stefnir að því
að opna.
Gengi bréfa í Boots hefur hríðfall-
ið á undanförnum misserum; það er
nú flmm pund en var 10,5 fyrir að-
eins hálfu öðm ári og er ástæða
lækkunarinnar áhyggjur fjárfesta af
aukinni samkeppni af hálfu stór-
markaða og léleg fjárhagsleg af-
koma Boots á undanfornum áram.
---------------
Hagnaður
Alusuisse
eykst um 16%
milli ára
HAGNAÐUR Alusuisse Group (Al-
group), móðurfélags íslenska álfé-
lagsins, jókst um 16% á fyrri helm-
ingi ársins 2000 frá sama tímabili á
síðasta ári. í tilkynningu frá félaginu
segir að hagnaður þess hafi numið
230 milljónum svissneskra franka,
um 10,7 milljörðum íslenskra króna,
en hann var 199 milljónir sviss-
neskra franka í fyrra. Heildartekjur
félagsins námu 3,73 milljörðum
svissneskra franka, um 173,5 millj-
örðum íslenskra króna, en voru 3,21
milljarður svissneskra franka á
sama tímabili í fyrra.
I tilkynningu frá AJgroup segir að
félagið sé bjartsýnt á framhaldið á
árinu og geri ráð fyrir að hagnaður
ársins í heild verði meiri en hagnað-
ur síðasta árs, en hann nam 440
milljónum svissneskra franka, um
20,5 milljörðum íslenskra króna.
Áætlanir Algroup gera ráð fyrir
að samrana þess og Alcan Aluminum
Ltd. í Kanada ljúki í október næst-
komandi.
-----♦-♦-♦-----
Launavísitala
hækkar um
0,4%
LAUNAVÍSITALA miðað við með-
allaun í júlí síðastliðnum er sam-
kvæmt útreikningi Hagstofu íslands
196,4 stig og hækkar um 0,4% frá
fyrra mánuði. Samsvarandi vísitala
sem gildir við útreikning greiðslu-
marks fasteignaveðlána er 4.296 stig
í september.
0,1% lækkun byggingarvísitölu
Vísitala byggingarkostnaðar eftir
verðlagi um miðjan ágúst er sam-
kvæmt útreikningi Hagstofunnar
244,6 stig og lækkaði hún um 0,1%
frá fyrra mánuði. Vísitalan gildir fyr-
ir september. Samsvarandi vísitala
miðuð við eldri grunn er 782 stig.
Hækkun vísitölunnar síðastliðna
þrjá mánuði samsvarar 0,3% hækk-
un á ári, en síðastliðna tólf mánuði
hefur vísitala byggingarkostnaðar
hækkað um 3,5%.
British Telecom og AT&T í við-
ræðum um mögulegan samruna
STJÓRNENDUR British Tele-
com og AT&T hafa að sögn The
Wall Street Journal átt í viðræð-
um um mögulegan samruna fyrir-
tækjanna en með sameiningu
þeirra yrði til gífurlega öflugt
fjarskiptafyrirtæki með sterka
stöðu beggja vegna Atlantshafs-
álanna.
Fregnir herma að C. Michael
Armstrong, stjórnarformaður
AT&T, og Peter Bonfield, for-
stjóri British Telecom, hafi hist
alloft undanfarna mánuði til þess
að ræða hvernig best megi standa
að samrana fyrirtækjanna en við-
ræður eru þó enn sagðar vera á
frumstigi og stjórnir þeirra hafa
ekki enn komið að málinu. Tals-
menn British Telecom og AT&T
segja að aðeins sé um getgátur og
slúður fjölmiðla að ræða en hafa
að öðru leyti neitað að tjá sig um
málið.
British Telecom og AT&T hafa
unnið saman í svokölluðu
Concert-verkefni þar sem alþjóð-
legum fyrirtækjum og símstöðv-
um er boðin alhliða fjar-
skiptaþjónusta. Ljóst er talið að
gífurleg vinna sé fólgin í því að
steypa þessum tveimur fyrirtækj-
um í eitt auk þess sem samkeppn-
isyfirvöld bæði í Evrópu og
Bandaríkjunum munu vafalaust
grandskoða slíkan samruna. Sam-
runi við AT&T myndi styrkja
mjög stöðu British Telecom gegn
helstu keppinautum fyrirtækisins
í Evrópu, s.s. Deutsche Telekom,
France Telekom og farsímarisan-
um Vodafone en öll hafa þessi
fyrirtæki verið að færa út kvíarn-
ar á undanförnum misserum.
■■■■■■■■■■■■■■
HYUNDAI SONATA GLSI
Nýskr. 10.1996, 2000cc vél
4ra dyra, 5 gíra, Ijósblár.^fl
ekinn 55 þ.
HYUNDAI COUPE 1,6
Nýskr. 10.1997, 1600cc vél,
, 2ja dyra, 5 gíra, svartur,
w „ ekinn 50 þ.
Veró: 1.050 þ.
HYUNDAI SONATA GLSI
Nýskr. 06.1993, 2000cc vél,
N^ra dyra, 5 gíra, vínrauóur,
ekinn 91 þ.
HYUNDAI ACCENT GLSI
Nýskr. 04.1997, 1500cc vcl,
- , 5 dyra, 5 gíra, blár,
«25^ ek'nn 76 þ.
RENAULT CUO RN
Nýskr. 08.1997,1400cc vél,
3ja dyra, 5 gíra, hvítur,
ekinn 61 þ.
HYUNDAI PONY LSI
Nýskr. 02.1994, 1300cc vél,
4ra dyra, 5 gíra, grænn,
ekinn 68 þ.
HYUNDAI SCOUPE
Nýskr. 08.1994, 1500cc vél
2ja dyra, sjálfskiptur, JÉj
rauður, ekinn 88 þ.^g^B
Veré: 790 þ
HYUNDAI ACCENT LSI
Nýskr. 12.1995,1300ccvél,
3ja dyra, 5 gíra, dökkgrænn,
ekinn 55 þ.
Verð: 650 þ
Nýskr. 04.1997, 1300ccvél,
5 dyra, 5 gíra, hvítur,
ekinn 46 þ.
Nýskr. 06.1996, 1300cc vél,
W 5 dyra, 5 gíra, grár,
ekinn 53 þ.
Veró: 770.þ
Veró: 670 þ
Nýjor ólfelgur
Ný rodíol sumordekk
Nýr geislospilorí
Vondlego gfirfornir
k,- 2Í