Morgunblaðið - 22.08.2000, Qupperneq 44

Morgunblaðið - 22.08.2000, Qupperneq 44
44 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 MINNINGAR MORGUNBLAÐIÐ JÓNAS SVEINSSON + Jónas Sveinsson fæddist í Vest- mannaeyjum 23. september 1937. Hann lést á Land- spítalanum Fossvogi 13. ágúst síðastlið- inn. Foreldrar hans voru Ragnhildur Jó- hannsdóttir, f. 14.8. 1904, d. 8.5. 1972, og Sveinn Jónasson, f. 9.7. 1902, d. 26.12. Í981. Systkini Jón- asar eru Guðfinna, búsett á Eyrar- bakka, Sigurður, búsettur í Hafnarfirði, Jóhann Bergur, búsettur í Keflavík, Nína, d. 30.6. 1990, Víkingur, búsettur í Keflavík, og Hrafn- hildur, d. 1.6. 1997. Með fyrri eiginkonu sinni Hönnu Matras eignaðist Jónas Hann Jónas bróðir minn hefur kvatt þennan heim, eftir að hafa glímt við illvígan sjúkdóm um nokkra hríð og þrátt fyrir harða vöm og dugnað í baráttunni þá tapaðist tvö börn. Þau eru, Thelma Matras, f. 22.7. 1962, og Sveinn Matras, f. 2.12. 1963, sem bú- sett eru í Dan- mörku. Með seinni eiginkonu sinni, Önnu Pétursdóttur eignaðist hann tvö böm, Dagmar Lilju, f. 19.7. 1970, í sam- búð með Kára Halls- syni, á hún fyrir einn son Pétur Má, f. 9.8. 1989, Svan- hildi Fjólu, f. 6.2. 1973, í sambúð með Asmundi Vil- hjálmssyni og eiga þau tvær dæt- ur, Maríönnu Björk, f. 23.4. 1996 og Rebekku Sól, f. 14.11. 1998. Útfór Jónasar fer fram frá Grensáskirkju í dag og hefst at- höfnin klukkan 15. orrustan á Borgarspítalanum að morgni sunnudagsins 13. ágúst síð- astliðinn. Hann var sá fimmti í systk- inahópnum, sem taldi samtals sjö, fæddur 1937 og sigldi jafnan rólegan •<r* + Ástkær unnusta mín, dóttir okkar, systir og barnabarn, HELGA SJÖFN FORTESCUE, Grýtubakka 6, verður jarðsett frá Grensáskirkju miðviku- daginn 23. ágúst kl. 13.30. Fyrir hönd vandamanna, > Rúnar Þór Oddný Inga Fortescue, Ottó Svanur Markússon, Sigríður María Fortescue, Helgi John Fortescue, Markús Sigurðsson, Reynisson, Sigurjón Skæringsson, Jón Ingi Ottósson, Björn Kjartansson, Kristjana Einarsdóttir, Sjöfn Ottósdóttir. + Elskuleg móðir okkar, tengdamóðir, amma og langamma, ANNA ÞORVALDSDÓTTIR, Guðrúnargötu 3, ' Reykjavík, sem lést miðvikudaginn 16. ágúst sl., verður jarðsungín frá Fossvogskirkju miðvikudaginn 23. ágúst kl. 10.30. Þeim sem vilja minnast hennar er bent á Heimahlynningu Krabbameins- félagsins. Anna María Bragadóttir, Atli Bragason, Kristján Bragason, Bragi Bragason, Ingveldur Björk Bragadóttir, Viðar Bragi Þorsteinsson, Ólöf Leifsdóttir, Ásta Margrét Jóhannsdóttir, Guðmundur Jónsson, Kolbrún Anna Björnsdóttir, barnabörn og barnabarnabörn. + Elskulegur sambýlismaður minn og bróðir, REYNIR LUDVIGSSON bókbindari, andaðist á Sjúkrahúsi Suðurlands sunnu- daginn 20. ágúst sl. Fyrir okkar hönd og annarra aðstandenda, Signý Ólafsdóttir, Agnar Ludvigsson. Lokað Vegna útfarar GUÐNA Þ. GUÐMUNDSSONAR, verður skrifstofa söngmálastjóra þjóðkirkjunnar lokuð þriðjudaginn 22. ágúst. sjó í gegnum lífið og þurfti aldrei að flýta sér til að komast sína leið. Lífs- klukkan hans var stillt á kvöldið, líkt og var hjá henni ömmu í Kvíhólma og þá var hans besti tími sólar- hringsins til framkvæmda. Jónas var vel ættrækinn maður og taldi það ekki eftir sér að líta við hjá vinum og kunningjum þegar hann var á ferð- inni á frídögum sínum og var þá al- veg til í góðlátlegt spjall yfir kaffi- bolla og var ekki í vandræðum með að blanda svolitlum húmor með í sögur og upprifjanir frá liðnum dög- um, enda var hann góður leikari. Hann hafði fengið góða söngrödd i vöggugjöf og naut þess vel að syngja fyrir aðra á sínum yngri árum. Æskuárin voru í Vestmannaeyjum þar sem fjölskyldan bjó, en unglings- árin sín átti hann í Eyjafjallasveit eftir að fjölskyldan flutti sig yfir Sundið að Efri-Rotum, vorið 1946. Árin okkar í sveitinni voru yndisleg- ur tími þar sem ómar kyrrðar og sælu gerðu sig heimakomna á mold- arstígnum við brunninn, eða við litlu brúna yfir hornsílatjörnina og ekki þurfti að hugsa um neinn kvóta því hornsílin voru bara þama fyrir ungu veiðimennina, sem voru að byggja sig upp til að verða stórir. Angan frá leir og mold við rakan vatnsbakkann með blöndu af ilmi jarðar, grasi og slíi síaðist inn í vitundina og verður ógleymanlegt. Og fuglasöngurinn barst um loftið í litríkum tónum á sólardögum sumarsins þegar vinir okkar farfuglarnir héldu tónleika sína ókeypis fyrir börn náttúrunnar, komnir hingað um óralangan vel, yf- ir úthafið til að eignast afkvæmi. Já, hér voru bestu ávextir lífsins í boði fyrir ungar sálir og hver sem lét eftir sér að njóta þeirra gat verið sáttur við almættið, sem lagt hafði í smáar hendur drjúgan fjársjóð til framtíð- ar. Á sínum bestu árum varð Jónas fyrir þeirri reynslu að þurfa að leggj- ast í tvígang undir skurðarhnífinn á því viðkvæma líffæri heilanum og varð þá fyrir verulegum óþægindum sem voru afleiðingar aðgerðarinnar og snertu jafnvægið, sjónina og tal- færin, sem háði honum ætíð síðan. En eftir endurhæfingu fór lífið aftur að ganga sinn gang og hann tókst á við dagleg störf á ný af alúð og sam- viskusemi sem honum voru í blóð borin. Honum Jónasi var margt til lista lagt og allt lék í höndum hans á með- an heilsan var í lagi. Hann stundaði sjómennsku, pípulagnir og múrverk hér heima, áður en hann hélt til Fær- eyja þar sem hann stundaði leigu- bílaakstur. Mörg hin síðari ár vann hann sem bílstjóri hjá Mjólkursam- sölunni í Reykjavík. Það voru góðir dagar sem hann átti með okkur systkinunum í sumar, á Eyrarbakka, í Grímsnesinu, Biskupstungunum og í Hamragörðum, þar sem hann fékk gott tækifæri til að rifja upp margt frá unglingsárunum m.a. undir fjöll- unum og á niðjamóti í Borgarfirðin- um um miðjan júlí naut hann þess vel að vera á meðal okkar ásamt öðru skyldfólki sínu og vissi þá að eyktar- klukkan gæfi ekki öllu lengur tæki- færi til slíkra gleðistunda. Við hjónin þökkum Jónasi fyrir góða samfylgd í lífinu og vottum fjöl- skyldu hans dýpstu samúð okkar. Jóhann og Júlía. Elsku pabbi minn, þá er komið að okkar hinstu kveðjustund, baráttu þinni við illvígan sjúkdóm er lokið. Einhvern veginn kom þetta mér samt svo í opna skjöldu að kallið skyldi bera svona fljótt að þar sem þú hefur aldeilis fengið að ganga í gegnum mjög svo alvarleg veikindi á árum áður sem hafa markað allt þitt líf allar götur síðan ’73. Það má með sanni segja að það hafi verið krafta- verk að þú skyldir ekki hafa verið tekinn frá okkur þá, þakka ég guði fyrir að það skyldi ekki gerast því þá hefði ég aldrei orðið þeirrar ánægju aðnjótandi að kynnast þér því þú hefur þína fyrstu baráttu um það leyti sem ég fæðist, og ert skorinn upp við æxli í höfði ári síðar. Þetta var feikilega mikið áfall fyrir fjöl- skylduna og ekki síst þig sem hafðir verið svo laginn, gerðir við bílana þína sjálfur, teiknaðir listavel og málaðir málverk sem ávallt munu lifa. Einnig hefur þú sagt mér frá því þegar þú kepptir á íþróttamótum fyrir austan, lékst í leikritum, spilað- ir á gítar og söngst listavel, meira að segja svo vel að þú hugðir á frekara nám í þeim efnum. Og eftirhermurn- ar þínar af vinum, kunningjum og samstarfsfólki í gegnum árin eru mér ógleymanlegar. Svo árið ’79 brestur á annað áfall og þú ert aftur skorinn upp í höfðinu. En þrátt fyrir þessar erfiðu hindranir varst þú ákveðinn í að láta ekki deigan síga og hélst ótrauður áfram, sem sýndi sig best í því að þú hefur ávallt unnið fulla vinnu strax eftir að þú náðir bata og það ekki auðvelda vinnu. Meira að segja þegar þú greindist með þennan illvíga sjúkdóm í apríl á þessu ári varst þú í fullri vinnu og búinn að vera það síðastliðin 30 ár á sama vinnustað. Svona manni er ekki nema hægt að bera fulla virð- ingu fyrir og spyrja sjálfan sig að því hvaða ofurkraftur og lífsorka hefur knúið þig áfram allt þitt líf, því er ekki hægt að svara. Elsku pabbi, ég þakka svo inni- lega fyrir hvað okkar samband hefur ávallt verið traust og gott í gegnum árin, hvað við gátum dólað okkur saman við að keyra niður á bryggju og skoða bátana eða þegar við tókum bílinn í gegn sem var ekki sjaldan og bónuðum hann og þrifum hátt og lágt, stöldruðum svo alltaf við í sömu sjoppu og fengum okkur kók og prins. Og þegar fjölskyldan hugðist leggja upp í sumarbústaðaferð sem var á hverju sumri, var það fastur liður að ég og þú fórum saman niður í bæ og keyptum eitthvert sniðugt spil til að taka með í bústaðinn. Elsku pabbi, þetta eru minningar sem hægt er að ylja sér við á svona stund- um og vert er að minnast með gleði í hjarta. Og hvað þið Ási minn náðuð alltaf vel saman og gátuð rætt um heima og geima. Litlu blómarósirnar okkar Ása, þær Maríanna Björk og Rebekka Sól, voru gullin þín, það fór ekki framhjá neinum hversu stóran sess þær skipuðu í þínu lífi og hvað mér þótti alltaf vænt um það þegar þú nefndir hversu mikið þær minntu þig á þegar við Dagmar vorum litlar. Og að sjá litlu andlitin Ijóma á Mar- íönnu og Rebekku þegar afi Jónas, eins og þær kölluðu þig, birtist í dyragættinni. Já, það er ekki bara ég sem hef margs að minnast og mikils að sakna þegar hugsað er til þín, pabbi minn. Elsku hjartans pabbi, minning- arnar um þig eru okkur dýrmætar og þær munu lifa með okkur alla tíð. Eg bið almáttugan Guð að umvefja þig ástúð og hlýju og veita okkur sem eftir lifum styrk til að halda áfram. Nú hefur þú öðlast hvíld og erfiðar + Móðir mín, tengdamóðir, amma okkar og langamma, SOFFÍA INGVARSDÓTTIR, lést á hjúkrunarheimilinu Skógarbæ laugar- daginn 19. ágúst. Guðrún Sveinbjarnardóttir, Arnþór Garðarsson, Sveinbjörn I. Baldvinsson, Tryggvi M. Baidvinsson, Soffía Arnþórsdóttir, Þrándur Arnþórsson og barnabarnabörn. + Móðir okkar og tengdamóðir, GUÐRÚN ANNA ODDSDÓTTIR, Byggðarenda 16, Reykjavík, lést laugardaginn 19. ágúst. Oddur Sæmundsson, Páll Sæmundsson, Ingi Sæmundsson, Unnur Jóna Sigurjónsdóttir, Steinunn Bjarnadóttir. + Elskuleg eiginkona mín, móðir okkar, tengdamóðir og amma, ÍRIS BJÖRNSDÓTTIR, Skildinganesi 45, Reykjavík, sem lést á heimili sínu föstudaginn 18. ágúst, verður jarðsungin frá Bústaðakirkju, föstu- daginn 25. ágúst kl. 13.30. Tómas Sæmundsson, Svavar Tómasson, Rannveig Raymondsdóttir, Magnús Örn Tómasson, Einar Bjöm Tómasson og barnabörn. Lokað Smáraskóli verður lokaður í dag, þriðjudaginn 22. ágúst vegna jarðarfarar GUÐNA Þ. GUÐMUNDSSONAR. Smáraskóli, Dalsmára 1, Kópavogi.
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64
Qupperneq 65
Qupperneq 66
Qupperneq 67
Qupperneq 68
Qupperneq 69
Qupperneq 70
Qupperneq 71
Qupperneq 72

x

Morgunblaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.