Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 22

Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 22
22 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 VIÐSKIPTI MORGUNBLAÐIÐ Hádefflsverðarfundur Þýsk-lslenska verslunarráðsins Staða og árangur sam- einingar Þýskalands tækinu og fjölmörgum dótturfyrir- tækjum þess sem hafi haslað sér völl um allan heim. í stjórn fjölmargra fyrirtækja Dr. Spáth er meðal annars stjórnarformaður verslunarráðsins í Áustur-Thuringen, umsjónarmað- ur vikulegs spjallþáttar á sjónvarpsstöðinni n-tv, „Spáth am Ábend“, dálkahöfundur vikuritsins „Capital", höfundur metsölubók- anna „Countdown for Germany" og „The Change of Poiitics", heiðurs- doktor við nokkra háskóla í Þýska- landi og víðar, ráðgjafi þýsk-banda- ríska verslunarráðsins og í stjórn Bandarísku stofnunarinnar í þýsk- um samtímafræðum. Einnig er hann stjómarformaður í fjölda fyr- irtækja utan Jenoptik-samsteyp- unnar. Dr. Spáth flytur erindi sitt á ensku. DR. Lothar Spáth, stjórnarformaður Jen- optik AG, er væntan- legur til landsins og heldur erindi á hádeg- isverðarfundi á vegum þýsk-íslenska verslun- arráðsins föstudaginn 25. ágúst á Grand Hót- el, að því er fram kem- ur í frétt frá ráðinu. Þar segir að hann muni ræða stöðu og ár- angur sameiningar Þýskalands. Fyrrverandi forsætisráðherra Dr. Spáth var for- sætisráðherra suður- þýska sambandsríksins Baden- Wurttemberg í þrettán ár, frá árinu 1978 til 1991 og einn helsti leiðtogi kristilegra demókrata í Vestur- Þýskalandi á þeim tíma. Árið 1991 hætti hann í stjórn- málum og tók við for- stjórastarfi hjá Jen- optik AG í Jena, sem áður var í Austur- Þýskalandi. Umbylti fyrirtækjum Jenoptik AG er há- tæknifyrirtæki sem stofnað var um miðja síðustu öld þegar Carl Zeiss opnaði verkstæði í Jena. Þar sem fyrir- tækið hafði búið við miðstýrða framleiðsl- ustjómún þurfti dr. Spáth að gera miklar breytingar til að gera það að alþjóðlegu hátæknifyrirtæki; sem keppt gæti á heimsmarkaði. I frétt verslunarráðsins kemur fram að þetta hafi tekist og hann hafi á skömmum tíma umbylt móðurfyrir- Dr. Lothar Spáth, stjómarformaður Jenoptik AG. Verðbréfamarkaðir í litlum hagkerfum 1999 - 2000 Fært til dollaragengis, 4. jan. 1999 = 100 - HEX, Finnlandi 1999 I.t..t.I.I..I.t ; 1.1.t.1 2000 i.t.I.t.I.I ICEX, Islandi Lúxemborg Noregi MSCI heimsvísitalan ISEQ, [rlandi Capital 40, N-Sjálandi 250 200 Heimild: The Economist, 12. ág. 2000 Skuldir íslenska ríkisins minnka verulega Skólafatnaður lyv i iri i Q Sími 5 88 44 22 KkJVVtLLo www.hm.is TÍSKA • GÆÐI • BETRA VERÐ ---------------- ESB auglýs- ir eftir sér- fræðingum FRAMKVÆMDASTJÓRN Evr- ópusambandsins lýsir eftir mats- mönnum til að fara yfir og meta um- sóknir í 5. rammaáætlun ESB. íslendingar hafa jafnan rétt til þess- ara starfa og íbúar innan sambands- ins. Matsstarfið stendur í um það bil viku í senn. Þeir sem skrá sig fara á lista sem valið er af eftir því hvert málefnið er hverju sinni. Emil B. Karlsson, alþjóðafulltrúi Evrópumiðstöðvar Impru, þjónustu- miðstöðvar frumkvöðla og fyrir- tækja á Iðntæknistofnun, segir að þeir sem hafa tekið að sér þessi störf telji þau mikils virði vegna reynsl- unnar sem þau veita. Viðkomandi fái innsýn í kröfur ESB sem gerðar eru til umsækjenda og geti ef til vill not- fært sér hana síðar í eigin þágu. Nánari upplýsingar um þessi störf er að finna á netslóðinni: www.cord- is.lu/expert-candidature. Framkvæmdastjórn Evrópusam- bandsins auglýsir einnig eftir sér- fræðingi til starfa hjá Joint Research Centre (JRC) Institutes. JRC-stofn- anirnar eru staðsettar í Þýskalandi, Belgíu, Hollandi, á Ítalíu og Spáni. Leitað er eftir mismunandi sérfræð- ingum til hvers þessara staða. Nánari upplýsingar má fá á net- slóðinni: http://europa.eu.int/comm/ dgs/research/selectio.html. BELGAR skulda enn mest allra af ríkjum OECD þrátt fyrir að spáð sé að skuldir hins opinbera sem hlutfall af vergri landsframleiðslu lækki úr 116% árið 1991 í 98% árið 2001, að því er segir í nýlegri grein í The Eco- nomist. Næst á eftir Belgum koma ítalir, en skuldir ítalska ríkissjóðsins eru taldar nema um 97% af vergri landsframleiðslu. Þá vekur og at- hygli að skuldir hins opinbera í Jap- an hafa vaxið gríðarlega á síðasta áratug eða úr 5% í um helming af vergri landsframleiðslu. Þrátt fyrir að ríkisjóður Banda- ríkjanna hafi verið rekinn með met- afgangi undanfarin ár eru þó skuldir hans enn liðlega 40% af vergi-i lands- framleiðslu. Skuldir íslenska ríkisins hafa lækkað verulega frá árinu 1991 og ís- lenska ríkið skuldar nú einna minnst af ríkjum OECD. Það eru einungis finnska og norska ríkið sem eiga eignir um fram skuldir og Norðmenn þó sýnu meira og hafa eignir norska ríkisins vaxið verulega á undanföm- um áratug. Markaðurinn í Helsinki stendur sig best Af hlutabréfamörkuðum í litlum þróuðum hagkerfum hefur ávöxtun á hlutabréfamarkaðinum í Helsinki verið langmest ef tekið er mið af síð- ustu tveimur áram. Gengi bréfa í Finnlandi hefur hækkað um 67% frá upphafi ársins 1999 og hækkaði gengið raunar mest eða um 130% um miðjan júlímánuð í sumar en vegna áhyggna fjárfesta af minnkandi arð- semi farsímafyrirtækja hefur gengi bréfa í Nokia snarlækkað en vægi Nokia á finnska hlutabréfamarkað- inum er skiljanlega mikið. Hækkun bréfa á hlutabréfamörkuðunum í Reykjavík, Ósló og Lúxembúrg frá því í byrjun árs 1999 er svipuð, eða um 25%, en frammistaða mark- aðanna á Nýja Sjálandi og á írlandi var sýnu verri. Kanadíska vínfyrirtækið Seagram til sölu BRONFMAN-fjölskyldan, sem á 24% hlut í kanadíska vínfyrirtækinu Seagram, er sögð hafa áhuga á að kaupa fyrirtækið, sem nú er til sölu. Vörumerki fyrirtækisins eru meðal annars Chivas Regal, Martell og Captain Morgan. Verðið sem fjöl- skyldan er sögð þurfa að greiða fyrir fyrirtækið er um 7 milljarðar banda- ríkjadala, jafngildi um 560 milljarða íslenskra króna. Wall Street Joumal greindi frá þessu í gær og sagði jafnframt að aðrir stjórnendur fyrir- tækisins hefðu áhuga á að vera með Bronfman-fjölskyldunni í kaupun- um ef af verður auk erlendra fjár- festa. Stjórnendur Seagram-fyrir- tækisins hafa ekki viljað staðfesta þessar fréttir. Wall Street Journal segir að breska vínfyrirtækið Allied Domecq hafi einnig sýnt Seagram áhuga. Þá hefur breska vínfyrirtæk- ið Diageo Plc. einnig lýst yfir vilja til að bjóða í Seagram-fyrirtækið ásamt hinu franska Pernod Ricard. Reuters-fréttastofan segir að Seagram-vínfyrirtækið sé að útbúa útboðslýsingu og að hún verði send til hugsanlegra kaupenda fyrirtæk- isins fyrir lok ágústmánaðar. Seagram að sameinast Vivendi-fjölmidlafyrirtækinu Seagram-fyrirtækið er um þessar mundir að sameinast frönsku fjöl- miðlasamsteypunni Vivendi, sem meðal annars á Canal plus- sjónvarpsstöðina. fíeuters-frétta- stofan heldur því fram að hin 76 ára gamla vínframleiðsla Seagram-fyr- irtækisins þyki ekki henta samhliða skemmtanahlið fyrirtækisins, sem hefur innanborðs meðal annars Uni- versal-kvikmyndaverið, Universal Music Group og skemmtigarða. Bronfman-fjölskyldan hefur átt stóran hlut í Seagram-vínfyrirtæk- inu allar götur frá árinu 1924 er Samuel Bronfman keypti fyrirtæk- ið. Charles, sonur Samuels, er stjórnarformaður Seagram og frændi hans, Edgar Bronfman yngri, er framkvæmdastjóri. Hann hefur stýrt þeirri stefnubreytingu sem hefur átt sér stað hjá fyrirtæk- inu að undanförau frá vínframleiðsl- unni yfir í skemmtanaiðnaðinn. Reuters hefur eftir nokkrum sér- fræðingum að ólíklegt sé að Bronf- man-fjölskyldan geti boðið eins hátt verð í Seagram-vínframleiðsluna og hið breska Allied Domecq, sem sé því líklegast til að kaupa Seagram.

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.