Morgunblaðið - 22.08.2000, Síða 64
MORGUNBLAÐIÐ
\S4 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000
T.EIKFÉLAG ÍSLWDS
tasMMu 552 3000
THRILLER sýnt af NFVÍ
lau. 26/8 kl. 20.00. örfá sæti laus
lau. 2/9 kl. 20.00
PANODIL FYRIR TVO
fös. 1/9 kl. 20.00
Síðustu sýningax
530 3030
JÓN GNARR. Ég var einu sinni nörd
fös. 25/9 kl. 20
lau. 2/9 kl. 20
Miðasalan er opin í Loftkastalanum og Iðnó frá kl.
11-17. A báðum stöðum er opið fram að sýningu
sýningarkvöld og um helgar þegar sýning er. Miðar
óskast sóttir í viðkomandi leikhús. (Loftkastalinn/
Iðnó). Ath. Ósóttar pantanir seldar 3 dögum fyrir
sýningu.
V/SA
VAKORT
Eftirlýst kort nr.
4543-3700-0029-4648
4543-3700-0036-1934
4543-3700-0034-8865
Afgreiðslufólk, vinsamlegast takið
ofangreind kort úr umferð og
sendið VISA íslandi sundurklippt.
VERÐLAUN kr. 5000
fyrir að klófesta kort
og vísa á vágest
VISA ÍSLAND
Áifabakka 16,
109 Reykjavík.
Sími 525 2000.
VISA
KaííiLeikhúsið
Vesturgötu 3
mið. 23. ágúst kl.21:00
Zenker/Kappe 4tet jass-
kvartett frá Hollandi
lau. 26. ágúst kl. 22:00
Hljómsveitin Casino
hanastélstónleikar
MIÐASALA í síma 551 9055
Sýnt í Tjarnarbíói
Sýningar hefjast kl. 20.30
fös. 25/8
lau. 26/8 uppselt
lau. 2/9
lau. 9/9
Miðapantanir í síma 561 0280.
Miðasölusími er opinn aila daga kl. 12-19.
Miöinn gildir 2 fyrir 1 í Argentína steikhús.
Ath. ósóttar pantanir, seldar 2 dögum f. sýn.
THiii
ISI I \SKV 01*1 «5\\
==!im Sími 511 4200
Gamanleikrit í leikstjórn
Siguröar Sigurjónssonar
lau 26/8 kl. 20
fös 1/9 kl. 20
Miðasölusími 551 1475
Miðasala opin kl. 15—19 mán—lau.
og fram að sýningu sýningardaga.
Símapantanir frá kl. 10.
tí Loftkastali
miðasala í sfma:
ATH. Síðlistu sýmtgar
Laugardagurinn 26. ágúst
a Föstudaginn 1. ^eptémber
ÞaS er mikils krafist
af leikhópnum
og hann stendur
undir þvi.”
~ Þ.T. MBL.
Uh. Sýningar hefjastki. 20.00
Gamansöngleikur byggður á
lögum Michael Jackson
VINSÆLASTA LEIKSÝNING ALLRA TÍMA A fSLANDI:
HeUisbímm
BJARNT HAÚK\m
AUKASÝNINGAR
VEGNA MIKILLAR
EFTIRSPURNAR:
Laugardaginn
Föstudaginn
26/8 kl. 20.00
1/9 kl. 20.00
MIÐASÖLUSÍMI 551-1475
FÓLK í FRÉTTUM
Nr. var vikur Mynd Útgefandi Tegund
I. NÝ l American Beauty Sam myndbönd Drama
2. l. 4 The Whole Nine Yards Myndform Gaman
3. 2. 3 Finnl Destination Myndform Spenna
4. 6. 2 Stigmata Skífan Spenna
5. 3. 5 The Green Nlile Hóskólabíó Drama
6. 12. 2 Mystery Alaska Snm myndbönd Gaman
7. II. 2 Fíaskó Hóskólobió Gaman
8. 4. 6 Double Jeopardy Sam myndbönd Spenna
9. 5. 6 Dogma Skifan Gaman
10. 15. 2 Ghost Dog: The Way of the Samurai Bergvík Spenna
II. 7. 4 Bringing Out the Dead Sam myndbönd Drama
12. 8. 8 The Bone Collector Skífnn Spenna
13. 9. 5 Magnolia Myndform Drama
14. 10. 6 The Insider Myndform Drama
15. NÝ l Anywhere But Here Skífon Drama
16. 14. 4 Bicentenniul Man Skífan Gaman
17. 13. 3 The Limey Sam myndbönd Spenna
18. 17. 4 Flawless Góðar stundir Gaman
19. NÝ l Tarzan Sam myndbönd Teikni
20. 16. 5 Anna and the King Skífan Droma
iilmiixrimiiiiximixixrim
Reuters
Miðaldra Kevin Spacey fellur
kylliflatur fyrir táningsstúlk-
unni Mean Suvari í hinni róm-
uðu Amerískri fegurð.
Fagurt á
toppnum
AMERÍSK fegurð, handhafi Ósk-
arsverðlaunanna sem besta mynd
síðasta árs, kom út á myndbandi
hér á landi í síðustu viku og fór vit-
anlega beint á toppinn. Þessi mynd
breska leikhúsmannsins Sams
Mendes hefur enda hlotið fádæma
viðtökur bæði almennings og gagn-
rýnenda sem keppst hafa um að lofa
þessa gráglettnu lýsingu á hvers-
dagslegu úthverfalífi fjölskyldna
sem í fyrstu virðist ósköp venjulegt,
slétt og fellt. Myndin hlaut alls 5
Óskarsverðlaun en auk þess að vera
valin besta myndin var Mendes val-
inn besti leikstjórinn, Spacey besti
karlleikari í aðalhlutverki og hand-
ritið var valið það besta, sem og
tónlist og klipping. Mendes sneri
aftur á fjalirnar eftir að hafa komið
niður á jörðina á ný en brátt mun
hann snúa sér aftur að kvikmynd-
unum og herma fregnir frá Holly-
wood að hann eigi í viðræðum um
að taka að sér að leikstýra Tom
Hanks í mynd um myndasöguper-
sónuna Engil dauðans.
Svo taka myndirnar, sem komu
inn nýjar í síðustu viku, kipp;
„Mystery Alaska“, sem er íshokkí-
mynd með Russell Crowe, íslenska
myndin „Fíaskó“ og „Ghost Dog:
The Way of the Samurai" sem er
nýjasta mynd hins mikils metna
Jims Jarmusch, konungs óháðu
kvikmyndagerðarinnar. Ekki er lík-
legt að „Fegurðin" verði flæmd af
toppi næsta lista - jafnvel þótt
klassamyndir á borð við „Man on
the Moon“ með Jim Carrey í hlut-
verki grínistans Andys heitins
Kaufmann og „Jóhanna af Örk“
með augum franska leikstjórans
Lucs Besson séu væntanlegar á
leigurnar.
er áttavitinn?
Hvar
TONLIST
Geisladiskur
SNERTIN G
Snerting, geisladiskur Jóhannes-
ar Snorrasonar. Jóhannes sér
einn um allan hljóðfæraleik og
forritun, semur tónlist, útsetur og
stýrir upptökum. 44,25 mín. Jó-
hannes Snorrason gefur út.
ÞAÐ ER orðið sífellt sjaldgæf-
ara að maður heyri tónlist sem
kemur beint frá hjartanu nú til
dags. Áhersla dægurtónlistar-
markaða Vesturlanda er á að selja
fyrst og fremst, tónlistin sem slík
skiptir hvað minnstu máli. Þrýst-
ingur um frægð, frama og fé
skekkir oft á tíðum sýn listamanna
sem gerir að verkum að margir
þeiira eru vart með sjálfum sér ef
svo mætti að orði komast, hins veg-
ar eru þeir með markaðsmógúlum
og ímyndarfræðingum. Það er
helst að leita til hinnar svonefndu
„heimstónlistar“ eður þjóðlaga-
tónlistar til að fínna tónlistarsköp-
un sem er laus undan áðurnefndu.
Stundum þarf þó ekki að leita
svo langt eftir hinum „hreina“ tóni.
Ef þér hugnast einlæg og ástríðu-
full tónlist þar sem menn eru al-
gerlega með sjálfum sér nægir að
líta til hamfarapoppsins íslenska. Á
þeim bænum gefa menn jafnan út
sjálfir, sem ætti að tryggja að ekki
nokkur sála sé með puttana í sýn
listamannanna. Þeir gera í raun
nákvæmlega það sem þeim sýnist
og láta sig litlu varða hvað er að
gerast úti í hinum stóra poppheimi,
hvað þá að þeir séu að pæla í því
hvað mammoni kallinum finnst. Og
iðulega setja þeir poppfræðinga og
áhugamenn um skilgreiningar í
mikinn vanda. „Snerting“ uppfyllir
öll þessi skilyrði, platan inniheldur
algerlega óflokkanlega tónlist sem
kemur miklu hausklóri af stað. Ég
stend ekki á skýi við hlustun. Ég
stend á gati.
Platan er öll án söngs og inni-
heldur einhvers konar raftónlist.
Það er þó lítið hald í þessari skýr-
ingu og skynsamlegast er að rekja
sig í gegnum hvert lag fyrir sig,
enda kallar eðli plötunnar á slíkt,
svo margræð er hún.
Fyrsta lagið byrjar á drungaleg-
um tölvudrunum og rennur svo yfir
í einhvers konar blöndu af vélpönki
(e. cyberpunk) og hallæristæknói.
Nýrómantískur svuntuþeysara-
bragur (e. synthesizer) liggur
sterkt yfír laginu, svo og reyndar
öðrum lögum. Þetta er svo skreytt
með torkennilegu tölvukuklsgítar-
sólói. Ferðin til áður óþekktra
vídda í tónlist hefst með glæsibrag
eins og sjá má.
Annað lagið samanstendur af
takti viðlíkum þeim sem svuntu-
þeysarameistarar nýrómantíkur-
innar beittu fyrir sig í árdaga, nöfn
sem koma óneitanlega upp í hug-
ann eru Human League og Gary
Numan. Gítarleikur minnir nokkuð
á meistara Robert Fripp, leiðtoga
King Crimson og framsækna rokk-
ið (e. prog rock) gerir líka vart við
sig. Það sem skemmir lagið er
glórulaust gítarsóló en þau koma
fyrir í fleiri lögum á plötunni og eru
án efa veikasti hlekkur hennar.
Þriðja lagið, „Mantra“, er líkast
til það besta, sannfærandi hljóm-
smíð í anda Tangerine Dream,
Pink Floyd, jafnvel Orb. Minni frá
sýruhippunum í Hawkwind bregð-
ur og fyrir og lagið minnir jafnvel á
sveimtónlist Brian Eno. Þess má til
gamans geta að til er lag með King
Crimson, en Jóhannes er greini-
lega undir miklum áhrifum frá
þeirri gæðasveit á þessari plötu,
sem heitir einmitt Mantra.
Fjórða lagið er fúnkuð bassa-
leidd níunda áratugs tölvusýra, full
af stórskrýtnum, brotnum tölvu-
hljóðum. Gítarsólóið minnir helst á
gítarleikfimimanninn Steve Vai,
rennandi yfir skalana, glerþunnur
á sunnudagsmorgni og tölvu-
trommurnar minna helst á stefið
úr Miami Vice-þáttunum!
Fimmta lagið nær ágætis grópi
(e. groove). Það byrjar á vel heppn-
uðu og framandi munkasveimi sem
leiðist út í nokkuð vel heppnaða
tölvuleikjatónlist eftir Jean-Michel
Jarre og Vangelis með trommufor-
ritun í boði Harold Faltermeyer
(hver man ekki eftir laginu „Áxel
F“ úr kvikmyndinni Beverly Hills
Cop?) ef hún væri til.
Sjötta lagið einkennist af feikiat-
hyglisverðum trommutakti og súr-
ustu hljómborðssprettirnir hingað
til kíkja í heimsókn. Sömuleiðis
lætur undirfurðulegur gítarleikur
kræla á sér og lagið er reglulega
brotið upp með jözzuðu millispili í
anda Mezzoforte og hinnar fram-
sæknu dauðarokksplötu hljóm-
sveitarinnar Pestilence, „Spher-
es“. Já, svei mér þá alla mína daga!
Sjöunda lagið er vel heppnað sveim
í anda Mike Oldfield og áttunda og
síðasta lagið er einhvers konar
regnskógasýi'a, ki'ydduð fúnki.
Jóhannesi tekst hvað best upp í
rólegu sveimlögunum, framsækn-
ar raftæknótilraunir hans eru öllu
fallvaltari þótt þær eigi oftsinnis
alveg hreint glæsilega spretti.
Græjurnar sem Jóhannes notar
eru greinilega komnar vel til ára
sinna og heildarhljómur plötunnar
er frekar gamaldags. Þrátt fyrir
það vinnur Jóhannes vel með þá
hljóma sem hann kýs að galdra
fram.
Það ætti að vera lýðum ljóst að
„Snerting“ er engin venjuleg
rennireið um undralendur tónlist-
arinnar og heyrn er sögu ríkari.
Hið einlæga og yndislega hamfara-
popp klikkar sjaldan á þeirri guðs-
gjöf sinni að mála popptónlistina
óvæntum en umfram allt skemmti-
legum litum. Já, oftsinnis varð
manni hreinlega orð- og eyrnafall
við að hlusta á þetta en aldrei
nokkurn tímann leiddist mér þófíð.
Diskurinn er sannarlega með þeim
áhugaverðari sem ég hef heyrt og
hann er, í mjög vissum skilningi,
hreint út sagt stórkostlegur. Þeir
sem hafa áhuga á að leggja sig eftir
„Snertingu" munu uppskera ríku-
lega, en kannski ekki alveg á þeim
forsendum sem Jóhannes ætlaði.
En skiptir það einhverju máli þeg-
ar öllu er á botninn hvolft?
Arnar Eggert Thoroddsen