Alþýðublaðið - 14.01.1960, Side 5

Alþýðublaðið - 14.01.1960, Side 5
landshasáa fckur við PARÍS, 13. jan. (NTB-Reuter). — Skrifstofa de Gaulle, for- seta, sendi í kvöld út tilkynn- ingu um, aS Antoine Pinay, fjármálaráðherra, hefSi verið leystur frá störfum samkvæmt beiðni Michel Deforé,- forsætis- ráðherra. Wilfréd Baúmgartn- er, foankastjóri franska ríkis- foankans, hefur lýst sig fúsan til að taka við stöðu fjármála- ráðherra. Wilfried Baumgartri- ingunni stafar brottrekstur Pi- nays af afstöðu hans til starfá innan stjófnarinnar. De Gaulle veitti Pinay í dag fulla uiðurkenningu fyrir. þann árangur, sem hann hefði með .stefnu sinni náð. að því er 1æki til að koma á iafnvægi í efna- fcagslífin'u, en í ráðhérratíð Pinays var lagður öruggur grundvöllur að efnahagsþróun og framförum í félagsmálum. Segir ennfremur í tilkynning- unni, að stefnu hans verði fylgt' áfram. Baumgartner, sem er 57 ára gamall, sagði eftir fund með de Gaulle fyrr í dag, að hann hefði fallizt á að láta útnefna sig sem fjármálaráðherra, án þess að vera sérlega glaður yf- ir því. Hins vegar teldi hann það skyidu sína að takast starf- ið á hendur. Hann heldur á- fram störfum við ríkisbank- ann út vikuna. Baumgartner sagði við blaða menn, að hann hyggðist tryggja samhengið í fjármálastefnu þeirri, er Pinay hefði fylgt og bætti því við, að hann hefði fengið hátíðleg loforð um, að honum væri frjálst að gera það. Númerin í Happdræfti S.UJ. f GÆR voru númerin í happdræíti SUJ tekin upp og reyndust þau þessi: 1. vinningur, Öndvegis- sófasett, kom á miða nr. 4424, 2. vinningur, borð- stofuborð og stólar kom á miða nr. 13907, 3. vinn- ingur borðstofuskápur kom á miða nr. 18211, 4. vinningur Rafha-eldavél kom á miða nr. 11993, 5. vinningur, hrærivél kom á miða nr. 2038 og 6. vinn- ingur, ryksuga, kom á miða nr 2799. Eigendur þessara miða eru heðnir að snúa sér íii skrifstofu SUJ, Alþýðuhúsinu við Hverfisgötu. JAPANSKA stjórnin á- kvað fyrir skemmstu að senda Kóreumenn, ér það vildu til Norður-Kóreu og tóku um 5000 því boði. Oiii ákvörðun þessi rriégnrr óánægju and- kommiinistískra Kóreu,- mánna í Japan. Nökkrir þeiri’a lögðust fyrir á járnbrautarteinunum til bæjarins Niigaka, þar sem • Kóreumennirnir vórU sett ir um borð í rússneskt skip. — Hér er japanska lögreglan að flytja þá burtu. Sjllps,' New York, 13. jan. „SETTLED out of Court“, — skáldsaga eftir brezkan lögfræð ing, er notar rithöfundarnafnið Henry Cecil, hefur verið umrit- uð sem leikrit af ameríska leik- ritahöfundinum Wiiliam Saroy- an. Verður frumsýning 1 Lond- on í byrjun marz, en á Broiad- way nokkrum mánuðum síðar. Þá hefur Darryl Zanuck gert samning um að gera kvikmynd eftir leikritinu. Undrandi á Rockefeller WASHINGTON, 13. jan. (NTB- Reuter). — Á blaðamanna- fundi sínum í dag svaraði Eis- enhower þannig einni spurn- ingu, að hann hefði orðlð undr andi, er hann frétti, að Nelson Rockefeller, ríkisstjóri í ,New York, hefði lýst yfir, að hann gæfi ekki kost á sér sem for- setaefni repúblikana. Kvaðst hann ekki sjá, að Nixon vara- forseti ætti nokkurn keppinaut um tilnefningu flokksins. — Ekki vildi hann þó segja ber- um orðum, að hann styddi Nix- on öðrum fremur. -ÞYZK ALDA V-lpýzk hlöð halda jbv/ /n gerir ur BONN og LONDON, 13. jan. (NTB-Reuter). — Vestur- þýzka stjórnin ræddi í dag undir forsæti Adenauers kanzl ara þá nazistísku og and-gyð- inglegu atburði, sem orðið hafa upp á síðkastið í Vestur-Þýzka- landi. Jafnframt gátu menn, bæði f Bonn og London, séð greinileg merki versnandi sam búðar Vestur-Þýzkalands og Bretlands vegna viðbragða Breta gegn hinum ný-nazist- ísku aðgerðum. Talsmaður vestur-þýzku stjórnarinnar upplýsti síðdeg- is í dag, að Gerhard Schröder, innanríkisráðherra, hefði lagt fram skýrslu fyrir ríkisstjórn- ina um hinar ný-nazistísku og and-gyðinglegu aðgerðir í land inu, en h ns vegar hafi ekki verið rætt um hugsanlegt bann þjóðernisflokksiris Þýzki þjóð- arflokkurinn (DRP). Vestur-þýzk blöð birtu í dag langar greinar um hina þýzkfjandsamlegu afstöðu, sem gei’t hefur vart við sig í Bretlandi. Birtu þau á áber- andi stöðum fregnir af við- tali, sem þýzki sendifulltrú- inn Joachim von Riíter, hafði átt við fréttaritara í London. „Þrír vitrir" ertdur- skipuieggi OEEC PARÍS, 13. jan. (NTB-AFP). — Á efnahagsráðstefnunni í Par- ís náðist í dag samkomulag um, að spurningin um endur- skipulagningu OEEC (Efna- hagssamvinnustofnunar Evr- ópu) skuli fengin í hendur nefnd ;,þriggja, vitra manna“. I nefndinni skulu eiga sæti Bandaríkjamaður, einn full- trúi fyrir sameiginlegu mark- aðslöndin og einn fyrir fríverzl unarsambandið. Skulu þessir þrír gefa nefnd háttsettra em- bættismanna frá löndunum 18 í OEEC, apk USA og Kanada, fyrirmæli. Þótt tvö síðast- nefndu löndin hafi aðeins á- heyrnarfulltrúa í OEEC, verð- ur litið á þau sem fullgilda meðlimi. Samband sameiginlega markaðsins og fríverzlunar- sambandsins verður tekið fyrir á reglulegum fundum þeirra 13 landa, sem sitja núverandi fund. „Verkfall" á kaup S-ahfskra vara LONDON, 13. jan. — Morgan Phillips, framkvæmdastjóri brezlta Verkamannaflokksins, skoraði í dag á alla meðlimi flokksins, sem eru níu milljón- ir, að kauna , engar Suður-Af- rískar vörur í marz-mánuði. Kvað hann flokkinn með þessu vilia sýna stjóm Suður- Afríku að Bretar teldu stefnu stjórnarinnar í kynþáttamál- um, Aparheit, cngu geðslegri en Gyðingahatur. Bretar flytja inn frá Suður- Afríku vörur fyrir 373 milljón ir dollara á ári, aðallega hrá- efni. Kvaðst Phill p áætla að innflutningurinn myndi ' minnka um sex milljónir, ef i vel tækist. Halda blöðin því fram, að menn neiti að kaupa þýzliar vörur í London og þýzkum starfsmönnum brezkra fyrir- tækja hafi verið sagt upp. Þá segir eitt blaðið, að Þjóðverj- ar verði fyrir móðgunum á götum í brezkum bæjum. Frankfurter Abendpost hef- ur það eftir Ritter, að stjórnin! hafi algjörlega ranga hugmynd um hve sterkt hið and-þýzka andrúmsloft sé í Bretlandi .og geri tilraun til að gera lítið úr því. Hins vegar sagði talsmað- ur Bonnstjórnarinnar í kvöld, að ummæli Ritters hefðu verift misskil'n. Fyrrgreint blaff hafði það eftir Ritter, að ham* fengi alls konar hótanabréf og hann harmaði, að fréttaritar- arnir hefðu ekki lagt meiri á- herzlu á hið and-þýzka and- rúmsloft í Bretlandi. Sjaldgæf ævisaga Shakespeares NEW HA'VEN, 13. jan. — Sjaldgæf bók um líf Williama Shakespeares, er gefin var út í London 1743 hefur verið gef- in Elísabetar-klúbbnum í Yale- háskóla af safnaranuín James- Osborn. Bók þessi er stolin eft ir verki Alexanders Popes, er aftur var bvggð á fyrstu æyi- sögu Shakespeares, er gefin vaaf út af Nicolas Rowe 1709. Vit- að er um aðeins eitt annað ein- tak af bók þessari og er :það ♦ hinu fræga Shakespeare-safnl 1 í Birmingham. Alþýðublaðið — 14. jan. 1960

x

Alþýðublaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Alþýðublaðið
https://timarit.is/publication/2

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.