Fréttablaðið - 11.05.2001, Qupperneq 6
6
FRÉTTABLAÐIÐ
11. maí 2001 FÖSTMDACUR
Sony hristir upp
í bankamálum:
„Banki,
ekki pen-
ingakassi“
viðskipti- Japanska stórfyrirtækið
Sony hyggst breyta viðhorfi Japana
til peningastofnana með nýja net-
bankanum sínum. Heildarsparifé
japanskra einstaklinga og fyrirtækja
er með því mesta í heiminum, Í1
trilljón dollarar, en ávöxtun sparifés-
ins er samt almennt ekki ofarlega í
hugum þarlendra. Þannig eru algeng-
ir reikningsvextir banka í landinu að-
eins um 0,02 prósent. „Japanir hafa í
Dómsúrskurður
í New York:
Ovænt glasa-
frjóvgun
barneignir. Mistök á glasafrjóvgunar-
stofu urðu þess valdandi að banda-
rísk kona, Donna Fasano, eignaðist
tvö börn, eitt frá henni sjálfri og ann-
að frá konu sem heimsótt hafði stof-
una sama dag. Fasano hefur nú tapað
dómsmáli þar sem hún fór fram á
heimsóknarrétt vegna „slysabarns-
ins“ sem tekið var af henni við fæð-
ingu. Ekki var erfitt fyrir lækna að
sjá hvort barnið skyldi tekið af Fasa-
no þegar hún fæddi árið 1999 því ann-
að barnið er hvítt, eins og hún sjálf,
en hitt er svart. Ekki er vitað til þess
að mál þessarrar tegundar hafi kom-
ið upp áður, en rétturinn byggði
ákvörðun sína á reglum sem gilda um
það þegar börn lenda fyrir mistök hjá
röngum foreldrum á fæðingardeild.
Þegar foreldrar skiptast aftur á börn-
um í slíkum tilvikum fá þeir ekki
heimsóknarrétt vegna barnsins sem
þau verða að sjá á eftir. ■
—4..—
Krónan sígur:
Dollar í 98,4 kr.
gjalpmiðill Gengi krónunnar seig um
0,66% á gjaldeyrismarkaði í gær.
Veikingin varð einna mest gagnvart
dollar, en verð hans hækkaði úr 97,2
krónum í 98,4 krónur. ■
Iinnlent]
Vel á annað hundrað nemendur úr
Fjölbrautarskóla Suðurnesja á
um 70 bílum þeyttu bílflautur og óku
í fylkingu um Reykjanesbæ fyrir há-
degi í gær. Á fréttavef Víkurfrétta
kom fram að nemendurnir hafi verið
að mótmæla of fáum bílastæðum við
skólann. Einnig mótmæltu nemend-
ur sektarboðum lögreglunnar en lög-
reglan í Keflavík hefur verið „dug-
leg“ að mati nemenda að sekta ólög-
lega lagðar bifreiðar. Farið var með
mótmælabréf að lögreglustöðinni, til
sýslumanns og til fundar við bæjar-
stjórann í Reykjanesbæ.
SONY Á NÝJUM VETTVANGI
Forseti netbankans, Shigero Ishii, kynnir slag-
orð fyrirtækisins, „gerðu það á þinn hátt."
gegnum tíðina litið á banka sem pen-
ingakassa en við ætlum að kynna fyr-
ir þeim þann ávinning sem af banka-
stofnunum má hafa,“ segir Shigero
Ishii forseti nýja Sony-bankans.
Það sem Sony telur sig hafa fram
yfir keppinauta sína er þekking og
reynsla af markhópnum, sem er
yngra tölvusinnað fólk. Bankinn opn-
ar 18. júní og ætlar að bjóða upp á
0,05 prósent vexti. ■
Two Tricky
í Kaupmannanöfn:
íbúð
með Alice
Cooper
eurovision. Á morgun rennur Eurovi-
sondagurinn upp og er Two Tricky
hópurinn í óða önn að undirbúa sig
undir að stíga á sviðið í Parken.
í gærmorgun gáfu krakkarnir sér
samt tíma til að skreppa í búðir á
Strikinu og rákust þá á rokkarann
mikla, Alice Cooper. Hann spjallaði
við Two Tricky hópinn og í Ijós kom
Á NOTALEGU SPJALLI
Hér eru þau Nanna Jónsdóttir og í hvarfi við hana Kristján Gíslason, Yesmine Olson og
Gunnar Olafsson á tali við Alice Cooper.
að hann virtist vita þó nokkuð um hvort Alice Cooper ætlar í Parken á
land og þjóð. Ekki fylgdi sögunni morgun. ■
ÞAÐ ER ÓVISSA Á FASTEIGNAMARKAÐINUM
Fasteignasalar héldu að markaðurinn væri að ná jafnvægi en nú líst þeim ekki á blikuna.
Kreppa á fasteignamarkaði
Ibúðalánum snarfækkar og tekur marga mánuði að selja dýr einbýlishús sem eru fyrir vikið að lækka í verði.
FASTEIGNAMARKAÐUR Eftirspum eftir
húsnæði hefur farið hraðminnkandi
eftir því sem liðið hefur á árið. Sam-
þykktum lánum íbúðalánasjóðs
fækkaði um tæp 29% í apríl miðað
við apríl í fyrra en lánunum hefur
fækkað um rúm 11% ef miðað er við
fyrstu fjóra mánuði ársins.
Guðrún Árnadóttir, formaður Fé-
lags fasteignasala, segir samdráttar-
tölur íbúðalánasjóðs ekki koma sér á
óvart.
„Viðskiptin hafa verið að dragast
saman í nokkra mánuði. Fyrst töldu
menn að markaðurinn væri að kom-
ast í jafnvægi en núna er framboðið
að aukast jafnt og þétt,“ segir hún.
Guðrún segir að misjafnt sé af
hvaða ástæðum fólk sé að selja núna.
„Sumir eru of skuldsettir því vextir
eru orðnir gríðarlega háir og
greiðslubyrði margra er orðin meiri
en þeir telja ráðlegt að búa við. Þá
hefur gengisfall krónunnar komið
við fjárhag margra. En aðrir eru ein-
faldlega að minnka við sig en sífellt
fleiri vilja ekki búa í stærra húsnæði
en þeir nauðsynlega þurfa og ráða
fjárhagslega vel við,“ segir hún.
Að sögn Guðrúnar tekur æ lengri
tíma að selja fasteignir og á það sér-
staklega við um dýrari einbýlishús
sem taki nokkra mánuði að selja, en
þessi hús voru að seljast nánast sam-
stundis þegar best lét.
Verði stærra eigna er því farið að
lækka en Guðrún segir eignir sem lít-
ið framboð er af, eins og íbúðir í vest-
urbænum og miðbænum, haldi enn
verði sínu. Þá segir hún að mikil
deyfð hafi verið í sölu atvinnuhús-
næðis og skýrir það fyrst og fremst
með háum vöxtum sem fæli fjárfesta
frá.
„Það er ekki hægt að segja að ör-
vænting hafi gripið um sig en hópur
þeirra sem er of skuldsettur stækk-
ar stöðugt. En ég er ekki svartsýn
vegna þess að eftirspurnin er til
staðar ef vextir breytast. Sérstak-
lega má minna á að hámarkslán
íbúðalánsjóðs duga ekki fyrir meiru
en tveggja herbergja íbúð enda er
skortur á þeim núna,“ segir Guðrún
Árnadóttir.
gar@frettabladid.is
Dönsk olíufélög:
Ekkert verðsamráð
Hafnarfjörður:
Hlíf boðar til verkfalls
samkeppni Forráðamenn dönsku olíu-
félaganna eru ævareiðir vegna ásak-
ana dönsku Samkeppnisstofnunar-
innar að þau hafi haft samráð um
verð sl. sumar þegar þau lækkuðu öll
verð á olíu á sama tíma. Samkeppnis-
stofnunin hefur lengi haft grun um
að samráð væri að milli fyrirtækj-
anna og hefur nú hafið rannsókn á
lækkuninni síðasta sumar að því er
danska dagblaðið Berlingske
Tidende greinir frá í gær.
Að sögn dagblaðsins vaknaði
grunurinn eftir að það greindi frá því
að olíufélögin hefðu sent út samhljóð-
andi bréf til viðskiptavina sinna með
fárra daga miilibili þar sem greint
var frá fyrirhugaðri lækkun. For-
stjóri Shell, Lars Clausen, vísar ásök-
unum algerlega á bug. Hann segir
einnig skrítið að Samkeppnisstofnun
hafi ekki rannsakað bókhaid fyrir-
tækjanna. Forstjóri Q8, Steffen
Pedresen, segir blaðamenn Berl-
SAMSÆRI?
Grunur um verðsamráð er algerlega órökstuddur segja forstjórar
ingske hafa verið á algerum villigöt-
um þegar þeir hófu að segja frá mál-
inu. Það var einmitt Q8 sem urðu
fyrstir til að lækka verð sl. sumar en
hin fyrirtækin fylgdu í kjölfarið
sama dag. Talsmenn þeirra segja
lækkunina hafa verið eðlileg við-
brögð samkeppnisaðila. ■
verkalýðsmál Verkalýðsfélagið Hlíf í
Hafnarfirði hefur boðað til verk-
falls á miðnætti n.k. sunnudags-
kvöld vegna ófaglærðs starfsfólks
sem vinnur hjá bænum.
Verkfallið nær m.a. til tæplega
400 manns, aðaliega kvenna, sem
vinna á leikskólum, gæsluvöllum,
heimaþjónustu og ræstingu hjá
stofnunum bæjarins. Ástæða verk-
fallsins er sú að félagsmenn felldu í
annað sinn nýgerðan samning fé-
lagsins við Launanefnd sveitarfé-
lagsins með miklum meirihluta.
Sigurður T. Sigurðsson formaður
Hlífar segir að helsta ástæðan fyrir
því að samningurinn hefði verið
felldur séu sífelldar verðhækkanir
á flestum hlutum og þjónustu. Af
þeim sökum vill fólk fá meiri launa-
hækkanir en kveðið var á í samn-
ingnum. Þær námu 12-21% í upp-
hafi og síðan 3% launahækkun ár-
lega á samningstímanum fram á
haust 2005. Búist er við að boðað
verði til nýs sáttafundar innan tíðar
SIGURÐUR T. SIGURÐSSON
FORMAÐUR HLÍFAR:
Fólk vill fá meiri launahækkanir vegna
sífelldra verðhækkana
þar sem reynt verður að afstýra
verkfallinu. Komi það til fram-
kvæmda mun það hafa töluverð
áhrif í Hafnarfirði. ■