Alþýðublaðið - 08.01.1960, Blaðsíða 3

Alþýðublaðið - 08.01.1960, Blaðsíða 3
Garðar Guðmundsson. Björn Antoniusson. Vilhjálmur Ásmundsson. Magnús Berentsson. Þessir fórust Jón Björgvin Sveinsson. MENNIRNIB, er fórust með vélbátnum Rafnkeli GK 510, voru allir á bezta aldri og er mikill skaði að fráfalli þeirra. Þeir voru flestir kvæntir og létu eft- ir sig 16 börn. Aðstand- endur hinna látnu sjó- Ólafur Guðmundsson. manna eiga því um sárt að binda. Leitað var mjög ýtarlega að Rafnkeli og áhöfn hans, en sú leit varð árangurslaus, utan hvað nokkurt brak fannst úr bátnum, er benti ótvírætt til, að hann hefði farizt. Hannibalsokinu verður aflétt Ný reglugerð um íbúðalán EMIL JÓNSSON félagsmála ráðherra skýrði Alþýðublaðinu frá því í gær, að hann hefði í undirbúningi ýmsar brc.vting- ar á þeirri reglugerð um úthlut un lána í húsnæðismálastjórn, sem Hannibal Valdimarsson setti í ráðherratíð sinni. Sam- kvæmt reglugerð Hannibals ríkir allt að sextíufaldur mis- munur milli þeirra byggðar- laga, sem mest fá, og hinna sem minnst fá, ef miðað er við þörf, eins og hún kemur fram í um- sóknafjölda. Er ætlunin að létta af þessu Hannibalsoki. Emil skýrði frá þessu ag því tilefni, að ungur framsóknar- þingmaður hefur í Títhanum skorað á hann, Alþýðuflokksráð herranna, að „bæta . . . úr ára l.ngu misrétti, sem húsbyggj- endur víða um land búa við“, án þess að geta þess, að misrétt ið skapaði Hannibal í ráðherra tíð sinni, en grundvöll að þessu kerfi lagði Steingrímur Stein- þórsson, er hann var húnæðis- málaráðherra. MEIRA FJÁR VERÐUR AFLAÐ. Þá skýrði Emil Jónsson einnig frá því, að það 15 milljón króna lán, sem Seðla bankinn hefur veitt húsnæð- ismálastjórn, sé aðeins byrj unin á þeirri fjárútvegun, 7 ogararnir Framhald af 1. síðu. arsson & Co. eiga von á. Hafn arfjarðartogarinn og þessir þrír síðast nefndu togarar eru allir smíðaðir í Bremerhaven. Geta má þess, að lokum, að það var ríkisstjórn Alþýðuflokksins er kom því til leiðar að unnt var að smíða hina nýju togara. sem fyrirhuguð er á þessu ári. Þetta lán á að vísu að greiðast af föstum tekjum húsnæðismálastjórnar, sem eru um 40 milljónir, en ætl- unin er að auka tekjur stofn unarinnar um þessar 15 milljónir og meira til. ÓRÉTTLÁT SKIPTING. Samkvæmt reglugerð Hanni- bals skiptir húsnæðismála- stjórn lánsfé fyrst milli sveitar félaga eingöngu eftir íbúafjölda án tillits til umsóknarfjölda og síðan milli umsækjenda innan hvers sveitarfélags. Það er í skiptingunni milli sveitarfé- laganna, sem mikið óréttlæti ríkir, og hefur fulltrúi Alþýðu flokksins í húsnæðismála- stjórn oft hafið máls á þessu og óskað leiðréttinga. Samkvæmt upplýsingum húsnæðismálastjórnar um á- standið 1. september síðastl. er skiptingin milli sveitarfé- laganna þannjg, og er fjölda EYJABÁTAR TlNAST ÚT Vestmannaeyjum, 7. jan. — FÓLKIÐ er nú tekið að streyma hingað til vertíðar- vinnu, eins og undanfarin ár. Hafa um 80 manns komið með „Herjólfi“ á hverjum degi und- anfarið. Mest af þessu fólki eru sjó- menn á bátana. Fjölgar alltaf bátunum, sem byrjaðir eru að róa. í dag eru tólf bátar á sjó, en fleiri eru senn tilbúnir. Ekki gengur e;ns vel að fá mannskap til starfa í frysti- húsunum enn sem komið er. Er þó ekki ástæða til að ætla, að vandræði skapist af þeim sök- um. í GÆZLUVARÐHALDI. Kaupfélagsstjórinn, Halldór Örn Magnússon, var í gær úr- skurðaður í gæzluvarðhald. Rannsókn á máli hans er þó hvergi nærri lokið, enda mjög. umfangsmikið, en þegar hefur sannazt á hann nálega Vz millj. kr. fjárdráttur úr bæjar- sjóði, eins og áður hefur komið fram í fréttum. — P. Þ. Afkost Fiskiðju- versins tvöfoEd VINNSLUAFKÖST hafa tvö- faldazt í hinu gamla fiskiðju- veri ríkisins, síðan Bæjarútgerð Reykjavíkur keypti það og tók við rekstri þess. Hafa forráða- menn Bæjarútgerðarinnar látið gera ýmsar breytingar og end- urbætur á fiskiðjuverinu, og liafa á annað hundrað manns haft vinnu við fyrirtækið, þeg- ar fiskur hefur verið fyrir hendi. Bæjarútgerðin hefur að sjálfsögðu mikið fiskmagn til vinnslu, þar sem hún er stærsta togaraútgerð landsins, og lögðu skip hennar til dæmis á land 1340 lestir milli jóla og nýárs. Forráðamenn Bæjarútgerðar innar hafa nú ákveðið að fisk- iðjuverið hætti að flytja út af- urðir sínar sjálft, eins og það hefur gert. Telja þeir, eins og þróun 'framleiðslu og markáðs- mála er háttað í heiminum, að slíkur útflutningur eigi heima í öflugum samtökum framleið- enda, en það kerfi vera úrelt, er einstök fyrirtæki með einhæfa framleiðslu fluttu sjálf út vöru sína. Er raunar langur tími lið- inn síðan fslendingar hurfu í aðalatriðum frá því gamla fyr- irkomulagi og hættu að leyfa einstökum íslenzkum fyrirtækj um að keppa — jafnvel hvert Framhald á 16. síðu. Sigga Vigga ,ÍJ'0RÍ>A HVER7 BARN IAUSALeÍKSBARn \ ÍS- LANDl? VíTlEYSa/ ÉGr VAR ANNAÐ BARNVP HENNAR MÖMMU" Alþýðublaðið — 8. janúar 1960 J

x

Alþýðublaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.