Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 25
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 25
ERLENT
Gore með
forskot
Keokuk í Iowa, Washington. AP.
AL GORE, forsetaframbjóðandi
demókrata í Bandaríkjunum, sagði
í gær að aukinn stuðningur við sig
í skoðanakönnunum sýndi að kjós-
endur vildu að kosningabaráttan
snerist um málefni fremur en
ímynd. „Ég tel að eftir því sem
fólk beinir sjónum meira að þeim
ákvörðunum sem við þurfum í
raun að taka, því betur sjái það
mismuninn í þessari baráttu,"
sagði Gore í morgunþætti
sjónvarpsstöðvarinnar NBC í gær.
Samkvæmt könnun er gerð var
á vegum CNN-sjónvarpsins, blaðs-
ins USA-Today og Gallup, hefur
Gore stuðning 47% aðspurðra;
frambjóðandi repúblikana, George
W. Bush, hefur stuðning 46%;
Ralph Nader, frambjóðandi Græn-
ingja, hefur 3% og forsetaefni Um-
bótaflokksins, Pat Buchanan, hef-
ur 2%.
Samkvæmt fleiri könnunum
hefur Gore aukið töluvert við
stuðning sinn í kjölfar landsþings
demókrata er haldið var í síðustu
viku. Könnun á vegum frétta-
ritsins Newsweek á laugardag
sýndi að Gore hafði 48% stuðning
en Bush 42% en sú könnun var
gerð meðal skráðra kjósenda og
slíkar kannanir sýna yfirleitt meiri
stuðning við demókrata.
Gore náði jöfnu í könnun CNN,
USA Today og Gallups með því að
hafa um 20 stiga forskot meðal
kvenkyns kjósenda en Bush hafði
um það bil sama forskot meðal
karla. Fulltrúi Gores sagði að þar
á bæ byggjust menn við Jafnri og
harðri kosningabaráttu alveg
þangað til í nóvember.“ Banda-
ríkjamenn ganga að kjörborðinu 7.
nóvember.
Gore hefur í kosningabaráttu
sinni m.a. mælt með nákvæmlega
skilgreindum skattaívilnunum sem
myndu gera millistéttarfólki hæg-
ara um vik að greiða fyrir barna-
gæslu, umönnun eldra fólks og há-
skólamenntun. Bush vill aftur á
móti jafna skattalækkun til handa
öllum stéttum og myndi það koma
best við þá launahærri sem nú
greiða mestan tekjuskatt.
Gíslarnir á Filippseyjum
Menn A1 óu Say-
yaf vilja hærra
lausnargjald
Manila, Tripoli. AP, AFP.
EMBÆTTISMENN á Filipp-
seyjum reyndu í gær að fá Líbýu-
stjórn til að samþykkja að gerð
yrði á ný tilraun til að ræða við
skæruliða múslima sem um helgi-
na hættu skyndilega við að leysa
úr haldi 24 gísla sem þeir halda.
Lýbíumenn hafa boðist til að
greiða lausnargjald fyrir gislana.
Stjórnvöld í Lýbíu hafa lengi
haft tengsl við uppreisnarmenn
múslimaforingjans Abu Sayyaf á
suðurhluta Filippseyja er vilja
stofna þar sjálfstætt, islamskt
ríki en flestir Filippseyingar eru
kaþólskir.
Menn Abu Sayyaf eru vel
vopnum búnir og hafa í haldi alls
24 gísla, þar af 12 vestræna og 12
Filippseyinga, í sumum frétta-
skeytum er sagt að Filippseying-
arnir séu 16. Meðal fólksins eru
níu manns úr hópi vestrænna
ferðamanna sem uppreisnar-
menn rændu á sumardvalar-
staðnum Sipadan í Malasíu í apríl
og hafa síðan haldið föngnum í
frumskógarbækistöðvum sínum á
eynni Jolo. Uppreisnarmenn
munu nú krefjast hærra lausnar-
gjalds en Líbýumenn vilja borga,
meðal annars vilja þeir fá milljón
dollara, um 80 milljónir króna,
fyrir hvern vestrænan gísl.
Aðalsamningamaður
Filippseyjastjórnar, Robert
Aventajado, sagðist hafa rætt við
fulltrúa gíslatakanna, Ghalib
„Robot“ Andang, á sunnudag og í
gær og hafði eftir uppreisnar-
mönnum að þeir væru fúsir að
veita gíslunum frelsi ef ákveðnir
„hnökrar" yrðu fjarlægðir. Marg-
ir óttast að uppreisnarmennirnir
muni nota lausnarpeningana til
að kaupa meira af vopnum.
Líbýumenn segja að gíslatöku-
mennimir fái féð ekki í hendur
heldur verði það notað til þróun-
araðstoðar á svæðum múslima.
Reuters
Atta
farast í
árekstri í
Austurríki
ÁTTA þýsk ungmenni iétust er
flutningabíll með tengivagni lenti
á tveggja hæða rútu á þjúðvegi
vestur af Vín, höfuðborg Austur-
ríkis, aðfaranútt mánudags. 23
ungmenni til viðbútar slösuðust í
árekstrinum og er að minnsta
kosti ein stúlka í lífshættu.
Unnið hefur verið að vegafram-
kvæmdum á þeim kafla þjúðveg-
arins er atburðurinn átti sér stað
og hafði akreinum vegarins verið
fækkað um helming. Að sögn lög-
reglu var flutningabfllinn á of
mikilli ferð og svo virðist sem
tengivagn hans hafi risið upp á
rönd og rifíð opna efri hæð rút-
unnar með fyrr greindum afleið-
ingum.
63 ungmenni, á aldrinum 15-19
ára, voru um borð í rútunni sem
var á leið frá Þýskalandi til Ung-
verjalands, en þar ætluðu ung-
mennin að dvelja í hálfsmánaðar
sumarfríi sínu.
Þjúðvegurinn þar sem
áreksturinn átti sér stað er með
fjölfarnari vegum Austurríkis og
liggja tvær akreinar hvor í sína
áttina. Á þeim kafla er vegafram-
kvæmdirnar stúðu yfír lá hins
vegar einungis ein akrein í hvora
átt og varð því að loka veginum
fyrir allri umferð í nokkra tíma
eftir áreksturinn sem olli tals-
verðri umferðarteppu.
Hlutfallslega farast fleiri í um-
ferðarúhöppum í Austurríki ár
hvert en nokkru öðru rfki í
Evrúpu.
og þægindi í fyrirrumi
Intra stálvaskarnir hafa um ára skeið verið leiðandi hvað
varðar gæði og glæsileika, auk þess að hafa hlotið margvíslega
viðurkenningu fyrir frábæra hönnun. Stálvaskarnir fást í
mörgum stærðum og gerðum.
T6Í1GI
Smiðjuvegi 11 • 200 Kópavogur
Sími: 5641088 • Fax: 5641089 • tengi.is
Hvort sem þú ert að leita að breyttum
eða óbreyttum Isuzu getum við boðið
þér tilboð svo um munar á Isuzu dögum
Bílheimar ehf
Sœvarhöfba 2a Sími:525 9000
www.bilheimar.is
Umboðsmenn um allt land
Tilboðsverð á Isuzu dögum