Morgunblaðið - 22.08.2000, Qupperneq 63
MORGUNBLAÐIÐ
ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
IDAG
BRIDS
Bmsján Guðmiindur
Páll Ariiarsun
OFT leynist mikið líf í búta-
spilum, enda möguleikarnir
margir þegar styrkurinn er
jafnt skiptur milli sóknar og
varnar. Á iandsliðsæfingu
fyiir nokkru varð Guðlaug-
ur R. Jóhannsson sagnhafi í
einu grandi í suður eftir opn-
un Arnar Arnþórssonar í
norður á hjarta og grand-
svar Guðlaugs. í vörninni
voru Matthías Þorvaldsson
og Þorlákur Jónsson:
Norður
♦ D982
¥ KG76
♦ 3
♦ AG103
Vestur Austur
*Á104 aK763
*D108 VÁ632
♦ KG1074 «9
+92 +D874
Suður
+G6
¥94
♦ ÁD8652
+K65
Matthías kom út með tíg-
ulgosa, sem Guðlaugur átti
heima á drottningu og lagði
strax niður tígulás og henti
spaða úr borði. Þorlákur í
austur henti líka spaða og þá
var ljóst að engin framtíð
var í tíglinum. Guðlaugur
spilaði næst hjarta á gosann
og fékk að eiga slaginn.
Hann lét lauftíuna rúlla
framhjá drottningu austurs
og spilaði svo laufi á kóng.
Fimm slagir komnir i hús og
einn „öruggur" í borði á
laufás. En nú fór að koma til
kasta varnarinnar. Guðlaug-
ur spilaði hjartaníu upp á
kóng og ás austurs. Þorlák-
ur spilaði aftur hjarta yfir á
drottningu Matthíasar og þá
var staðan orðin svona:
Norður
+ D98
♦ 7
♦ ÁG
Vestur Austur
+Á104 +K76
V— ¥5
♦ K107 ♦-
+— +D8
Suður
+G5
¥—
♦ 865
+6
Vestur er inni á hjarta-
drottningu. Matthías tók á
tígulkóng og Guðlaugur
varð að henda laufgosa úr
borði. Þorlákur henti þá
laufáttu. Næst kom tígultía
og nú er blindur í alvarleg-
um vandræðum. Guðlaugur
henti hjartasjöunni, sem var
fríspil og Þorlákur lauf-
drottningu. Því miður, því
nú var laufhótunin farin og
samningurinn fór aðeins
einn niður. En ef Þorlákur
hendir spaða, spilar Matt-
hías smáum spaða næst á
kóng Þorláks og þegar aust-
ur tekur nú slag á hjarta-
fimmu, þvingast blindur aft-
ur með D9 í spaða og laufás!!
Ef eitthvað er „keðju-
þvingun" þá er það þetta.
MORGUNBLAÐIÐ birtir
tilkynningar um afmæli,
brúðkaup, ættarmót og
fleira lesendum sínum að
kostnaðarlausu. Tilkynning-
ar þurfa að berast með
tveggja daga fyrirvara virka
daga og þriggja daga fyrir-
vara fyrir sunnudagsblað.
Samþykki afmælisbarns
þarf að fylgja afmælistil-
kynningum og/eða nafn
ábyrgðarmanns og síma-
núrner. Fólk getur hringt í
síma 569-1100, sent í bréf-
síma 569-1329, eða sent á
netfangið ritstj @mbl.is.
Einnig er hægt að skrifa:
Árnað heilla,
Morgunblaðinu,
Kringlunni 1,103
Reykjavik
Arnað heilla
/?/\ ÁRA afmæli. í dag,
ö V/ þriðjudaginn 22.
ágúst, verður sextugur Jón
Kr. Ólafsson söngvari,
Reynimel, Tjarnarbraut 5,
Bíldudal. Hann er að heim-
an í dag.
BRUÐKAUP. Hinn 3. júní
sl. voru gefin saman í Bæl-
um-kirkju í Danmörku Kar-
in Sorensen og Sævar Unn-
ar Ólafsson. Einnig var
sonur þeirra, Johannes Eli-
as, skírður sama dag. Heim-
ili þeirra er á Vestergade 8a,
9574 Bælum, Danmörku.
Ljósmyndastxjfan í Mjódd
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 3. júní sl. í Hafnar-
fjarðarkirkju af sr. Þórhalli
Heimissyni Herdís Þor-
láksdóttir og Sigurður
Magnús Jdnsson. Heimili
þeirra er í Lautasmára 5,
Kópavogi.
BRÚÐKAUP. Gefin voru
saman 22. apríl sl. í Djúpa-
vogskirkju af sr. Sjöfn Jó-
hannesdóttur Birgitta
Helga Sigurðarddttir og
Eiður Agúst Jónsson.
Heimili þeirra er í Jörfaseli
22, Reykjavík.
SKAK
Umsján llelgi Áss
Grélarsson
RIDDARAGAFFALL er
með skemmtilegri taktísk-
um stefum sem upp geta
komið í skák. Óvenjulegt er
að sami riddarinn geti gaffl-
að oftar en einu sinni í hverri
skák. í stöðunni og í fram-
haldinu tókst litháíska skák-
manninum G. Sarakauskas
(2381), svart, að töfra slíkt
fram gegn Petr
Pisk (2400) í
Proclient mót-
inu í Olomouc.
20...Hxg2! 21.
Hxg2 Rd3+ 22.
Kbl Rxel 23.
Hgl Rd3 24.
Kc2 Rf4 25.
Hg7 h5 26.
Hgl e5 27.
Rf5+ Bxf5 28.
exf5 Hxc3+!
Aftur og
nýbúinn! 29.
Kxc3 Re2+ 30.
Kb4 Rxgl 31.
Bd5 b6 32. Bb7
Kd6 33. Bxa6
Rxf3 34. Be2
e4 35. a4 h4 36. h3 Rd4 37.
Bg4 Ke5 38. Kc4 e3 39. Kd3
Rxf5 40. Bh5 Kf4 41. Bxf7
Kf3 og hvítur gafst upp
saddur lífdaga.
LJOÐABROT
SIGHVATR ÞORÐARSON
Um 995-1045
Kátr var ek oft, þá er úti
örðigt veðr á fjörðum
vísa segl, í vási,
vindblásit skóf Strinda;
hestr óð kafs at kostum
(kilir ristu men Lista),
út þar er eisa létum
undan skeiðr at sundi.
ÓTTARR SVARTI
Um 1023
Skáruð sköfnu stýri,
skaut, sylgháar bylgjur,
lék við hún á hreini
hlunns, þat er drósir spunnu.
STJORNUSPA
eftir Frances llrake
LJON
Afmælisbarn dagsins:
Þú hefur sterka eðlisávísun,
sem bjargar þérfram hjá
alls kyns misvísandi skila-
boðum. Vertu kátur.
Hrútur
(21. mars -19. apríl)
Það er til lítils að hafa mörg
orð um hlutina ef þeim fylgja
engar athafnir. Settu í þig
kraft, brettu upp ermarnar
og láttu svo verkin tala.
Naut
(20. apríl - 20. maí)
Til þess að öðlast viðurkenn-
ingu annarra þarftu að upp-
fylla þau fyrirheit sem þú
hefur gefið. Það ætti hins
vegar ekki að reynast þér
erfitt.
Tvíburar . ^
(21. maí - 20. júní)
Það er svo sem gott og bless-
að að telja sig geta lesið í hug
annarra. En til að forðast all-
an misskilning skaltu samt
ræða málið við viðkomandi.
Krdbbi
(21. júní-22. júlí) ^ffifc
Vandamálin hverfa ekki þó
að þú sópir þeim undir teppið
svo það er eins gott að ráðast
strax á þau meðan þú hefur
tækifæri til. Strax þýðir
strax!
Ljón
(23. júlí - 22. ágúst) M
Það getur skipt sköpum að
beita réttum aðferðum til
þess að ná árangri. Sýndu
ákveðni en vertu varkár um
leið og þá er sigurinn innan
seilingar.
Meyja
(23. ágúst - 22. sept.) vUhL
Það getur alltaf eitthvað far-
ið úrskeiðis á ferðalögum svo
þú skalt vera við öllu búinn,
Leyfðu þér samt að njóta
þess sem í boði er.
'tCTx
(23. sept.-22.okt.)
Taktu þig saman í andlitinu
og leitaðu eftir þeirri viður-
kenningu sem þú átt skilið
fyrir verk þitt.Þá munu efa-
semdir í þinn garð gufa upp.
Sþorðdreki
(23. okt. - 21. nóv.)
Þér er nauðsynlegt að festa
alla lausa enda svo þú getir
byrjað með hreint borð. Það
er ekkert rangt við það að
taka rökum og skipta um
skoðun.
Bogmaður m ^
(22. nóv. - 21. des.) ffaO
Það er góð regla að vera við
öllu búinn þannig að óvænt
atvik setji ekki allt úr skorð-
um. Erfitt samtal sem þú
kvíðir mun reynast þér auð-
velt.
Steingeit ^
(22. des. -19. janúar) <mÍP
Vertu fyrst og fremst sannur
í samskiptum þínum við aðra
og gættu þess að lofa ekki
upp í ermina á þér. Farðu vel
með það vald sem þú hefur.
Vatnsberi , «
(20. jan. -18. febr.) CSw
Gættu þess að blanda þér
ekki um of í málefni annarra
því það gæti orðið til þess að
þér verði kennt um annarra
mistök. Haltu þig við þitt.
Fiskar
(19. feb. - 20. mars)
Atburðarásin mun taka öll
völd úr höndum þér ef þú
ekki stingur við fótum og
nærð stjórn á hlutunum.
Fylgdu eðlisávísun þinni.
Stjörnuspána á að lesa sem
dægrndvöl. Spár af þessu tagi
eru ekki byggðar á traustum
grunni vísindalegra staðreynda.
ÖRYGGIS-
HJÁLMAR
ONDUNAR
GRÍMUR
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 566 7295
ARVIK
ÁRMÚLA 1 • SÍMI 568 7222 • FAX 568 7295
Barnamyndatökur
á kr. 5.000.-
Myndataka, þar sem þú ræður hve stórar 03
hve margar myndir þú færð, innifalið ein
stækkun 30x40 cm í ramma. Aðrar stækkarnir
með 60% afslætti.
LJósmyndastolan Mynd sími: 565 4207.
Uósmyndastofa Kópavogs síml: 554 3020.
(ftsal a t!
I Glæsilegar yfirhafnir
OpiO lauuardaii (hí kl. 10 - / 'ACin 16
\o\A nl/l_)ltj Mörkinni 6, sími 588 5518 Bílastæði við búðarvegginn.
Fræðsluauglýsing frá Landlæknisembættinu
www.landlaeknir.is
Að sprauta sig
eða ekki
- það er spurningin
Þegar hafa yfir 600 manns á
íslandi greinst með lifrarbólgu C.
Langflestir fengu sjúkdóminn
vegna fíkniefna sem sprautað
var í æð. Á komandi árum
munu margir verða fyrir
varanlegu heilsutjóni vegna
sjúkdómsins og þjóðfélagið mun
bera umtalsverðan kostnað.
• Lifrarbólga C er bráður og viðvarandi
sjúkdómur
• Sjúkdómurinn er venjulega einkennalaus
þar til skorpulifur myndast
• 15-20% af þeim sem eru með viðvarandi
sýkingu fá skorpulifur innan 20-30 ára
frá smiti.
• 1-5% af þeim sem eru með viðvarandi sýkingu fá lifrarfrumu-
krabbamein
• Áhættan á lifrarfrumukrabbameini hjá þeim sem eru með
skorpulifur er 1-4% á ári hverju
Eina raunhæfa leiðin til að draga úr útbreiðslu sjúkdómsins
er að stemma stigu við fíknefnaneyslu í landinu með
öllum tiltækum ráðum.
Landlæknisembættið
&
W
a