Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1867, Page 13

Kristileg smárit handa Íslendingum - 04.01.1867, Page 13
13 Skólameistarinn var forviða, og áður en liann gat svarað einu orði, var ókunnugi maðurinn horfinn. Ilann hafði ekkert, nema þessi leyndardómsfullu orð; en hann hristi höfuðið og gat ekki skilið þau; en, eins og hygg- inn maður, gleymdi hann þeim bráðum, og fór að búa sig undir aptansönginn. Þegar honum var lokið, heim- sótti hann, eins og hann var vanur, þá sem fátækir voru í söfnuðinum, eða veikir. Undir kveld kom hann heim aptur, og var þá þreyttur, en ánægðurmjög, baðst fyrir i lierbergi sínu og þakkaði Guöi almáttugum. llann gleymdi ekki lieldur í bænum sínum hinum ó- kunnuga manni, og lagðist síðan fyrir til að sofasvefni hins réttláta, sem tekur hvíld fyrir sálu sína á faðmi Guðs. Nú leið rúm vika; það var búið að gjöra að skón- um, nema einni sprungu, sem ekki varð við ráðið, og gömlu sokkarnir höfðu sézt aptur í kirkjunni (eg er ekki viss um að sóknarfólkinu hefði geðjast eins vel að öðrum nýjum), og þrösturinn var að syngja sinn vana- lega söng, áður en kennslutímarnir byrjuðuí skólanum. En allt i einu lieyrðist hestatraðk, og pósturinn kom ríðandi að giugganum, rétti inn um hann stórt bréf, og sagði: "I'að þarf ekkert að borga». Að svo mæltu reið hann burtu i skyndi, áður en þorpsbúar gætu skilið í, hvernig á þessu stæði, þó þeir hefðu verið ipanna fúsastir 4 að halda, að konungurinn skrifaðist á við skólakennarann þeirra. Friedefeld skoðaði bréfið í krók og kring, og seinast utansákripitina, en hún var þessi: »Lebrecht Friedefeld, fyrrum skólakennari í Bernsdorf». í'annig var auðséð að maðurinn var sá hinn sami. En þelta »fyrrum» — hann snéri bréfinu

x

Kristileg smárit handa Íslendingum

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Kristileg smárit handa Íslendingum
https://timarit.is/publication/89

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.