Morgunblaðið - 22.08.2000, Qupperneq 48
1>
48 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
MINNINGAR
MORGUNBLAÐIÐ
GUÐNIÞORARINN
GUÐMUNDSSON
lífssymfónían hljómi rétt er ekki öll-
um gefið. Oft fer þetta tvennt ekki
vel saman þar sem sannur listamað-
ur helgar listinni athygli sína og aðr-
ir hlutir eins og heilsan skipta minna
máli.
Vinur minn Guðni Þ. Guðmun-
dsson organleikari er fallinn frá
langt fyrir aldur fram. Andlát hans
var mér, eins og fleirum sem hann
hefur af hjartahlýju fóstrað, har-
mafregn. Eg var þeirrar gæfu að-
njátandi eins og mjög margir aðrir
að fá að taka þátt í starfi Bústaða-
kirkjukórs um árabil og okkur var
alla tíð síðan vel til vina. Hann var
stórkostlegur maður og frábær tónl-
istarmaður. Hann var fullur af lífs-
þrótti, ósérhlífinn, geislaði af krafti,
áhuga og lífsgleði. Sem kórstjóri var
hann harður sanngjam húsbóndi og
sem tónlistarmaður var hann kröfu-
harður fagmaður. Föðurleg um-
hyggja hans fyrir verkefninu sem
fyrir lá var aðdáunarverð. Hjarta
hans var stórt, viðkvæmt og sló
hratt. Hugur hans var hreinn, heil-
brigður og algerlega helgaður við-
fangsefninu hverju sinni. Lífsklukk-
an tifaði þróttmikil án afláts, án
nauðsynlegs viðhalds, hvfldar og
næringar. Veikur hlekkur í klukku-
verkinu gaf sig að lokum.
Ég kveð góðan vin með sorg í
hjarta en jafnframt með í huga hlýj-
ar og góðar minningar. Ég veit, eins
og hann, að senn birtir til því þangað
sem ferðalaginu er heitið kunna þeir
að meta góða tónlist, margir spila á
hörpu eins og englar en gætu þurft á
aðstoð að halda við samhljóminn hjá
vönum manni.
Guðmundur Björnsson.
Mig setti hljóða þegar fréttin kom
frá íslandi. Ég átti bágt með að trúa
því að ég fengi ekki að sjá hann
Guðna okkar aftur. Þegar ég kvaddi
hann síðast fyrir rúmun tveimur
vikum, sagði hann: „Góða ferð, elsk-
an mín, skrifaðu nú bréf það er svo
gaman að lesa bréfin þín.“
Elsku Guðni, ég ber fyrst og
fremst þakklæti í hjarta að hafa
fengið að kynnast þér.
Tónlistin var þér í blóð borin og
það voru forréttindi að fá að vinna
hana með þér. Þú vildir að hljómur-
inn í kórnum væri þéttur og mjúkur,
og þitt sérstaka legato á orgelið
hreif okkur öll.
Þú varst alltaf til í að leyfa ný-
græðingum að spreyta sig. Eg man
þegar ég söng mitt fyrsta „sóló“. Ég
var skjálfandi á beinunum en þú ör-
uggur við orgelið. Á eftir sagðir þú:
Fínt hjá þér, elskan mín, einhvers
staðar verðið þið að byrja.
Mér þótti vænt um það þegar þú
hringdir í mig til Kölnar um jólin
þegar ég komst ekki heim. Þá varstu
einn í kirkjunni að leggja síðustu
hönd á jólatónlistina. Þú hringdir
svona rétt til að segja gleðileg jól og
til að láta mig vita hvaða prógramm
þú hefðir undirbúið.
Þú sýndir okkur í verki að sælla
er að gefa en að þiggja. Þú varst
alltaf til í að spila fyrir ánægjuna
eina saman. Kannski var þetta þinn
aðalstyrkleiki og um leið veikleiki,
því stundum gekkstu mjög nærri
sjálfum þér, því margir leituðu að-
stoðar þinnar.
Það var okkur öllum Ijóst að fram-
ar öllum í hjarta þínu stóðu Ella og
strákarnir ykkar. Ég veit að á þess-
um erfiðu tímum munt þú vaka yfir
þeim og gefa þeim styrk.
Núna ertu farinn frá okkur, Guðni
minn, og eftir sitjum við með sárt
ennið. Við erum þó lánsöm að eiga
góðar minningar í hugum okkar, svo
ekki sé talað um þann fjársjóð sem
útsetningamar þínar eru. Nú er það
okkar verkefni að láta lögin þín lifa
og í þeim munt þú lifa að eilífu.
Ég kveð þig með þökk í hjarta,
Magnea Tómasdóttir.
Stundum gerast hlutir í lífinu sem
eru svo óskiljanlegir að maður trúir
því ekki að þeir geti verið sannir.
Þannig er málum háttað nú hjá ætt-
ingjum og vinum hans Guðna sem
standa agndofa frammi fyrir þeirri
staðreynd að hann er skyndilega
tekinn frá okkur. Langt um aldur
fram. Ekki hvarflaði það að mér á
laugardagskvöld þegar við lukum
störfum okkar eftir langan dag, að
hann yrði allur örstuttu síðar.
Guðni var maður með mikla og
sérstaka hæfileika. Við munum ekki
finna annan mann sem hann. Hvers
manns hugljúfi.
Öðlingur sem ekkert aumt mátti
sjá. Mættur á staðinn strax og eitt-
hvað bjátaði á. Hann var alltaf til-
búinn til hjálpar og vildi leyfa öllum
að njóta starfskrafta sinna. Oftar en
ekki án endurgjalds.
Samstarf okkar hófst fyrir tutt-
ugu og tveimur árum og höfum við
mikið unnið saman allan þann tíma.
Ég á fiðlu, hann á orgel, píanó eða
nikku. Þegar við spiluðum saman
var engra orða þörf. Hann bara elti
mig. Ég var örugg þegar ég spilaði
með Guðna. En við vorum ekki bara
samstarfmenn. Hann var minn besti
vinur og ráðgjafi. Vinskapur okkar
veitti mér og syni mínum ómetan-
legt öryggi. Það verður sárt og
skrítið að lifa án tilvistar hans.
Tárin eru það gjald sem við greið-
um fyrir þá sem við elskum og þeir
voru margir sem elskuðu hann
Guðna. Nú er komið að skuldadög-
um.
Margs er að minnast,
margterhéraðþakka.
Guði sé lof fyrir liðna tíð.
Margseraðminnast,
margs er að sakna.
Guð þerri tregatárin stríð.
(V. Briem.)
Ég kveð þig, kæri vinur, með sorg
í hjarta, virðingu og þökk fyrir allt
það góða sem þú gerðir fyrir mig og
Frey. Þú varst mér sem besti bróðir
og Frey sem besti frændi. Skarð þitt
verður ekki fyllt en minningarnar
sem við eigum um þig munu ylja
okkur um ókomin ár.
Elsku Ella, Óli Maggi og Halldór
Örn! Við biðjum góðan Guð að gefa
ykkur styrk í sorg ykkar og söknuði.
Hvfl þú í friði kæri vinur.
Hrönn og Freyr.
Fallinn er í valinn, langt um aldur
fram mikill öndvegismaður og vinur,
Guðni Þórarinn Guðmundsson. Með
honum er genginn einn af fremstu
tónlistarmönnum þessarar þjóðar.
Snilld hans við hljóðfæraleik var
einstök. Leikni sem hans við tónlist-
arflutning var á fárra valdi og túlk-
un hans á helstu meistaraverkum
tónskálda þessa heims var með
besta móti. Hann var næmur á
blæbrigði þeirra í flutningi sínum
svo unun var á að hlýða. Þá var hann
farsæll kennari í hljóðfæraleik sem
og kórstjórnandi en það helgast
vafalaust af hinni léttu lund hans
ásamt nánast óþrjótandi umburðar-
lyndi og leikni í mannlegum sam-
skiptum. Þó gat hann verið fastur
fyrir ef þess þurfti við enda Guðni
alls ekki geðlaus maður. Um allt
þetta ber honum fagurt vitni góður
árangur kóra þeirra sem hann
stjómaði vaskri og öruggri hendi,
hvort sem var hjá Bústaðakirkju eða
lögvörslumönnum í Reykjavík.
Af framansögðu má Ijóst vera
hvers vegna hann var svo vinsæll og
eftirsóttur til góðra verka sem raun
bar vitni. En hjálpsemi Guðna og
rausnarskapur við okkur vini sína
og samferðamenn átti sér engin tak-
mörk. Hann mátti ekkert aumt sjá
og reyndi, oft umfram getu, að rétta
hjálparhönd. Þessi fórnfýsi hans var
honum orðið nokkurt fótakefli sem
helgast af því að vinnudagur hans
var oftast langt umfram það sem
hollt má teljast sköpunarverki Höf-
uðsmiðsins.
Guðni átti afskaplega erfitt með
að neita nokkurri bón og tók oftast
ekki við launum að verðleikum en
ávann sér virðingu manna og aðdá-
un með verkum sínum. Það mátti
vart gera honum smáviðvik og hon-
um fyndist hann ekki skuldbundinn
manni um það margfalt. Það má
segja að hann hafi snúið við máltæk-
inu þar sem sagt er sem svo að það
megi ekki rétta manni litla fingur
svo hann taki ekki alla höndina,
vegna þess að ef maður rétti Guðna
„litlafingur" þá vildi hann helst
greiða fyrir með öllum „búknum".
Stuttu fyrir andlát hans er fundum
okkar bar saman minntist hann á
stórafmæli mitt sem nýliðið er. Þar
tók hann af mér loforð þess efnis að
ég mætti ekki fyrir nokkrum mun
halda upp á það öðruvísi en að bíða
eftir því að ljóst yrði hvenær hann
færi utan. Ástæðan fyrir þeirri bón
hans var sú að hann vildi koma þar
að með hljóðfæraslætti og tilheyr-
andi umstandi því ég ætti svo mikið
inni hjá honum! Ljóst er að því er
vissulega á annan veg farið. Verst er
að úr þessu tekst mér víst ekki að
gjalda Guðna til fulls greiða hans og
vinaþel við mig og fjölskyldu mína
um hartnær tveggja áratuga skeið.
Skarð er nú fyrir skildi hjá fjöl-
skyldu Guðna og vinahópi. Það get-
ur í raun enginn komið í stað Guðna,
svo sérstakur var hann. Saknað er
góðs vinar sem allt vildi á sig leggja
öðnim til hjálpar.
Ég þakka af heilum hug fyrir mig
og mína og bið föður mildinnar að
annast hann, hann sem
„ekkertlæturólaunað,
sem innst er fóm úr hjartastað".
Þorsteinn Halldórsson.
Elsku Guðni minn. Það setti mig
hljóða að þú værir farinn frá okkur
langt fyrir aldur fram. Ég er viss um
að Guð og englarnir, mamma og
pabbi, Sella, Gunna og Olli hafa ör-
ugglega tekið vel á móti þér. Minn-
ingarnar streyma í huga minn sem
eru ótal margar sem ég gleymi
aldrei. Öll símtölin sem við áttum í
vetur og sumar er ég mjög þakklát
fyrir.
Guðni minn, ég þakka fyrir sam-
veruna og bið Guð að geyma þig. Ég
kveð þig með þessum sálmi eftir afa
minn.
Pín elska nær til allra manna
þóttefmnhaldi þeim
og lætur huldar leiðir kanna
að ljóssins dýrðarheim.
Vér skulum þínir vottar verða
og vitnisburður um stórmerki þín bera,
því þú ert eilíf ást og náð
og öllum sálum hjálparráð.
Elsku Ella mín, Óli Maggi og
Halldór, Dóra, Baddy og Konni, ég
veit þið eigið um sárt að binda.
Stefanía.
Sagt er stundum að hlutirnir komi
og fari og vera má að svo sé einnig
með vini. Guðni var vinur minn og
fór aldrei þó stundum liði eitt til tvö
ár á milli að við hittumst. Það var
gott og skemmtilegt að eiga hann
sem vin.
Ég hygg að það hafi verið sumarið
1965 að umboðsmaður hljómsveita
bað mig að skreppa norður í Víðihlíð
og spila á balli með nokkrum strák-
um. Ég sló til og þar var í hópnum
17 ára glókollur sem spilaði ótrúiega
vel á hljómborð og hannonikku.
Einhvern veginn small strax saman
með okkur Guðna og við stofnuðum
tríó ásamt Einari Blandon. Guðni
spilaði með okkur um allt land
næstu 4 árin eða þar til hann ákvað
að halda í organistanám til Kaup-
mannahafnar.
Ég fór í heimsóknir þangað.
Guðni og Elín fóru ótrúlega létt með
að hafa gesti og greiða götu þeirra
enda var oft sagt í gríni að þau væru
nokkurs konar „sendiherrar" í
Kaupmannahöfn. Guðni var með
sanni „reddari" af Guðs náð.
Að námi lokni réðu hjónin sig til
kennslu hjá mér í Snælandsskóla í
Kópavogi og það var stórkostlegt að
hafa þau í kennaraliðinu.
Guðni var framúrskarandi greið-
vikinn og vildi allt fyrir alla gera.
Sem dæmi sagði ég við hann fyrir
nokkrum árum, að það væri ómögu-
legt annað en hann kæmi með sinn
þekkta Bjöllukór til okkar í Gríms-
ey. Eftir stuttan tíma hringdi hann
og tilkynnti að allt væri klappað og
klárt. „Við komum“ sagði hann og
það var ógleymanleg skemmtun fyr-
ir eyjarbúa.
Guðni skilur eftir sig mikið tóma-
rúm í tilverunni. Maður spyr af
hverju hann var kallaður í blóma
lífsins. Mér dettur helst í hug svar
sem einstæð móðir gaf fyrir mörg-
um árum í Vesturbænum. Hún hafði
misst einkason sinn ungan. Fólki
fannst hún ekki mjög sorgmædd
dagana á eftir og kona nokkur
spurði hana hvers vegna svo væri.
Hún sagði: Guð þurfti meira á hon-
um að halda en ég!
Ef til vill er það svo með Guðna
vin minn. Ég get alveg séð hann fyr-
ir mér stjórnandi hinum ýmsu
„englakórum“ og „reddandi" einu og
öðru í tónlistarlífi á æðri stöðum.
Elín - Óli og Halldór, megi Guð
ganga með ykkur.
Dónald Jóhannesson -
skólastjóri - Grímsey.
Kær frændi, vinur og félagi hefur
kvatt. Svo snöggt, svo allt of fljótt.
Guðni bjó á heimili foreldra minna
er hann var við nám í Reykjavík.
Hann fylgdi mér oft inn í drauma-
landið með óþrjótandi ævintýrum og
sögum.
Seinna fékk ég að taka þátt í
ýmsum ævintýrum í lífi hans. Sigla
með honum á bátnum út í Viðey og
renna e.t.v. íyrir fisk, út í óvissuna á
vélsleðanum og hingað og þangað á
mótorhjólinu.
Ég kveð kæran frænda með þökk
fyrir gleðina, hlýjuna og tónlistina.
Kristbjörg Hrund
Sigtryggsdóttir.
• Fleiri minningargreinar
um Guðna Þórarin Guðmundsson
bíða birtingar og munu birtast í
blaðinu næstu daga.
t
Hugheilar þakkir til allra þeirra sem sýndu
okkur hlýhug og samúð við andlát og útför
elskulegs unnusta, sonar, bróður og fóstur-
sonar,
BJÖRNS HÓLM ÞORSTEINSSONAR,
írabakka 12,
Reykjavík.
Samúð ykkar veitir okkur öllum styrk.
j^Suð geymi ykkur.
Edith Oddsteinsdóttir,
Járnbrá Hilmarsdóttir,
Ómar Matthíasson,
systkini og aðrir aðstandendur.
t
Innilegar þakkir til allra sem sýndu okkur
samúð og vinarhug vegna andláts elsku-
'“-'ífegrar eiginkonu minnar, móður okkar og
tengdamóður,
GUÐRÚNAR ARNALDS,
Barmahlíð 13,
Reykjavík.
Þorsteinn Arnalds,
Hrefna Arnalds, Sigurður Gils Björgvinsson,
Ari Arnalds, Sigrún Helgadóttir,
Hallgrímur Arnalds, Helga Eyfeld.
t
Innilegar þakkir til allra þeirra sem sýndu
*fcokkur samúð og hlýhug vegna andláts og
útfarar
BERGLJÓTAR STEFÁNSDÓTTUR,
Norðurvöllum 24,
Keflavík.
Sérstakar þakkir færum við starfsfólki
heimahlynningar Krabbameinsfélagsins og
dagdeildar A3, Sjúkrahúsi Reykjavíkur, Fossvogi.
Böm, tengdabörn og barnabörn.
Innilegar þakkir fyrir auðsýnda samúð og
vinarhug við andlát og útför ástkærrar eigin-
'konu minnar, móður, tengdamóöur og ömmu,
STEINUNNAR ÁGÚSTU ÓLAFSDÓTTUR.
Sérstakar þakkir sendum við hjúkrunarfólki á
deild 11-E á Landspítala við Hringbraut fyrir
alla þá alúö og umönnun sem hún naut þar
undanfarin ár.
Hreinn Helgason
og fjölskylda.
+
Þökkum sýndan hlýhug, samúð og virðingu við andlát og útför sonar
míns og sonarsonar okkar,
GUNNARS VIÐARS ÁRNASONAR,
Lindasmára 3,
Kópavogi.
Sérstakar þakkir til allra vina hans og vandamanna.
j Árnl G. Frederiksen
Gunnar V. Frederiksen, María E. Frederiksen.