Morgunblaðið - 17.09.2000, Síða 10
10 B SUNNUDAGUR17. SEPTEMBER 2000
MORGUNBLAÐIÐ
SÖNGFERÐALAG KÓRS FLEN SBORGARSKÓL AN S TIL BANDARÍKJANNA OG KANADA
Robert Sund kórstjóri óskar Stefáni og Ásdísi til hamingju með frammistöðuna á tónleikunum í Ottawa.
Ljósmynd/Birgir Finnbogason
Að
snerta
hjörtu
í byrjun júlí fór Kór Flensborgarskólans
til Massachussettes og Ontario.
Ljósmynd/Birgir Finnbogason
Sungið fyrir vegfarendur á Quincy Market í Boston.
Á þeim tíma dreif ýmislegt á daga þeirra.
Magnús Þorkelsson fararstjóri
segir frá ferðinni.
annig var að Kór Flens-
borgarskólans hafði
fengið boð um að taka
þátt í alþjólegu kóramóti
í Kanada. Sumarið 1999
hafði kórinn farið til Portúgal á kóra-
mót og því var það mikið mál að ætla
að fara svo dýra ferð sem þessa strax
ári síðar. Eftir vandlega skoðun var
slegið til og markið sett á það að fjár-
magna ferðina að fullu með fjáröfl-
unum. í því fólst mikil vinna og mikil
velvild aðstandenda og vinnuveit-
enda.
Kórinn er tvískiptur og skipa um
40 manns aðalkórinn en að auki voru
um 30 í aðfarakór. Alls fóru 36 í ferð-
ina ásamt höfundi, Hrefnu Geirs-
dóttur kennara, Hrafnhildi Blom-
sterberg kórstjóra og manni hennar,
Birgi Finnbogasyni.
Til að fjármagna ferðina að fullu
þurfti átak. Salernispappír, rækjur,
maraþonsöngur og ýmis söngverk-
efni voru sett á dagskrá samhliða
stífum æfingum. Lokahnykkurinn
var sala á happadrættismiðum í list-
munahappdrætti en þar komu þeim
til hjálpar hafnfírskir listamenn af
mikilli rausn. Þá var bæjarfélagið
mjög hjálplegt í alla staði. Loka-
punktur verkefnisins fer fram 24.
september næstkomandi með tón-
leikum auk þess sem þá verður birt
vinningaskrá happdrættisins (miðar
eru til sölu ef menn eru fljótir til).
Kristnitökuhátíð í Ameríku
Aðalverkefnið var þátttaka í
KAGGIK tónleikaröðinni í Ottawa
og Toronto. Þangað er ekki flogið
beint svo við fórum fyrst til Boston
og útveguðum kórnum verkefni þar í
leiðinni.
Eitt slíkt aukaverkefni var að
syngja í University Lutheran
Church sem er í Cambridge - ekki í
Englandi heldur í úthverfi Boston.
Fyrst söng kórinn nokkur lög í upp-
hafi messu. Þegar presturinn, Sr.
Tom Chittick, kynnti þau þá fagnaði
hann því að kór frá hinu foma landi
íslandi kæmi til Cambridge og
nefndi kristnitökuafmælið. Messan
var löng í hitanum. Það var hins veg-
ar margt sem létti okkur lífið. Þakk-
læti safnaðarins og virk þátttaka
safnaðarfélaga, skemmtilegur ritn-
ingarlestur djáknans sem setti bibl-
íutextana í sögulegt samhengi, lífleg
og skemmtileg ræða klerksins og
margt annað gerði messuna eftir-
minnilega. Hún fór fram sama
sunnudag og kristnitöku var minnst
á Þingvöllum og því fór nú svo að við
sem þama vorum tókum þátt í
kristnitökuhátíð sem mig hefði
aldrei órað fyrir að yrði jafnsterk og
raun bar vitni. Messunni lauk með
altarisgöngu. Tveir kórfélaganna
eru búddistar en því fagnaði prestur-
inn og vildi ólmur fá að blessa þau
líka. Unaðsleg stund.
Að því búnu hafði bandarískur vin-
ur eins kórfélagans boðið okkur til
garðveislu og áttum við þar mjög
ánægjulega stund. Vitaskuld var lag-
ið tekið en fólk úr nærliggjandi hús-
um hlustaði á og lét kórinn óspart
heyra hve fagurlega hann söng.
Lagt af stað
Næsta dag var lagt upp til Kanada
en frá Boston til Toronto er um 1.000
km leið. Toronto er stórborg sem
stendur á bökkum Ontaríó-vatnsins
sem er minnst stóru vatnanna. Það
er þó engin smásmíði og mér leið
eins og að horfa út Atlantshafíð van:
trúaður á að það væri stöðuvatn. í
Toronto eru skráðar til heimilis lið-
lega þrjár milljónir manna og tæpar
ijórar ef nærliggjandi svæði eru tek-
in með. Eins og annars staðar í Kan-
ada er byggðin mest við landamæra-
héruðin næst Bandaríkjunum.
Vegna áhuga á landi við vatnið er
verið að hamast við að byggja upp
eyjar í því og er m.a. flugvöllur á
eynni! Borgin er þó falleg og fremur
snyrtileg af stórborg að vera.
Kaggik 2000
Hvað er KAGGIK 2000? Kaggik
er orð úr tungu Inúita og þýðir sam-
koma. Hér var það notað um sam-
starfsverkefni níu kóra frá sjö lönd-
um. Þeir mynduðu samkór tæplega
fjögur hundruð söngvara þar sem
þeir yngstu voru í barnakór frá
Eistlandi en þeir elstu úr háskólakór
frá Spáni. Halda átti samtónleika
sem teknir voru upp fyrir útvarp í
Toronto og endurteknir í Ottawa auk
tveggja tónleika þar sem hver kór
flutti sína dagskrá.
Kaggik var sérstakt mót. Það var
skipulagt af þeim hjónum Don og
Louise Harper ásamt Robert Coop-
er sem er framleiðandi hjá CBC-út-
varpinu. Þau reka fyrirtæki um
svona starfsemi en þetta mót var
sérstakt í þeirra huga. Allir kórarnir
fengu sinn gestgjafa sem voru flestir
eldri borgarar sem unnu við þetta
sem sjálfboðaliðar en sú hreyfing
mun mjög öflug þar vestra. Gestgjafi
okkar var íyrrverandi bókari og að-
stoðarskólastjóri sem heitir Bill
Wiley. Þetta ljúfmenni féll strax fyr-
ir sjarma hópsins og þau fyrir hon-
um enda átti hann eftir að reynast
okkur vel.
Aðstæður kóranna voru ólíkar.
Kór Flensborgarskólans er 36
manna, öflugur og samhentur hópur
sem var vel búinn undir sameigin-
lega prógrammið. Kórar Slóveníu,
Eistlands og Spánar skildu nánast
enga ensku en spænski kórinn var
kór háskólastúdenta á meðan hálfur
eistneski kórinn er barnakór. Kór-
amir frá Nýfundnalandi, N-írlandi,
Kanada og Nýja-Sjálandi voru vita-
skuld vel mæltir á ensku. Allir voru
þeir afbragðsgóðir enda sérvaldir.
Irski kórinn vakti þó kannski meiri
athygli en aðrir því hann er sam-
starfsverkefni friðarhópa þar í landi.
Hann er skipaður til hálfs unglingum
af kaþólskum uppruna og til hálfs
mótmælendum. Heima fyllast menn
í senn aðdáun og hatri en baráttan
fyrir tilveru þessa kórs er afar hörð.
Sungið
Æfingar gengu ágætlega og
Robert Sund kórstjóri náði fljótt taki
á hópnum. Verkin sem syngja átti
voru sum flókin og spennandi en
önnur einfaldari. Tónleikamir fóru
fram 6. júlí í útvarpshúsinu í Tor-
onto. A dagskrá vom lög af öllu tagi.
Stefán Örn Gunnlaugsson söng ein-
söng í einu lagi en þau Þórann Harð-
ardóttir og Andri Ómarsson vora
valin til að kynna tvö laganna. Allt
rann þetta vel og allir voru glaðir.
Stefán stóð sig vel og Þórann og
Andri náðu góðu sambandi við
áheyrendur. Það að nefna Island
vekur alltaf athygli í Kanada.
Daginn eftir kom umfjöllun í Tor-
onto Star og var í heildina mjög já-
kvæð. Sérstaklega þótti merkilegt að
hafa séð þennan stóra fjölþjóðlega
og unga hóp hafa náð árangri á svo
stuttum tíma. í mótttöku um kvöldið
fengu Hrafnhildur og hennar fólk
mikið hrós skipulagsaðila enda vora
þau vel undir þetta búin. Hins vegar
endaði móttakan skyndilega. í miðju
boðinu kom heimilishundurinn
hlaupandi inn og feykna fýlu lagði
Ljósmynd/Birgir Finnbogason
Allstaðar var hægt að æfa. Myndin er tekin á leiðinni frá Toronto til Ottawa.