Morgunblaðið - 17.09.2000, Síða 15
MORGUNBLAÐIÐ
SUNNUDAGUR 17. SEPTEMBER 2000 B 15^.
HÚN var dásamleg ferðin okkar um
Vestfírði og á Gromsaramótið, en
eins og ég hafði sagt ykkur síðast,
ákváðum við að slá tvær flugur í einu
höggi; hitta ættingja og kynnast um
leið hinu stórbrotna landslagi Vest-
fjarðakjálkans. Veðurguðimir sáu
okkur fyrir einstakri sumarblíðu, og
ekki kom dropi úr lofti á þessum sex
dögum. Hafandi ferðast takmarkað
um þjóðvegi landsins á undanfömum
ámm, fannst okkur hreint ævintýri
að bruna á rennisléttum vegum og
fara undir Hvalfjörðin í gegnum
göngin fmu. Enginn vafí er á því, að
feikimiklar framfari hafa orðið á
vegamálunum, og geta landsmenn
verið stoltir af því. Þegar við komum
á vegi, þar sem malbikið var einnar
akreinar breitt, passaði ég mig alltaf
að víkja út á malarkantinn, þegar ég
mætti þessum agalausu, ungu bíl-
stjómm með tjaldvagnana, sem Vík-
verji var búinn að vara við.
A leið okkar vestur heimsóttum við
bróður og mágkonu í sumarbústað á
Mýmm. Fengum við þar fínan há-
degisverð og huguðum að nærlig-
gjandi tjörn, en þar var sagt að væri
svartur svanur. Hann var þó ekki
heima, en við fengum að kíkja inn í
100 ára gamla kirkju á staðnum. í
þessu fallega guðshúsi vom þúsundir
af fiskiflugum, flestar dauðar á gólf-
inu, en margar enn suðandi í glugg-
unum. Datt mér í hug, að með minnk-
andi umsvifum í fiskverkun, væri
meira en hart í ári hjá fiskiflugum
landsins. Það gæti verið skýringin á
því, að þær tækju kristna trú í unn-
vörpum og dæju síðan drottni sínum í
örvæntingu í gömlum kirkjum.
Stefndum við nú á Stykkishólm, en
við áttum pantað far með ferjunni
Baldri til Brjánslækjar. Þar sem
þetta var hálfgerð pílagrímsferð,
stönsuðum við að Miðhrauni í Mikla-
holtshreppi, en þar var amma eigin-
konunnar fædd. Þetta er myndar býli
með bændagistinu og röktu kona mín
og bóndinn saman ættir sínar. Fyrir
innan bæinn fundum við fiskverkun
uppi í miðju landi. Voru þar myndar-
legar trönur og verið að þurka þorsk-
Drottinn blessi
rúmið mitt
hausa fyrir blámennina í Afríku. Tók
ég eftir því að þarna voru engar fiski-
flugur og varð hugsað til kirkjunnnar
á Mýrum. Hvað er eiginlega að ger-
ast í fiskiflugnaheiminum á Islandi?
Sjóferðin yfir Breiðafjörð með við-
komu í Flatey var mjög ánægjuleg og
aðbúnaður á skipinu til sóma. Eftir
góða hvíld á hótelinu í Flókalundi, ók-
um við af stað í býtið næsta morgun
og stefndum á Látrabjarg, vestasta
odda íslands og um leið sjálfrar
Evrópu. fljótlega sleppti malbikinu
og við tóku vegir, sem ég kannaðist
miklu betur við sem samgönguleiðir
fyrri tíma á Fróni. Það var gaman að
aka á slíkum vegum í beinskiptum bíl,
eftir margra ára brun á hraðbrautun-
um sjálfskiptum drekum í henni Am-
eríku. Svo hafði ég náttúrlega aðstoð
og leiðbeiningar, ekki einungis frá
eiginkonunni, heldur var einnig með
okkur systir mín, og benti hún m.a.
einu sinni á það kurteislega, að við
værum búin að aka drykklanga stund
fram hjá einni beygju, sem við áttum
að taka.
Áður en við komum að hinu stór-
fenglega Látrabjargi, stoppuðum við
á minjasafni Egils ÓMssonar að
Hnjótum. Meðal allra þeirra merki-
legu muna, sem við þar sáum, leit ég
augum stýrishúsið af skútunni Ha-
mónu, en með henni hafði ég verið
sendur til ömmu minnar á Flateyri
hér um árið. Einna áhrifamest fannst
mér sýning af aðbúnaði á íslenskum
bæjum nítjándu aldarinnar. Við vor-
um að fara á niðjamót Gromsaranna á
Bolungarvík tO þess að heiðra ættar-
foreldrana, sem einmitt höfðu lifað
lífinu við svipuð kjör, sem lýst var á
safni Egils. Þama sáum við, meðal
annarra hluta, koju eða rúm, sem
Þórir S. Gröndal
sagt var konurúm frá seinni hluta
aldarinnar. Fjalimar vom eyddar og
lúnar eftir mikla notkun, hálmdýnan
bæld, fiðurkoddinn lítill og sænginn
fátækleg. Á miðri fjöl fyrir ofan þessa
lítilfjörlegu reklg'u hafði einhver,
endur fyrir löngu, skorið í viðinn:
„Drottinn blessi rúmið mitt.“
Frá Látrabjargi ókum við síðan
áleiðis til ísafjarðar og röktum alla
firðina og nutum hins stórbrotna
landslags. Við stoppuðum hér og
hvar, samt ekki lengi á hverjum stað.
Kirkjuna skoðuðum við og safnið að
Hrafnseyri og hlýddu á píanóleik
safnvarðarins í kapellunni og var það
óvænt ánægja. Alla leið komumst við
til Flateyrar og þar fundum við húsið
hennar ömmu, nýmálað og fínt. Þeg-
ar ég stóð á tröppunum og skyggnd-
ist um, kannaðist ég við sum kenni-
leitin, þótt margt hefði eðlilega
breyst á mörgum áratugum. Við fór-
um í kirkjugarðinn, en nýbúið var að
setja lagsteina afa og ömmu á sinn
stað, en stór hluti garðsins hafði lent
undir snjóflóðinu ógnarlega.
Svo fórum við í gegnum gögn og yf-
ir til ísafjarðar, en þar höfðum við að-
setur á hinu hlæsilega hóteli bæjar-
ins. Þaðan var ekki nema steinsnar til
Bolungarvíkur, þar sem Gromsara-
mótið var haldið. Hátíðin var vel und-
irbúin og sóttu hana meira en 300
manns. Þama hittum við mikið af nýj-
um frændum og frænkum og endur-
nýjuðum kynni við skyldmenni, sem
við höfðum ekki séð í árafjölda. Og
margt var gert sér til skemmtunar:
Kvöldsamkoma, bátsferð inn í Jökul-
firði, skoðunarferð um ættarslóðir,
íþróttamót, skrúðganga, kvöldveisla,
ræður, söngur og dans fram á rauða
nótt. Mótið endaði svo með helgi-
stund í Hólskirkju, en þar var heiðruð
minning ættarforeldranna, Hálfdáns
Ömólfssonar og Guðrúnar Níelsdótt-
ur, og síðan lagður blómsveigur á
leiði þeima í kirkjugarðinum.
Gefið hafði verið út myndarlegt
niðjatal, sem Kristín Hálfdánsdóttir
hafði tekið saman, en í því var líka að
finna tvær samantektir um langafa
og langömmu eftir Halldór Jónsson
og Hálfdán Ömólfsson og er þar mik-
inn fróðleik að finna. Segir þar frá fá-
tæktinni og hinu harða lífi, sem for-
feður okkar máttu búa við á síðari
hluta 19. aldarinnar. Greint er frá
hremmingum og hrakningum jafnt
sem dugnaði þessa harðgerða fólks
við sjósókn og búskap. Tíður barna-
dauði, önnur veikindi og slys vom
óhjákvæmilegir íylgifiskar þessa
tíma.
Hálfdán langafi sem fæddist 1855,
var tveggja ára gamall fluttur sem
tökubam úr Önundarffrði og inn í
Súgandafjörð, en fimm ámm seinna
færir hann sig enn um set og er þá
skráður fósturbarn hjá Maríu Sig-
urðardóttur og Þórði Jónssyni, og er
hann vex úr grasi verður hann vinnu-
maður á nokkram bæjum. Árið 1876
kvænist hann Guðrúnu Níelsdóttur
og vora þau vinnufólk á nokkram
stöðum, en enduðu á Meirihlíð í Bol-
ungarvík, þar sem þau urðu síðan
húsráðendur 1890. Hálfdán varð
fljótlega formaður á áraskipum, en
Bolungarvík var mikil verstöð á þeim
tíma. Var hann fengsæll og tókst hon-
um að efnast vel á þeirra tíma mæli-,
kvarða. Hagsýni og ráðdeild réðu ef- r
laust miklu um það, hvemig honum
og Guðrúnu tókst að vinna sig upp í
þjóðfélaginu, en samt var það ábyggi-
lega ósérhlífni og vinnusemi sem
mestu skiptu. Veturinn 1880 komst
Hálfdán í hann krappann og held ég
áfram að styðjast við frásögnina í
niðjatalinu.
Var hann að koma úr róðri og náði
ekki vör í Bolungarvik en hleypti til
Skálavíkur þar sem lending tókst.
Þegar veður gekk niður, var ýtt úr
vör þótt enn væri nokkurt brim.
Hvolfdi þá skipinu en allir skipverjar,
nema einn náðust í land. Hálfdán
virtist örendur og var ekkert lífs-
mark með honum, og var hann því
borinn til skemmu og lagður til sem
dauður væri. Hann var í nýjum skinn-
stakki, en þau hlífðarföt vora höfð
þröng í hálsinn og urðu menn að
troða hausnum í gegnum hálsmálið.
Vegna þessa vora stakkar oftast
skomir utan af sjódauðum mönnum.
Búmanninum á staðnum óx í augum
að skera þennan ágæta skinnstakk,
svo hann byrjaði að bisa við að toga
hann upp af höfðinu og af handleg-
gjunum á Hálfdáni. Við þessar svift-
ingar fór hinn látni að ramska við sér
og var hann þá borinn inn í bæ, þar
sem hann náði sér fljótt. ^
Ef búmaðurinn góði hefði ekkd
ágimst skinnstakinn, hefði Groms-
araættin öragglega orði hálffátæk-
leg, því Guðrún og Hálfdán vora að-
eins búin að eignast tvö böm af þeim
ellefu, sem þau áttu allt í allt. Hann
lifði í 52 ár í viðbót, fór í margan sjó-
róðurinn, varð hreppstjóri og höfð-
ingi í sinni sveit. Þegar hann dó 1932,
var hans lítillega minnst í blaðinu
„Vesturlandi“ á ísafirði, og enduðu
minningarorðin með þessari setn-
ingu: ,M öllu athuguðu var Hálfdán
merkismaður."
Morgunblaðið/Hrefna Magnúsdóttir
Við undirskrift samnings milli Flugleiðahdtela hf. og Hótels Hellissands
hf. F.v. Skúli Alexandersson, stjórnarformaður Hótels Hellissands, Kári
Kárason, framkvæmdastjdri Flugleiðahótela, Sigurður Páll Harðarson,
stjórnarformaður Hótels Hellissands, og Tryggvi Guðmundsson, fram-
kvæmdastjóri Edduhótela.
Nýtt Edduhótel
á Hellissandi
Hollissandi. Morgunblaðið.
STJÓRNENDUR nýja hótelsins
sem er í byggingu á Hellissandi,
Hótels Hellissands, hafa nú gert
leigusamning við Flugleiðahótel h.f.
um að Edduhótelin leigi Hótel Hell-
issand næstu fjögur árin frá 1. maí
til 31. september ár hvert. Samn-
ingurinn var undirritaður á skrif-
stofu Flugleiðahótela h.f. 12. þ.m.
Byggingu Hótels Hellissands á
að vera lokið síðari hluta mars á
næsta vetri, þannig að Hótel Edda
tekur við rekstrinum við opnun hót-
elsins. í hótelinu verða 20 tveggja
manna herbergi og mun hótelið
uppfylla þá staðla sem krafist er til
að flokkast sem þriggja stjörnu
hótel.
Grannur hótelbyggingarinnar var
unninn haustið 1999. Nú í sumar
var húsið, sem er tvær hæðir, síðan
byggt úr steypueiningum. Loftorka
hf. í Borgarnesi hefur byggt þessa
verkþætti og skilaði sínum verkum
vel unnum á umsömdum tíma nú í
ágúst. Trésmiðja Pálmars í Grand-
arfirði hefur tekið að sér að full-
klára bygginguna og er áætlað eins
og áður segir að því verki verði lok-
ið síðari hluta mars 2001.
Smiöjuvegi 9 • S. 564 1475
Psion Revo - Kr. 39.900
CD s DC =
P S I 0 N
Skipulag
Dagbók
Verkefni
Tengiliðir
Minnismiðar
Rissblokk
Samband
Internetið
Tölvupóstur
SMS
(hægt að fá WAP)
Skrifstofan
Ritvinnsla
Töflureiknir
Gagnagrunnsforrit
Annað
Reiknivél
Heimsklukka
Símaskrá
Leikur
200gr. handtölvan frá Psion, með íslenskum stöfum á lyklaborði, fullkomna
samræmingu við Windows 95, 98 og NT, Outlook/Exchange, Word, Excel,
Access og dBase.
20 ára þróunarferill liggur að baki þessa meistaraverks... klikk lausn fyrir þig!
Endursöluaðilar:
Hugver
Vitastigur 12
101 Reykjavik
S. 525 07 07
Kaliber
Kringlunni 4-12
103 Reykjavík
S. 535 40 40
Smith &
Norland
Nóatúni 4
105 Reykjavík
S. 520 30 00
Dreifingar- og Endursöluaði:
Klikk - www.klikk.is - postur@klikk.is - Sími 57 57 404 - Fax 57 57 401