Skírnir - 01.01.1892, Qupperneq 25
Frá, öðrum löndum.
2B
sem aldrei kváðust bera vopn með Austurríki gegn Frökknm, ft höndum
bornir. Þeir ætluðu að draga vagn Constantins, en var ekki leyft. Hvar
sem hann sftst i borginni, gullu við ðpin: „lifi Rússland, lifi sambandið við
Rússa!“ Fánar með orðinn „Blsass-Lothringen11 ft voru bornir eptir vagni
hans, og hafði þó lögreglan bannað að bera fána þessa. Þjóðverjum
var ekki um sel, að sjá og heyra þetta á landamærum sínum.
Þá víkur sögunni til Englands. Þar urðu ráðaneytaskipti sumarið
1892.
Salisbury hafði setið að völdum síðan 1886. En miklar breytingar
höfðu orðið i neðri málstofunni. Parnell var dáinn. Forstöðumaður stjórn-
arinnar í neðri málstofunni, W. H. Smith, var dáinn, og Hartington lá-
varður, foringi úníónista (þ. e. þeirra af hinum frjálslynda þingflokk, sem
fylgja apturhaldsmönnum í írska málinu), varð að setjast í efri málstof-
una, þvi hann varð hertogi af Devonsbire, er faðir hans dó. Balfour, Ir-
landsráðgjafi, tók við eptir Smith forustu flokks síns í neðri málstofunni,
og Chamberlain tók við eptir Hartington. Balfour lagði fyrir þing frum-
varp um sveitarstjórn á írlandi, en það mætti ákafri mótspyrnu. Jafnvel
Parnellingar og Andparnellingar (Antiparnellites), sem aldrei kom saman
um neitt, komu sér saman um að ausa hrakyrðum yfir þetta frumvarp,
og kváðu það vera svívirðu fyrir hina írsku þjóð. Umræðurnar voru harð-
ar og langar. Þó var frumv. samþykkt við aðra umræðu í lok maímán-
aðar með 339 atkv. gegn 247. En nokkru síðar, 13. júní, lýsti Balfour
yfir, að hann mundi sleppa fiumvarpinu í þetta sinn, því tíminn á undan
hinum nýju kosningum væri of naumar til að koma því vel í kring.
Annað frumvarp, sem Balfour lagði fyrir þingið, um að gera landsetum
irskum hægra fyrir að gerast sjálfseignarbændur, hafði góðau byr og varð
að lögum.
Þingi var slitið 28. júní og var heldur en ekki gauragangur þann
mánuð utanþings. Merkilegastur allra kjörfunda var binn mikli fundur
í Belfast í Ulster norðan til á írlandi 13. júni. Tuttugu þúsundir Ulster-
búa sóru og sárt við lögðu, að þeir vildu oigi ganga að sjálfsforræði ír-
lands og verða undirlægjur kaþólskra; fyr vildu þeir falla með vopn í
höndum og verjast eins og forfeður þeirra gerðu. Var gerður góður róm-
ur að þessu um allt fylkið.
Nú eru af írum hér um bil 3’/2 miljón kaþólskir og 1 milj. prótestantar.
Borgin Belfast er auðugasta og mannflesta borgin á írlandi og skarar
fram úr sjálfri Dýflinni. Og hvergi á írlandi er eins mikil velmegun og