Alþýðublaðið - 15.03.1960, Side 3
\
Snorri Sturluson
væntanlegur á
Genfar i
m
mánudag
Á SÍÐASTLIÐNU ÁRI keyptu
Loftleiðir tvær Cloudmaster-
flugvélar af bandaríska flugfé-
laginu Pan American. Fyrri
fíugvélin „Leifur Eiríksson“ var
afhent Loftleiðum í Miami
Beach hinn 7. desember s.l., og
kom hún fyrst til Reykjavíkur
skömmu fyrir jól.
Síðari flugvélin, sem nefnd
hefur verið „Snorri Sturluson“,
var afhent Loftleiðum í Miami
sl. miðvikudag, 9. þ.m. Krist-
ján Guðlaugsson, formaður
stjórnar Loftleiða, og Alfreð
Elíasson tóku á móti flugvél-
inni fyrir hönd Loftleiða.
Farið var í reynsluflug á mið
vikudagsmorgun með vélina.
Flogið var í rúman klukkutíma
yfir Floridaskaga og voru þá
reynd hin. margvíslegu örygg-
dag:
istæki flugvélarinnar. Eftir að
væntanlegir kaupendur höfðu
fúllvissað sig um að flugvélin
var í hinu bezta ásigkomulagi
var haldið aftur til flugvallar-
ins, en þar fór afhendingin
fram.
Hin nýja vél, „Snorri“, sem
fengið hefur einkennisstafina
TF—LLB, er að öllu leyti sömu
gerðar og „Leifur“. En nýja
vélin hefur verið máluð með
öðrum hætti en fyrri vélar Loft
leiða.
Níu flugliðar Loftleiða hafa
að undanförnu verið í Miami
við þjálfun á hinum nýju Cloud
master-flugvélum, og er Jóhann
es Markússon fyrirliði þeirra.
Nýja Cloudmaster-flugvélin,
.,Snorri“, er væntanleg til ís-
lands n.k. mánudag frá Banda-
ríkjunum og verður Jóhannes
Markússon flugstjóri. Báðar
nýju vélarnar munu hef ja reglu
bundið flug í áætlunarferðum
Loftleiða um næstu mánaða-
mót.
LANDHELGI
Framhald af 1. síðu.
Brezku herskipin við ísland,
sem haldið hafa opnum „vernd-
arsvæðum“ fyrir hina brezku
togara, enduðu veru sína við
íslandsstrendur með því, að
reka þá út fyrir 12 mílna mörk-
in og tilkynna þeim, að þeir
mættu ekki veiða þar fyrir inn-
an.
Hér fer á eftir tilkynning frá
íslenzku landhelgisgæzlunni,
sem segir sögu síðasta dags tog-
aranna fyrir innan 12 mílna
mörkin:
,,Nú um helgina fluttu brezku
herskipin bæði verndarsvæði
sín, annað frá Snæfellsnesi að
Eldey, og hitt frá Selvogsgrunni
að Ingólfshöfða.
Vestur af Eldey voru í morg-
un 9 brezkir togarar að ólögleg-
um veiðum og gætti þeirra her-
skipið UNDINE, F.141. Þar var
og varðskipið ÞÓR, skiþherra
Þórarinn Björnsson, Kl. 15.30 í
dag tilkynnti herskipið togur-
unum, að nú yrði svæðinu lok-
að, og þei'r yrðu allir að fara út
fyrir 12 sjómílna mörkin. Hélt
þá allur hópurinn til hafs.
Við Ingólfshöfða voru í morg
un 8 brezkir togarar a'ð ólögleg-
um1 veiðum undir vernd her-
skipsi’ns PALADIN, F—165, og
var þar ágætt fiskirí, allt að 6
pokar í hali. Þar Var og varð-
skipið ÆGIR, skipherra Jón
Jónsson. Var herskipið búi'ð að
tilkynna togurunum að svæðinu
yrði lokað kl. 22.00 í kvöld og
þeir yrðu allir að vera komnir
út fyrir mörki'n á miðnætti. Kl.
18.00 í kvöld voru þó aðeins 3
togarar þar enn að veiðum, —
hini'r 1 hættir vegna veðurs.“
ÞAÐ varð ekkert úr verk-
fallinu í Eyjum. Lífið mun
ganga sinn vanagang í
stærstu verstöð landsins.
Þeir eru að fást við netin
þessir. (Ljósm-: Steinar
Jóhannsson.)
LJtanríkisráÖherrann fer til
AUMMMMMMMtWMMWMW
SAMKOMU-
LAG í EYJUM
Framhald af 1. síðu,
Féllust báðir deiluaðilar á
miðlunartillögu, þar sem gert er
ráðfyrir óbreyttu fiskverði, en
kjör háseta og vélstjóra yrðu
samræmd því, sem gildir við
Faxaflóa.
Fá því hásetar og vélstjórar
kr. 3.60 í hækkun fyrir hvert
tonn &'f fiski, sem' veiðist á neta
vertíðinni.
Nær þessi hækkun til 7—8
manna' á bát og gengur jafnt yf-
ir alla. Munu launagreiðslur
hvers báts hækka um 15—20
þús. kr. yfir vertíði'na af þessum
sökum.
Þykir mönnum þetta vera ný
viðurkenning af ihálfu forustu-
manna Sjómannafélagsins Jöt-
uns á því, að kíör sjómanna hafi
verið betri við Faxaflóa en bau,
sem um hafði' verið samið af
þessu „forustufélagi sjómanna“,
eins og Hannibal komst svo
spaklega að orði ekki alls fyrir
löngu!
Brjóstmynd
afhjúpuö
Á SUNNUDAG var a'fhjúpuð
í Hafnarfirði á Thorsplani'nu
fyrir sunnan Ráðhúsið brjóst-
myndin af Þórði Edilonssyni
lækni’, er Alþýðublaðið skýrði
frá sl. sunnudag. Dótturdóttir
Þórðar heitins, Helga1 Gröndal,
afhjúpaði myndina. Ingólfur
Flygenring flutti ávarp og Stef-
án Gunnlaugsson flutti ræðu af
hálfu bæjari'ns og veitti mynd-
inni viðtöku og þakk&'ði gjöfina.
Einnig töluðu við þetta tæki'-
færi dr. Kristinn Stefánsson af
hálfu Læknafélags ísl. og Bene-
dikt Þ. Gröndal forstjóri, sónur
Þórðar heitins'. Lúðrasveit Hiafn
arfjarðar lék undir stjórn Al-
berts Klahn. Sigurgeir Guð-
mundsson skólastjóri’ stýrði at-
höfninni.
í fjáröflunarnefnd þeirri, er
sa'fnaði fé fyrir myndina, áttu
þessa'r konur sæti: Björg Guðna
dótti'r, Ingveldur Gísladóttir,
Kristjana Hannesdóttir, Soffía
Sigurðardóttir og Si'gríður Snæ
land'.
ÍSLENZKA sendinefndin á
landhelgisráðstefnunni í Genf
mun leggja sig alla fram til að
fá samlþykktar alþjóðareglur, er
tryggja fslendingum fiskveiði-
landhelgi sína, sagði Guðmund-
ur í . Guðmundsson utanríkis-
ráðherria í viðtali við Alþýðu-
blaðið í gær. RáSherrann ætlaði
utan í dag, en ráðstéfnan hefst
næstkomandi fimmtudag.
Utanríkisráðherra' kvaðst von
góður um góðan árangur á ráð-
stefnunni. Vitað væri’, að kana-
diska tillag&n um 12 málna
fiskveiðimörk hafi meiri' stuðn-
ing en á síðustu ráðstefnu 1958.
Hins vegar sé þess að gæta, að
til samþykktar iþarf tvo þriðju
atkvæða, og margt er í óvi'ssu
um ráðstefnuna.
Tveir fulltrúar íslands, Hans
G. Andersen og Da'víð Ólafsson,
eru þegar farnir til Genf. Her-
mann Jónasson mun hafa farið
í dag, en hinir fara' næstu daga.
Þó mun Lúðvík Jósefsson ekki
fara fyrr en eftir næstu helgi.
Voni'r standa til að ráðsxefn-
an ljúki störfum fyrir páska.
VONIR standa til, að
togarinn Norðlendingur
geti haldið heimleiðis í
dag frá Færeyjum. Var í
gær unnið að því, að rík-
issjóður greiddi viðgerð-
arkostnaðinn í Færeyjum
Þrjú jafntefli á Sauðárkróki
Fregn til Alþýðublaðsins
SAUÐÁRKRÓKI í gær.
ATKVÆÐAGREIÐSLA um
stjórn í Verkalýðsfélaginu
Fram hefur nú farið fram
þrisvar sinnum í rö'ð án þess,
að úrslit hafi fengizt.
Tveir listar eru í kjöri við
stjórnarkjörið. Annar var
lagður fram af uppstillinga-
nefnd, en hinn af Óla Adne-
gaard o.fl. Kosið var í fyrsta
sinn á fundi og urðu þá úr-
slit þau, að hvor listi um sig
fekk 24 atkv., en 2 seðlar voru
auðir. Næst var efnt til alls-
herjaratkvæðagreiðslu. Urðu
þá úrslit þau, að hvor listi um
sig fékk 52 atkvæði. Var nú
efnt til allsherjaratkvæða-
greiðslu öðru sinni og féllu at-
kvæði enn jöfn eða 69:69.
Tveir seðlar voru auðir. —
Stjórn félagsins kemur saman
í kvöld til þess að athuga hvað
nú skuli til bragðs taka. Þykir
það ekki einleikið, hversu erf-
itt ætlar að reynast, að fá
fram úrslit í félaginu.
Alþýðublaðið — 15. marz 1959 J