Árbók Hins íslenzka fornleifafélags - 01.01.1887, Qupperneq 6
6
enginn efi á því, að mikill hluti brennanlegu efnanna sje organisk
efni; þau innihalda nefnilega kolefni, og sviðna í eldi; auk þess er
í þeim mjög mikið af köfnunarefni. Allt köfnunarefnið í hvíta
efninu í krukkunum nr. 1., 2 og 3 hlýtur að vera í organiskum
samböndum, því að þegar dálítið af efninu í hverri krukku fyrir
sig var soðið i upplausn af barythydrati, eða i nokkurn veginn
sterkri upplausn af natronhydrati varð ekki sjeð að ammóníak kæmi
fram. f>egar farið var eins með dálítið úr krukkunni nr. 4, mynd-
aðist aptur á móti nokkuð ammóníak. Salpjetursýra var ekki í
neinu stykkinu. f>egar hellt var þynntri salpjetursýru eða saltsýru
á hvíta efnið, og það var látið standa um hríð í stofuhita, uppleystist
hvíta efnið að mestu leyti í öllum stykkjunum, en í engu algjörlega.
f>essi afgangur hjekk allur saman og var seigur, nokkuð teygjan-
legur (elastisk) og líkur hlaupi og hafði farið saman við hann
sandur og annað þess konar úr öskunni, sem hvita efnið lá í, og
þar á meðal mikið af fallega löguðum diatómeum. Mjer tókst að
ná dálitlu stykki af þessu efni úr molunum í krukkunum nr. 1, 2
og 3 að mestu leyti hreinu; þegar jeg skoðaði það í stækkunar-
gleri. sá jeg að það var likt að allri gerð hvíta efninu, sem það
var tekið úr. J>að var holótt, og holurnar eins að lögun og stærð
og í hvíta efninu. Myndin 6 á spjaldinu II sýnir ljósmynd af
þessu efni úr stykkinu i krukkunni nr. 1. Myndin er stækkuð 20
sinnum. Áður en jeg tók myndina litaði jeg efnið með joði, til
þess að myndin yrði skírari, Holurnar sjást greinilega eins og
stærri og minni hvítir blettir, og eru þeir þá mynd af nokkrum af
minni holunum í hvíta efninu sem þetta var tekið úr.
f>etta samloðandi efni var organiskt, sviðnaði í miklum hita
og lagði þá af því alkaliska gutu. f>egar askan var ekki með
talin, var í því rúmlega 10°/0 af köfnunarefni. f>egar jeg ljet það
standa á þurrum stað og þorna, dró það sig mjög saman og varð
hart eins og horn, í vatni þrútnaði það aptur og varð mjúkt og
teygjanlegt eins og fyr. í stækkunargleri mátti sjá í því mikið af
brúnum, liðuðum sveppþrdðum úr einni tegund af kjarnasveppum
(Pyrenomycetum)j þeir voru hingað og þangað um allt efnið, en
þó mest i nánd við holurnar, að því er hægt var að sjá, Svepp-
irnir voru fyrir löngu undir lok liðnir, en þræðirnir voru vottur um
líf, sem hjer hafði átt sjer stað fyrir löngu síðan. Myndin 7 á
spjaldinu II sýnir Ijósmynd af þessu organiska efni ólituðu, þrjá-
tíu og fimm sinnum stækkað ; þar sem myndin er dökk, má sjá
nokkurn veginn greinilega fín svört strik; það eru myndir af
sveppþráðunum ; ef vel er að gætt, sjást þessi svörtu strik al-
1) B. Rostrup, kennari við búnaðarháskólann danska, hefir sýnt mjer
þá velvild, að rannsaka sveppina í hvíta efninu.