Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 72

Morgunblaðið - 22.08.2000, Blaðsíða 72
 ATLANTS5KIP - Areiðanleiki í flutningum - Lcitid uppiýsinga í síma 520 2040 www.atlantsskip.is MORGUNBLAÐIÐ, KRINGLUNNI1,103 REYKJAVÍK, SÍMI5691100, SÍMBRÉF5691181, PÓSTHÓLF3W ÁSKRIFT-AFGREIÐSLA 5691122, NETFANG: RlTSTJlSMBL.IS, AKUREYRI: KAUPVANGSSTRÆTI1 ÞRIÐJUDAGUR 22. ÁGÚST 2000 VERÐ í LAUSASÖLU150 KR. MEÐ VSK. Islendingur kveður Kanada STURLA Böðvarsson samgöngu- málaráðherra líkti Port de Grave, síðustu höfninni sem íslendingur heimsótti í vesturför sinni, við Stykk- ishólm í ræðu sinni í gær, en hann var viðstaddur kveðjuathöfn sem haldin var í bænum. Einnig voru Brian Tob- in, forsætisráðherra Nýfundnalands og Labrador, og Charles Furey, menningar- og ferðamálaráðherra, viðstaddir athöfnina. Sturla sagði siglingu íslendings hafa heppnast einstaklega vel og jjjprt íbúum Nýfundnalands og Labrador kleift að fræðast um menn- ingu íslensku víkinganna og landa- fundina, en að hans sögn sóttu sam- anlagt yfir 100 þúsund manns atburði sem tengdust siglingunni. Einar Benediktsson, sendiherra og formaður íslensku landafundanefnd- arinnar, sagði í samtali við Morgun- blaðið að um 30-40 þúsund manns hefðu tekið á móti Islendingi þegar hann sigldi inn höfnina í St. John síð- astliðið þriðjudagskvöld. Samgöngumálaráðherra sagðist vona að samvinna Islendinga og Kanadamanna í sambandi við landa- fundina og siglingu íslendings væri aðeins byrjunin á frekari samskipt- um þjóðanna og minntist hann sér- staklega á ferðamál í þessu sam- hengi. í lokin þakkaði hann viðstöddum fyrir veglegar móttökur í þeim tíu höfnum sem íslendingur heimsótti og sagðist vona að sigling skipsins væri aðeins homsteinnin sem byggja mætti á framtíðarvina- bönd landanna tveggja. ■ Um ÍOO þúsund/6 Ljósmynd/Jónas Erlendsson Morgunblaðið/Júlíus Menningamótt Reykjavfkur. „2000 börnin" syngja þúsaldarljdð á lóð Menntaskólans í Reylqavfk. Fleiri þdsund manns fylgdust með böraunum. Kind bjargað úr sjálf- heldu KIND sem komist hafði í hann krappan var bjargað úr sjálfheldu við fossana í Uxafótarlæk, skammt frá Vík á Mýrdal, í fyrradag, en ferðamenn á svæðinu tóku eftir henni og létu lögregluna í Vík vita. A haustin, þegar gras fer minnkandi, sækir sauðfénaður í fjallabrúnir og niður að lækjum þar sem grasið er grænna. Engin leið upp aftur Líklegt þykir að kindin hafi fetað sig niður með fossinum að grænu og safaríku grasinu og ekki áttað sig á því, fyrr en það var orðið of seint, að engin leið var upp aftur. Kindin var orðin mögur er til hennar sást og ákveðið var að síga eftir henni. Það gerði gamalreyndur björgunarsveitarmaður á svæðinu, Jón Hjálmarsson. Vel tókst til að bjarga kindinni sem er í eigu Her- manns Amasonar, bónda á Stóra- Heiði, og braggast hún vel og var frelsinu fegin. Fjöldi á menningarnótt •TALIÐ er að allt að 50.000 manns Tiafi verið í miðborg Reylqavfkur á menningaraótt þegar mest var. Veðrið var ákaflega gott og boðið upp á fjölbreytta dagskrá. Þessi mynd var tekin, þegar 2.000 börn sungu Þúsaldarljóð á túninu við Menntaskólann f Reykjavfk. Eftir flugeldasýninguna, sem hófst 23:30, lentu margir í vand- ræðum með að komast akandi burt. ■ Ég varð snortinn/ 28,29,30, 66,67. Argur ökumaður Ok tvisvar aftan á sama bilinn ÖKUMAÐUR ók tvisvar aftan á sama bílinn og síðan yfir á rauðu ljósi. Hann gaf lögreglunni þær skýringar á háttsemi sinni að hann hefði verið „pirraður." Síðdegis á föstudag barst lög- reglunni í Reykjavíkt tilkynning um að bifreið hefði í tvígang ekið aftan á aðra og síðan margbrotið umferðarreglur. Þegar lögreglan ræddi við manninn, sem var 24 ára karlmaður, sagðist hann hafa verið pirraður og því keyrt aftan á bifreiðina fyrir framan og síðan ekið gegn rauðu ljósi og hraðar en leyfður hámarkshraði. Bifreið- arnar vora báðar að aka Sæbraut- ina þegar atvikið átti sér stað. Lögreglan telur að þessi hegð- un hljóti að valda fleiram en lög- reglunni áhyggjum. Vegna þess að ökumaðurinn var illa fyrir kall- aður hafi hann leyft sér að aka á næstu bifreið og setja vegfarend- ur í hættu með akstursmáta sín- um og virðingarleysi. Réttindamál „pirraða" ökumannsins verða tekin til skoð- unar á næstu dögum hjá emb- ættinu. Sandgerði Bátur dreg- inn í land SÓLBORG RE-22, 20 brúttólesta netabátur, var dregin í land í Sand- gerði í gær af Sturlaugi H. Böðvars- syni AK-10 eftir að leki hafði komist að bátnum. Töluvert vatn var komið í bátinn, lestin orðin hálffull og vélin á kafi. Skipverjar, sem era tveir, stigu í sjóvatn þegar þeir vöknuðu í gær- morgun. Landhelgisgæslunni barst til- kynning um lekann klukkan 2 í gær- dag og sendi varðskipið Ægi á vett- vang þar sem Sólborg var við lúðu- veiðar. Menn frá varðskipinu fóra um borð í bátinn með dælur og vora um borð allt þar til landi var náð, en lekinn var við skrúfuöxul. Ferðin í land tók u.þ.b. átta tíma og lauk um tíuleytið í gærkvöldi í höfninni í Sandgerði.
Blaðsíða 1
Blaðsíða 2
Blaðsíða 3
Blaðsíða 4
Blaðsíða 5
Blaðsíða 6
Blaðsíða 7
Blaðsíða 8
Blaðsíða 9
Blaðsíða 10
Blaðsíða 11
Blaðsíða 12
Blaðsíða 13
Blaðsíða 14
Blaðsíða 15
Blaðsíða 16
Blaðsíða 17
Blaðsíða 18
Blaðsíða 19
Blaðsíða 20
Blaðsíða 21
Blaðsíða 22
Blaðsíða 23
Blaðsíða 24
Blaðsíða 25
Blaðsíða 26
Blaðsíða 27
Blaðsíða 28
Blaðsíða 29
Blaðsíða 30
Blaðsíða 31
Blaðsíða 32
Blaðsíða 33
Blaðsíða 34
Blaðsíða 35
Blaðsíða 36
Blaðsíða 37
Blaðsíða 38
Blaðsíða 39
Blaðsíða 40
Blaðsíða 41
Blaðsíða 42
Blaðsíða 43
Blaðsíða 44
Blaðsíða 45
Blaðsíða 46
Blaðsíða 47
Blaðsíða 48
Blaðsíða 49
Blaðsíða 50
Blaðsíða 51
Blaðsíða 52
Blaðsíða 53
Blaðsíða 54
Blaðsíða 55
Blaðsíða 56
Blaðsíða 57
Blaðsíða 58
Blaðsíða 59
Blaðsíða 60
Blaðsíða 61
Blaðsíða 62
Blaðsíða 63
Blaðsíða 64
Blaðsíða 65
Blaðsíða 66
Blaðsíða 67
Blaðsíða 68
Blaðsíða 69
Blaðsíða 70
Blaðsíða 71
Blaðsíða 72

x

Morgunblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.