Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 23

Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 23
MORGUNBLAÐIÐ ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 23 NEYTENDUR Myndbandaleigur hækka verð á nýjum spólum Nokkrar myndbandaleigur hafa hækkað verð á nýjum myndbandsspólum. Talsmenn sjö myndbandaleigna sögðu Hrönn Indriðadóttur að ástæðan væri meðal ann- ars að innkaupsverð hefði hækkað sem og launakostnaður. SAMKVÆMT verðkönnun í sjö myndbandaleigum kom í Ijós að myndbandsspólur kosta á bilinu 450-500 krónur að undanskilinni myndbandaleigunni Vídeó-24, þar kosta spólurnar 300 krónur en um tímabundið kynn- ingartilboð er að ræða. Þá bjóða nokkrar myndbandaleigur upp á afsláttakort og bónuspunkta fyrir viðskiptavini sína. „Við erum nýbúin að hækka verð á nýjum myndbandsspólum úr 400 í 450 krónur,“ segir Júlíus Júlíusson, eigandi myndabanda- leigunnar Tröllavídeó á Eiðis- torgi. „Með nýrri spólu fylgir ein gömul mynd með eins og áður. Við höfum ekki hækkað verð hjá okkur í hátt í sjö ár og teljum okkur þrátt fyrir þessa hækkun vera að bjóða hagstæð kjör. Þess má geta að verð á eldri spólum stendur í stað og er 200 krónur. Bíómiðar voru að hækka enn einu sinni og það er því orðið dýrt fyrir fjölskyldur að fara í bíó. Þá er hins vegar nóg að taka eina myndbandsspólu sem öll fjöl- skyldan getur horft á saman,“ segir Júlíus. Arna Harðardóttir, eigandi Snæland-vídeós á Laugaveginum, segir að ákveðið hafi verið að hækka verð á myndbandsspólum íyrr í sumar og nýjar spólur kosti nú 500 krónur. „Þetta er í takt við almennar verðhækkanir eins og launahækkanir og kannski ekki síst verðhækkun á bíómið- um. Hækkunin er úr 450 krónum í 500 krónur eða um 11% en hér er eingöngu um verð á nýjum spól- um að ræða, gömlu spólurnar standa í stað og kosta 250 krónur. Ef viðskiptavinur skilar spól- unni inn fyrir klukkan 21 kvöldið eftir, vinnur hann sér ________ inn bónuspunkt. Þegar hann hefur fengið sjö bónuspunkta fær hann fríspólu." Arna segir ennfrem- ur að mismunandi rekstaraðilar séu á úti- búum Snæland-vídeó og hér sé því ekki um gegnumgangandi hækkun að ræða. Sjálfsafgreiðsla íeiðir til lægra verðs „Fram til ársins 1992 hélst verð á myndbandsspólum og bíómiðum í hendur en eftir það fóru bíómiðarnir að kosta meira,“ segir Gestur Snorrason hjá Víd- eóheimum í Fákafeni og í Grafar- vogi. „Nú eru bíómiðar komnir upp í 700 krónur þannig að fyrir Mun ódýrara er að leigja myndbands- spólu en að fara í bíó fjögurra manna fjölskyldu kostar tæplega 3000 krónur í bíó og þá á eftir að kaupa popp og kók þann- ig að fjölskyldan eyðir allt að 5000 krónum í bíóferðina. í Víd- eóheimum getur fjölskyldan aftur á móti leigt myndbandsspólu fyr- ir 450 krónur.“ Verðið hefur verið það sama frá árinu 1991 að sögn Gests og ekki hafa verið teknar neinar ákvarðanir um að hækka að sinni. „Þá má geta þess að við erum með sérstök afsláttarkort fyrir viðskiptavini okkar þar sem þeir fá fimmtu hverju spólu fría en það samsvarar 20% afslætti. Gamlar spólur kosta síðan 300 krónur að leigja.“ Fyrir um sjö vikum var tekin upp sjálfsafgreiðsla í nýrri vídeó- leigu, Vídeó-24, sem er í eigu sömu aðila og Vídeóheimar. Gest- ur segir að slíkt rekstrarfyrir- komulag sé nýjung hjá mynd- bandaleigum hérlendis. Þar afgreiðir viðskiptavin- urinn sig sjálfur með krítarkorti en Vídeó- 24 er staðsett á fimm bensínstöðvum á höf- uðborgarsvæðinu og í Fjarðarkaupum^ í Hafnarfirði. „í Víd- eó-24 er hægt að fá bestu og nýj- ustu myndirnar á 300 krónur. Lága verðið má meðal annars rekja til sjálfsafgreiðslu og síðan eru spólurnar á kynningartilboði eins og er,“ segir Gestur. Innkaupsverð hærra en áður Að sögn Gunnars Más Andrés- sonar hjá Bónusvideó ehf. sem reka Bónusvídeó, Toppmyndir og Vídeóhöllina, á alls 20 stöðum, er venjan þegar ný útibú eru opnuð Morgunblaðið/Halldór Kolbeins í úrtaki könnunarinnar kom í ljós að myndbandsspólur kosta frá 300 til 500 krónur. Þá bjóða nokkrar leigur upp á afsláttakort. að bjóða nýjar spólur á tilboðs- verði. „Eftir ákveðinn tíma hækk- um við svo verðið. Fyrir um mánuði hækkuðum við verð á nýjum myndbandsspól- um úr 400 krónur í 450 í all- flestum verslunum okkar og í 500 krónur í Vídeóhöllinni. Verðið í Vídeóhöllinni er aðeins hærra meðal annars vegna þess að þar er meira úrval,“ segir Gunnar Már og fullyrðir að sé spólan ekki til í Vídeóhöllinni þá sé hún ekki til á landinu. í bæði Bónusvídeóleigunum og Toppmyndum fylgir ein gömul mynd með nýrri myndbands- spólu. ..Hjá okkur hefur verðið ekki hækkað í rúmt ár. Ástæðu hækk- unarinnar núna má aðallega rekja til þess að launakostnaður hefur hækkað og öll innkaup eru orðin dýrari. Þetta er ósköp eðlileg hækkun en þess má geta að hækkunin á eingöngu við um nýj- ar spólur, verð á gömlum spólum stendur í stað en þær kosta 250 til 300 krónur." milupa Tilmæli Manneidisráðs og Tannverndarráðs til skólasljóra Spurt og svarað LIÐ-AKTÍN Aðeins léttmjólk og kalt vatn verði í boði SKÓLASTJÓRAR allra grunn- skóla í landinu hafa fengið bréf frá Tannvemdarráði og Manneldis- ráði þar sem lagt er til að endur- skoðað verði hvaða drykkir em boðnir til sölu í skólum. „Við lögð- um til að grunnskólar byðu ein- göngu léttmjólk til sölu en auk þess yrði auðvelt fyrir bömin að nálgast kalt vatn,“ segir Laufey Steingrímsdóttir hjá manneldis- ráði. „Eins var bent á hve mikil- vægt væri að mjólkin væri höfð nægilega köld svo hún sé lystug fyrir bömin.“ Hún segir ástæðuna fyrir þessum tilmælum vera að súrir og sykraðir drykkir sem gjarnan em á boðstólnum í gmnn- skólum geti skemmt tennur barna. Til dæmis geti komið fram gler- ungseyðing ef sífellt er verið að drekka ávaxtasafa, jafnvel þótt um hreinan og annars hollan ávaxtasafa sé að ræða. „í ávaxtadrykkjunum er sýra sem er stundum svo sterk að það tekur munnvatnið sem er basiskt langan tíma að eyða henni.“ Hún segir að auðvitað geti bömin kom- ið með þá drykki sem þau vilja að heiman. „Sykraðir mjólkurdrykk- ir og hreinir ávaxtasafar em si'ður en svo einhver óhollusta, þetta em heilsusamlegir drykkir, en neysla þeirra getur gengið út í öfgar sem getur verið slæmt fyrir tennum- ar.“ Hún segir að þetta séu ein- ungis vinsamleg tilmæli til skólast- jóra um að endurskoðað verði hvað börnunum er boðið í skólan- um. „Við viljum koma í veg fyrir að skólinn sé beinlinis að hvetja til sífelldrar neyslu á þessum drykkj- um,“ segir Laufey, „Við vitum að sumir þola ekki að drekka mjólk og þeir geta þá að sjálfsögðu kom- ið með annan drykk í skólann. Við viljum hins vegar koma vatninu og mjólkinni að og völdum léttinjólk því hún hentar flestum." Hún seg- ir að þetta eigi að vera auðvelt með yngstu bömin sem em að koma úr ieikskólunum þar sem þau hafa vanist því að fá aðallega vatn og mjólk. Þetta geti hins veg- ar orðið erfiðara viðfangs hjá eldri bömum, og því komi til greina að koma þessum breytingum á í áföngum eftir aldurshópum. „Við vonum að skólastjórar og for- eldrar taki þessi tilmæli til athug- unar og kanni hvort hægt sé að einfalda sölu drykkja í gmnnskól- um og einskorða hana við það sem er flestum bömum fyrir bestu.“ Getur mikil viðvera fyrir framan tölvuskjá haft slæm áhrif á augun? „Þetta hefur mikið verið rætt og skoðað en í þeim rannsóknum sem gerðar hafa verið hefur mönnum ekki tekist að sanna að geisl- ar frá tölvuskjáum hafi slæm áhrif á augun eða sjónina,“ segir Friðbert Jónasson, yf- irlæknir á augndeild Land- spítalans - háskólasjúkra- húss. Hann segir þetta mikið hafa verið til umræðu fyrst þegar tölvurnar komu á markaðinn en núna séu tölv- ur þannig útbúnar að þær gefi frá sér mun minni geisl- un en áður var. „I Reykjavíkurrannsókn- inni sem var gerð árið 1996 var þetta meðal annars kannað og þar sást enginn marktækur munur á aug- um eða sjón þeirra sem unnu mikið við tölvuskjái og hinna sem gerðu það ekki.“ Góð fæðubót fyrir fóLk sem er með mikið álag á liðum SkólavftrAuttlg, Kringlunni 4 Smáratorgi á axlir airlift™ SKÓLABAKPOKAR Byltingarkennd nýjung I bakpokum, loftpúðar á axlahöldum, minnka álag á axlir og bak. HREYSTI ÆFINGAR - ÚTIVIST - BÓMULL --Skeifunni 19 - S. 5681717 - Nanoq Kringlunni - Sportver, Akureyri - Sportlíf, Selfossi - Fjölsport, Hafnarfiröi

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.