Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 28

Morgunblaðið - 22.08.2000, Page 28
28 ÞRIÐJUÐAGUR 22. ÁGÚST 2000 ERLENT Fj ölflokkaþing kemur saman á A-Tímor Dili. AP. MORGUNBLAÐIÐ LISTIR Morgunblaðið/ Halldór Kolbeins Þeir sem eru lágir í loftinu fengu að njóta dagskrárinnar úr hásæti. „Eg varð snort- inn af yndis- leik þínum“ Liðsmenn í hornaflokki Lúðrasveitai’ Reykjavikur spiluðu í si'num elsta búningi. Þeir fengu húfumar lánaðar hjá lögreglunni. STJÓRNMÁLALEIÐTOGAR á Austur-Tímor tóku í gær fyrsta skrefið í átt að stofnun sjálfstæðrar ríkisstjórnar landsins er þeir settu fyrsta fund þings með þátttöku margra stjómmálaflokka og hvöttu til samstöðu. Jose Alexandre Xanana Gusmao, einn helsti leiðtogi þeirra er barist hafa fyrir sjálfstæði landsins undan yfirráðum Indónesíu, bað 450 þing- fulltrúa alls staðar að af landinu að „taka lýðræðinu opnum örmum“ og komast að samkomulagi um það hvernig undirbúa ætti valdatöku heimastjórnar í lok næsta árs. Hinir nýju leiðtogar A-Tímors sitja uppi með afleiðingar fimm alda hirðulausrar nýlendustjórnar Portú- gala og 25 ára ofbeldisstjórn Indón- esa en á þeim tíma létu um 100 þús- und manns lífið. „Við verðum að byggja traustar undirstöður sem fyrsta nýja land 21. aldarinnar getur risið á,“ sagði Gusmao. „Alþjóðasam- félagið fylgist með okkur. Heimur- inn bíður þess að sjá hversu þroskuð við erum.“ Landið er á austurhluta eyjarinn- ar Tímor og samþykktu íbúar þess í atkvæðagreiðslu, er haldin var á veg- um Sameinuðu þjóðanna á síðasta ári, að segja skilið við Indónesíu. Sjálfstæðisbaráttan hefur kostað miklar blóðsúthellingar og eyðilegg- ingu. Indónesar hafa enn yfirráð á Vestur-Tímor. Þingið á A-Tímor er skipulagt af þjóðarandspymuráði Tímors sem er regnhlífasamtök hópa er barist hafa gegn yfirráðum Indónesa. I kjölfar atkvæðagreiðslunnar um sjálfstæði hófu herskáir sjálfstæðisandstæð- ingar baráttu sem ekki lauk fyrr en alþjóðlegar friðargæslusveitir komu á vettvang. Hafa Sameinuðu þjóðirn- FARUQ al-Shara, utanríkisráð- herra Sýrlands hvatti í gær til þess að haldinn yrði fundur leiðtoga arabaríkja til þess að binda enda á „hryggilega stöðu mála“ í araba- heiminum og „samstöðuleysi" ar- aba. Kvaðst Shara hafa rætt þessa hugmynd við Hosni Mubarak, for- seta Egyptalands, og Amr Mussa utanríkisráðherra, og einnig Fahd konung Saudi-Arabíu, og krón- prinsinn, Abdullah bin Abdel Aziz, og utanríkisráðherrann, Saud al- Faisal prins. „Þessi hryggilega staða mála og samstöðuleysi má ekki halda áfram,“ sagði Shara. „Við verðum að koma saman, snúa bökum saman og styrkja samstöðu araba okkur öllum til hagsbóta." Skírskotaði Shara til friðarumleitana ísraela og Palest- ínumanna og sagði að ísraelar ættu að láta af hendi Austur-Jerúsalem, sem væri arabískt yfirráðasvæði og hlyti að verða höfuðstaður sjálf- stæðs, palestínsks ríkis. Friðarviðræður Sýrlendinga sjálfra við Israela hafa gengið stirð- lega sökum tregðu hinna síðar- nefndu til að samþykkja landamæri eins og þau voru fyrir stríðið 1967. Kvaðst Shara hafa borið Mubarak skilaboð frá forseta Sýrlands, Bas- har al-Assad, varðandi þróun mála í Mið-Austurlöndum, framtíð friðar- umleitananna og leiðir til að bæta samskipti araba. ar forráð með höndum uns stjóm heimamanna tekur við. Fréttaskýrendur segja að það kunni að verða erfitt að yfirvinna þann pólitíska mun sem sé á flokkun- um á A-Tímor. „Ég veit ekki hvað verður úr þessu,“ sagði leiðtogi næststærsta stjómmálaflokks landsins um þingið sem kom saman í gær. „En ef okkur líst ekki á þetta þá tökum við ekki þátt í þessu.“ Umdeild sakaruppgjöf Ströng öryggisgæsla var í höfuð- borginni, Dili, í gær og settu friðar- gæsluliðar Sameinuðu þjóðanna upp vegartálma. Höfðu þeir auga með herskáum andstæðingum heimast- jómar sem taldir era hafa fundið sér leið inn í borgina. Undanfamar vikur hefur nokkrum sinnum skorist í odda með friðargæsluliðum og her- mönnum nærri landamæranum við V-Tímor. Hafa tveir gæsluliðar verið felldir og fjórir særðir. Nokkrir her- menn hafa fallið. Abdurrahman Wahid, forseti Ind- ónesíu, hafði heitið því að þeir sem bera ábyrgð á óöldinni á A-Tímor í fyrra verði dregnir fyrir dómstóla en í síðustu viku samþykkti þing lands- ins að veita hemum sakarappgjöf og banna afturvirkar ákærar fyrir mannréttindabrot. Utanríkisráð- herra Indónesíu sagði í gær að hann gæti ekki skilið þessa samþykkt og að það myndi reynast erfitt að út- skýra hana fyrir heimsbyggðinni. Vestræn stjómvöld hafa varað Indónesa við því að ef þeir sæki ekki til saka þá sem séu ábyrgir fyrir of- beldisverkum á A-Tímor, kunni að verða nauðsynlegt að setja á fót al- þjóðaglæpadómstól, svipaðan þeim sem komið hefur verið á vegna Júgó- slavíu fyrrverandi og Rúanda. Næstu vikur skipta sköpum Ehud Barak, forsætisráðherra ísraels, sagði á sunnudag að næstu vikur myndu ráða úrslitum um frið- arumleitanir Israela og Palestínu- manna. Bandaríkjamenn leita nú leiða til þess að ryðja úr vegi helstu hindrununum í friðarviðræðum þessara aðila. Friðarfundur þeirra í Bandaríkj- unum í síðasta mánuði fór út um þúfur vegna deilna um framtíð Jerú- salem, en báðir aðilar gera skilyrð- islaust tilkall til austurhluta borgar- innar. Barak sagði á ríkisstjórnarfundi um helgina að ekkert benti til þess að Yasser Ara- fat, forseti heimastjómar Palestínu- manna, hefði svo mikið sem íhugað þær tillögur er Israelar hefðu lagt fram á fundinum í Bandaríkjunum. Sendifulltrúi Bandaríkjastjórnar, Dennis Ross, er nú á ferð um Mið- Austurlönd þeirra erinda að brúa bilið milli deiluaðila nægilega til þess að grundvöllur verði fyrir öðr- um friðarfundi í Bandaríkjunum. Deiluaðilar hafa sjálfir gefið sér frest til 13. september nk. til að ná endanlegu samkomulagi, þ.á m. um framtíð Jerúsalem. Ennfremur þarf að finna sátt um framtíð milljóna palestínskra flótta- manna og landnámssvæði gyðinga á herteknum svæðum. Þá standa deil- ur um vatnsból og öryggisgæslu. Talið er að um 50.000 manns hafí lagt leið sína í miðborg Reykjavíkur til að njóta menningar og mannlífs á laugar- daginn. Slíkt var fram- boðið af allskyns upp- ákomum að ógerningur var að vera viðstaddur þær allar. Eyrún Bald- ursdóttir lét sig fljóta með straumnum á menningarnótt. AÐ er nokkuð ljóst að menningarnótt í Reykja- vík hefur fest sig í sessi, en hún var haldin síðastliðinn laugardag í fimmta sinn. Allan lið- langan daginn stóð yfir þétt menn- ingardagskrá í miðbænum sem íbúar í Reykjavík og nágrenni gerðu sér far um að sjá. Ekki spillti heldur fyr- ir að veðrið var með besta móti og sólin skein á gesti og gjörningsmenn. Dagskrárliðir menningarnætur hafa sjaldan verið fleLri og varð blaðamaður þess fljótt áskynja að enginn vegur væri að sjá og heyra Morgunblaðið/Halldór Kolbeins Harmonikkuball var haldið á útitaflinu. Léttsveit Harmonikkufélags Reykjavíkur lék fyrir dansi. Sýrlendingar vilja binda enda á „hryggi- lega stöðu mála“ í arabaheiminum Hvetja til leið- togafundar Alexandríu, Jerúsalem. AFP.

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.