Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 56

Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 56
i S6 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 MORGUNBLAÐIÐ HESTAR MorgunDiaðið/valdimar Berglind Rósa var að ná góðum tökum á Gleði frá Skarholti og var þriðja í gæðingaskeiði. „Hvað skyldi ég nú fá fyrir stökkið?" gæti Sigfús Brynjar verið að hugsa meðan Vignir Jón- asson lagfærir hófhlífar Kolbrúns frá Dalsmynni fyrir skeiðið í úrslitum ungmenna. Norðurlandamótið 1 Seljord Unga fólkið sannaði til- verurétt sinn Norðurlandamótin hafa fest sig vel í sessi og má gera ráð fyrir að vefflir þeirra aukist á komandi árum. Þótt Islendingar hafí ekki teflt fram sínum sterkustu trompum á þessum mótum hafa þeir lengst af átt þar góðu gengi að fagna. Valdimar Kristinsson sem var á mótinu í Seljord veltir hér upp ýmsum hliðum þess. Norðurlandamótið sem haldið var í Seljord í Noregi fyrir rúmri viku er enn ein staðfestingin á vexti og viðgangi mótanna. Sér í lagi virðist þátttaka unglinga og ung- 'menna í mótinu hafa fest sig í sessi en sérstaka ánægju vekur góð frammistaða þeirra. Á það ekki síst við um skeiðgreinarnar og kemur þar tvennt til. I fyrsta lagi virðast krakkamir hafa aðgang að mjög góðum skeiðhestum og að sama skapi virðast þau sem þama mættu til leiks búa yfir góðri tækni og kunnáttu á að taka hross til skeiðs. Mátti þar sjá prýðilega útfærða skeiðspretti sem hver fullorðinn hestamaður gæti verið rígmontinn af. Vegur skeiðsins vaxandi Af unglingum má nefna Kristine Segall frá Danmörku sem sigraði í íimmgangi unglinga á Kjama frá Tryevolddal og íslendinginn Sverri Brynjólfsson sem reyndar keppti fyrir Svíþjóð á Frama frá Stóra- Langadal en þeir sigmðu í gæðinga- skeiði unglinga og urðu í öðra sæti í fimmgangi. Kristján Magnússon og Berglind Rósa Guðmundsdóttir urðu í fjórða og fimmta sæti með ágæta skeiðspretti en Berglind varð þriðja í gæðingaskeiði. Bæði hafa þau Kristján og Berglind nú þegar talsverða reynslu af skeiðreið og hefðu líklega barist um sigur sín á milli hefðu þau verið á hestum sínum agm þau vora með í úrslitum á ís- landsmótinu á Melgerðismelum. Þá varð Berglind í þriðja sæti í gæð- ingaskeiði. Hinrik Þór Sigurðsson sigraði í gæðingaskeiði ungmenna eftir harða keppni við hina sjóndöpra Matildu Normann frá Svíþjóð. Má ætla að fari efnilegir skeiðreiðmenn en sú síðamefnda hefði verið í verð- launasætum í fullorðinsflokki í bæði flugskeiði og 250 metranum. Er von- andi að hún haldi þeirri litlu sjón sem hún hefur svo að henni verði fært að stunda þessa spennandi íþrótt sem hún er svo góð í. Skeiðið nýtur mikilla vinsælda þar sem ís- lenski hesturinn hefur náð góðri fót- festu og knapamir hafa komist yfir skeiðlullstímabilið. Svíar standa mjög vel að vígi í skeiðinu og virðast hafa náð mjög góðum tökum á því eins áður hefur gerst í Þýskalandi þar sem margir knapar sem ná ár- angri sækja í ríkari mæli yfir í skeið- hestana. Svipuð þróun virðist vera annarsstaðar á Norðurlöndunum. Rýmri tíma til skráninga Hvað varðar þátttöku ungmenna og unglinga frá íslandi era mögu- leikar þeirra alltaf bundnir því hversu heppin þau era með hesta sem þau fá lánaða. Þrátt fyrir að hestakosturinn hafi ekki verið alveg í samræmi við væntingar, og er þá fyrst og fremst átt við þjálfunar- ástand hrossanna, skiluðu krakkarn- ir ágætum árangri. Olil Amble, að- stoðarmaður Vignis Jónassonar landsliðeinvalds, sagði að hestarnir hefðu ekki verið í því formi sem reiknað hefði verið með. Skammm- tími hefði liðið frá því krakkarnir komu út og þar til keppnin hófst og því ekki verið möguleiki á að koma þeim í sitt besta form. Vignir benti á að fá þyrfti undanþágu frá þeim reglum sem gilda um skráningu þannig að ekki þyrfti að skrá ís- lensku krakkana á ákveðna hesta fyrr en á síðustu stundu. Hann benti á að ef undanþága hefði fengist frá þessum tímamörkum hefði verið hægt að finna betri hross í sumum tilvika á síðustu stundu þegar ijóst var að einstök hross væra ekki í nógu góðu ástandi fyrir keppni. Sagðist Vignir hafa fært þetta í tal Kristine Segall frá Danmörku stúð sig vel í fimmgcingi á Kjarna frá Tyrevoldsdal og sigraði enda skeiðið flott og áseta fín. i' M iv ipl “r. Jóhann R. Skúlason og Þytur á fullri ferð í fimmgangi. við aðstandendur annarra liða og þeir hefðu sýnt fúllan skilning á þessari sérstöðu íslendinga. En það eitt dugar ekki til, sagði Vignir, því svona lagað þarf að taka fyrir á fundum Norðurlandaþjóðanna þar sem fjallað er um þessi mót. Vægi Norðurlandamótanna er ekki orðið slíkt að menn fari sérstaklega með hross frá íslandi í þeim aðaltilgangi að taka þátt í Norðurlandamóti. Bankað á dyr HM-liðsins En það er annað vægi sem Norð- urlandamótin virðast bjóða íslend- ingum sem búa erlendis nú þegar farið er að velja þá til þátttöku í heimsmeistaramótum. Með góðri frammistöðu á Norðurlandamóti fyrir hönd íslands leggja menn inn fyrir hugsanlegt val í íslenska landsliðið að ári þegar heimsmeist- aramótin verða haldin og barist verður af mikilli einurð um sæti i lið- inu. Má til að mynda ætla að augu væntanlegs landsliðeinvalds, hver sem það nú verður, muni beinast að Hinriki Bragasyni og Farsæli frá Arnarhóli hafi hann aðgang að hest- inum fram yfir HM. Þeir stóðu sig með mikilli prýði í bæði tölti og fjórgangi, voru reyndar hinir öraggu sigurvegarar í báðum greinum. Er því hægt að ætla að Hinrik hafi verið fyrstur til að tryggja sér prik fýrir væntanlegt val. Sömu sögu má segja um Jóhann G. Jóhannesson sem átti góða daga í Seljord á Hrönn frá Godemoor þótt ekki tækju þau titla að þessu sinni. Hryssan sem er að- eins sex vetra gömul er gott betur en efnileg því hún stóð sig með miklum ágætum. Voru þau fram á síðustu stundu í harðri keppni um sigur í samanlögðu. Þau unnu sig upp í ann- að sæti í fimmgangsúrslitum og voru í úrslitum í slaktaumatölti. En eftir- tektarverðast við frammistöðu hryssunnar á mótinu era tímarnir sem hún skilaði í 250 metra skeiði. Jóhann sagði þetta fýrsta skipti sem

x

Morgunblaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.