Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 6

Morgunblaðið - 17.09.2000, Page 6
6 <J8 SUNNUÐAGUR17. SEPTEMBER 2000 MORGUNBLAÐJÐ Ljósmynd/Eðvarð Sigurgeirsson Tjaldbúðir björgunarleiðangursins við Kistufell, skammt frá rótum Dyngjujökuls, sem er norður úr Vatnajökli. Leiðangursmenn voru flestir þrautþjálfaðir fjallamenn. Ljósmynd/Eðvarð Sigurgeirsson Jöklafararnir komnir að flaki Geysis og eru að ræða við Ingigerði Karlsdóttur flugfreyju. Hér sést gjörla hve illa flugvélin er útleikin. Hér má sjá ræmu af pappírsblaðinu, sem loftskeytamaðurinn á varð- skipinu Ægi skrifaði af neyðarskeytinu sem hann nam frá Geysismönn- um. Þar stendur m.a.: qth unknown all alive SOS. komist í björgunarbát og sent neyð- arkallið þaðan. Þegar Vestfirðingur kom vestur undir Vatnajökul, sáu flugmennimir að bjart var yfir norð- urhluta jökulsins, en þar hafði verið þoka allt frá því að Geysir týndist og erfiðast að leita á þeim slóðum vegna þess. Akvað flugstjórinn að fljúga yf- ir jökulinn og kanna hann nánar. Þegar vélin er að sveima yfir Bárð- arbungu, nyrst á jöklinum, blasti flak Geysis allt í einu við augum, og sex manneskjur á ferli þar í kring. Þegar áhöfn Vestfirðings hafði full- vissað sig um að Geysir væri fund- inn, sendi loftskeytamaðurinn svohljóðandi skeyti til flugturnsins: „Höfum fundið TF-RVC á Vatna- jökli, allir á lífi.“ Og skömmu síðar sendi hann annað skeyti: „Bíðum yfir staðnum, þangað til flugvélar koma.“ Landsmenn fagna Þessi fregn barst á svipstundu um landið, og harmur íslensku þjóðar- innar snerist í einu vetfangi í ákafa gleði. Fánar voru dregnir að húni og það ríkti hálfgerð þjóðhátíðar- stemmning. Ekki liðu margar mínút- ur frá skeyti Vestfirðings, þar til spjald var sett út í glugga Kaffistof- unnar í Austurstræti, og á því stóð: „Geysir fundinn - ókeypis kaffi.“ Og fleiri veitingahús gerðu hið sama. Fjöldi heillaskeyta tók nú að ber- ast til Loftleiða, m.a. frá Sveini Bjömssyni, forseta íslands. Meðan þetta var að gerast sveim- aði Vestfirðingur yfir flaki Geysis. Sást áhöfnin mynda stafina O.K. í snjóinn og gefa þannig til kynna, að allt væri í lagi, ekkert þeirra lífs- hættulega slasað. Svo myndaði áhöfn Geysis stafina QTH, og bað þannig um að fá að vita hver þessi staður væri. Menn teiknuðu í snar- hasti á blað kort af Vatnajökli og merktu þar inn á slysstaðinn, og fleygðu blaðinu ásamt ýmsu smálegu matarkyns niður til áhafnar Geysis, sem var eftir það nokkm fróðari um eigin hagi. Geysir hafði tekið niðri suðaustan í Bárðarbungu, á mesta jökli landsins og einu víðáttumesta jökulhveli jai’ðar utan heimskauta- landa. Nákvæm staðsetning var 64° 36" Nogl7°21" V. Björgunarvélin úr Keflavík, sem var á sveimi yfir Vatnajökli, þegar Vestfirðingur fann Geysi, kom nokkru síðar á vettvang og hnitaði einnig yfir flakinu. I henni var góður búnaður og tóku flugmenn að varpa ýmsu niður til Geysismanna, s.s. matvælum og fatnaði. Síðan komu fleiri vélar, bæði úr Reykjavík og Keflavík, með alls kyns útbúnað til fólksins á jöklinum, þ.ám. talstöð. Fallhlífamenn voru tiltækir, ef vera kynni að aðstoða þyrfti áhöfn Geysis, en nú þótti ekki ástæða til að láta þá svífa niður á jökulinn. Eftir um 2Vz klukkustunda hring- flug yfir Geysi, sneri Vestfirðingur til Reykjavíkur. Leitinni að TF-RVC var nú lokið og öllum hlutaðeigandi tilkynnt það. Eftir að talsamband hafði náðst við áhöfn Geysis, var hún beðin um að halda sig við flakið, en reyna ekki að komast á eigin spýtur niður af jöklinum. Það væri of hættulegt. Jafnframt var þeim tilkynnt, að ráð- gert væri að senda leiðangur frá Ak- ureyri til bjargar. I rökkrinu héldu flugvélarnar nú heimleiðis til Reykjavíkur, ein af annarri og lentu þar í myrkri. En áhöfn Geysis bjó sig til einnar næt- urvistar enn á næsthæsta fjalli landsins, Bárðarbungu í Vatnajökli, 2.010 metra yfir sjávarmáli. Björgunarleiðangurinn Um leið og það spurðist að Geysir væri fundinn var hafist handa um að athuga hvemig best væri að koma áhöfninni af Vatnajökli. Bauðst Kristinn Jónsson, umboðsmaður Flugfélags íslands á Akureyri, til að skipuleggja björgunarleiðangur til uppgöngu á jökulinn. Var það boð hans jafnskjótt þegið og voru þeir Einar Pálsson verkfræðingur og Sigurjón Rist frá Akureyri fengnir til aðstoðar flugumferðarstjórn við nánari útfærslu þessa. Að kvöldi 18. september lagði svo 15 manna leið- angur jökulfara, undir stjórn Þor- steins Þorsteinssonar, fram- kvæmdastjóra Ferðafélags Akureyrar, af stað frá Akureyri og var ferðinni heitið að Fosshóli í Bárðardal og síðan upp í Mývatns- sveit, þaðan sem ráðgert var að leggja af stað á öræfin síðla nætur, 19. september. Voru þeir á fimm jeppum og einum vörubíl, sem hlað- inn var bensíni, olíu, viðgerðartækj- um, skíðum leiðangursmanna og ýmsum öðrum vamingi. Fyrr um daginn hafði átta manna leiðangur Reykvíkinga, sem var nýkominn frá rótum Vatnajökuls á fjóram vel útbúnum jeppum, boðið fram aðstoð sína og var hún þegin. Óku þeir jeppum sínum úr Bárðar- dal til Akureyrar, og létu smyrja þá, og héldu síðan að Fosshóli, og sam- einuðust þar leiðangri norðanmanna. Um miðnættið era leiðangursmenn, 23 talsins, komnir í Reykjahlíð við Mývatn, þar sem þeir snæða og hvíl- ast og ráða ráðum sínum. Á Akur- eyri hafði verið ráðgert að fara vest- urleiðina svokallaða, þ.e.a.s. halda frá Reykjahlíð að Grænavatni og þaðan suður á bóginn allt til jökuls- ins, um Suðurárbotna og fjalllendið vestan Dyngjufjalla. En Reykvíking- amir, sem vora nýkomnir úr Gæsa- vötnum, sögðu mikla vatnavexti og blota á þeirri leið. Eftir nokkrar vangaveltur er ákveðið að fara aust- urleiðina á öræfin, þ.e.a.s. um Herðubreiðarlindir, Upptyppinga, Vaðöldu og sandana norðan Vatna- jökuls, allt að Kistufelli. Hún var lengri, en þurrari og greiðfærari. Eftir örlitla hvíld er lagt af stað frá Reykjahlíð upp úr kl. 05.00. Tólf klukkustundum síðar, um kl. 17.00, er leiðangurinn kominn upp í Kistu- fellskrika, þ.e.a.s. milli jökulrandar- innar og Kistufells, og þar slá menn upp tjaldbúðum og hafa bækistöð sína. Vora þá 170 km að baki og ekki hægt að koma bílunum lengra. Tveir leiðangursmanna, Tryggvi Þor- steinsson skátaforingi og Jón Sigur- geirsson, lögreglumaður frá Hellu- vaði í Mývatnssveit, era sendir upp á jökulinn til að taka mið á slysstaðinn og merkja leiðina þangað, og koma þeir aftur í tjaldbúðirnar um kvöldið. Skíðaflugvél til bjargar Sama kvöld og leiðangur norðan- og sunnanmanna er að fara af stað upp í Mývatnssveit, kemur boð frá Keflavíkurflugvelli til yfirstjómar leitarinnar, um að bandaríski herinn i sendi skíðaflugvél til að sækja áhöfn Geysis á jökulinn. Akveðið er að f þiggja boðið, en bandaríska flugvélin er þá á Grænlandi, svo að hún er ekki komin til Keflavíkur fyrr en um kl. 16.00 daginn eftir, 19. september. Þar tekur hún eldsneyti og býst svo til ferðar austur. I áhöfn hennar era þrír Bandaríkjamenn og í för með þeim slæst Sigurður Jónsson, for: stöðumaður Loftferðaeftirlitsins. I fylgd með skíðavélinni er einnig ; björgunai-vél frá Keflavíkurflugvelli og nokkrar aðrar að auki, sem m.a. hafa blaðamenn og ljósmyndara inn- anborðs. Vestfirðingur tekur að sér hlutverk leiðsöguvélar. Alls eru sex flugvélar í þessum leiðangri. Áhöfn Geysis hafði áður verið sagt frá þessari fyrirætlan og hún jafn- framt beðin um að merkja flugbraut á jöklinum. Lending skiðaflugvélar- innar tekst með ágætum og innan skamms er áhöfn Geysis komin um borð, albúin til heimferðar. Um kl. 18.00 er flugtak reynt, en það mis- heppnast. Skíðin virðast límast við ! snjóinn og vélin hefur ekki þann kraft, sem nauðsynlegur er til að vinna bug á því, þrátt fyrir að vera útbúin þrýstiloftsrakettum til nota við slíkar kringumstæður. Er skemmst frá því að segja, að flug- mennirnir verða að gefast upp við svo búið, og áhöfn Geysis þarf að gista eina nóttina enn á jöklinum, ásamt þeim, sem í skíðaflugvélinni komu. { Lagt til uppgöngn á jökulinn Um það leyti sem skíðaflugvélin er að reyna flugtak, er leiðangurs- mönnum, sem þá eru staddir við ræt- ur Kistufells, tilkynnt að búið sé að bjarga áhöfn Geysis. Þeir era samt beðnir um að halda áfram för á jökul- inn, og bjarga verðmætum farmi vél- arinnar. Þetta hleypir illu blóði í mennina. Einn þeirra, Haukur Snorrason, ritaði síðar um þetta eft- irfarandi: „Virtust þeir, sem málum stýrðu í Reykjavík, ekki gera sér grein fyrir því, hver aðstaða var þarna til björgunar, og að það væri aðeins meðal spássértúr að ganga tugi kflómetra á skíðum á bungu Vatnajökuls." Er nú rætt um að snúa við og halda til byggða. En þegar síðar um kvöldið er varpað niður tilkynningu um, að björgunarflugið hafi mis- heppnast, og leiðangur norðan- og sunnanmanná beðinn um að halda áfram til bjargar áhöfn Geysis, er ákveðið að ráðast til uppgöngu á jök- ulinn í birtingu og halda inn að flak- inu. Um miðja nótt var byrjað að und- irbúa sjálfa jökulgönguna og níu leiðangursmenn valdir úr til að fara alla leið inn að flaki Geysis á Bárðar- bungu, en nokkrir félagar þeirra áttu að létta undii- með þeim áleiðis, og halda síðan niður í búðirnar aftur. Kl. 04.00 lagði 13 manna hópur af stað í þessa ferð. Fararstjóri var Tryggvi Þorsteinsson. Var farið meðfram Kistufelli upp á hájökul, gengið þaðan á slysstaðinn. Jón Sig- urgeirsson hefur ritað um þetta at- „A broti úr sekúndu erum „ÞETTA VAR eins mikið biindflug og hægt er,“ segir Magnús Guömundsson, þegar hann rifjar upp hina afdrifaríku ferð Geysis 14. september 1950, en hann varflugstjóri vélarinnar. „Flugvélin fóraðeins aö missa hraðann og þá vissum við að það var kominn ís á vængina. En við vorum í skýjum og þaö var komið myrkur og utan á rúðum flugvélarinnar var þykkt íslag þannig aö þaö var útilokaö að við sæjum nokk- uð. Og svo allt í einu, á broti úr sekúndu, erum við ájöklinum." Fyrsta nóttin ansi nöpur Það var hávaðarok og skafrenningur á Bárð- arbungu þegar áhöfnin kom út úrflakinu. Þau fóru strax í vélina aftanveröa því aö aöalhuröin hafði fokið af eða brotnaö, og þar komust þau inn oggátu hoiaö sér innan umfarangurinn. Dyrnar stóðu beint upp í veörið. „Fyrsta nóttin var ansi nöpur," heldur Magn- ús áfram. „Þegar birti fórum við að reyna að byrgja dyrnar með því að taka kassa og dót sem fyrirvaroghlaöafyrir. Eftirþað varmiklu skárra að vera í vélinni. En við þetta bættist að við höfðum að heita mátti ekkert að borða. Við fór- um þvf út að leita, athuguöum hvort eitthvað hefði hrokkið út af því sem verið hafði f eldhús- inu, sem var að vísu ekki mikið, aðallega sam- lokur og slíkt en við fundum ekkert af því. Á öðrum og þriðja degi fórum við að gramsa í faranginum en þannigvar að þegar við fórum frá Lúxemþorg var ekki með öllu Ijóst hvort við ættum að taka farþega með eða þá frakt. Niður- staöan varð sú að við tókum frakt. En heilmikiö af farangri þess fólks sem ætlaöi með varð eftir í vélinni, sökum áðurnefnds, og við opnuðum hann. Þar fundum við ýmislegt sem við gátum nýtt okkur, m.a. kexogte. Svo þegarviö rifum upp nokkra kassa var þar að finna mikiö af tau- vöru og það notuðum við til varnar gegn kuldan- um. Þannig að segja má að veran í vélinni hafi ekki verið svo afleit, miðað við aðstæður. Það sem olli okkur áhyggjum var að Ingigerður hafði verki f bakinu og víöar og Dagfinnur var illa skor- inníandliti." Reynt að hafa eitthvað fyrir stafni Áhöfnin reyndi að hafa eitthvað fyrir stafni og fór að velta fýrir sér hvar hún væri eiginlega nið- urkomin og hvort ekki væri reynandi að fara að líta f kringum sig. „Við lögðum meira að segja af stað, égog Bolli, oggengum töluverðan spöl en við sáum að það var tilgangslaust því það var alltaf þoka," segirMagnús. „Þegar vélarnar voru að leita að okkur heyrð- um við alltaf í þeim fyrirofan ogjafnvel sáum undir botninn á þeim. Fyrst datt okkur í hug að við hlytum aö vera á Eyjafjallajökli því við töldum okkur hafa verið á beinni stefnu til Vestmanna- eyja. Annar möguleiki var sá að við værum ein- hvers staðarsunnan megin ÍVatnajökli; þá ætt- um við að geta séð niöur á sandana meö því að ganga einhvern spotta. En sem beturfór varð ekkert úr þessum fyrirætlunum. Stuttu eftir að við sendum neyðarskeytiö kveiktum við í drasli til að vekja á okkur athygli. Og það var góð tilfinning að sjá Vestfirðing koma fljúgandi yfir okkur; eftir það var allt í þessu fína lagi. Það var samt ekkert volæöi komið í áhöfnina áður en það gerðist; við héld- um alltaf f vonina um að okkuryröi bjargaö. Einsvargottað sjá Bandaríkjamennina koma en hitt verra hvernig sú aðgerö fór. Það hefur aldrei veriö gefiö upp hver ástæöan var fyrir því að björgunarvélin gat ekki hafið sig á loft. En ég tel að það hafi veriö það sama oggerist á venju- legum skíðum þegar snjórtollir undir þeim. Það varskel ofan á snjónum en maöurfórígegnum hana, og þar undir var mjúkur snjór. Skíði vélar- innar runnu því einfaldlega ekki. Þeir vildu reyna aftur daginn eftir. Þeim voru sendar krossviðarplötur, og vélin látin standa á þeim, mynduð nokkurra metra löngflugbraut, og eins fengu þeir nýjar rakettuflöskurtil að hjálpa til viö flugtakið. En þegar vélin erfarin af stað ogtekin að rúlla ágætlega skjóta þeirúr

x

Morgunblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Morgunblaðið
https://timarit.is/publication/58

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.